Síða 3 af 4

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 08. Apr 2022 15:07
af Daz
Mossi__ skrifaði:20.000 ISK eykur verðgildi Solid Clouds a markaði um 0.84% !?!
Er ég eitthvað ekki að skilja eða er þetta ekki bara einhver brandari?

Eykur ekki verðgildi fyrirtækisins í neinum raunverulegum skilningi. En það er örugglega almennt fín nálgun að miða svona opna verðhugmynd við síðustu sölu á hlutabréfum.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 08. Apr 2022 15:29
af russi
Mossi__ skrifaði:20.000 ISK eykur verðgildi Solid Clouds a markaði um 0.84% !?!
Er ég eitthvað ekki að skilja eða er þetta ekki bara einhver brandari?

Gjörsamlega steikt að einhver nenni að standa í því að kaupa eða selja bréf fyrir svona upphæð, kostnaðurinn er svo hár.
En gengið á þessum bréfum er enn að sveiflast en virðist alltaf rétta sig af í áttina að 11.x

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 08. Apr 2022 15:55
af KaldiBoi
russi skrifaði:
Mossi__ skrifaði:20.000 ISK eykur verðgildi Solid Clouds a markaði um 0.84% !?!
Er ég eitthvað ekki að skilja eða er þetta ekki bara einhver brandari?

Gjörsamlega steikt að einhver nenni að standa í því að kaupa eða selja bréf fyrir svona upphæð, kostnaðurinn er svo hár.
En gengið á þessum bréfum er enn að sveiflast en virðist alltaf rétta sig af í áttina að 11.x

Einhverstaðar verða menn að byrja =D>

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 08. Apr 2022 16:27
af Bengal
Held að allir sem fjárfestu í Solid hafi gert sér grein fyrir að þetta sé 5-10 ára TP dæmi.

Amk er ég þar.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 18. Maí 2022 13:32
af Mossi__
-43.3% niðursveifla í dag.. ennsemkomiðer.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 18. Maí 2022 14:57
af GuðjónR
Mossi__ skrifaði:-43.3% niðursveifla í dag.. ennsemkomiðer.

Og það í einungis 861 þúsund króna viðskiptum.
Ætli einhver innherjinn sé að flýja sökkvandi skip?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 18. Maí 2022 16:18
af Mossi__
Getur skip sem aldrei flaut sokkið?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 25. Maí 2022 19:47
af dadik
Enn versnar ástandið! Gengið komið niður í 8.70. Lækkar um 12,12% í dag í 100.000kr veltu.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Þri 28. Jún 2022 15:29
af dadik

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Lau 26. Nóv 2022 14:53
af dadik
Investor day hjá Solid Clouds 1.des!

Hverjir ætla að mæta?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fim 13. Apr 2023 14:12
af dadik
Aðalfundur 28. Apríl - allt að gerast!

https://mfn.se/a/solid-clouds/adalfundur-28-april-2023

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fim 13. Apr 2023 15:13
af GuðjónR
dadik skrifaði:Aðalfundur 28. Apríl - allt að gerast!

https://mfn.se/a/solid-clouds/adalfundur-28-april-2023

Vonandi færðu arð :happy

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fim 13. Apr 2023 17:07
af Sinnumtveir
GuðjónR skrifaði:
dadik skrifaði:Aðalfundur 28. Apríl - allt að gerast!

https://mfn.se/a/solid-clouds/adalfundur-28-april-2023

Vonandi færðu arð :happy

Það verður klárlega ekkert þvíumlíkt á næstunni. Þvert á móti giska ég að félagið fari í frekara útboð hluta því ég fæ ekki betur séð en félagið þurfi pening mjög fljótlega. Nú er Starborne Frontiers kominn í "soft" dreifingu og ef leikurinn er góður getur þetta kannski gengið eftir allt saman.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fim 13. Apr 2023 22:54
af Nariur
Leikurinn er náttúrulega peningaplokksmaskína svo hann er ekki góður, en það er góður séns á að hann skili fínum tekjum.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 14. Apr 2023 00:28
af Sinnumtveir
Nariur skrifaði:Leikurinn er náttúrulega peningaplokksmaskína svo hann er ekki góður, en það er góður séns á að hann skili fínum tekjum.

Tja, leikurinn er kannski "free-to-play" með plokki en ef hann er góður, "so what"? Leikur fyrir *boxin og Switch er komið í $70 ~= 10K ISK + vsk = 13K ISK. Það þarf ansi kröftugt plokk til nálgast það. Ef leikur/leikir Solid Clouds eru nógu góðir er bara ekkert að smá plokki.

Á play store eru lofsamleg ummæli um mjúkdreifingarútgáfuna af Starborne Frontiers með haug af fyrirvörum um "bögga" sem virðist enginn skortur á.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 14. Apr 2023 09:03
af Nariur
Sinnumtveir skrifaði:

Það er nú nr. 1 fáránlegt að bera mobile skinnerbox saman við AAA leik sem actually ber verðmiðann. En helsti vandinn við þessa leiki er að þeir eru ekki hannaðir til að vera skemmtilegir. Þeir eru hannaðir til að ráðast á fólk sálfræðilega til að hafa af því peninga.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 17. Nóv 2023 08:25
af Black
Þessi er góður, ætlar að selja hlutabréfinn á jólabasar í skólanum :)

https://www.dv.is/frettir/2023/11/16/hi ... nnskolans/

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 17. Nóv 2023 08:46
af GullMoli
Black skrifaði:Þessi er góður, ætlar að selja hlutabréfinn á jólabasar í skólanum :)

https://www.dv.is/frettir/2023/11/16/hi ... nnskolans/

Haha mjög flottur þessi.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 17. Nóv 2023 08:56
af Mossi__
Drengurinn þarf bara að læra að HODLa.

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 07. Feb 2024 11:11
af GullMoli
https://vb.is/frettir/solid-clouds-saek ... il-utbods/

Úff, frá 12.5 kr árið 2021 yfir í 2 kr 2024. Kannski tækifæri til að kaupa á lágu verði :o

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 07. Feb 2024 11:43
af dadik
Buy the dip maður

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 07. Feb 2024 18:54
af Nariur
GullMoli skrifaði:https://vb.is/frettir/solid-clouds-saekir-220-milljonir-og-efnir-til-utbods/

Úff, frá 12.5 kr árið 2021 yfir í 2 kr 2024. Kannski tækifæri til að kaupa á lágu verði :o

Heldurðu í alvöru að það sé einhver séns á að þetta fari upp?

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Mið 07. Feb 2024 19:00
af CendenZ
Nariur skrifaði:
GullMoli skrifaði:https://vb.is/frettir/solid-clouds-saekir-220-milljonir-og-efnir-til-utbods/

Úff, frá 12.5 kr árið 2021 yfir í 2 kr 2024. Kannski tækifæri til að kaupa á lágu verði :o

Heldurðu í alvöru að það sé einhver séns á að þetta fari upp?

Sénsinn er að þetta fari á flug í asíu, þeir eru öflugir í svona leikjum

Vandamálið er auðvitað að í löndum þar sem fólk á ekki rassgat er það heldur ekki að fara spreða í leikinn

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 09. Feb 2024 17:31
af netkaffi
Dúlli skrifaði:Skil ekki alveg seinni part á setningunni hjá þér :O
ef þú átt við orðið fýr https://islenskordabok.arnastofnun.is/ord/14495

Re: Solid Clouds fer á markað

Sent: Fös 09. Feb 2024 20:46
af Nariur
netkaffi skrifaði:
Dúlli skrifaði:Skil ekki alveg seinni part á setningunni hjá þér :O
ef þú átt við orðið fýr https://islenskordabok.arnastofnun.is/ord/14495

(Þetta comment er frá 2021.)