Eldgosið í Fagradalsfjalli

Allt utan efnis

Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Mán 28. Jún 2021 21:17

Heimurinn kemur alltaf á óvart. Það er eins og eldgosið í Fagradalsfjalli hafi bara ákveðið að enda í dag. Óróinn fellur niður hratt núna og engin virkni er sjáanleg í gígnum, það litla sem sést í gegnum þokuna. Hvort að það mun gjósa þarna aftur veit ég ekki en það er alveg möguleiki.

Það á ennþá eftir að staðfesta að eldgosinu sé lokið.




mjolkurdreytill
Ofur-Nörd
Póstar: 267
Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
Reputation: 59
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf mjolkurdreytill » Mán 28. Jún 2021 21:49

Yfirborðið á kvikunni í gígnum er í það minnsta búið að lækka umtalsvert miðað við hvað sést til gígsins.

---------------------------
Eftir á að hyggja:
---------------------------

Er óróavirknin ekki bara að sýna sömu hegðun og fyrir um það bil viku síðan?
Viðhengi
kri.gif
kri.gif (13.27 KiB) Skoðað 12142 sinnum
Síðast breytt af mjolkurdreytill á Mán 28. Jún 2021 21:59, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Mán 28. Jún 2021 23:30

Virðist vera alveg dottið niður en það eru smá toppar síðasta klukkutímann. Reyndar er svo mikil þoka þarna að ekkert sést á gíginn.

mer-28-06-2021 at 2329utc.gif
mer-28-06-2021 at 2329utc.gif (15.63 KiB) Skoðað 12105 sinnum




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Þri 29. Jún 2021 01:30

Nýjustu fréttir eru þær að eldgosið er ennþá í gangi. Það bara minnkaði niður í næstum því ekki neitt í kvöld.




straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf straumar » Þri 29. Jún 2021 01:41

þetta gos er ólíkindatól aldrei hægt að segja neitt til um hvort sé lokið eða ei :) róar sig niður á milli og byrjar svo aftur..... spurning hvort það haldi ekki áfram næstu árin/aldirnar



Skjámynd

thrkll
Nörd
Póstar: 103
Skráði sig: Sun 01. Mar 2020 00:55
Reputation: 51
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf thrkll » Þri 29. Jún 2021 10:28

Mér heyrist að á þessum tímapunkti séu flestir jarðeðlisfræðingar sammála um að það sé þrennt sem komi til greina í stöðunni:

    1. Eldgosið er að hætta
    2. Eldgosið mun halda svolítið áfram
    3. Eldgosið mun standa yfir eitthvað lengur en það




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Þri 29. Jún 2021 15:42

Það er kannski ekki mikið að gerast í eldgosinu en hraunið sem er nú þegar komið er á fullri ferð ennþá. Það er greinilegt að þessir hraun geymar sem eru útum allt í hrauninu verða vandamál alveg óháð því sem eldgosið er að gera. Sérstaklega ef það er að enda núna (kannski?).

Hraun bræddi sundur ljósleiðara (Rúv.is)




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Þri 29. Jún 2021 20:14

Eftir þessa pásu þá virðist sem að eldgosið í Fagradalsfjalli sé að auka stærðina miðað við það sem ég er að sjá á vefmyndavélum.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Mið 30. Jún 2021 17:15

Það vantar aldrei græðgina á Íslandi.

Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs (Vísir.is)




mjolkurdreytill
Ofur-Nörd
Póstar: 267
Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
Reputation: 59
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf mjolkurdreytill » Mið 30. Jún 2021 19:32

jonfr1900 skrifaði:Það vantar aldrei græðgina á Íslandi.

Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs (Vísir.is)


Þyrlufélögin eru ekki í góðgerðarstarfsemi og ég sé ekki alveg af hverju þeir ættu ekki að greiða landeigendum gjald fyrir að reka starfsemi á þeirra landi.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Mið 30. Jún 2021 19:44

Gjaldið ætti ekki að vera hærra en það sem flugvöllurinn í Reykjavík krefur þessi fyrirtæki um. Ég held að það gjald sé um 6000 kr á lendingu (fyrir utan geymslu og annað).



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16255
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1980
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf GuðjónR » Mið 30. Jún 2021 19:56

jonfr1900 skrifaði:Það vantar aldrei græðgina á Íslandi.

Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs (Vísir.is)

já og nei og nei og já ...
Þetta kom líka upp í hugann, þ.e. græðgi en svo setur maður sig í spor þeirra sem eiga landið..
Ef þú ættir land, hvort sem það væru nátturuhamfarir eða ekki myndir þú vilja óhefta umferð yfir það?
Ég er ekkert viss um að ég myndi vilja það...




mikkimás
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 102
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf mikkimás » Mið 30. Jún 2021 20:10

jonfr1900 skrifaði:Það vantar aldrei græðgina á Íslandi.

Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs (Vísir.is)

Veistu hvað þyrlufélögin eru að rukka fyrir ferðina?




mjolkurdreytill
Ofur-Nörd
Póstar: 267
Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
Reputation: 59
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf mjolkurdreytill » Mið 30. Jún 2021 20:14

Gjaldskrá Reykjavíkurflugvallar stýrir því ekki hver verðskrá annara er. Þegar þú ert líka að rukka fyrir aðra þjónustu en bara lendinguna þá getur verðið á lendingunni verið lægra.

Þessi fyrirtæki eru að reka starfsemi sína á einkalandi annara. Fyrirtækin verða að semja við landeigendur eða stunda ekki starfsemina ef þeim finnst verðið óásættanlegt. Eitthvað röfl um að landeigendur þurfi að vera með einhverja lágmarksþjónustu er bara fyrirsláttur.


Til gamans þá rakst ég á gamalt viðtal við Jökul Bergmann sem rekur þyrluskíðafyrirtæki á Norðurlandi. Sambærilegt mál.

Jökull Bergmann skrifaði:Einstaklingur eða sveitarfélag getur sem landeigandi samið um hvaða notkun sem er á eigin landi og tekið fyrir það greiðslu ef menn vilja. Hvort sem það eru beitarréttindi fyrir hross í hólfi eða að rétturinn að skíða á landinu


https://timarit.is/page/6871506#page/n1/mode/2up
Síðast breytt af mjolkurdreytill á Mið 30. Jún 2021 20:15, breytt samtals 1 sinni.




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 609
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf dadik » Mið 30. Jún 2021 21:40

mikkimás skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Það vantar aldrei græðgina á Íslandi.

Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs (Vísir.is)

Veistu hvað þyrlufélögin eru að rukka fyrir ferðina?


Þetta er víst í kringum 250k túrinn. Fer eftir hvað eru margir í vélinni og hvað er stoppað lengi.


ps5 ¦ zephyrus G14


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Fim 01. Júl 2021 23:08

Núna er allt hraunið á leiðinni niður í Nátthaga. Það sem sést á yfirborði núna.

2021-07-01 (15).png
2021-07-01 (15).png (1.41 MiB) Skoðað 11618 sinnum




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Fös 02. Júl 2021 04:16

Núna er hraungosið orðið að öskugosi. Ég skil ekki afhverju það gerðist. Þar sem þetta ætti í raun ekki að gerast en gerist engu að síður.

2021-07-02 (206).png
2021-07-02 (206).png (2.67 MiB) Skoðað 11582 sinnum


2021-07-02 (244).png
2021-07-02 (244).png (634.35 KiB) Skoðað 11582 sinnum


2021-07-02 (352).png
2021-07-02 (352).png (2.14 MiB) Skoðað 11582 sinnum




mjolkurdreytill
Ofur-Nörd
Póstar: 267
Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
Reputation: 59
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf mjolkurdreytill » Fös 02. Júl 2021 08:20

Þessi öskustrókur virðist ekki hafa staðið mikið lengur en 5 mínútur og virðist ekki hafa sést aftur.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Fös 02. Júl 2021 12:46

Það hætti að gjósa eftir að þessi öskustrókur kom upp. Það er einnig ekkert hraun í gígnum núna samkvæmt nýjum myndum sem voru settar internetið núna í hádeginu.



Skjámynd

Black
Vaktari
Póstar: 2388
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 124
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf Black » Lau 03. Júl 2021 00:58

Þvílíka ruglið sem er í gangi núna.
https://www.youtube.com/watch?v=BA-9QzIcr3c


Og miklar drunur á Suðurlandi, heyrðist víðsvegar. Einhverjir að tala um að hafa heyrt það koma frá Mýrdalsjökli :hmm
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... udurlandi/
Síðast breytt af Black á Lau 03. Júl 2021 01:00, breytt samtals 1 sinni.


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |


Bretti
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Fös 06. Maí 2016 18:32
Reputation: 2
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf Bretti » Lau 03. Júl 2021 01:50

Ég var að sjá þennan þráð fyrst núna. Margt merkilegt hefur hér komið fram eins og hvernig Helluhraun getur í rásum runnið uppí móti.
Hversvegna erum við annars að loka fyrir hraunrennslið á ýmsum stöðum sem vitað er að sé aðeins tímabundið.
Svo er annað, kunna yfirvöld ekki á hallamæla? Þ.e. að hallamæla landslag.
Það virtist engin vita, á tímabili, hvar lægsti punktur væri fyrir hraun að renna.
Nú virðist hraunið vera eins og gull, best að safna því í þrær í stað þess að auðvelda því skemmstu leið til sjávar.
Er verið að spara kostnað við að tvöfalda ljósleiðara í Vogunum? Er ekki öruggt að hinn fari undir hraun og deyi?
Verkfræðingar og aðrir vísindamenn hafa af þessu góðar tekjur.
Það þarf jú að hanna ýmsar lausnir út í æsar þó eingin viti framtíðin.
Þetta minnir á svo margt sem úrskeiðis hefur farið í stjórnsýslunni að það hálfa væri nóg.




mjolkurdreytill
Ofur-Nörd
Póstar: 267
Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
Reputation: 59
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf mjolkurdreytill » Sun 04. Júl 2021 22:16

Stórskemmtilegt að það sé alltaf þoka á svæðinu á sama tíma og óróavirknin sé í lágmarki.

Það kom gluggi áðan þar sem það sést vel í gíginn.

Það er glóandi hraun í gígnum þannig að það verður einhver bið í það að gosinu ljúki.
Viðhengi
d04M07h21m46s09.png
d04M07h21m46s09.png (305.37 KiB) Skoðað 11205 sinnum




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Fös 23. Júl 2021 00:57

Það er mjög líklega farið að líða að endalokum þessa eldgoss í Fagradalsfjalli. Kvikukerfið sem hefur fóðrað eldgosið er væntanlega að verða tómt.

Gosið í Fagradalsfjalli fer greinilega minnkandi (Rúv.is)

Þetta er þó hugsanlega ekki endinn á sögunni. Þar sem eldgos í svona sprungukerfum eiga það til að stöðvast í einhverja vikur til mánuði áður en þau byrja aftur.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16255
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1980
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf GuðjónR » Fös 23. Júl 2021 01:28

jonfr1900 skrifaði:Það er mjög líklega farið að líða að endalokum þessa eldgoss í Fagradalsfjalli. Kvikukerfið sem hefur fóðrað eldgosið er væntanlega að verða tómt.

Gosið í Fagradalsfjalli fer greinilega minnkandi (Rúv.is)

Þetta er þó hugsanlega ekki endinn á sögunni. Þar sem eldgos í svona sprungukerfum eiga það til að stöðvast í einhverja vikur til mánuði áður en þau byrja aftur.

Endalok? Þetta er rétta að byrja!! :wtf




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2303
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 269
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Pósturaf jonfr1900 » Sun 25. Júl 2021 00:20

Það virðist sem að eldgosið í Fagradalsfjalli hafi gefið lítið fyrir pælingar eldfjallafræðinga um að eldgosinu væri að ljúka. Það er búið að vera stöðugt eldgos núna síðan um klukkan 05:00 í fyrradag (23-Júlí). Það er ekki að sjá núna að eldgosið sé að fara að detta niður eins hefur verið að gerast síðustu vikur.