Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf rapport » Sun 06. Des 2020 13:48

Ég hef það greinilega of gott eða er bara svona innilokaður og hugmyndasnauður.

p.s. við gefum ekki dýrar gjafir og við reynum að hitta í mark að þær dýru okkar á milli (20-30þ. max) séu praktískar eða í það minnsta mjög skemmtilegar.




Semboy
</Snillingur>
Póstar: 1057
Skráði sig: Lau 05. Maí 2007 22:28
Reputation: 102
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf Semboy » Sun 06. Des 2020 14:03

Thetta er thad sem mig langar. versace vel liktandi,ps5 fjarstyring, Veggja ljosmynd, gjafakort, har snyrtivara fra scotch porter, vin glos,
hringras bord fyrir rafmagn, bordplata ,nudd fyrir tvo,


hef ekkert að segja LOL!

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6298
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 440
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf worghal » Sun 06. Des 2020 15:27

árið í ár er mjög gott til að koma sér inn í Lego ;)


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6298
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 440
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf worghal » Sun 06. Des 2020 16:27



CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

Roggo
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Mið 04. Feb 2015 22:45
Reputation: 21
Staðsetning: Grafavogur
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf Roggo » Sun 06. Des 2020 16:41

worghal skrifaði:er ekki bara hægt að fá einhvern til að 3d prenta stút á ryksuguna sína.


Þetta er ekki handhæg ryksuga, þetta blæs lofti frá sér... Ekki rykhreinsarðu tölvuna þína með ryksugu?




Brimklo
Ofur-Nörd
Póstar: 285
Skráði sig: Fös 03. Júl 2020 02:50
Reputation: 54
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf Brimklo » Sun 06. Des 2020 18:25

Hugmyndir sem ég gaf fjölskyldu og vinum var, pítsasteinn, svunta, örgjörvakæling, sous vide vél og kjöthitamælir. veit ekki hvort þú fílir eh af þessu.


Work In Progress: CPU: AMD Ryzen 3800X I GPU: MSI Gaming X Trio 3090 I Case: CoolerMaster NR200P.

PS5

Get ekki talað, konan er að baka brauð og ég ætla að horfa á það hefast.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf rapport » Sun 06. Des 2020 20:09

Þetta á allt erindi + fann eina úlpu (en finnst smá kjánalegt að biðja um semi hlýja úlpu þegar veturinn er að fara versna og ég á geggjaða kuldaúlpu



Skjámynd

kusi
has spoken...
Póstar: 189
Skráði sig: Mið 29. Apr 2009 23:17
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf kusi » Fim 17. Des 2020 10:53

Púff, var í svipuðum vandræðum sjálfur og öfunda frúnna ekki af þvi að kaupa fyrir mig gjöf. Það er fátt sem mig vantar.

Gat nefnt Leatherman (Wave, Skeletool), laser (mælitæki , "hallamál) og topplyklasett. Mér finnst bókin um Guðjón Samúelsson mjög spennandi og á þegar "Reykjavík sem ekki varð" sem mér finnst mjög skemmtileg. Ég keypti annars Delorean playmo fyrir "börnin" sem ég er ansi spenntur fyrir. Svo væri nú alltaf gaman að fá eitthvað skemmtilegt legósett :)

Ef ég ætti ekki nýlega Birkenstock væru þeir klárlega á listanum.

Annars skilst mér á meira smekkfólki en mér að jólagjöfin í ár sé annaðhvort nuddbyssa eða eitthvað af https://www.muurikka.is/



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3104
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 525
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf Hjaltiatla » Fim 17. Des 2020 11:00

Er ekki Raspberry pi alveg málið


Just do IT
  √

Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1448
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf Lexxinn » Fim 17. Des 2020 11:37

kusi skrifaði:Annars skilst mér á meira smekkfólki en mér að jólagjöfin í ár sé annaðhvort nuddbyssa


Fyrir áhugasama þá mæli ég 100% með að panta slíkt frekar frá aliexpress - kostar ca 55% minna en að kaupa þetta hérna heima en færð sömu byssu svo lengi sem ekki sé keypt byssa upp á +50k.

Ég keypti frá þessum seljanda nýlega 3 vélar sem eru allar að slá í gegn. Komst nýverið í snertingu við vélarnar sem Elko selur og ég finn lítinn sem engan mun í virkni vélanna + þær koma með sömu attachments. Pantaði 25oct og var komið í mínar hendur 24nov og 30nov

Sjálfur verslaði ég þessar með LCD skjá og án LCD skjá - mjög ánægður með þær.
Þessar virðast svo vera nákvæmlega sömu nuddbyssur og Elko er að selja á 23þ. (allavega nákvæmlega sama útlit og kassi)
Síðast breytt af Lexxinn á Fim 17. Des 2020 11:38, breytt samtals 1 sinni.




ABss
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Mið 25. Mar 2020 11:08
Reputation: 30
Staða: Tengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf ABss » Fim 17. Des 2020 12:07

Þegar hugmyndaleysi og í raun algjört skortur á nokkurri vöntun er staðan, er einfaldlega gott að anda bara léttar og taka ekki þátt í óþarfa neyslu og spreði.

Ég er handviss, og vona svo sannarlega, um það að þú, og allir hér, hafið það sem allra best. Munum að dót og drasl er tímabundin gleði og hamingjan finnst ekki í nýju dóti, þó það geti vissulega verið skemmtilegt.

Ef staðan er orðin sú að það er bara vesen, og jafnvel leiðindi, að finna pakka fyrir nánustu ættingja, maka eða vini, sleppið því þá einfaldlega en leggið ykkur fram við að gera eitthvað sérstaklega skemmtilegt og gott fyrir þau eða með þeim

85þkr ipod-úr sem verður úrelt eftir ár vs. stefnumótakvöld með makanum, krakkarnir í pössun og fínerí.

Eða bara geyma peninginn til að janúar og febrúar verði nú ekki svo hræðilegir, slökkvið á símunum og hrærið í gommu af smákökudeigi. Deilið deiginu svo út til að einfalda öðrum að hafa bakstursstund, eða bakið og gefið beint.

Svona atriði gera heilmikið fyrir fólk og kosta sáralítið.

Smá vangaveltur frá áhugamanni um að gera jólin stresslaus(stressminni) og vinaleg.



Skjámynd

jericho
FanBoy
Póstar: 787
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp - Veit ekki hvað mig langar í í jólagjöf

Pósturaf jericho » Fim 17. Des 2020 12:09

Fékk svona kjöthitamæli í gjöf og þetta er svo mikil snilld!
https://www.fastus.is/fastus/fyrirtaekj ... c2a124524b

Veit ekki hvort þú ert mikið fyrir borðspil, en sum þeirra eru svoooo skemmtileg. Mjög hollt áhugamál :)



5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q