Síða 1 af 1
NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Sun 07. Feb 2021 20:38
af tRyx
Daginn. Hef verið að spauglera að fara í NTV eða Promennt að læra Kerfisstjórnun, hjá NTV er KERFIS - OG NETSTJÓRI DIPLÓMANÁM og Promennt er Framabraut - Kerfisstjórnun.
Verðið er svipað, en þaðsem heillar mig er Cisco CCNA Routing & Switching, CCNP ROUTING & SWITCHING, CCNP SERVICE PROVIDER.
Málið er að ég hef ekki klárað stúdent og er ekki viss hvort ég ætti að fara beint í það og svo gegnum Háskóla. Eða taka td. Kerfisstjórnun hjá Promennt eða NTV? Hef einhver reynslu að klára hjá öðruhvoru og fá svo starf við svona? Semsagt án Háskólagráðu.
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Sun 07. Feb 2021 20:41
af jonsig
Gætir alveg bara vippað þér í rafeindavirkjan, tekur eitthvað af þessu gumsi þar. Og - eða tekur þetta með því í rólegheitum. Það væri strax sterkari staða ef þú vilt ekki sjá Háskóla. Amk hafa verndað starfsheiti hjálpar, þar sem þú ert skólaður eða ekki neitt lenska hér.
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Sun 07. Feb 2021 21:30
af tRyx
jonsig skrifaði:Gætir alveg bara vippað þér í rafeindavirkjan, tekur eitthvað af þessu gumsi þar. Og - eða tekur þetta með því í rólegheitum. Það væri strax sterkari staða ef þú vilt ekki sjá Háskóla. Amk hafa verndað starfsheiti hjálpar, þar sem þú ert skólaður eða ekki neitt lenska hér.
Ertu þá að tala um taka rafeindavirkjan samhliða NTV/Promennt? Málið er myndi alveg vilja fara í Háskóla en er orðinn 28 og væri svona til að ná að byggja upp jafnvel góða reynslu og þekkingu, svona áður en ég væri búinn eða jafnvel meðan ég væri í Háskóla seinna meir. Finnst eins og að klára Menntaskóla og svo Háskóla (tengt þessu sem mér sýnist ekki vera kennt nema Tölvunarfræði, tölvuverkfræði?) þá yrði eg orðinn svo gamall, ekki nema maður fengi vinnu til að öðlast þekkinguna samhliðaskóla.
Vonandi skilurru svarið, erfitt að skrifa í sima.
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Sun 07. Feb 2021 21:37
af jonsig
Já, ef þú ætlar í einhverja tækni- verkfræðibraut í háskólanum þá þarftu að taka hellings stærðfræði, þú getur tekið frumgreinadeildina á einu ári. Rafeindavirkinn er samt 8.annir. Ég stakk bara uppá því útaf svo margir eru í þessum NTV/promennt pakka og mikil samkeppni um vinnu að fancy gráða eins og rafeindavirkjun gæti kannski gert gæfumuninn.
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Mán 08. Feb 2021 09:52
af Hjaltiatla
Get ekki séð að það sé CCNP pakki inní þessum námsleiðum (CCNA kennsluefni hjá NTV og Network+ kennsluefni hjá Promennt).
Reyndar sé ég persónulega ekki tilganginn að kafa mjög djúpt í CCNP námsefni ef þú ert ekki kominn með einhverja reynslu á vinnumarkaði.
Kannski rökréttara að skoða CCNA nám víst að Networking hlutinn heillar þig. Sjálfum finnst mér verðlagið í dag hjá þessum skólum ekki í takt við raunveruleikann samanborið við námefni sem er í boði á netinu (mun betra námsefni og hands-on-labs í boði á netinu vs fyrir nokkrum árum , VR styrkir nám á netinu líka). Þannig að aðal sölupunkturinn er sá að hvort þessar stofnanir hjálpi þér að fá vinnu eftir nám (myndi fá Mjög góðar upplýsingar áður en þú hendir rúmlega 500.000 kr - 1.300.000 kr í námið og mæta í námskynningu).
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Mið 08. Jan 2025 11:25
af russi
Hjaltiatla skrifaði:Get ekki séð að það sé CCNP pakki inní þessum námsleiðum (CCNA kennsluefni hjá NTV og Network+ kennsluefni hjá Promennt).
Reyndar sé ég persónulega ekki tilganginn að kafa mjög djúpt í CCNP námsefni ef þú ert ekki kominn með einhverja reynslu á vinnumarkaði.
Kannski rökréttara að skoða CCNA nám víst að Networking hlutinn heillar þig. Sjálfum finnst mér verðlagið í dag hjá þessum skólum ekki í takt við raunveruleikann samanborið við námefni sem er í boði á netinu (mun betra námsefni og hands-on-labs í boði á netinu vs fyrir nokkrum árum , VR styrkir nám á netinu líka). Þannig að aðal sölupunkturinn er sá að hvort þessar stofnanir hjálpi þér að fá vinnu eftir nám (myndi fá Mjög góðar upplýsingar áður en þú hendir rúmlega 500.000 kr - 1.300.000 kr í námið og mæta í námskynningu).
Smá þráðarrán og shameless plögg fyrst minnst er á verð hérna. Afsakið það
Er að setja af stað CCNA nám hjá Rafmennt sem er á viðráðanlegra verði eða
285þús. Þetta er ekki einhver "nerfed down" útgáfa af námskeiðinu. Þetta er full fledged útgáfa af CCNA námskeiðinu frá Cisco og ætti aðundirbúa nemendur mjög vel fyrir próf í CCNA. Það má svo alveg henda á mig pm ef þið viljið vita meira
Annars sjáið þið nánar um það
hér
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Mið 08. Jan 2025 12:59
af falcon1
Ég fór í Promennt fyrst, reyndar í bókarann, en hef lítið fengið út úr því vinnulega séð þar sem fyrirtæki virðast ekki vera mikið að taka inn nýgræðinga á þessu sviði. En alltaf gott að kunna bókfærslu samt.
Þannig að ég ákvað að fara í gegnum Háskólabrúnna hjá Keilir og mæli ég alveg með því. Ég er á næstsíðustu önninni núna. Svo hugsanlega í háskóla eftir það. En það allavega opnar margar dyr að vera kominn með ígildi stúdentsprófs hvað sem síðar verður og gott að vera komin með betri þekkingu á t.d. stærðfræðinni. Það á alveg eftir að nýtast manni vel.
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Sun 19. Jan 2025 22:46
af Ivar_F
Mér líst mjög vel á þetta CCNS nám hjá rafmennt og ákvað að slá til og skrá mig... töluvert mikill munur á verið og líka á lengd námskeiða. Vonandi verið maður kominn með CCNA fyrir sumarið

Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Mán 20. Jan 2025 12:18
af Squinchy
En er þetta ekki eingöngu fræðsla og undirbúningur fyrir próf sem er ekki innifalið og þarf að taka annarstaðar? Sé hvergi talað um í lýsingunni að þetta námskeið veiti réttindi eða gráðu.
Er það kannski það sama hjá hinum sem bjóða upp á þetta?
Re: NTV, Promennt. Eða bara í skóla?
Sent: Mán 20. Jan 2025 13:02
af russi
Squinchy skrifaði:En er þetta ekki eingöngu fræðsla og undirbúningur fyrir próf sem er ekki innifalið og þarf að taka annarstaðar? Sé hvergi talað um í lýsingunni að þetta námskeið veiti réttindi eða gráðu.
Er það kannski það sama hjá hinum sem bjóða upp á þetta?
Yfirleit eru prófin ekki innifalin í námskeiðsgjöldum hjá hinum sem bjóða uppá þetta nám. Er það aðallega vegna þess þau kosta alveg slatta og er alveg óþarfi að setja aukna pressu á nemendur, þar sem bæði þetta nám og prófin eru mjög krefjandi.
En þetta kemur kannski ekki nógu vel fram í lýsingu, ég lagfæri það bara.
Prófin eru tekin hjá viðurkenndum prófstöðvum og er hægt að ráða því hvenar maður tekur það, gætir þess vegna skráð þig í próf í næstu viku. Prófið kostar 300$ plús skattur. Þau eru haldin 2x í viku.
Má svo bæta við að þetta námskeið er með sambærilegan tímafjölda og námskeið hjá öðrum. Er sett upp á þann hátt að ekki er kennsla um helgar.