Síða 1 af 19

Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 10:34
af appel
einhver annar sem er orðinn smá ekki-sama ?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 10:37
af Hrímir
sjæse. náði vídeo af þessu þegar ljósin döngluðu í loftinu. btw er í keflavík :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 10:40
af GuðjónR
Úff þetta er svakalegt!

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 10:50
af steiniofur
Það ruggar reglulega ennþá

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 10:55
af Viggi
Fann þetta meiraðsegja hérna fyrir vestan. Eins og einhver hafi sparkað í rúmið :popeyed

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 11:00
af vesi
Kef city dó ekki!

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 11:00
af GuðjónR
5.7 er nokkuð öflugt.
Það sem er óvenjulegt er hversu margir sterkir skjálftar komu í kjölfarið.
Ég hef aldrei áður upplifað svona marka sterka skjálfta í röð.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 11:12
af JVJV
Er í Grindavík. Víbringurinn er meira og minna nonstop þessa stundina.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 11:18
af appel
Jamm, maður heyrir í raun skjálftana koma svona 2-3 sek á undan. Maður heyrir líka hve öflugur hann er þá og hvort maður þurfi að fara undir borðið.

Erfitt að fókusa á eithvað þegar þetta er enn í gangi að því virðist.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 11:35
af falcon1
Heyrði í fyrsta skiptið svona drununið áður en stærsti kom :) en já, maður er ekki alveg vanur því að finna fyrir svona mörgum eftirskjálftum. Hefur yfirleitt verið 1 og kannski 2 sem maður hefur fundið og svo búið.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 11:36
af oliuntitled
Man ekki eftir jafn löngum jarðskjálftum og þessum í dag, stórt og mikið loftræstikerfi hérna hangandi í loftinu og það ískraði og drundi í því öllu ... ekkert alveg frábært að sitja undir þessu :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 11:41
af ChopTheDoggie
Erum allavega komin með gulu merkin aftur :-"
Fann svo fyrir einum í viðbót á meðan að skrifa þetta..

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 16:18
af gutti
það var sirka 6 sem ég fann vell fyrir í dag !!

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 16:20
af ChopTheDoggie
gutti skrifaði:það var sirka 6 sem ég fann vell fyrir í dag !!


Það var einn M5.7 klukkan 10.05, svo nokkur yfir 4 og einn 5 í viðbót.
https://www.vedur.is/skjalftar-og-eldgo ... view=table

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 16:28
af Mossi__
Ég er með þetta í bakgarðinum hjá mér, nánast.

It's been an honor, dúddar :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 16:57
af kizi86
festist í lyftu í korter þegar einn fimmarinn reið yfir, var frekar unsettling sú reynsla....

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 17:40
af Viktor
Þarf ekki að fara að teipa þessar netsnúrur hjá Veðurstofunni betur?

Í hvert skipti sem eitthvað hreyfist þá dettur allt úr sambandi hjá þeim.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 20:52
af mjolkurdreytill
GuðjónR skrifaði:Það sem er óvenjulegt er hversu margir sterkir skjálftar komu í kjölfarið.


Þessi skjálfti er líklegast mjög sambærilegur við skjálftann í Október. Sá var 5,6 og svo fylgdu nokkrir skjálftar 4,6-4,9 í kjölfarið yfir daginn.
Svipað gerðist í dag væntanlega. Fyrsti er 5,7 eða 40% stærri en skjálftinn í Október og síðan fylgja nokkrir skjálftar sem eru milli 4 og 5. Kannski voru fleiri á fyrstu tveimur tímunum í dag miðað við síðasta skjálfta.

Bara svona til gamans þá er 5,7 skjálfti meira en 300x stærri en skjálfti sem er t.d. 4 á stærð og um 20x stærri en skjálftinn sem mældist 4,8. Einhversstaðar sá ég að það væri talað um að vænta mætti skjálfta að stærðinni 6.5. Það væri t.d. skjálfti sem er 15x stærri en skjálftinn í dag. Það þyrfti næstum því 5 þúsund skjálfta af stærðinni 4 til að losa um spennuna.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 20:56
af thorhs
Gerði smá myndband sem sýnir skjalftana: https://youtu.be/9ZQana7_UnE

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 21:01
af appel
thorhs skrifaði:Gerði smá myndband sem sýnir skjalftana: https://youtu.be/9ZQana7_UnE

Flott myndband, en finnst þetta ekki gefa rétta mynd af stærð skjálftanna, þessi icon sem þú notar eru nánast öll af sömu stærð. Veit ekki hvað er M 5.7 eða M 3 þarna.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 21:25
af thorhs
appel skrifaði:Flott myndband, en finnst þetta ekki gefa rétta mynd af stærð skjálftanna, þessi icon sem þú notar eru nánast öll af sömu stærð. Veit ekki hvað er M 5.7 eða M 3 þarna.

Já, veit af því, er ekki búinn að finna góða leið til að scala táknin. Einhver sem kann vel á QGIS?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 23:01
af thorhs
Betrumbætt video, hér sést stærð skjálftana mun betur.

https://youtu.be/kJJob8_tfBI

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Feb 2021 23:19
af appel
thorhs skrifaði:Betrumbætt video, hér sést stærð skjálftana mun betur.

https://youtu.be/kJJob8_tfBI

Ég skil það sem svo að þessi M mælikvarði sé veldisvaxandi... aldrei svosem skilið þennan M mælikvarða (sem margir kalla richter).

Einsog er sagt í þræðinum er 5,7 skjálfti 300x stærri en skjálfti á 4 á stærð. Þannig að þetta vídjó sýnir ekki þann mælikvarða.

Ef þetta yrði frekar sýnt sem fylltir hringir (circles) þá væri yfirborð 5,7 300x stærra en 4. Þannig að væntanlega komast 300x 4M skjálftar fyrir inni í einum 5,7 hring. Þannig skil ég það.

Þannig að þú ættir að teikna hringi sem hafa radíus eða þvermál sem endurspegla 300x stærra flatarmál. Man ekki formúluna, en þetta er held ég grunnskólastærðfræði.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 25. Feb 2021 00:18
af mjolkurdreytill
Það væri líklegast nær að hafa hringina með radíus sem jafngildir stærð skjálftans. Ef þú ætlar að fara að hafa þá með 300-5000x falt flatarmál ferðu fljótt að fylla upp í skjáinn og meira til.

Mögulega gætu mismunandi litir eftir styrkleika líka hjálpað auganu að greina muninnn.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 25. Feb 2021 00:38
af appel
Hérna er svaka dramatískt vídjó sem ber saman magnitute jarðskjálfta
https://www.youtube.com/watch?v=DWFxIgv3Jc0