Síða 1 af 2

Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 05. Jan 2021 11:34
af rapport
Vil endilega plata áhugasama úr Grafarvoginum, Grafarholti, Reynisvatnsás og Úlfarsárdal til að skoða þetta.

Íbúasamtök Úlfarsárdals og nokkrir áhugasamir íbúar hafa seinustu vikur verið að undirbúa undirskriftarlista og vefsíðu til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á aðalskipulagi á svæði M22.

Í byrjun febrúar verður listinn afhentur fomlega. Kynnið ykkur málið og stöðvum þessa breytingu.

www.m22.is

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 10:13
af rapport
Mig langar að ítreka þetta, umfjöllunin hefur tekið aðeins við sig og yfir 1000 hafa skrifað undir.

Málið snýst um að mótmæla því að rauða svæðið á myndinni verði iðnaðarsvæði t.d. eins og Höfðarnir eða Vogarnir.

Viðtal í morgunútvarpinu HÉR

Grein af mbl.is, umfjöllun var í blaðinu - https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... i_obreytt/

Allar upplýsingar - https://www.m22.is/

Undirskriftalistinn - https://listar.island.is/Stydjum/97


Mynd

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 10:19
af slapi
Ég skil samt ekki alveg rökfæraluna þar sem þetta er prímastaðsetning fyrir bæði stórar verslanir og atvinnu svo nálægt stofnbraut.
Ég væri ánægður með möguleika á betri þjónustu nær mér.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 10:21
af Maddas
Takk fyrir að benda á þetta, bý í Úlfarsárdalnum og ég er persónulega ekki hrifinn af þessari hugmynd.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 11:05
af rapport
slapi skrifaði:Ég skil samt ekki alveg rökfæraluna þar sem þetta er prímastaðsetning fyrir bæði stórar verslanir og atvinnu svo nálægt stofnbraut.
Ég væri ánægður með möguleika á betri þjónustu nær mér.


Matvöruverslun er bönnuð sem og smærri verslanir ekki á planinu og þá veitingastaðir, bakarí o.þ.h. ekki heldur, þetta er hugsað sem svæði fyrir þá aðila sem verið er að reka frá Höfðanum og Vogunum, s.s. bílaverkstæði, smærri heildverslanir og sérverslanir sem þurfa stórt lagerpláss. Þarna gæti þess vegna komið steypustöð.

Íbúar hér eru líka að upplifa að hafa verið blekktir, að það væru til flott framtíðarplön um stækkun og þróun hverfisins og útivistarsvæðisins hér í kring, þetta skemmir það allt + að kirkjugarðurinn sem ver er að búa til þarna verður lítið kósý að vera í jarðarför og svo er veriað reykja kjöt í næsta húsi og lyktina leggur yfir allt.

Íþróttafélagið Fram var líka platað hingað uppeftir með loforði um 20.000 manna hverfi og styrkum bakgrunn iðkenda, en grundvöllur félagsins er horfinn ef hverfið á ekki að stækka.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 11:20
af Uncredible
rapport skrifaði:
slapi skrifaði:Ég skil samt ekki alveg rökfæraluna þar sem þetta er prímastaðsetning fyrir bæði stórar verslanir og atvinnu svo nálægt stofnbraut.
Ég væri ánægður með möguleika á betri þjónustu nær mér.


Matvöruverslun er bönnuð sem og smærri verslanir ekki á planinu og þá veitingastaðir, bakarí o.þ.h. ekki heldur, þetta er hugsað sem svæði fyrir þá aðila sem verið er að reka frá Höfðanum og Vogunum, s.s. bílaverkstæði, smærri heildverslanir og sérverslanir sem þurfa stórt lagerpláss.



Þetta er algjör skandall, veit ekki afhverju þetta fær ekki meiri umfjöllun, ég get náttúrlega ekki skrifað undir bý ekki í Reykjavík.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 12:10
af IceFox
Ég átti heima í þessu hverfi og er mjög ánægður að vera fluttur þaðan í burtu, hinsvegar væri ég allveg til í iðnaðarpláss þarna svo þetta er topp næs :)

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 12:21
af GullMoli
Ég bý í Grafarvoginum og finnst þetta bara nokkuð fínt. Iðnaðarsvæðið uppá Höfða er nær mér en þetta svæði, og það svæði eru gömul og mis-falleg húsnæði. Líst vel á að þetta fari ekki of langt í burtu, skil samt vel að fólkið sem búi í Úlfarsárdal finnist þetta ekki heilliandi.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 14:09
af jericho
Hvaða lausnir leggur M22 hópurinn til, þ.e.a.s. hvaða önnur svæði sér hópurinn fyrir sér að geti hýst svona starfsemi?

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 14:30
af Viktor
jericho skrifaði:Hvaða lausnir leggur M22 hópurinn til, þ.e.a.s. hvaða önnur svæði sér hópurinn fyrir sér að geti hýst svona starfsemi?


Sama og ég hugsaði.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 15:15
af Maddas
Afhverju á það að vera þeirra að finna út úr því hvar annarsstaðar þetta á að vera þótt þeir vilji ekki hafa þetta í sýnu íbúðahverfi?

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 15:26
af Klemmi
https://en.wikipedia.org/wiki/NIMBY

Þetta er alltaf svona, enda vill fólk ekki hafa hvað sem er í sínum bakgarði. En þetta er meiri hætta þegar flutt er í hverfi í uppbyggingu, frekar en rótgróin hverfi. Kostir og gallar.

Er þetta ekki bara eins og á Völlunum í Hafnarfirði? Fyrst kom íbúðabyggð, en svo hefur verið að byggjast upp risa iðnaðarhverfi þar við hliðiná núna á síðustu árum.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 15:31
af Maddas
Jú það er það kannski en maður segir kannski eitthvað ef maður er ekki sáttur við það, það eru líka verslanir í iðnaðarhverfinu á völlunum sem á ekki að vera í boði þarna svo mér finnst í góðu lagi að mótmæla þessu

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 12. Jan 2021 15:54
af rapport
jericho skrifaði:Hvaða lausnir leggur M22 hópurinn til, þ.e.a.s. hvaða önnur svæði sér hópurinn fyrir sér að geti hýst svona starfsemi?


Við viljum óbreytt skipulag á þessu svæði og berjumst fyrir því.

Óbreytt skipulag mundi leyfa verslanir, skrifstofur og jafnvel smærri vörulagera í bland við íbúabyggð, t.d. bílasölur.

Þetta nýja skipulag aftur á móti útilokar matvöruverslanir og opnað er á iðnað, t.d. steypustöð, bílapartasölur, Vöku, SS, MS, Hringrás ofl.


Ég skil að fólk hugsi "en hvað svo?"

Það sem hefur gerst í þessu nýja skipulagi er t.d. að iðnaðarsvæðið sem var skipulagt á Hólmsheiðinni hefur verið minnkað töluvert, að mér skilst og þetta sett inn í staðinn.

Við viljum ekki vera koma með tillögur sem meika svo minna sens og fá á okkur gagnrýni fyrir það.

Það er alveg nóg að biðja um það eitt að núverandi plan verði bara áfram óbreytt.

https://kjarninn.is/skodun/2021-01-12-h ... ulag-i-m22

Capture.PNG
Capture.PNG (81.58 KiB) Skoðað 3716 sinnum

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Fös 15. Jan 2021 12:19
af falcon1
Á nú að skemma enn eitt útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu?

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Fös 15. Jan 2021 12:35
af bigggan
falcon1 skrifaði:Á nú að skemma enn eitt útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu?


Þetta er ekkert nýtt hverfi... búin að vera í skipulag mörg ár og eru bara að breyta skipulag, og núna er þetta flugvöllur og lupinubreiður..

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Fös 15. Jan 2021 12:58
af gRIMwORLD
Það sem fólk stundum gleymir er að svona svæði geta verið framtíðar vinnustaður íbúa í kring, það er skinsamlegt að blanda saman íbúðabyggð og atvinnuhúsnæðum. "Matvöruverslun" gæti flokkast sem Krónan eða Bónus td, með tilheyrandi aukinni traffík og þörf á stórum bílastæðum. Ekkert sem bannar góðan burger joint.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Fös 15. Jan 2021 14:56
af rapport
gRIMwORLD skrifaði:Það sem fólk stundum gleymir er að svona svæði geta verið framtíðar vinnustaður íbúa í kring, það er skinsamlegt að blanda saman íbúðabyggð og atvinnuhúsnæðum. "Matvöruverslun" gæti flokkast sem Krónan eða Bónus td, með tilheyrandi aukinni traffík og þörf á stórum bílastæðum. Ekkert sem bannar góðan burger joint.


Það eiginlega fylgir að ef matvöruverlsun er bönnuð, þá er verlsun með matvörur bönnuð = ekki veitingastaðir.

Græna skipulagið leyfir, verslanir, gsitiheimili, hótel, skrifstofur o.s.frv. og ekkert óeðlilegt við það t.d. eitthvað eins og Sundabogin, Borgartún, Ármúli.

Rauða skipulagið er meira eins og Höfðarnir, allt frá BM Vallá, Malbikunarstöð yfir í bílaverkstæði og partasölur... og auðvitað heildsölur með lagera o.þ.h. EN banna matvöruverlsanir, Hótel og gistiheimili.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Lau 16. Jan 2021 14:26
af netkaffi
Auðvitað á ekki að hafa svikin loforð eða blekkingu, eða misvísandi upplýsingar, í skipulagi á hverfum.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Mán 18. Jan 2021 11:13
af Gustaf
Fallið hefur verið frá breytingu á aðalskipulagi.

sjá: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... sardalnum/

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Mán 18. Jan 2021 12:20
af jericho
Frábært að hlustað sé á fólk :)

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 19. Jan 2021 13:36
af Black
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... _a_keldum/
Til hamingju með sigurinn.
Hefði frekar viljað sjá þetta svæði í Úlfarsfelli.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 19. Jan 2021 15:04
af rapport
Black skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/01/19/atvinnusvaedi_a_keldum/
Til hamingju með sigurinn.
Hefði frekar viljað sjá þetta svæði í Úlfarsfelli.


Ekki er þetta betra, sammála því.

Rétta leiðin til að létta á umferð er að opna stórt iðnaðarsvæði á Grundartanga og færa uppbyggingu Faxaflóahafna þangað.

Það yrði til þess að Sundabraut færi í algjöran forgang.

Það yrði einnig til þess að mun stærri flutningaskip gætu komið til landsins, en nýju skip Einskipa eru rétt um 2300 gámaeiningar, rétt um 10-15% af því sem risaskipin taka.

Að fækka ferðum til landsins og taka meira magn í einu yrði líklega til þess að flutningur til landsins yrði áreiðanlegri og töluvert ódýrari.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 19. Jan 2021 15:20
af Gustaf
Það er frábært að það var hlustað á íbúa. Spurning samt væri það góð hugmynd að stækka svæði M9 (Korpa) yfir suður hluta Korpuvallar og leyfa það sem að breytingartillagan fyrir M22 Hallar lagði til? Mosfellsbær er að skipulegga svæðið rétt austan M9 sem verslunar og athafnasvæði.

Re: Suðurhlíðar Úlfarsfells - M22.is

Sent: Þri 19. Jan 2021 20:19
af rapport
Ef þetta fer langt útfyrir bæinn þá mun þetta draga helling af fólki í "hina áttina" á morgnana og þá eru ekki allir á leið niðr í bæ á sama tíma.