Síða 69 af 94

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 21:38
af appel
Það er ljóst að stjórnvöld vilja halda úti tilvist þessarar bæjar, og í því felst að halda þar íbúum áfram, hvort sem þeim líkar það ekki eður ei.

Þetta er undarlegt fyrirkomulag stjórnvalda sem vilja "grípa fólk" en ekki heldur "sleppa því".

Eitt stykki svona bær kostar líklega um eina billjón krónur. Það eru ekki bara húsin, það er allt það sem er í bænum, sundlaug, íþróttahús, skólar, götur, göngustígar, blómabeð, vatnslagnir, fjarskiptalagnir, rafmagnslagnir, holræsislagnir, höfn, vegir til og frá bænum, fyrirtækin, frystihús, verslanir, o.s.frv o.s.frv og allur þessi sokkni kostnaður í bænum. Þannig að þetta er stórt mál ef þú ætlar að fara borga ALLA út, því það eru miklu fleiri aðilar en bara íbúar sem eiga íbúðareignir.

Ríkið hefur ekki enn borgað út alla sem búa í bæjum sem eru á snjóflóðahættusvæði. Fólk getur búið á óheppulegu svæði víðsvegar um landið. Ef einhver selur þá er einhver sem kaupir. Er meiningin að ríkið leiðrétti alla vitleysu í staðsetningarvali fyrri alda?

En þetta er líka spurning um "force majeure".
Lánastofnanir eru með þannig ákvæði, tryggingafyrirtæki, etc.
T.d. er leigufyrirtæki í Grindavík sem vill ekki að leigjandi geti sagt upp leigunni. En hvernig gengur leigjandanum að búa í húsnæðinu þegar það er bannað? Ef leigusalinn getur ekki afhent húsnæðið til afnota þá er leigjandanum varla skylt að borga áfram leigu.

Líklega er eina sem fólk getur gert er að leita til dómsstóla, stjórnvöld eru ekki að fara "bjarga því frá bænum".

Það gæti verið minna vesen fyrir fólk að keyra sig í gjaldþrot, sem eru með miklar fasteignaskuldir. Hætta að borga, láta bankann ganga að veðinu. Hvernig mun slíkt ferli ganga upp á svæði þar sem ekki er hægt að selja eignir á og jafnvel er slíkt bannað!
Auðvitað er það þannig að ríkið er einfaldlega að reyna halda "leiknum" gangandi, styrkja atvinnurekendur og tryggja laun og svona. En sennilega væri best fyrir fólk að segja upp starfi og keyra sig í gjaldþrot.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 22:04
af rapport
Ríkið á vel fyrir því að kaupa upp íbúðahúsnæði af íbúum og helst á fasteignamati 2023 og gera það strax, hætta að hafa þessa óvissu hangandi yfir öllum.

Ef fólk getur ekki sótt innbú og er með innbústryggingu, þá á tryggingin að greiða út innbúið ASAP.
Tryggingafélagið eignast þá náttúrulega gamla innbúið og getur selt það þegar þeir komast loksins inn í bæinn að sækja það.

Ríkið ber enga ábyrgð gagnvart fyrirtækjum (fyrir utan brunabótamat/náttúruhamfaratryggingar) og uppgjör eigna og dóterís á að fara í staðlað ferli og kannski bara best að slíkt fari í gjaldþrotameðferð og fyrirtæki séu hreinlega gerð upp ef þau geta ekki starfað áfram og reynt að bjarga verðmætum úr þeim því þau eru eru í raun bara þrotabú. Hugsanlega er einhver til í að kaupa eignir fyrirtækja fyrir meira en brunabótamat og taka sénsinn á að bærinn lifi.

Hugsanlega geta hús þarna verið seld seinna þegar allt er orðið öruggt aftur.

Ef að enginn er að fara búa í Grindavík, þá mætti skoða það að sameina bæjarfélagið (þá landssvæðið) við t.d. aðliggjandi sveitafélög, Reykajnesbæ, Voga eða ??Hafnarfjörð?? (https://www.samband.is/sveitarfelogin/h ... arsvaedid/)

Það yrði einhver sparnaður hjá hinu opinbera í heildina.

En reyndar held ég að Grindvíkingar verð'i að hafa bæjarstjóra og sveitarstjórn sem málsvara á meðan þessu uppgjöri stendur.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 22:28
af falcon1
Ef Grindvíkingar verða borgaðir út þá mun það nú líklegast vera skv. brunabótamati.

Svo er spurningin líka hvaða fordæmi þetta gefur, mun þetta bara eiga við um jarðhræringar eða líka snjóflóð og aðrar náttúruhamfarir að ríkið kaupi fólk út?

En eitthvað þarf að gera fyrir fólkið, það getur ekki beðið í mörg ár eftir að eldvirknin hætti og jörðin við Grindavík jafni sig aftur.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 22:50
af thorhs
GunZi skrifaði:https://strokkur.raunvis.hi.is/gps/SENG_4hrap.png

Er landrisið í Svartsengi að aukast? Sýnist vera meiri hraði á því í dag.

Ég var búinn að taka eftir því líka, en var ekki viss hvort þetta væri bara ónákvæmni í gögnum. Verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 23:01
af Uncredible
Þetta er bara svakalegt að hlusta á þennan íbúafund. Greinilegt að Ríkistjórn Íslands hefur algjörlega skitið uppábak og sofið á verðinum og aldrei verið stakk búinn til að takast á við náttúruhamfarir af þeim stærðargráðum sem gerast reglulega útí heimi.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 23:09
af appel
Uncredible skrifaði:Þetta er bara svakalegt að hlusta á þennan íbúafund. Greinilegt að Ríkistjórn Íslands hefur algjörlega skitið uppábak og sofið á verðinum og aldrei verið stakk búinn til að takast á við náttúruhamfarir af þeim stærðargráðum sem gerast reglulega útí heimi.

Búið að ofhlaða landið af hælisleitendum, ekki til kústaskápur lengur hérna á landi vegna ólöglegra hælisleitenda sem tröllríða landinu. Allt í boði þessa góða fólks sem ræður ríkjum í landsstjórninni, það má ekki vísa neinum úr landi nema það sé mannréttindabrot. En sjáiði bara áhrifin á getu landsins til að takast á við svona áföll.

Það er miklu meira eytt í þennan málaflokk en að takast á við vandamál Grindvíkinginga og náttúruhamfaranna þar.

Þurfa íslenskir flóttamenn að fara til útlanda eftir aðstoð? Kannski það fáist húsaskjól í danmörku eða noregi.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 23:10
af Uncredible
appel skrifaði:
Uncredible skrifaði:Þetta er bara svakalegt að hlusta á þennan íbúafund. Greinilegt að Ríkistjórn Íslands hefur algjörlega skitið uppábak og sofið á verðinum og aldrei verið stakk búinn til að takast á við náttúruhamfarir af þeim stærðargráðum sem gerast reglulega útí heimi.

Búið að ofhlaða landið af hælisleitendum, ekki til kústaskápur lengur hérna á landi vegna ólöglegra hælisleitenda sem tröllríða landinu. Allt í boði þessa góða fólks sem ræður ríkjum í landsstjórninni, það má ekki vísa neinum úr landi nema það sé mannréttindabrot. En sjáiði bara áhrifin á getu landsins til að takast á við svona áföll.

Þurfa íslenskir flóttamenn að fara til útlanda eftir aðstoð? Kannski það fáist húsaskjól í danmörku eða noregi.

Já spurning hvort að Grindvíkingar geti leitað eftir aðstoð fyrir utan landsteinana.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 23:38
af jonfr1900
GunZi skrifaði:https://strokkur.raunvis.hi.is/gps/SENG_4hrap.png

Er landrisið í Svartsengi að aukast? Sýnist vera meiri hraði á því í dag.

Gæti verið. Það hljóp ekki kvika úr Svartsengi núna. Bara úr Skipastígahrauni og Eldvörpum sem eru aðeins vestar og sunnar við Svartsengi.

Skipastígahraun-Eldvörp-Svartsengi-ja.is.png
Skipastígahraun-Eldvörp-Svartsengi-ja.is.png (2.04 MiB) Skoðað 1524 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 23:53
af Klemmi
appel skrifaði:Búið að ofhlaða landið af hælisleitendum, ekki til kústaskápur lengur hérna á landi vegna ólöglegra hælisleitenda sem tröllríða landinu. Allt í boði þessa góða fólks sem ræður ríkjum í landsstjórninni, það má ekki vísa neinum úr landi nema það sé mannréttindabrot. En sjáiði bara áhrifin á getu landsins til að takast á við svona áföll.

Já okay, þú meinar.

Þessir helvítis hælisleitendur eru aðalvandamálið, auðvitað.
Ekki uppgangur ferðaþjónustunnar með tilheyrandi þörf á starfsfólki og húsnæði, m.a. íbúðarhúsnæði leigt út í skammtímaleigu s.s. Airbnb.

Ekki vanmáttur ríkis- og sveitarfélaga til að liðka fyrir aukningu á byggingu húsnæðis, með lóðarveitingum, breytingum á byggingareglugerð eða eðlilegum stýrivöxtum / efnahagsstjórnun.

Nei, það eru helvítis hælisleitendurnir. Þó svo þeir séu kannski 10% af fólksfjölgun á Íslandi síðustu 10 árin, þá skal þetta vera þeim, og þeim einum, að kenna.

Pottþétt líka þeim að kenna að við vorum ekki með nein plön fyrir hvað skildi gert ef túristagosin okkar á Reykjanesi myndu ákveða að færa sig nær búsetukjörnum. Ekki eins og við höfum haft tæp 3 ár af eldgosum, og nóg af jarðskjálftum fyrir það til að vekja okkur til umhugsunar.

Helvítis hælisleitendur. Þeir eru líka alltaf að stela húsnæðinu af eldri borgurum og öryrkjum. Auðvitað er vandamálið ekki stöðnun í uppbyggingu íbúðahúsnæðis.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 23:54
af Omerta
Fasteignamarkaðurinn er lengi búinn að vera í rugli, það er ekki hægt að kenna flóttamönnum um þetta. Eignir hafa safnast á hendur fárra, sérstaklega eftir hrun. Meirihluti 101 er í skammtíma leigu o.sv.fr.
Það er ekkert eðlilegt við það að verð á raðhúsi í Hveragerði tvöfaldist á 5 árum. Ekki tvöfölduðust launin á sama tíma. En umræðan um að laga markaðinn stoppar því miður alltaf á hvað fólki finnist um inngrip ríkisins. Persónulega finnst mér nóg komið og myndi vilja setja þak á hversu margar eignir fólk eða félög mega eiga. Húsnæði er ekki 88" OLED sjónvarp, heldur nauðsyn.

Að ætla að flytja aftur í Grindavík er svo vitlaust að ég er farinn að bíða eftir að einhver stingi upp á að flytja alla í gamla hlutann af Súðavík, þar sé nóg af húsum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 00:22
af Gustaf
Omerta skrifaði:Fasteignamarkaðurinn er lengi búinn að vera í rugli, það er ekki hægt að kenna flóttamönnum um þetta. Eignir hafa safnast á hendur fárra, sérstaklega eftir hrun. Meirihluti 101 er í skammtíma leigu o.sv.fr.
Það er ekkert eðlilegt við það að verð á raðhúsi í Hveragerði tvöfaldist á 5 árum. Ekki tvöfölduðust launin á sama tíma. En umræðan um að laga markaðinn stoppar því miður alltaf á hvað fólki finnist um inngrip ríkisins. Persónulega finnst mér nóg komið og myndi vilja setja þak á hversu margar eignir fólk eða félög mega eiga. Húsnæði er ekki 88" OLED sjónvarp, heldur nauðsyn.

Að ætla að flytja aftur í Grindavík er svo vitlaust að ég er farinn að bíða eftir að einhver stingi upp á að flytja alla í gamla hlutann af Súðavík, þar sé nóg af húsum.

Sammála það hefur verið vitað síðan að það gaus 2021 að Grindavík sé í raunverulegri hættu. Þessar náttúruhamfarir munu hafa gífurleg áhrif á markaðinn og að það skuli ekki vera nein langtímaáætlun fyrir svona náttúruhamförum er algjör hneyksli. Það eru 1237 íbúðir í Grindavík ásamt því er töluvert að íbúðum sem voru í byggingu eða áætlaðar, svo það kæmi mér ekki á óvart ef að heildarfjöldi íbúða sem vantar er ~1400. Stór hluti er einbýli/raðhús sem hefur verið gífurlegur skortur af.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 08:49
af rapport
Það er eins og það komi öllum sveitafélögum á óvart að fólk þurfi stað til að halda heimili.

Af hverju er ekki birjað að selja lóðir í sólríkum suðurhlíðum Úlfarsfells M22 eins og auglýst var fyrir 15+ árum síðan.
Hverfið er löngu skipulagt og er ready skv. aðalskipulagi.
Skjámynd 2024-01-17 084849.png
Skjámynd 2024-01-17 084849.png (1.51 MiB) Skoðað 1360 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 09:07
af GullMoli
rapport skrifaði:Það er eins og það komi öllum sveitafélögum á óvart að fólk þurfi stað til að halda heimili.

Af hverju er ekki birjað að selja lóðir í sólríkum suðurhlíðum Úlfarsfells M22 eins og auglýst var fyrir 15+ árum síðan.
Hverfið er löngu skipulagt og er ready skv. aðalskipulagi.
Skjámynd 2024-01-17 084849.png

Stangast það ekki á við plan um þéttingu byggðar?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 09:22
af Rafurmegni
jonfr1900 skrifaði:
GunZi skrifaði:https://strokkur.raunvis.hi.is/gps/SENG_4hrap.png

Er landrisið í Svartsengi að aukast? Sýnist vera meiri hraði á því í dag.

Gæti verið. Það hljóp ekki kvika úr Svartsengi núna. Bara úr Skipastígahrauni og Eldvörpum sem eru aðeins vestar og sunnar við Svartsengi.

Skipastígahraun-Eldvörp-Svartsengi-ja.is.png

Adam var ekki lengi í Paradís. Smá lækkun í gær en svo allt komið á fullt aftur í dag.

Mynd

Mögulega kunna að vera góðar fréttir að Grindavík er ekki að rísa [ASVE]? Gæti gefið til kynna að þrýstingur sé að byggjast upp annars staðar og því leiti kvikan frekar upp þar?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 09:42
af appel
Mikið af eignum í Grindavík eru einbýlishús. Þannig að fólk er að fara úr slíku í kannski bara litla íbúð í blokk í Reykjavík.
Ekki myndi manni hugnast það.

Svo ef fólk flytur úr Grindavík þá verður Grindavík að draugabæ, svosem óumflýjanlegt. Þetta er okkar Tjérnóbýl má segja.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 10:59
af Mossi__
rapport skrifaði:Það er eins og það komi öllum sveitafélögum á óvart að fólk þurfi stað til að halda heimili.

Af hverju er ekki birjað að selja lóðir í sólríkum suðurhlíðum Úlfarsfells M22 eins og auglýst var fyrir 15+ árum síðan.
Hverfið er löngu skipulagt og er ready skv. aðalskipulagi.
Skjámynd 2024-01-17 084849.png

Einfaldlega því boltinn í byggingariðnaðinum var rétt byrjaður að rúlla aftur eftir 2008 og þá skall á kreppa aftur.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 12:57
af vesley
rapport skrifaði:Það er eins og það komi öllum sveitafélögum á óvart að fólk þurfi stað til að halda heimili.

Af hverju er ekki birjað að selja lóðir í sólríkum suðurhlíðum Úlfarsfells M22 eins og auglýst var fyrir 15+ árum síðan.
Hverfið er löngu skipulagt

Það er löngu búið að fjarlægja þetta hverfi úr skipulagi og ekki gert ráð fyrir neinu þarna í það minnsta til ársins 2040.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 13:15
af appel
rapport skrifaði:Það er eins og það komi öllum sveitafélögum á óvart að fólk þurfi stað til að halda heimili.

Af hverju er ekki birjað að selja lóðir í sólríkum suðurhlíðum Úlfarsfells M22 eins og auglýst var fyrir 15+ árum síðan.
Hverfið er löngu skipulagt og er ready skv. aðalskipulagi.
Skjámynd 2024-01-17 084849.png

Tja, Úlfarsfellið kannski ekki heppilegt miðað við myndina hér sem sýnir sprungur á höfuðborgarsvæðinu:

Mynd
https://ferlir.is/bergsprungur-og-byggi ... rsvaedinu/

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 14:36
af rapport
vesley skrifaði:
rapport skrifaði:Það er eins og það komi öllum sveitafélögum á óvart að fólk þurfi stað til að halda heimili.

Af hverju er ekki birjað að selja lóðir í sólríkum suðurhlíðum Úlfarsfells M22 eins og auglýst var fyrir 15+ árum síðan.
Hverfið er löngu skipulagt

Það er löngu búið að fjarlægja þetta hverfi úr skipulagi og ekki gert ráð fyrir neinu þarna í það minnsta til ársins 2040.

Nefnilega ekki, ég var í íbúasamtökunum sem börðust fyrir því að þessu yrði ekki breytt og þetta er því í aðalskipulagi eins og þetta var skipulagt.

https://kjarninn.is/skodun/2021-01-12-h ... lag-i-m22/

Þetta er því eitthvað sem borgin gæti hæglega farið að auglýsa ef áhugi værir fyrir því, öll plön og teikningar eiga að vera til.

Hægt að skoða samþykkt deiliskipulag frá 2007 - https://www.map.is/skipulag/

Held að skipulagsyfirvöld viti stundum ekki hvað þau eru búin að samþykkja og hvað ekki og því komist svona uppbyggingartækifæri ekki á markað og í framkvæmd.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 15:02
af vesley
rapport skrifaði:

https://reykjavik.is/sites/default/file ... reen_0.pdf
Bls 81

Samþykkt síðast í desember 2021.
Þar er hvergi áætlað að svæðið verði komið í framkvæmd fyrir 2040. Keldna landið er líka orðið bundið borgarlínu og því talið líka ólíklegt fyrir 2040.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 15:23
af Stuffz
Mossi__ skrifaði:
falcon1 skrifaði:Það eru auðvitað allir að gera sitt besta undir fáránlega erfiðum kringumstæðum.

Margir hér:
vaktin2024.jpg

..og Margir Þar?
Mynd

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 15:51
af jardel
Jón. Heldur þú að það sé stutt í gos við Grindavík?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 15:53
af jonfr1900
jardel skrifaði:Jón. Heldur þú að það sé stutt í gos við Grindavík?

Já, hámarkið er 30 dagar með hámarksskekkju upp á 8 daga.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 15:54
af jonfr1900
Það er ennþá að koma upp mikið gas innan Grindavíkur sem segir að kvikugangurinn er undir allri Grindavík.

Skoða hvort gasmengun í Grindavík tengist grunnt liggjandi kviku (Rúv.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 17. Jan 2024 15:58
af jonfr1900
Nýtt hættumatskort er komið.

Mynd