Síða 1 af 1

Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 10:44
af blitz
Skemmtilegt viðtal við Freddy og GarFielD sem fór vafalaust framhjá einhverjum um helgina.

https://www.mbl.is/sport/esport/2021/06 ... _af_folki/

Gaman að sjá þessar myndir og rifja upp góða tíma!

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 10:52
af Dr3dinn
Gamla tíma, sumt að þessu var bara í gær. ;)

Ég vinn ennþá með sama fólkinu og var með manni að halda sum þessi mót.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 10:58
af appel
Fyrstu kynni mín af multiplayer gaming var kringum 1995. Þá voru engir serverar, heldur þurfti maður að hringja með módemi beint í félaga sinn sem beið með módemið tengt sín megin, í gegnum gamaldags talsímakerfið.

Spilaði C&C1 þannig, Doom 2, og Duke Nukem 3D. Good old times. :D

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 11:57
af gRIMwORLD
Fyrstu kynning mín af "lani" voru í Flensborg 1997, spiluðum Quake á coax neti. Svo auðvitað var oft dröslast með tölvur og skjái í heimahús þar sem borðstofuborðin voru undirlögð. Hjá einum þurfti að setja auka styrkingu undir borðið því það var bara ekki tilbúið fyrir 6 túbuskjái :megasmile

Ótrúlegt að á þeim árum var maður í 100-120hz en sætti sig svo við lækkun í 60hz í mörg ár.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 12:58
af oliuntitled
gRIMwORLD skrifaði:Ótrúlegt að á þeim árum var maður í 100-120hz en sætti sig svo við lækkun í 60hz í mörg ár.


Ég sætti mig við það til að þurfa ekki að halda á 30kg 22" diamondtron túbuskjánum mínum ever again :D

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 13:24
af Dropi
Þessir skjálfta bolir eru ógeðslega flottir. Fyrsta alvöru LANið mitt var í VMA, var ekki jafn stór sena á Akureyri og í Reykjavík þannig að maður lanaði yfirleitt hverja helgi heima hjá vinum.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 13:38
af Pandemic
Góðir tímar, heimsótti Skjálfta fyrst þegar það var haldið í Mjóddinni svo keppti ég í BF nokkur ár á Skjálfta. Þetta varð svo til þess að ég og góður hópur endurlífguðum HR-inginn og gerðum hann að alvöru LAN móti.

Eitt minnistætt var að það sat gaur einni lengju frá mér og horfði á og deildi snuff myndböndum alla helgina án þess að spila. Skrítin andskoti.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 13:49
af Klemmi
Ohh nostalgían :D

Sakna þess þegar það voru íslenskir serverar, spilaði aðallega MOH:AA og COD 1 & 2, og þá var það þannig að það voru kannski 100-200 manns á landinu sem spiluðu þessa leiki, sem gerði það að verkum að maður kannaðist við öll nickin og tók eftir því þegar nýjir spilarar komu.

Svo eins og fram kemur var þetta auðvitað mikil, merkileg og mikilvæg tengslamyndun. Bauðst t.d. mín fyrsta alvöru vinna eftir að hafa kynnst Pésa í Tölvutækni í gegnum MOH:AA.

Sakna alltaf Hugi.is, en hann var svo miklu skemmtilegri samfélagsmiðill heldur en samfélagsmiðlar nútímans. Hann er auðvitað bara eins og mikið þróaðari, fullkomnari og flottari Reddit. Skil varla hvernig hann varð undir, nema hvað að það vantaði kannski notifications? :/

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 15:06
af worghal
vildi óska þess að þessi lan móta kúltur hefði lifað áfram :(
fékk aldrei að upplifa skjálfta og skólastjórinn í borgo sá lan sem anti social æxli og leyfði aldrei lan í húsi skólans þegar ég var þar :'(

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 15:08
af mjolkurdreytill
Var það flökkusaga að menn væru að skíta í pizzakassa?

Minnir að þetta hafi verið frétt í fréttablaðinu 2006.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 15:18
af CendenZ
mjolkurdreytill skrifaði:Var það flökkusaga að menn væru að skíta í pizzakassa?

Minnir að þetta hafi verið frétt í fréttablaðinu 2006.


Það hlýtur að hafa verið í lansetrinu á Dalsvegi, ég fór þangað kannski 5 sinnum enda varla hundum bjóðandi og klósettið var stöðugt bilað. Einhverjir fóru á bensínstöðina á móti og migu úti í porti hjá einhverju verkstæði... ég gæti alveg trúað því að einhverjir hafa kúkað í kassa þar :dontpressthatbutton :x

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 15:54
af Hannesinn
Ég á ennþá þennan sama skjálftabol 4/2000. Hann er reyndar orðinn soldið lúinn greyið eftir að hafa verið relegate'aður niður í íþróttafatnað.

Gott ef þetta var ekki fyrsta skjálftamótið sem að keppt var í Counter-Strike.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 18:59
af slapi
Þetta var góður tími


Fór aldrei á Skjálfta, Smellur var meira fyrir mig.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 21:23
af J1nX
geggjaðir tímar, fór á 12 skjálfta í röð og nokkra Smelli :D

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Mán 14. Jún 2021 21:46
af ABss
Eru til góð, aðgengileg albúm frá skjálfta mótunum?

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 15. Jún 2021 09:48
af cramer
Frábærir tímar og ekkert smá gaman að lesa þessa frétt. Ég er þarna hliðiná Yngva "FIxer" á myndinni sem fylgir fréttinni. Ótrúlega skemmtilegir tímar. Svefnpokinn alltaf með og maður svaf bara á gólfinu í eh sal þar sem síðan var hægt að specca og fylgjast með stóru leikjunum á milli MurK, Drake, SiC og fleiri. Frábært!

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 15. Jún 2021 12:50
af Mondieu
ABss skrifaði:Eru til góð, aðgengileg albúm frá skjálfta mótunum?

Já, það eru til nokkur albúm af einhverjum skjálftamótum.
Ég man ekki á hvaða slóð þetta er geymt en ætti að geta fundið það.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 27. Júl 2021 15:16
af gRIMwORLD
Fyrsta "Lanið" mitt var 1997 í Flensborg þegar við spiluðum Quake á coax neti :guy

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 27. Júl 2021 17:59
af Semboy
gRIMwORLD skrifaði:Fyrsta "Lanið" mitt var 1997 í Flensborg þegar við spiluðum Quake á coax neti :guy


hvað er að coax í dag? það eru margir að flytja efnið sitt gegnum coax í dag, he still alive and strong.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 27. Júl 2021 18:29
af nonesenze
það var notað serial kaplar til að tengja tölvur saman og spilaði mest doom 1

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 27. Júl 2021 20:30
af g0tlife
Ég og félagi minn langaði svo mikið á Skjálfta árið 2005 að við spurðum á Irc um 3 lánera fyrir skjálfta. Hittum svo þrjá eldri gæja á Skjálfta í fyrsta skipti og eyddum öllum tímanum í að plana og stratta fyrir mótið. Mjög skemmtilegir tímar.

Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 27. Júl 2021 21:01
af ZiRiuS
Ég gerði einmitt myndband með vel völdum myndum frá Jolla (sem voru á myndir.skjalfti.is) árið 2006 þegar Skjálfti hætti. Margar góðar minningar þaðan og þeim ótal lönum sem maður hefur farið á yfir æfina.


Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Þri 27. Júl 2021 22:08
af GullMoli
Fann annað svipað:


Re: Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“

Sent: Fös 20. Ágú 2021 08:05
af netkaffi
Tölvuleikjaspilarar „voru sérstök tegund af fólki“
Finnst eins og þetta hafi breyst sérstaklega mikið þegar Halo varð vinsælt hjá college frat boys í U.S.