Síða 1 af 1

#$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Þri 23. Mar 2021 20:32
af mikkimás
Eru fleiri að lenda í því með Nvidia Shield að RÚV appið vill ekki lokast?

Er að verða verulega pirraður á að þurfa að taka græjuna úr sambandi eftir hvert einasta skipti sem ég er búinn að horfa á RÚV.

Re: #$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Þri 23. Mar 2021 20:47
af Dóri S.
Sæktu bara Nova appið sem inniheldur Rúv og eyddu Rúv appinu... Það er aldrei uppfært og er bara leiðinlegt.

Re: #$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Þri 23. Mar 2021 22:22
af rapport
Uxinn appið virkar ágætlega líka.

Re: #$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Þri 23. Mar 2021 22:27
af Uncredible
Hvað meinarðu vill ekki lokast?

Re: #$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Þri 23. Mar 2021 22:51
af snaeji
Endilega útskýrðu nánar hvað þú átt við með því að það vilji ekki lokast?

Annars er þetta eins konar beta útgáfa sem er úti núna, og von á almennilegri uppfærslu bráðlega.

Re: #$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Mið 24. Mar 2021 00:03
af jonfr1900
mikkimás skrifaði:Eru fleiri að lenda í því með Nvidia Shield að RÚV appið vill ekki lokast?

Er að verða verulega pirraður á að þurfa að taka græjuna úr sambandi eftir hvert einasta skipti sem ég er búinn að horfa á RÚV.


Þeir bættu við 'Exit' neðst í appinu. Þetta er nýleg breyting.

Re: #$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Mið 24. Mar 2021 17:59
af mikkimás
snaeji skrifaði:Endilega útskýrðu nánar hvað þú átt við með því að það vilji ekki lokast?

Annars er þetta eins konar beta útgáfa sem er úti núna, og von á almennilegri uppfærslu bráðlega.

Ég kalla fram valmyndina vinstra megin, vel neðsta valmöguleikann að nafni "x Hætta", og ekkert gerist.

Re: #$%& RÚV app fyrir Shield

Sent: Mið 24. Mar 2021 19:49
af audiophile
RÚV appið á Android TV var með vesen hjá mér í gær en lagaðist þegar ég uppfærði Android System Web View. Ekki sama vesen en kannski vert að skoða.