Barnadót

Allt utan efnis

Höfundur
JapaneseSlipper
Nörd
Póstar: 108
Skráði sig: Mán 15. Des 2014 17:31
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Barnadót

Pósturaf JapaneseSlipper » Mið 11. Nóv 2020 09:15

Þar sem líður að því að ég er að verða pabbi í fyrsta skipti og er að reyna að átta mig á þessum frumskógi af dóti sem þarf að kaupa. Allir að segja að þetta sé best og þetta sé nauðsynlegt. Þá langaði mér að fá að vita hvað pöbbunum hérna fannst nauðsynlegt að kaupa og hvað sé betra/verra í þeim flokkum :)



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4962
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 868
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf jonsig » Mið 11. Nóv 2020 09:39

Stóru fötin sem þú kaupir verða of lítil eftir mánuð. Kaupa færri föt og duglegur á þvottavélinni bara.




Uncredible
Nörd
Póstar: 132
Skráði sig: Mið 01. Júl 2020 18:48
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf Uncredible » Mið 11. Nóv 2020 09:41

Sæll, ég er sjálfur ný orðinn pabbi.

Þú þarft ekki barnadót strax. Það er ekki fyrr en í kringum 4 mánaða sem þau fara veita þeim einhverja athygli og þá aðalega til að troða þeim uppí munninn á sér.

Það er samt gott að eiga einhverja litríka naghluti snemma, en þú þarft kannski bara 3 hluti.


Jonsig "Stóru fötin sem þú kaupir verða of lítil eftir mánuð. Kaupa færri föt og duglegur á þvottavélinni bara."


Þetta er mjög gott tip frá jonsig.
Síðast breytt af Uncredible á Mið 11. Nóv 2020 09:41, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1464
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 121
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf vesi » Mið 11. Nóv 2020 09:59

Vertu duglegur á fb (haugur af sölu/gefins) ættingjar/vinir að fá
Föt og hluti. Krakkanum er allveg sama þó þetta sé notað og margir með
Kassa af fötum/dóti sem átti að fara en gleymdist.
Þetta kostar allt.

Auðvitað er alltaf eithvað sem maður vill kaupa nýtt, en margt
sem et allveg jafn gott þó það sé komin reynsla


MCTS Nov´12
Asus eeePc


blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1752
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf blitz » Mið 11. Nóv 2020 10:18

IKEA er vinur þinn fyrir eiginlega allt nema fatnað.


PS4


ABss
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Mið 25. Mar 2020 11:08
Reputation: 30
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf ABss » Mið 11. Nóv 2020 10:19

Kaupa/eignast notað. Það er til svo gríðarlegt magn af fötum, dóti og öðrum búnaði sem er í toppstandi og fæst fyrir brot af því sem þetta kostar nýtt. Við hjónin höfum haldið kaupum á nýjum barnavörum í algjöru lágmarki. Þú ert án efa að gera ættingja, vini eða samstarfsaðila greiða með því að losa þá við ruslið úr geymslunni.

Að því sögðu, mæli með Mountain Buggy eða svoleiðis kerrum. Stór og mjúk dekk gera göngutúrana skemmtilegri, þú getur farið fleiri leiðir án teljandi vandræða. Krakkinn sefur væntanlega aldrei betur en á temmilega grófum malarslóða.

Þú kemur alltaf til með að þurfa að taka á honum stóra þínum að drösla öllu þessu rusli sem fylgir, sérstaklega fyrstu mánuðina, með þér útum allt. Ég geri ráð fyrir að þú eigir bíl, en ef hann er í minni kantinum, fáðu þér toppbox. Það að barnavagn geti tekið við bílstól er snilld. Hafa þetta svolítið modular og geta kubbað dótinu saman án teljandi vandræða er snilld.

Einnig, passið ykkur á FB hópum nýbakaðra foreldra. Mér hefur sýnst þeir vera suðupottur hysteríu og tryllings. Reynið frekar að hvíla ykkur og slaka á en að láta fólk á FB dæla yfir ykkur öllum mögulegum og ómögulegum áhyggjum.




Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 613
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 95
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf Dr3dinn » Mið 11. Nóv 2020 10:27

Í fyrsta lagi innilega til hamingju og velkominn í hópinn.

Allt fyrstu 6 mánuðina = gefins, notað / keypt ódýrt erlendis. (FÖT)

Barnið vex upp úr þessu á 0.1sec

Dótið í byrjun skiptir voðalega litlu máli, barnateppi (með svona dóti fyrir ofan barnið) og 2-3 bangsar eru örugglega bara nóg.... mörg börn hafa meira gaman af skeiðum en alvöru dóti og það getur verið 2klst skemmtun sem dæmi! :)
-2000kr gírafinn endist lengi sem allir kaupa.

Sparað í dóti / fötum = kaupa góða kerru og 20-30þ barnarúm í ikea :) (eða notað) - ekki taka léttasta rúmið, þá endist barnið lengur í því - 30mánuðir komnir úr 30þ ikea rúminu hjá mér....

Þarft ekki nýjan bíll fyrstu mánuðina...barnið er bara fast heima og þarf ekkert svo mikið :)
-pláss fyrir kerruna i skotinu er samt must...svo dugar aftursætið...

Ég stækkaði bílamálin þegar barnið var tveggja ára sem dæmi! :)


Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB


raggzn
has spoken...
Póstar: 165
Skráði sig: Mán 30. Júl 2007 10:18
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf raggzn » Mið 11. Nóv 2020 10:36

Sammála mörgu sem hefur verið sagt
- Modular kerru er mjög gott að hafa
- Hægindastóll, inní herbergi barnsins eða að minnsta kosti nálægt (sé mjög eftir að hafa ekki bjargað bakinu mínu með eitt stk stól)
- Kallast Hreiður, það er svona dýna með veggjum í kring sem andar rosa vel og getur haft það allstaðar uppí sófa og rúmi, mjög þægilegt (amk kosti fannst okkur þetta snilld) https://fifa.is/product/cocoon/
- Ekki kaupa allt, kaupa bara þegar barnið er komið í heiminn og helstu gjafamómentinn eru búin (babyshower, sængurgjöf, skírnargjöf osfr), sér maður hvað vantar. Fólk í kringum mann fer yfirum í gjafakaupum.
- Ég mæli með amk kosti stationbíl í kringum 1 árs aldurinn, en ég meina kannski bara hvað maður sættir sig við. Fannst amk gott að hafa hann á ferðlagi í sumar.
Síðast breytt af raggzn á Mið 11. Nóv 2020 10:40, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

GullMoli
Stjórnandi
Póstar: 2465
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 220
Staðsetning: NGC 3314.
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf GullMoli » Mið 11. Nóv 2020 10:42

Multi purpose barnavagn: Baby Jogger City Elite. Getur keypt þá notaða á í kringum 50þús, mismunandi hvað fylgir með.
Ótrúlega þægilegur og stór dekk, hægt að læsa framdekkinu svo það vísi alltaf beint áfram (ef þú vilt skokka), pakkast saman með einu handtaki, froða í dekkjunum svo þau springa aldrei.

Á þetta geturðu fengið vagnstykki/burðarrúm og svo fylgir sennilegast millistykki til að festa bílstól líka (eða breytistykki fyrir aðra en Baby Jogger bílstóla). Getur verið þægilegt á fyrstu árunum/mánuðum að taka barnabílstólinn beint úr og á kerruna ef farið er að versla eða í heimsókn.

Bílstólar hafa ákveðinn endingartíma, ágætt að hafa í huga ef verslað er notað.

Barnaloppan í skeifunni fyrir notuð föt og annað.


Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 978
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 182
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 11. Nóv 2020 10:43

Baby Bjorn er must að mínu mati. Börn eru oft fuzzy og ómöguleg vegna bakflæðis. Þá finnst þeim gott að vera upprétt.

Hreiður til að láta barnið sofa á milli/uppí sófa og annað.

Föt í stærð 50 ef það mun verða lítið við fæðingu. Helst galla sem fara ekki yfir haus og eru með rennilás. Lillelamb gallar eru MVP þar

Góður barnavagn eins og Buggaboo sem er ógeðslega þæginlegur til að labba með. Barnið má fara út í göngutúr og sofa úti þegar það er farið að þyngjast.

Maxicosi bílstóll og base er þæginlegur líka. Léttur og öruggur

Nóg af taubleyjum. Þá meina ég nóg af þeim



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1403
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 41
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf ZoRzEr » Mið 11. Nóv 2020 10:49

Sammála öllu hér að ofan og sérstaklega þessu:

Jón Ragnar skrifaði:Nóg af taubleyjum. Þá meina ég nóg af þeim


Góðan vagn
Samfellur með smellum sem fara ekki yfir haus eru þægilegar
Hreiður er must


13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf Pandemic » Mið 11. Nóv 2020 12:24

Sammála flestu hér að ofan og þá sérstaklega með notaða dótið. Vinir/ættingjar eru oftast fegin að losna við föt og annað dót úr geymslunum hjá sér.
Við notuðum brjóstargjafapúða mjög mikið í svipuðum tilgangi og hreiður sem raggzn minntist á.
Annað sem við notum mikið er monitor og þá skiptir máli að kaupa ekki neitt fansý með einhverjum hjartsláttarmæli/myndavél sem er að mínu mati pointless. Við fengum gefins þennan og hann er lítill og meðfærilegur og geggjaða batterýsendingu.




Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf Dóri S. » Mið 11. Nóv 2020 13:18

Barnavagnar endast lengi, reyndu að finna notaðan gæða barnavagn.




Höfundur
JapaneseSlipper
Nörd
Póstar: 108
Skráði sig: Mán 15. Des 2014 17:31
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf JapaneseSlipper » Mið 11. Nóv 2020 20:07

Takk kærlega fyrir, þetta var einmitt það sem ég var að leita af.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Barnadót

Pósturaf dori » Mið 11. Nóv 2020 22:57

Þú þarft miklu minna drasl en þú heldur. Ekki kaupa það sem þú heldur að þú þurfir eða taka við öllu notaða dótinu sem fólki dettur í hug að dömpa á þig. Öll börn eru mismunandi og foreldrar eru líka mismunandi og þið finnið kerfi sem virkar fyrir ykkur.

Ég myndi byrja með frekar lítið og kaupa/redda svo bara þegar þú þarft. Barnadót tekur ógeðslega mikið pláss.