Síða 17 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 08. Apr 2021 21:41
af mjolkurdreytill
jonfr1900 skrifaði:Sem dæmi þá hefur lengi verið litið á sem að lítil eldgos geti ekki átt sér stað. Eitt slíkt gerðist í Júlí 2011 þegar smágos varð í Kötlu og það olli flóði sem tók af brúna við Múlakvísl (frétt frá árinu 2011). Ég held að það sé ennþá verið að þræta fyrir að þarna hafi orðið smágos í Kötlu. Ég skrifaði í greinum á þessum tíma að ég teldi að þarna væri um eldgos að ræða (en enginn var sammála mér með þær hugmyndir). Hérna er grein í pdf um smágosið sem varð í eldstöðinni Hamarinn í Júlí 2011 og varði í 6 til 8 klukkutíma.


Þetta er nú undarleg söguskoðun. Þú varst síður en svo sá eini sem vildi meina að gos hefði átt sér stað.

Sjáðu bara t.d. þetta svar á vísindavefnum frá 2013. (https://www.visindavefur.is/svar.php?id=65703#)

Guðrún Larsen, Magnús Tumi Guðmundsson og Olgeir Sigmarsson skrifaði:Hugsanlegt er að lítil gos sem ekki náðu að brjótast upp úr jökli hafi orðið öðru hverju milli stærri gosanna, síðast í júní 1955, júlí 1999 og júlí 2011.


Ætli það sé verið að tala um hugsanleg gos vegna þess að bara einn maður var þeirrar skoðunar?

Ekki alveg.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 08. Apr 2021 21:52
af mjolkurdreytill
Í öðrum fréttum.

Skjálftavirknin í dag að eiga sér stað á þremur samsíða sprungum. Enginn yfir 3 að stærð og flestir á +5 km dýpi.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 11. Apr 2021 19:22
af mikkimás
mikkimás skrifaði:Það á einhver mannvitsbrekkan eftir að drepast á þessu svæði á næstunni.

https://www.visir.is/g/20212095742d/gekk-a-nyju-hrauni-rett-fyrir-sprengingu

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 11. Apr 2021 21:07
af GuðjónR
mikkimás skrifaði:
mikkimás skrifaði:Það á einhver mannvitsbrekkan eftir að drepast á þessu svæði á næstunni.

https://www.visir.is/g/20212095742d/gekk-a-nyju-hrauni-rett-fyrir-sprengingu

Meira súrefni fyrir okkur hin...

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 11. Apr 2021 21:16
af mjolkurdreytill
mikkimás skrifaði:
mikkimás skrifaði:Það á einhver mannvitsbrekkan eftir að drepast á þessu svæði á næstunni.

https://www.visir.is/g/20212095742d/gekk-a-nyju-hrauni-rett-fyrir-sprengingu


Þetta er ekki það hættulega þarna. Þá er ég ekki að segja að þetta sé ekki heimskulegt. Það að stíga á hraunið er varasamt og ég leyfi mér að álykta að viðkomandi hafi einhverja hugmynd um það. Hann velur bara að hunsa það.

Mesta hættan leynist í því að fólk haldi að hraunið flæði bara á yfirborðinu og þess vegna sé í fínu lagi að standa við jaðarinn vegna þess að hann er kyrr. Hraunið flæðir hinsvegar að miklu leyti neðanjarðar eða inni í storknaða hrauninu og því geta tungur skotist út úr jaðrinum fyrirvaralaust. Ef það gerist er líklegast um að ræða 1000-1100°C heitt hraun og miðað við myndir dagsins þá gætu alveg 5-10 kjánar horfið á augabragði.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 11. Apr 2021 21:29
af Fumbler
Sáuð þið mistökin í morgunn kl 9:37
https://youtu.be/QD2e8G5R9Tk
var með strauminn opinn í flipa í morgunn þegar ég fór að heyra raddir. í stað straum frá gosinu þá vorum við að sjá frá laptop hjá starfsmanni rúv sem tók þessu eins og atvinnumaður.
tók það upp á obs og var að skella því inn, webcamið kemur á mínútu 9

edit 24.04
Jæja, var að sjá að Rúv var ekki að fíla að þetta væri til þarna. Ok, enda með réttu þeirra efni.
Strike on April 19, 2021
Expires Jul 18
Content removed by RÚV


Þannig að ég klipti það aðeins til og setti það hér ;)
https://vimeo.com/541145691

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 11. Apr 2021 22:20
af steiniofur
Fumbler skrifaði:Sáuð þið mistökin í morgunn kl 9:37
https://youtu.be/QD2e8G5R9Tk
var með strauminn opinn í flipa í morgunn þegar ég fór að heyra raddir. í stað straum frá gosinu þá vorum við að sjá frá laptop hjá starfsmanni rúv sem tók þessu eins og atvinnumaður.
tók það upp á obs og var að skella því inn, webcamið kemur á mínútu 9


Vá þetta er magnað! :)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 11. Apr 2021 22:54
af GuðjónR
Fumbler skrifaði:Sáuð þið mistökin í morgunn kl 9:37
https://youtu.be/QD2e8G5R9Tk
var með strauminn opinn í flipa í morgunn þegar ég fór að heyra raddir. í stað straum frá gosinu þá vorum við að sjá frá laptop hjá starfsmanni rúv sem tók þessu eins og atvinnumaður.
tók það upp á obs og var að skella því inn, webcamið kemur á mínútu 9

hahahahaha snilld!

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 12. Apr 2021 18:02
af falcon1
haha... þvílíkt klúður. Hvernig getur þetta eiginlega gerst? :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 12. Apr 2021 23:58
af mjolkurdreytill
RÚV skrifaði:Heildarrennsli úr hraungígunum á Reykjanesskaga hefur minnkað á nýjan leik eftir að það jókst í síðustu viku. Hraunrennslið hefur verið tæpir fimm rúmmetrar á sekúndu að meðaltali síðustu fjóra daga. Það er nánast sama magn og meðalrennslið sem var úr eldgosinu framan af. Rennslið jókst hins vegar í síðustu viku eftir að fleiri gígar opnuðust.


https://www.ruv.is/frett/2021/04/12/hra ... nkad-aftur

Spurning hvort við munum sjá endurtekningu á því sem gerðist í síðustu viku. Hraunstraumurinn dregst saman áður en nýjar sprungur opnast.

Miðað við hvað virknin hefur verið stöðug norðan við þetta svæði á minna en 3km dýpi þá er eiginlega erfitt að trúa öðru en að þarna muni eitthvað gerast. En það eru víst fáir spámenn í eigin heimalandi.

Þetta er að fikra sig norður á Kjalarnes hægt og rólega ! :sleezyjoe

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 13. Apr 2021 14:06
af thorhs
Var að sjá þetta 3D kort af svæðinu, síðan í gær. Mjög flott að sjá þetta svo ven, og geta hreyft sig um.

Þetta er frá Náttúrufræðistofnun og dreyft á Sketchfab.

https://skfb.ly/onwCL

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 13. Apr 2021 14:16
af Uncredible
thorhs skrifaði:Var að sjá þetta 3D kort af svæðinu, síðan í gær. Mjög flott að sjá þetta svo ven, og geta hreyft sig um.

Þetta er frá Náttúrufræðistofnun og dreyft á Sketchfab.

https://skfb.ly/onwCL



Vá hvað þetta er flott. Gefur manni svo góða mynd af svæðinu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 13. Apr 2021 17:56
af falcon1
Geggjað flott :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 13. Apr 2021 18:43
af jonfr1900
Það opnuðust 4 nýjir gígar í morgun.


Drónamyndir: Fjórir nýir gígar (Rúv.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 13. Apr 2021 18:45
af mikkimás
thorhs skrifaði:Var að sjá þetta 3D kort af svæðinu, síðan í gær. Mjög flott að sjá þetta svo ven, og geta hreyft sig um.

Þetta er frá Náttúrufræðistofnun og dreyft á Sketchfab.

https://skfb.ly/onwCL

Suddalega flott.

Þvílíkir tímar sem við lifum á.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 14. Apr 2021 02:15
af jonfr1900
Áhugaverður jarðskjálfti við Gróttu klukkan 01:16 með stærðina Mw0,6. Dýpið er 16 km. Gæðin eru það há að þetta er mjög líklega raunverulegur jarðskjálfti.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 14. Apr 2021 03:09
af jonfr1900
Það eru fleiri sprungur á svæðinu í kringum eldgosið og þar mun líklega gjósa á endanum.

Fjöldi stóð við sprung­una (mbl.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 14. Apr 2021 10:20
af mjolkurdreytill
jonfr1900 skrifaði:Áhugaverður jarðskjálfti við Gróttu klukkan 01:16 með stærðina Mw0,6. Dýpið er 16 km. Gæðin eru það há að þetta er mjög líklega raunverulegur jarðskjálfti.


Þetta er bara nánast uppi á Kjalarnesi.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 14. Apr 2021 10:55
af Uncredible
jonfr1900 skrifaði:Áhugaverður jarðskjálfti við Gróttu klukkan 01:16 með stærðina Mw0,6. Dýpið er 16 km. Gæðin eru það há að þetta er mjög líklega raunverulegur jarðskjálfti.



Hann er ekki lengur inná kortinu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 14. Apr 2021 12:10
af jonfr1900
Uncredible skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Áhugaverður jarðskjálfti við Gróttu klukkan 01:16 með stærðina Mw0,6. Dýpið er 16 km. Gæðin eru það há að þetta er mjög líklega raunverulegur jarðskjálfti.



Hann er ekki lengur inná kortinu.


Þá hefur þetta verið villa eða rangt staðsettur jarðskjálfti. Það gerist stundum.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 14. Apr 2021 23:59
af jonfr1900
Jarðskjálftinn kom aftur inn. Hefur dottið út vegna villu í kerfinu hjá Veðurstofunni.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 15. Apr 2021 17:06
af falcon1
Nokkrir skjálftar yfir 2 á Reykjaneshryggnum í dag... vonum að ekki fari að gjósa í hafinu. :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 15. Apr 2021 17:13
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Nokkrir skjálftar yfir 2 á Reykjaneshryggnum í dag... vonum að ekki fari að gjósa í hafinu. :D

Er það ekki bara betra?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 15. Apr 2021 17:21
af jonfr1900
falcon1 skrifaði:Nokkrir skjálftar yfir 2 á Reykjaneshryggnum í dag... vonum að ekki fari að gjósa í hafinu. :D


Það hefur verið kvikusöfnun í eldstöðinni Reykjanes í meira en eitt ár núna. Eldgos er ekkert útilokað þarna. Mundi þurfa meiri jarðskjálftavirkni að verða áður en það gerist held ég.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 15. Apr 2021 17:36
af falcon1
GuðjónR skrifaði:
falcon1 skrifaði:Nokkrir skjálftar yfir 2 á Reykjaneshryggnum í dag... vonum að ekki fari að gjósa í hafinu. :D

Er það ekki bara betra?

Nei viltu fá öskufall líka? Er ekki nóg mengun samt? :D