Síða 86 af 92

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 16. Mar 2024 23:51
af jonfr1900
Nýtt hættumats kort.

Mynd

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 16. Mar 2024 23:51
af jonfr1900
falcon1 skrifaði:Það er spurning hvort maður komist í sturtu á morgun... :dontpressthatbutton


Það spurning hvort að það verði rafmagn á morgun. Það dregur lítið úr þessu eldgosi. Þó svo að óróinn hafi aðeins minnkað.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:02
af jonfr1900
Þetta er mjög slæm þróun. Það er vonandi að varnargarðar haldi.

mbl.is - Grindavík - svd 17.03.2024 at 0001utc.png
mbl.is - Grindavík - svd 17.03.2024 at 0001utc.png (987.94 KiB) Skoðað 1925 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:10
af Moldvarpan
Engin myndavél í hina áttina? Svartsengi við grindavíkurveg

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:13
af Moldvarpan
Moldvarpan skrifaði:Engin myndavél í hina áttina? Svartsengi við grindavíkurveg


Jú ein. Svara sjálfum mér haha.


Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:19
af Stuffz
look who's back

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:25
af Kongurinn
Moldvarpan skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Engin myndavél í hina áttina? Svartsengi við grindavíkurveg


Jú ein. Svara sjálfum mér haha.




Þessi líka góð https://www.youtube.com/watch?v=Bqudj0x ... l=R%C3%9AV

eða í raun sama en eitthvað öðruvísi stillt

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:36
af jonfr1900
Hraunið farið að renna yfir Grindavíkurveg.

Rúv - Grindavíkurvegur - 17.03.2024 at 0033utc.png
Rúv - Grindavíkurvegur - 17.03.2024 at 0033utc.png (634.46 KiB) Skoðað 1886 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:42
af Moldvarpan
Þetta virðist ætla ná lögninni aftur... bara spurning hvort það var nógu vel grafið niður og eitthvað.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 00:48
af Kongurinn
Moldvarpan skrifaði:Þetta virðist ætla ná lögninni aftur... bara spurning hvort það var nógu vel grafið niður og eitthvað.

Ætli verkið verði endurgreitt ef það var ekki nógu vel gert hehehe
En án gríns, alvöru kraftur í þessu

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 01:08
af jonfr1900
Ný mynd frá Almannavörnum.

432575078_939681898167239_5879848000714088416_n.jpg
432575078_939681898167239_5879848000714088416_n.jpg (211.22 KiB) Skoðað 1850 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 01:24
af appel
Þetta er mun stærra en hin gosin, líklega margfalt. Ef þetta heldur áfram í sólarhring þá er orðið stórt vandamál.

Þetta vídjó:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024 ... algast_gr/

Óhugnalegt hvað þetta er umfangsmikið. Hvernig þetta streymir að Grindavík og Svartsengi/Bláalóninu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 01:35
af jonfr1900
Síðast fór að draga úr eldgosinu eftir sex tíma virkni. Núna eru komnir rúmlega sex klukkutímar síðan það byrjaði að gjósa og það er ekki farið að draga neitt úr eldgosinu sýnist mér.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 02:15
af jonfr1900
Staðan er lítið að lagast núna.

hraun - Grindavík - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0213utc.png
hraun - Grindavík - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0213utc.png (886.45 KiB) Skoðað 1808 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 02:44
af jonfr1900
Ennþá fullt af krafti í eldgosinu.

gossprunga - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0241utc.png
gossprunga - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0241utc.png (542.83 KiB) Skoðað 1796 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 03:03
af Diddmaster
Það sem ég sé heimafrá mér (ásbrú) virðist vera minna en áðann cirka klukkutími síðan

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 03:19
af jonfr1900
Diddmaster skrifaði:Það sem ég sé heimafrá mér (ásbrú) virðist vera minna en áðann cirka klukkutími síðan


Veðrið er að breytast og eldgosið er farið að draga sig saman í gíga. Það hefur lítið dregið úr eldgosinu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 03:28
af jonfr1900
Það hefur myndast hættuleg hrauntjörn þarna. Þessi hrauntjörn mun tæma sig með miklum látum.

hrauntjörn varnargaður - svd 17.03.2024 at 0324utc.png
hrauntjörn varnargaður - svd 17.03.2024 at 0324utc.png (1.4 MiB) Skoðað 1770 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 04:11
af jonfr1900
Staðan klukkan 04:05. Það hefur lokast fyrir eldgosið á hluta sprungunnar eða dregið úr því. Samt hefur svo til ekkert dregið úr hraunflæði sýnist mér.

gosspruna - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0405utc.png
gosspruna - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0405utc.png (251.49 KiB) Skoðað 1751 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 11:52
af jardel
Þetta eldgos var ekki merkilegt né lamglíft

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 12:52
af zetor
jardel skrifaði:Þetta eldgos var ekki merkilegt né lamglíft


Því er ekki lokið og Þetta er einmitt mjög merkilegt gos.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 13:28
af jardel
jonfr1900 skrifaði:Staðan klukkan 04:05. Það hefur lokast fyrir eldgosið á hluta sprungunnar eða dregið úr því. Samt hefur svo til ekkert dregið úr hraunflæði sýnist mér.

gosspruna - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0405utc.png



Jón heldur þú að ekkert meira muni gerast í þessu?
Heyrði i fréttum að þetta muni bara lognast út með kvöldinu?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 13:34
af jonfr1900
jardel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Staðan klukkan 04:05. Það hefur lokast fyrir eldgosið á hluta sprungunnar eða dregið úr því. Samt hefur svo til ekkert dregið úr hraunflæði sýnist mér.

gosspruna - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0405utc.png



Jón heldur þú að ekkert meira muni gerast í þessu?
Heyrði i fréttum að þetta muni bara lognast út með kvöldinu?


Miðað við það sem ég er að sjá á vefmyndavélum. Þá mun þessu ekki ljúka í kvöld nema ef þetta byrjar að falla mjög hratt og það eru engin merki um það ennþá.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 15:38
af jonfr1900
Það er ekkert farið að draga úr gosóróa ennþá. Síðasta eldgos á þessum sama stað var búið um þetta leiti.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 17. Mar 2024 18:56
af jonfr1900
Nýtt kort frá Veðurstofunni ef að hraun nær út í sjó.

Mynd