Síða 2 af 20

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 19. Apr 2021 16:24
af jonfr1900
dadik skrifaði:Það er verið að benda þér á að þú veist ekki hvernig afborganir af verðtryggðun lánum skiptast niður. Í stað þess að taka þessu eins og maður og viðurkenna mistökin (og vanþekkinguna) bregstu við með að pósta einhverju videoi.

https://youtu.be/oL9LQqw_JXM | Admitting Mistakes and Wrongs

Gangi þér bara vel með þitt verðtryggða lán. Þú þarft á því að halda. Hérna er annars þetta sett svona upp í reiknivél Landsbankans. Það eina sem er óraunhæft þarna í verðtryggðaláninu er að verðbólgan sé stöðug 4,3% allan lánstímann. Það bara gerist ekki og eru sveiflur í verðbólgu frá -1,0% og upp í 6,0% á Íslandi flest góð ár. Ég kann hagfræði og það eru kominn aðeins meira en 10 ár síðan allt hrundi í verðtryggðum lánum og kerfið þarf að leiðrétta sig aftur og á Íslandi er það gert með efnahagskreppu sem varir í nokkur ár með hárri verðbólgu eins og farið er að sjást núna. Á þessum tíma fer fullt af fólki í hausinn vegna þess að það nær ekki að halda í við hækkandi afborganir af verðtryggðu lánunum.

Ég hef séð svona afneitun á staðreyndum áður og þeir sem viðhafa þær svona afneitun hafa alltaf rangt fyrir sér.

Verðtryggt húsnæðislán - Reiknivél Landsbankans.png
Verðtryggt húsnæðislán - Reiknivél Landsbankans.png (60.58 KiB) Skoðað 8757 sinnum

Óverðtryggt húsnæðislán - Reiknivél Landsbankans.png
Óverðtryggt húsnæðislán - Reiknivél Landsbankans.png (57.14 KiB) Skoðað 8757 sinnum

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 19. Apr 2021 20:26
af dadik
jonfr1900 skrifaði:
dadik skrifaði:Gangi þér bara vel með þitt verðtryggða lán. Þú þarft á því að halda. Hérna er annars þetta sett svona upp í reiknivél Landsbankans. Það eina sem er óraunhæft þarna í verðtryggðaláninu er að verðbólgan sé stöðug 4,3% allan lánstímann. Það bara gerist ekki og eru sveiflur í verðbólgu frá -1,0% og upp í 6,0% á Íslandi flest góð ár. Ég kann hagfræði og það eru kominn aðeins meira en 10 ár síðan allt hrundi í verðtryggðum lánum og kerfið þarf að leiðrétta sig aftur og á Íslandi er það gert með efnahagskreppu sem varir í nokkur ár með hárri verðbólgu eins og farið er að sjást núna. Á þessum tíma fer fullt af fólki í hausinn vegna þess að það nær ekki að halda í við hækkandi afborganir af verðtryggðu lánunum.

Ég hef séð svona afneitun á staðreyndum áður og þeir sem viðhafa þær svona afneitun hafa alltaf rangt fyrir sér.

Það er verið að benda þér á að þú veist ekki hvernig afborgun á verðtryggðu láni er reiknuð. Vextirnir eru greiddir um hver mánaðamót. Þeir leggjast ekki á höfuðstólinn heldur verðtryggingarþátturinn.

Það er greinilegt á þessu innleggi að þú kannt ekki hagfræði. Það voru ekki verðtryggð lán sem ollu vandræðum í hruninu heldur gengislánin. Gott samt að sjá að þú getur slegið inn í lánareiknivélar bankanna.

Ég þakka líka hugulsemina í minn garð en verð að upplýsa þig að ég er ekki með verðtryggð lán frekar en önnur lán og þarf því ekki að hafa áhyggjur af þessu. Mér er samt ljúft og skylt að leiðrétta staðreyndavillur eins og þær sem koma fram í póstinum hjá þér.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 19. Apr 2021 20:52
af jonfr1900
Þetta hérna er frétt frá árinu 2014 af fólki sem tók húsnæðislán árið 2006.

Lánið hækkað um 11 milljónir: „Ég vildi fara öruggu leiðina“ (Vísir.is)

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Þri 20. Apr 2021 09:42
af falcon1
GuðjónR skrifaði:
falcon1 skrifaði:Það er eitthvað verið að spila með okkur finnst mér... Seðlabankinn þarf að gæta sín betur núna í vaxtahækkunum þar sem lánasamsetning heimilanna er gjörbreytt! Ef þeir fara of skart í vaxtahækkanir þá gæti það endað með mörgum heimilum í rúst ofaná allt annað.

Ekki nema það sé markmiðið, þá geta hrægammarnir eignast heimili fólks á brunaútsölu eins og gerðist eftir bankahrunið. Þá voru það gengistryggð lán og verðtryggingin sem fór ílla með tugþúsundir íslendinga, kannski verða óverðtryggðu vextirnir næsta ponzi scam stjórnvalda?

Ég gæti vel trúað því enda erum við að tala um Ísland þar sem fjármála- og elítuöflin komast upp með hvað sem er en almúginn situr alltaf uppi með reikninginn.
Ég treysti engu hérlendis enda eru bakstunguhnífarnir óspart notaðir.

Finnst samt að föstu vextirnir hafi hækkað of mikið til að taka ekki sénsinn aðeins lengur á breytilegum vöxtum til að reyna að njóta þessarar greiðslubyrði aðeins lengur. Ég hef svigrúm til að takast á við vaxtahækkanir ef til þeirra kemur.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 29. Apr 2021 10:16
af GullMoli
https://www.visir.is/g/20212102777d/ver ... -ad-haekka

"Ársverðbólga mælist því 4,6% í apríl og hækkar um 0,3 prósentustig frá því í mars. Hefur hún ekki verið hærri frá því í febrúar 2013 eða í rúm átta ár. Þá mældist ársverðbólga 4,8%."

Djöfull er ég feginn að vera ekki með verðtryggt lán.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 29. Apr 2021 10:47
af KRASSS
Einnig fastir vextir hafa hækkað á íbúðarláni hjá ISB
3 ár - 4.45%
5 ar - 4.95%

er það ekki bara timaspurnsmal þangað til að breytilegu fara fljúga

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 29. Apr 2021 11:12
af appel
óverðtryggðir íbúðalánavextir eru lægri heldur en verðbólgan.

semsagt óverðtryggðu lánin eru að "brenna upp".

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 29. Apr 2021 11:25
af gunni91
Er ekki næsta skref Ásgeir hækki stýrivexti um 0.25%?

Nú eru fastir vextir að hækka hægt og bítandi... A einhverjum tímapunkti fylgja breytilegu með ](*,)

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 30. Apr 2021 08:26
af GuðjónR
Verðbólgan mælist 4.6% sem er súrealískt í ljósi þess að við erum ekki að ferðast og gengi krónunnar er betra núna en það var fyrir ári síðan.
Hvernig væri að Festi og aðrar stórar keðjur tækju örlitla samfélagslega ábyrgð og lækkuðu vöruverð í takt við gengið í stað þess að glotta yfir methagnaði í heimsfaraldri og kreppu, seðlabankastjóri hefur kallað eftir því og jafnframt sagt að ef þeir geri það ekki þá verði vextir hækkaðir.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... ar_afkomu/

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 30. Apr 2021 09:34
af appel
Það er enginn að fara sleppa því að græða.

Svo er greinilega verið að undirbúa okkur fyrir vaxtahækkun, öllu slegið upp þannig í fjölmiðlum ásamt því að seðlabankstjóri hefur sagt það. Þannig að don't be surprised.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 30. Apr 2021 10:53
af blitz
Að halda að þetta hafi ekki áhrif er kjánalegt.

Timbur:
Mynd

Olía:
Mynd

Korn:
Mynd

Hafrar:
Mynd

Kopar:
Mynd

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 30. Apr 2021 11:10
af depill
Launaliður hækkað mjög mikið, hefur áhrif
Shipping kostnaður frá kína er nálgast að 3 faldast frá byrjun covid ( og samt erfitt að fá hluti í skip )
Launaliður í kína hefur hækkað mikið
Hráefni hækkað mikið
https://www.bondi.is/frettir-og-tilkynn ... ekkar/2794

Og svo næstum kerfisbundið byggt miklu minna enn eftirspurning er eftir fasteignum ásamt því að vextir og laun hafa hækkað. Enn vonandi er þetta að koma í lag með shipping það mun leysa mikið af þessu.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 30. Apr 2021 14:14
af jericho
Var einmitt að breyta íbúðaláninu í óverðtryggt (hefði gert það miklu fyrr, hefði ég getað).

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 30. Apr 2021 15:30
af brain
GuðjónR skrifaði:Þú gleymir að það var líka launahækkun í janúar útaf lífskjarasamningunum sem var upp á 15-20þúsund minnir mig.
Það auðvitað smyrst ofan á gengislækkanir.
Geri mér grein fyrir því, hækkandi vöruverð kallar á hærri laun svo þú getir keypt vöruna sem aftur hækkar vöruna ennþá meira. Það þarf að skera á hnútinn. Við fáum aldrei heilbrigt fjármálakerfi fyrr en við losnum við krónuna sem er krabbameinið eða festum gengi hennar við stærri og stöðugri miðla.[/quote]

Hætta þá launahækkanir þegar við missum Krónuna ? :p

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 30. Apr 2021 18:32
af jonfr1900
Það er hægt að rekja næstum því alla verðbólgu á Íslandi til íslensku krónunnar og lægra gengis. Þetta þýðir í raun það að verið er að lækka laun fólks í gegnum lægra gengi og verðbólgu. Áður en þið vitið af þá verða lægstu laun á Íslandi kominn upp í 900.000 og munu ekki duga fyrir íbúð í Reykjavík, hvorki til leigu eða kaups.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Sun 02. Maí 2021 10:30
af fhrafnsson
Nú er maður að skoða að festa vextina þar sem allt tal virðist á þann veg að stýrivextir hækki. Það er þó töluverður óvissufaktor (Seðlabankinn að hætta að kaupa evrur t.d.) sem flækir málin enn frekar.

Er fólk almennt að festa breytilega vexti þessa dagana?

Þegar ég skoða vaxtatöfluna: https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/lan-og-heimildir/ibudalan/overdtryggd-lan sýnist mér að vextir muni hækka um 1.25% (úr 3.3% í 4.5+4.7%) á stóra láninu og 1.4% á litla láninu (úr 4.3 í 5.7). Þetta er því aukning vaxtakostnaðar um um það bil 35%. Til þess að það borgi sig að festa þurfa stýrivextir að hækka all hressilega á næstu árum og því finnst mér þetta frekar erfið ákvörðun. Hækki stýrivextir um 2% á þessum 5 árum jafnt og þétt myndi frekar borga sig að éta þá hækkun sýnist mér til dæmis.

Einhver hér fróðari en ég sem gæti komið með sitt álit?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Sun 02. Maí 2021 10:51
af GuðjónR
fhrafnsson skrifaði:Nú er maður að skoða að festa vextina þar sem allt tal virðist á þann veg að stýrivextir hækki. Það er þó töluverður óvissufaktor (Seðlabankinn að hætta að kaupa evrur t.d.) sem flækir málin enn frekar.

Já frekar skrítin ákvörðun að hætta Evrukaupum á þessum tímapunkti, gengi krónunnar gaf strax eftir.
Meðvituð gengisfelling til aðstoðar útflutningnum? Veit ekki...

Varðandi lánið þá er ég í sömu stöðu, með 3.3% ... ég ætla að halda mínu striki og taka sénsinn áfram með breytilega vexti en borga það sem ég get borgað auka mánaðarlega og lækkað höfuðstólinn og undirbúið mig þannig undir hækkandi vexti.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Sun 02. Maí 2021 11:06
af Revenant
jonfr1900 skrifaði:Það er hægt að rekja næstum því alla verðbólgu á Íslandi til íslensku krónunnar og lægra gengis. Þetta þýðir í raun það að verið er að lækka laun fólks í gegnum lægra gengi og verðbólgu. Áður en þið vitið af þá verða lægstu laun á Íslandi kominn upp í 900.000 og munu ekki duga fyrir íbúð í Reykjavík, hvorki til leigu eða kaups.

Fólk vill hærri tölu í launaumslagið sitt. Skiptir engu hvort það sé innstæða fyrir því. Verðbólga og gengisfelling "laga" því launin relatíft m.v. útlönd.

Mjög grófur útreikningur á meðal-mánaðartekjum einstaklinga áranna 2017-2020 deilt með gengi ISK/EUR í byrjun jan hvers árs þá breytast laun í evrum lítið (um €4400 +/- €100).
Launahækkanir á Íslandi hafa því ekki verið að skila sér í hærri launum "í evrum".

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Sun 02. Maí 2021 12:06
af Hizzman
Og verðbólga er hagnaður fyrir ríkissjóð!

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Sun 02. Maí 2021 14:38
af falcon1
Annað sem gæti haft áhrif á okkur hérlendis er hvað gerist í USA. Biden ætlar að dæla svakalegum upphæðum í hagkerfið þar og ef það endar í verðbólgu og hækkun vaxta þá mun það líklega einnig hafa áhrif á okkar vaxtastig. Mér finnst ansi mörg rauð ljós vera farin að blikka þannig að ég er alvarlega farin að íhuga að festa vextina, spurningin er ekki hvort heldur hvenær og hvort það verði í 3 eða 5 ár.
Ég var frekar bjartsýnn miðað við umræðuna frá Seðlabankanum og bönkunum að maður gæti verið rólegur þetta árið en ég hugsa að það muni ekki standast.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Sun 02. Maí 2021 15:35
af jonfr1900
GuðjónR skrifaði:
fhrafnsson skrifaði:Nú er maður að skoða að festa vextina þar sem allt tal virðist á þann veg að stýrivextir hækki. Það er þó töluverður óvissufaktor (Seðlabankinn að hætta að kaupa evrur t.d.) sem flækir málin enn frekar.

Er fólk almennt að festa breytilega vexti þessa dagana?

Þegar ég skoða vaxtatöfluna: https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/lan-og-heimildir/ibudalan/overdtryggd-lan sýnist mér að vextir muni hækka um 1.25% (úr 3.3% í 4.5+4.7%) á stóra láninu og 1.4% á litla láninu (úr 4.3 í 5.7). Þetta er því aukning vaxtakostnaðar um um það bil 35%. Til þess að það borgi sig að festa þurfa stýrivextir að hækka all hressilega á næstu árum og því finnst mér þetta frekar erfið ákvörðun. Hækki stýrivextir um 2% á þessum 5 árum jafnt og þétt myndi frekar borga sig að éta þá hækkun sýnist mér til dæmis.

Einhver hér fróðari en ég sem gæti komið með sitt álit?

Já frekar skrítin ákvörðun að hætta Evrukaupum á þessum tímapunkti, gengi krónunnar gaf strax eftir.
Meðvituð gengisfelling til aðstoðar útflutningnum? Veit ekki...

Varðandi lánið þá er ég í sömu stöðu, með 3.3% ... ég ætla að halda mínu striki og taka sénsinn áfram með breytilega vexti en borga það sem ég get borgað auka mánaðarlega og lækkað höfuðstólinn og undirbúið mig þannig undir hækkandi vexti.

Þetta er örugglega gengislækkun til þess að hækka hagnað útflutning á sjávarafurðum. Gamlir ósiðir deyja hægt á Íslandi. Það má ekki mikið breytast frá því sem er núna í dag til þess að verðbólgan rjúki upp frá því sem er núna í dag. Þessi óstjórn á efnahag Íslands er langtímavandamál og mun aldrei hverfa svo lengi sem íslendingar fá að ráða yfir helstu grunnatriðum í hagkerfinu.

Seðlabankinn mun á endanum þurfa að grípa aftur inn í gjaldeyrismarkaðinn en þá verður skaðinn skeður og allt farið í meiriháttar vitleysu.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 03. Maí 2021 13:54
af dadik
falcon1 skrifaði: Mér finnst ansi mörg rauð ljós vera farin að blikka þannig að ég er alvarlega farin að íhuga að festa vextina, spurningin er ekki hvort heldur hvenær og hvort það verði í 3 eða 5 ár.
Ég var frekar bjartsýnn miðað við umræðuna frá Seðlabankanum og bönkunum að maður gæti verið rólegur þetta árið en ég hugsa að það muni ekki standast.

Ég efast um að þú eigir eftir að fá lægri vexti en þá sem eru í boði núna. Mín ráðlegging væri að festa þetta núna.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 03. Maí 2021 15:36
af Hallipalli
dadik skrifaði:

Afhverju ekki að njóta "lágra" vaxta eins lengi og hægt er

ef 3.30% breytilegir fara að hækka.... hversu langan tima tekur þá að hækka í 4.50%?

Ef það tekur 2-3 ár þá er það ekki þess virði að festa því þú getur bara fest í 3ár (eða 5ár fyrir hærri vexti)

Og ef þú festir þá er 1% uppgreiðslugjald

Svo þetta er alltaf bara gamble hvenær er best :D

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 03. Maí 2021 16:38
af GuðjónR
Hallipalli skrifaði:

Þannig hugsa ég þetta :happy :happy :happy

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mán 03. Maí 2021 19:55
af fhrafnsson
Það er samt ekki uppgreiðslugjald ef maður er með óverðtryggt lán með breytilegum vöxtum. Kostnaðurinn hjá Landsbankanum er 10.000kr að breyta láninu (og þeir bjóða bara upp á að breyta "stóra" láninu í fasta vexti).

Þetta er auðvitað gambl í báðar áttir.