Blikur á lofti í vaxtamálum

Allt utan efnis

jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2415
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 282
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Pósturaf jonfr1900 » Mið 07. Feb 2024 12:03

Atvagl skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Þetta fólk er svo hræðilega vanhæft.

Stýrivextir áfram 9,25 prósent (Rúv.is)


Hvað finnst þér að þeir ættu að gera?
Það er engin góð ástæða til þess að leggja í vaxtalækkanir núna strax, verðbólga á bara eftir að hækka þegar aðgerðir vegna Grindavíkur fara í gang og niðurstöður kjarasamninga skýrast.


Það er verið að rembast við að halda raunvöxtum jákvæðum. Það er algjörlega galin stefna og það ætti bara að hafa raunvexti neikvæða. Það mundi til lengri tíma lækka verðbólguna á Íslandi.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7077
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Pósturaf rapport » Mið 07. Feb 2024 12:28

jonfr1900 skrifaði:
Atvagl skrifaði:Það er verið að rembast við að halda raunvöxtum jákvæðum. Það er algjörlega galin stefna og það ætti bara að hafa raunvexti neikvæða. Það mundi til lengri tíma lækka verðbólguna á Íslandi.


Ástand markaða á Íslandi er svo "aumt" eitthvað.

Ég er innilega sammála þér í að áhættulaus ávöxtun á Íslandi í dag ætti að vera neikvæð. Ég er bara hræddur um að skortur á regluverki á húsnæðismarkaði muni gera það að verkum að þangað færu allir að sækja sér ávöxtun... sem er líklega bara gott því að það vantar enn meiri pressu á yfirvöld að skaffa lóðir o.þ.h. en til lengri tíma þá yrðu það alltaf leigjendur sem þyrtu að standa undir ávöxtuninni því að fólk selur ekki eiginir til að leysa út arð, því það vill græða enn meira því að allt er orðið enn dýrara.

Það þarf að gera skýran greinamun á skammtíma og langtímaleigu þar sem skammtímaleiga er skattlögð og efitlit sé í höndum viðskiptaráðuneytis og lög og reglum tengd ferðaþjónustu eigi við. Langtímaleiga á aftur á móti að era undir eftirliti HMS og það á að skilgreina kröfur um ástand eigna, heilbrigðissjónarmið o.þ.h. og að HMS geti látið gera við eign á kostnað eiganda ef ábendingum er ekki sinnt og öðlist við það lögveð í eigninni.

Þetta yrði til þess að það væri áhættusamt að leigja út langtíma og ávöxtunin ekki jafn örugg ef gæði húsnæðisins eru ekki 100%.

Samhliða þessu þarf að tryggja réttindi leigjanda betur t.d. að ef þeir lendi í vanskilum þá fái leigusali greitt frá HMS eða sveitafélgi (gæti verið afsláttur/inneign af sköttum og gjöldum) en það færi vinna af stað hjá HMS eða sveitafélgi við að koma leigjanda í húsnæði í samræmi við hans greiðslugetu og félagslegu aðstæður. Þetta yrði velferðarþjónusta sem styður við "réttinn til að halda heimili" og bregst við áður en allt fer í kalda kol og fólk endar á götunni.

En, já, neikvæð raunávöxtun á áhættulausum fjárfestingum mun vonandi keyra fé í átt að sprotafyrirtækjum, hlutafjáraukningu stækkandi fyrirtækja og innviðauppbyggingu.

Þetta mun þó gera ríkinu erfðara um vik að fjármagna sig, þetta mun pirra almenning helling en á sama tíma þá verða allskonar aðgerðir og uppbygging arðsamari = þetta mun koma framkvæmdum af stað... eða það getég ímyndað mér.




Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Pósturaf Hizzman » Fim 08. Feb 2024 11:20

jonfr1900 skrifaði:
Atvagl skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Þetta fólk er svo hræðilega vanhæft.

Stýrivextir áfram 9,25 prósent (Rúv.is)


Hvað finnst þér að þeir ættu að gera?
Það er engin góð ástæða til þess að leggja í vaxtalækkanir núna strax, verðbólga á bara eftir að hækka þegar aðgerðir vegna Grindavíkur fara í gang og niðurstöður kjarasamninga skýrast.


Það er verið að rembast við að halda raunvöxtum jákvæðum. Það er algjörlega galin stefna og það ætti bara að hafa raunvexti neikvæða. Það mundi til lengri tíma lækka verðbólguna á Íslandi.


þessi raunávöxtun fer öll í ríkiskassann! fjármagnstekjuskatturinn sér til þess.




Semboy
</Snillingur>
Póstar: 1059
Skráði sig: Lau 05. Maí 2007 22:28
Reputation: 102
Staða: Ótengdur

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Pósturaf Semboy » Fim 08. Feb 2024 19:45

Hjaltiatla skrifaði:Þið sem eruð með fasta vexti og viljið reikna með einföldu móti hvernig næsta fasteignalán gæti litið út þá er þetta ágæist reiknivél.
https://www.inertia.is/lanareiknir2/

Hjá mér myndu afborganir rúmlega tvöfaldast miðað við að fara úr óverðtryggðu jafngreiðsluláni með 4,35% fasta vexti yfir í 10,89% lán með breytilegum vöxtum hjá Arion. Ég þarf að pæla í þessu eftir sirka ár og núna virðist Brú lífeyrissjóður vera bjóða hagstæðustu vextina fyrir óverðtryggð lán skv Aurbjörg.
https://min.aurbjorg.is/husnaedislan

Spurning hvað þarf til til að eiga rétt á að taka lán hjá Brú lífeyrissjóð , þarf líklega að skoða það betur :-k


Takk hjaltiatla, Ég verð laus eftir 14 mánuði er á 5.1% núna hjá LSR.


hef ekkert að segja LOL!


falcon1
Gúrú
Póstar: 558
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 57
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Pósturaf falcon1 » Fös 09. Feb 2024 10:34

Ég er sem betur fer með fasta vexti nánast út 2026. En ef þeir væru að losna í dag þá þyrfti ég að borga 94% hærra eða næstum 100 þúsundum krónum meira. Mann munar alveg um það. Vonandi fara vextirnir að lækka eitthvað.




gunni91
Vaktari
Póstar: 2604
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 193
Staða: Ótengdur

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Pósturaf gunni91 » Mið 20. Mar 2024 23:24

Það er ekki mikið að gerast.. Verðbólga stendur í 6.6% ( fór hæst uppí 10.2% þann þann 1.2.23) - Hóflegir kjarasamningar undirritaðir og það er ekki "innistæða" að slaka á stýrivöxtum ](*,)

https://heimildin.is/grein/21287/

Hvaða skoðanir hafið þið á þessu? :sleezyjoe
Síðast breytt af gunni91 á Mið 20. Mar 2024 23:25, breytt samtals 1 sinni.




jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2415
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 282
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Pósturaf jonfr1900 » Mið 20. Mar 2024 23:53

gunni91 skrifaði:Það er ekki mikið að gerast.. Verðbólga stendur í 6.6% ( fór hæst uppí 10.2% þann þann 1.2.23) - Hóflegir kjarasamningar undirritaðir og það er ekki "innistæða" að slaka á stýrivöxtum ](*,)

https://heimildin.is/grein/21287/

Hvaða skoðanir hafið þið á þessu? :sleezyjoe


Það ætti einhver að athuga með þessar gráður sem seðlabankastjóri er með. Þar sem hann leiðir þessa nefnd sem ákveður vaxtastigið.