Síða 11 af 91

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 13:02
af jonfr1900
Veðurstofan með frétt um þessa jarðskjálftavirkni.

Talsverð skjálftavirkni á Reykjanesskaganum (Veðurstofan)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 16:59
af agnarkb
OK nokkuð stór skjálfti núna! Stærsti sem ég hef fundið í langan tíma.
Minnti meira á Suðurlandsskjálfta heldur en þessa sem ég hef verið að finna af Reykjanesinu

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:00
af GuðjónR
RISA jarðskjálfti rétt í þessu!!! Hélt að húsið væri að hrynja!!!

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:00
af Black
Fann vel fyrir þessum í 113 rvk!

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:05
af agnarkb
Samkvæmt Veðurstofunni var þessi í kringum Þrengslin. 4,5 - fannst hann stærri.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:06
af Diddmaster
Fann ekki neitt reyjjanesbær (ásbrú)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:14
af kjartanbj
Fann þennan vel á Selfossi, fann fæsta skjálftana sem voru í tengslum við eldgosið nema þeir væru komnir yfir 5 en þennan fann ég vel enda töluvert nær

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:15
af GuðjónR
agnarkb skrifaði:Samkvæmt Veðurstofunni var þessi í kringum Þrengslin. 4,5 - fannst hann stærri.

Ég líka, hefði giskað á 5.8 ... minnti mig á suðurlandsskjálftann.
Þessi var örðuvísi en hinir stóru sem komu fyrir gos, þá var upplifunin meira eins og það væri bylgja sem lenti á húsinu en núna var það eins og risa krumla hefði tekið um húsið og væri að hrista það. Ferlega vont.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:16
af hfwf
GuðjónR skrifaði:

Mjög kózy hér á 9undu hæð.
Hafa verið verri.
högg, en stuttur.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:18
af codemasterbleep
GuðjónR skrifaði:
agnarkb skrifaði:Samkvæmt Veðurstofunni var þessi í kringum Þrengslin. 4,5 - fannst hann stærri.

Ég líka, hefði giskað á 5.8 ... minnti mig á suðurlandsskjálftann.
Þessi var örðuvísi en hinir stóru sem komu fyrir gos, þá var upplifunin meira eins og það væri bylgja sem lenti á húsinu en núna var það eins og risa krumla hefði tekið um húsið og væri að hrista það. Ferlega vont.

Skjálftinn er líklegast nær þér en aðrir skjálftar hingað til þannig að hann virkar stærri í samanburði við aðra skjálfta af sömu stærð.

Hann virkaði öðruvísi en þessir "hefðbundnu" skjálftar sem voru undanfari eldgossins.

P.S.
Skjálfti að stærðinni 5.8 hefði verið 80x stærri en þessi skjálfti.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:30
af GuðjónR
codemasterbleep skrifaði:

Mig grunar að þessi hafi átt upptök sín undir húsinu mínu :guy

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:39
af jonfr1900
Það er spurning hvort að það komi stærri jarðskjálftar í Brennisteinsfjöllum í kjölfarið á þessum jarðskjálfta. Það er hægt að fylgast með beinu streymi jarðskjálftagagna hérna á vefsíðu Raspberry Shake.

Undanfarnar vikur hafa verið litlir jarðskjálftar á þessum stað þar sem þessi jarðskjálfti með stærðina Mw4,4 til Mw4,8 átti sér stað núna í dag. Þetta er líklega brotaskjálfti vegna þeirrar þenslu sem er núna að eiga sér stað í Fagradalsfjalli og síðan í Krýsuvík.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:53
af dadik
Ég heyrði í þessum löngu áður en hann kom. Virkaði öðruvísi en þessir sem voru í aðdraganda gossins. Ég hefði samt giskað á að hann hefði verið minni en 4. 7

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 17:54
af codemasterbleep
Yfirfarinn 5.2 skv. veðurstofunni

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 18:00
af dadik
Nú ok. Var ekki 5.2 stærsti skjálftinn í aðdraganda gossins?

Þetta hefur væntanlega fundist hressilega í Hveragerði og Þorlákshöfn

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 18:08
af codemasterbleep
dadik skrifaði:Nú ok. Var ekki 5.2 stærsti skjálftinn í aðdraganda gossins?

Þetta hefur væntanlega fundist hressilega í Hveragerði og Þorlákshöfn

Fake news! :guy

Einhver á veðurstofunni hefur slegið inn vitlaust gildi.

Núna er gildið 4.2

Fannst eitthvað furðulegt hvað gildið breyttist mikið.

--------------------------------------------------------------

Núna stendur 5.1 á vef veðurstofunnar

Ég er hættur að tjá mig :D :D :D

Þetta er meira spennandi en kosninganótt

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 18:39
af jonfr1900
dadik skrifaði:Nú ok. Var ekki 5.2 stærsti skjálftinn í aðdraganda gossins?

Þetta hefur væntanlega fundist hressilega í Hveragerði og Þorlákshöfn

Stærsti jarðskjálftinn í upphafi þess tímabils áður en það fór að gjósa var jarðskjálfti með stærðina Mw5,7 við Keili.

Annars er þetta í fréttum Rúv núna.

„Gæti verið undanfari eldgoss“ (Rúv.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 19:05
af jonfr1900
Jarðskjálftar eru farnir að raða sér upp við sprungur við Grindavík og þar á meðal er ein sprunga sem er inn í bænum og það er mjög slæmt ef það fer að gjósa á þeirri sprungu.

Grindavík-skjálftar-14-05-2022.png
Grindavík-skjálftar-14-05-2022.png (514.3 KiB) Skoðað 2647 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 19:10
af jonfr1900
Það er frekar slæm spáin frá sérfræðingum í jarðfræði núna.

Þessi skjálftavirkni bara byrjunin (mbl.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 20:02
af Black
jonfr1900 skrifaði:Jarðskjálftar eru farnir að raða sér upp við sprungur við Grindavík og þar á meðal er ein sprunga sem er inn í bænum og það er mjög slæmt ef það fer að gjósa á þeirri sprungu.

Grindavík-skjálftar-14-05-2022.png

Er það ekki sprungan sem slökkvistöðinn var byggð ofaná ?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 21:00
af jonfr1900
Black skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Jarðskjálftar eru farnir að raða sér upp við sprungur við Grindavík og þar á meðal er ein sprunga sem er inn í bænum og það er mjög slæmt ef það fer að gjósa á þeirri sprungu.

Grindavík-skjálftar-14-05-2022.png

Er það ekki sprungan sem slökkvistöðinn var byggð ofaná ?

Ég þekki ekki nógu vel til í Grindavík til þess að vita hvaða byggingar eru þarna á þessu svæði. Það eina sem ég veit að ef eldgos leggur þessi hús ekki í rúst, þá mun jarðaskjálftavirknin valda tjóni á þeim.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 14. Maí 2022 21:05
af JVJV
Það er eins gott að ég láti ekki fleiri Grindvíkinga vita af þessum klikkaða þræði. 8-[

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 15. Maí 2022 13:19
af jonfr1900
Áfram eykst jarðskjálftavirknin norðan við Grindavík og reyndar undir Grindavík sjálfri. Stærsti jarðskjálftinn þessa klukkutímana er með stærðina Mw3,7 en það munu líklega koma fram fleiri jarðskjálftar eftir því sem kvikan eykur þrýsting við að brjóta sér leið upp á yfirborðið.

220515_1305.png
220515_1305.png (24.79 KiB) Skoðað 2399 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 15. Maí 2022 14:28
af MatroX
jonfr1900 skrifaði:Jarðskjálftar eru farnir að raða sér upp við sprungur við Grindavík og þar á meðal er ein sprunga sem er inn í bænum og það er mjög slæmt ef það fer að gjósa á þeirri sprungu.

Grindavík-skjálftar-14-05-2022.png

hvaða síða er þetta screenshot af?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 15. Maí 2022 15:19
af jonfr1900
MatroX skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Jarðskjálftar eru farnir að raða sér upp við sprungur við Grindavík og þar á meðal er ein sprunga sem er inn í bænum og það er mjög slæmt ef það fer að gjósa á þeirri sprungu.

Grindavík-skjálftar-14-05-2022.png

hvaða síða er þetta screenshot af?

Þetta er fengið af vef Veðurstofunnar sem þú getur skoðað hérna. Ef þú vilt reyna að fylgjast með jarðskjálftum beint. Þá er hægt að gera það hérna á vefsíðu Raspberry Shake.