Siðferðislegt val á innlendri verslun

Allt utan efnis
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Siðferðislegt val á innlendri verslun

Pósturaf GuðjónR » Þri 11. Maí 2021 12:04

Klemmi skrifaði:
machinefart skrifaði:Já bara mjög góður punktur, ég held þetta byggi meira á einhverjum fordómum í mér en öðru. En samt, ég hef alveg verslað við litlar búðir sem eru ekki til í dag, t.d. start.is og önnur í ármúlanum sem ég keypti laptop af, hvort hún hafi heitið task.is eða hvort það hafi verið einhver önnur. En já þær sem eru litlar og búnar að lifa lengi eru örugglega mjög solid. En í gegnum tíðina eru þónokkrar litlar búnar að koma og fara þó maður muni ekki nöfnin á þeim.


Já, það voru alveg nokkrar sem hafa horfið á síðustu 20 árum. Þetta er það sem ég man eftir:
  • Task, ég er ekki alveg með það á hreinu hvernig það var, en mér fannst þeir alltaf vera að skipta um nafn... Task varð að Digital Task, sem síðar varð að Digital... úff man þetta ekki.
  • Start hætti rekstri "nokkuð" nýlega, reksturinn gekk eitthvað brösulega og í lokin voru þeir að reyna að pivota yfir í að selja aðallega Dreamware fartölvur. Andri hér á Vaktinni þekkir söguna betur.
  • Tölvuvirknin hans Björgvins Hólm breyttist í Ódýrið sem var í eigu Tölvutek, Björgvin opnaði svo Tecshop í skamman tíma, sem var ekki með lager heldur vörulista frá erlendum verslunum, svipað og kannski Coolshop í dag.
  • Nördinn í Ármúla, sem var samt frekar verkstæði.
  • Þór HF seldi minnir mig tölvuvörur en lögðu þá deild niður.
  • Hugveri má ekki gleyma, sem höfðu Abit umboðið, sakna beggja.
  • Boðeind, sem voru í Mörkinni, og höfðu Asus umboðið.
  • Buy.is, ég ætla ekki að segja neitt um það af hræðslu við ákærur.
  • Tæknival / Aco Tæknival
  • BT og músin þeirra

Kt og iSoft líka, svona leit Vaktin.is út 25. september 2002
Viðhengi
Screenshot 2021-05-11 at 08.51.56.png
Screenshot 2021-05-11 at 08.51.56.png (653.52 KiB) Skoðað 651 sinnum



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Siðferðislegt val á innlendri verslun

Pósturaf rapport » Þri 11. Maí 2021 14:01

p.s. - verd.vaktin.is er óvirkt...



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Siðferðislegt val á innlendri verslun

Pósturaf gnarr » Þri 11. Maí 2021 14:21

Klemmi skrifaði:
  • Task, ég er ekki alveg með það á hreinu hvernig það var, en mér fannst þeir alltaf vera að skipta um nafn... Task varð að Digital Task, sem síðar varð að Digital... úff man þetta ekki.


Ef ég man þetta rétt, þá var Haffi, stofnandi Task.is, sá sami og var með í að stofna tölvulistann á sínum tíma. Eftir tíma Task.is og Digital Task stofnaði hann svo Tölvutek.

Ég hef svo ekki hugmynd um það hvort hann sé eitthvað tendur þessum bransa í dag.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Siðferðislegt val á innlendri verslun

Pósturaf GuðjónR » Þri 11. Maí 2021 14:36

:snobbylaugh
rapport skrifaði:p.s. - verd.vaktin.is er óvirkt...

http://www.verðvaktin.is




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Siðferðislegt val á innlendri verslun

Pósturaf Klemmi » Þri 11. Maí 2021 14:40

gnarr skrifaði:
Klemmi skrifaði:
  • Task, ég er ekki alveg með það á hreinu hvernig það var, en mér fannst þeir alltaf vera að skipta um nafn... Task varð að Digital Task, sem síðar varð að Digital... úff man þetta ekki.


Ef ég man þetta rétt, þá var Haffi, stofnandi Task.is, sá sami og var með í að stofna tölvulistann á sínum tíma. Eftir tíma Task.is og Digital Task stofnaði hann svo Tölvutek.

Ég hef svo ekki hugmynd um það hvort hann sé eitthvað tendur þessum bransa í dag.


Ég vissi ekki að Haffi hefði verið tengdur Task.is, en eins og ég segi, ég þekkti lítið til þeirrar verslunar.

Sá Haffa í Tölvutek nokkrum dögum eftir að þeir opnuðu í kjölfarið að Origo tóku við rekstrinum, veit ekki hvort það var bara tímabundið eða hvort hann er þar enn.