Bls. 8:Undir Kröfluöskjunni er kvikuhólf, sem liggur á um það bil 3-7 km dýpi í jarðskorpunni. Kvika hefur streymt að neðan úr iðrum jarðar inn í kvikuhólfið, a.m.k. síðan 1975. Við það lyftist land og er miðja landlyftingarinnar nálægt Leirhnjúki. Ein afleiðing þess er að á stöðvarhúsinu í Kröflu verða mælanlegar hallabreytingar og eru þær notaðar til þess að fylgjast með hraða kvikustreymisins inn í hólfið.
Það virðist hafa verið nokkuð jafnt eða um 5-6 m3/s, a.m.k. fram á mitt ár 1981.
Samsvarandi meðalrishraði lands í grennd við Leirhnjúk var um 8mm á sólarhring. Þessi tímabil hægrar landlyftingar stóðu yfirleitt vikur eða mánuði. Árið 1981 varð nokkur breyting á. Land reis þá mun hægar en áður, eða innan við 1mm á sólarhring, og liðu þá um 9 mánuðir á milli hrina. Síðan hefur tími milli hrina lengst og var síðasta goshlé nærri þrjú ár.
https://rafhladan.is/bitstream/handle/10802/21068/OS-84077.pdf