Síða 1 af 1

Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Þri 09. Mar 2021 10:18
af osek27
Ég þarf mikið a loftræstingu að halda til að kæla herbergið i vinnunu. Hvað er ódýrast að gera sem mun ekki kosta nokkrar milljónir i framkvæmdum til að kæla loftið hjá okkur? Ég var að hugsa um svona ac unit sem mapur hefur seð allstaðar i hotelum og svona.
Einhver loftræsti sérfræðingur her? Hann ma endilega hafa samband við mig

P.s ekki pæla i snurum sem eru útum allt.etta er allt i vinnslu og eg var að kaupa fullt ag cable management doti sem verður sett fljótlega

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Þri 09. Mar 2021 11:52
af Viktor
:-k

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Þri 09. Mar 2021 12:51
af osek27
Treystu mér við erum búin að checka á þessu. Hún blæs ekki og svo það komi eitthvað loft þaðan þá þarf að setja kerfið í ráðhúsinu í botn, þá er allt húsið orðið að ísskápp og við fáum varla eitthvað loft til okkar. Þegar allar tölvurnar eru í gangi og að auk 10 unglinga sem eru enn að læra hvað sturta og hreinlæti eru. Allt herbergið súrnar eftir mjög stuttan tíma og hitastigið er að nálgast 40 gráðum þar að auki

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Þri 09. Mar 2021 14:57
af birgirs
Ég hef alltaf séð svona loft unit tengt við kælipressu eða hvað það heitir fyrir utan hús.

Ertu ekki frekar að leita af einhverju sem er hægt að hafa á gólfi eins og þessar:
https://www.coolshop.is/heimili-eldhus/ ... ftkaeling/

Sýnist alltaf þurfa að hafa barka sem sækir í ferskt loft.

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Þri 09. Mar 2021 15:01
af bigggan
Þetta heitir varmadælur hérna og þetta er ekki svo dýrt flott LG únit sa ég einhvern tíma siðan kosta kringum 200 þúsund án uppsetning. Passaðu bara að varmadælan getur bæði hitað og kælt sumir geta bara annaðhvort. Passaði líka að setja niðurfall fyrir vatn þegar þú ert aðallega að kæla

http://www.vorukaup.is/index.php/varmadaelur

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Þri 09. Mar 2021 16:22
af oskarom
Mitt fyrsta stopp þegar ég þarf að eiga við loft er klárlega Íshúsið (viftur.is) þeir eru með allskonar sniðugt, ég breytti bílskúr í studíó íbúð '19 og fann allt sem mig vantaði til að hafa góða loftun fyrir lítinn pening, var reyndar ekki að pæla í loftkælingu vildi bara geta haldið loftgæðum góðum fyrir þá sem búa í íbúðinni.

Loftkælingar unit eins og þetta gæti sjálfsagt kælt loftið, en þetta verður aldrei í lagi nema það séu góð loftskipti, það er algjört lykilatrið, sérstaklega ef þú ert með ekki stærra rými fullt af unglingum :)

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Þri 09. Mar 2021 22:51
af Viktor
osek27 skrifaði:Treystu mér við erum búin að checka á þessu. Hún blæs ekki og svo það komi eitthvað loft þaðan þá þarf að setja kerfið í ráðhúsinu í botn, þá er allt húsið orðið að ísskápp og við fáum varla eitthvað loft til okkar. Þegar allar tölvurnar eru í gangi og að auk 10 unglinga sem eru enn að læra hvað sturta og hreinlæti eru. Allt herbergið súrnar eftir mjög stuttan tíma og hitastigið er að nálgast 40 gráðum þar að auki

Hljómar eins og loftið komist hvergi út, þeas. að það sé engin hringrás. Spurning hvort það sé ráð að kanna hvort það sé einhver lausn á því áður en AC græja er sett upp.

Svo myndi ég skoða eitthvað svona: https://www.coolshop.is/heimili-eldhus/ ... ftkaeling/

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Mið 10. Mar 2021 01:40
af Náttfari
Ég myndi skoða hvort það sé einhver stýring á stokknum sem kemur inn í herbergið. Hún getur verið bæði handstýrð eða rafstýrð. Þetta kallar auðvitað á að það þurfi að opna einhverjar loftaplötur en það auðveldar málin ef það er einungis hún sem er lokuð.
Svo ef hún er galopin en loftið drífur ekki til ykkar þá er næsta mál að skoða hvort það sé eitthvað sog í herberginu til að taka loftið frá ykkur. Sama hér, það getur verið stýring. Ef hún er ekki þá getið þið skoðað að attacha blásara á út-sogið til að draga heita loftið frá ykkur og út. Með því skapið þið negative pressu sem á sama tíma dregur þá annað loft inn í rýmið, allavega kaldara loft en er til staðar.

Hvað sem þið gerið, ekki setja upp AC því það kælir einungis loftið sem er fyrir. Loftið heldur áfram að vera jafn súrefnislaust.

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Mið 10. Mar 2021 07:28
af Etinn
Mundi bara leggja áherslu á að finna góðann lögaðila og láta hann endurstilla kerfið fyrir ykkur svo það virki rétt. Þarf ekkert að vera það þurfi að kosta eitthvað efni
Spurning hvort að heildsölurnar geta bent þér á einhvern góðann, s.s. íshúsi, rönning eða einhver annar.

Hugsa að sitja svona viftur geti verið þvílíkt eitur þegar það kemur að heilsufarsmálum. Lætur bara sveppina og bakteríurnar fara í hring eftir hring í herberginu. Sem er kannski í lagi þegar það er bara ein manneskja í herberginu í sinni eigin flóru, en strax þegar þú ferð upp úr því þá er það eiginlega fráleitt.
Bætt ofaná það, þá er covid. :D

Er enginn sérfræðingur en held að maður vilji alltaf nýtt loft inn og gamla loftið út, sérstaklega ef það eru til loftræsting lagnir fyrir.

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Mið 10. Mar 2021 12:40
af steinarorri
En að öðru í ljósi jarðskjálftanna undanfarið... Vonandi eru tölvukassarnir festir þarna á hilluna ;-)

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Mið 10. Mar 2021 16:43
af osek27
auðvitað

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Mið 10. Mar 2021 17:59
af Minuz1
Kalt vatn í gegnum vatnskassa og viftur á.
AC á Íslandi er tóm tjara.

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Mið 10. Mar 2021 18:06
af einarhr
Minuz1 skrifaði:Kalt vatn í gegnum vatnskassa og viftur á.
AC á Íslandi er tóm tjara.

Nækvæmlega, TD svona Varmapumpur eru snild til þess að hita bústað eða lítið hús til þess að spara rafmagskostnað og borga sig upp á 2 árum en þegar AC er sett á þá er það þver öfugt. Sniðugt tæki í flestum tilvikum.

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Mið 10. Mar 2021 18:18
af rapport
Hvaða rafíþróttadeild er hér á ferð, ef má spyrja?

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Fim 11. Mar 2021 15:04
af osek27
Þór Þorlákshöfn. Þetta er allt í vinnslu :D

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Fös 12. Mar 2021 12:36
af Viktor
Náttfari skrifaði:Ég myndi skoða hvort það sé einhver stýring á stokknum sem kemur inn í herbergið. Hún getur verið bæði handstýrð eða rafstýrð. Þetta kallar auðvitað á að það þurfi að opna einhverjar loftaplötur en það auðveldar málin ef það er einungis hún sem er lokuð.
Svo ef hún er galopin en loftið drífur ekki til ykkar þá er næsta mál að skoða hvort það sé eitthvað sog í herberginu til að taka loftið frá ykkur. Sama hér, það getur verið stýring. Ef hún er ekki þá getið þið skoðað að attacha blásara á út-sogið til að draga heita loftið frá ykkur og út. Með því skapið þið negative pressu sem á sama tíma dregur þá annað loft inn í rýmið, allavega kaldara loft en er til staðar.

Hvað sem þið gerið, ekki setja upp AC því það kælir einungis loftið sem er fyrir. Loftið heldur áfram að vera jafn súrefnislaust.

Heitt loft streymir upp, svo er það eru 10 tölvur á full blast og hitinn í herberginu orðinn mikill þá er erfitt fyrir loftræstikerfi að dæla lofti niður, eins og hún er líklega að reyna að gera þarna.

Það væri ekki vitlaust að athuga bæði hvort loftið komist nægilega auðveldlega út - og að reyna að kæla herbergið niður - svo að hitinn sé ekki að “stífla” loftræstistokkinn þarna í miðju loftinu.

Re: Vantar ráð með loftræstingu

Sent: Sun 21. Mar 2021 14:46
af Etinn
Sallarólegur skrifaði:

Góð rök, samt erfitt að greina vandamálið nema vera mættur á svæðið.

Fyrir sérfræðing þá gæti verið að það þurfi bara svo rétt svo að líta á kerfið og hann gæti gert það fyrir minna en AC mundi kosta í efni og uppsettningu.

En ég hugsa að flestir sem vinna við loftræstingar á íslandi viti ekki alveg hvað þeir eru að gera og flest kerfinn eru hönnuð af óreyndum verkfræðingum sem vita nærrum því ekkert hvað þeir eru að gera. Svo maður þarf að hafa varann á.

Best svarið væri samt, að þeir eru voða heppnir að fá aðstöðu og svona "fína" aðstöðu, en það er spurning hvort það eigi að vera troða 7+ einstaklingum í 3-8 tíma í gluggalaust rými sem er ábyggilega ætlað sem tveggja manna skrifstofa, kaffistofa eða geymslu. :'D

Súrefni er verulega mikilvægt, þó margir kunna að vanmeta það. Það getur 2x afköstinn þín ef loftið er gott.