Síða 1 af 1

Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 11:15
af littli-Jake
Eru fleiri að lenda í því að Spotify sé orðið óþolandi trekt? Ég er endalaust að lenda í að það sé að frjósa. Bæði þegar ég er með það tengt gegnum Bluetooth og WiFi. Heldur verra með WiFi.

Er með Mii Note 8 pro. Ekkert besti Redmi sími sem ég hef verið með en ætti nú að ráða við þetta imo

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 12:00
af zedro
Spotify virkar fínt hjá mér. Nota það mjög mikið.

Virkar vel á Android 9, Ulefone Armor 6E. Bæði á 4G og WiFi.
Virkar vel á PC Win10.

Prófa að uppfæra appið eða henda því og setja uppá nýtt?

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 13:59
af littli-Jake
Prófaði fresh instal. Var samt búinn að updaita

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 14:39
af mikkimás
Hef ekki lent í neinum vandræðum.

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 15:00
af Frussi
Ég kannast við þetta, gerist samt bara öðru hverju svo ég veit ekki hvort það er appið eða eitthvað annað tilfallandi

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 16:44
af ChopTheDoggie
Ég kannast við þetta líka, átti Samsung N8 og Spotify var alltaf tregt með því að frjósa upp og stoppa tónlist eins og það væri ýtt á pause.
Android 9 (Ef ég man rétt)

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 16:53
af Viggi
Lenti líka í þessu á s9+ svo hætti þetta bara allt í einu

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 17:31
af Black
Ég er alltaf í vandræðum með spotify. Finnst það samt vera oft playback issue þegar ég er að skipta á milli tækja.Dettur í hug að það sé einhvað tæki hjá mér sem er að orsaka það.Kemur fyrir þegar ég er að spila í gegnum bílinn hjá mér að það komi allt annað song info en er að spilast.

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Lau 17. Okt 2020 19:37
af netkaffi
Aldrei lent í vandræðum með það á Redmi 6A frá Xiaomi. Nota það oft.

Spurning um að gúgla síma og android útgáfuna þína ásamt hutökum eins og "spotify issues" (án gæsalappanna), og líka gera pósta á reddit og support foruminu þeirra.

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Sun 18. Okt 2020 11:04
af Jón Ragnar
Einu vandamálin sem ég lendi í þar er þegar ég er að nota það á Macbook Pro í vinnunni þegar ég er að flakka mikið á milli VPN tenginga, þá virðist hann gefast upp eftir smástund og fæ "cannot play this song"

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Mán 19. Okt 2020 09:07
af Dropi
Ég lenti í því í síðustu viku að kærastan notaði minn aðgang á sjónvarpinu heima á meðan ég var að hlusta í bílnum og við bæði að slást um að spila án þess að vita af hvort öðru, annars er Spotify stundum óþolandi lengi að tengjast á ný þegar ég fer úr WiFi yfir á 4G

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Mán 19. Okt 2020 11:22
af Hannesinn
Spotify hefur alltaf verið óþolandi fyrir þá sem hafa kynnst almennilegu viðmóti. Forritið blæs endalausum reyk í andlitið á manni í staðinn fyrir að sýna manni bara fokking listamanninn og discographyið, og leyfa manni að velja sjálfur. Mér er alveg sama um related artists, listi yfir lögin sem ég hef hlustað á, aðrir playlistar með listamanninum, "Your favorite albums and songs", "Shows to try", og hvað þetta heitir. Foookk Oooff.

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Þri 17. Nóv 2020 22:44
af DoofuZ
Spotify hefur virkað nokkuð vel hjá mér síðustu ár þrátt fyrir svotil óbreytt og ljótt viðmót frá upphafi. Það sem hefur hins vegar böggað mig mikið er shuffle virknin. Ef ég er með lagalista sem inniheldur amk. 2 lög frá sama flytjanda þá kemur oft fyrir að þau lög raðast saman þegar ég geri shuffle og það skiptir engu máli hversu stór lagalistinn er. Fer alltaf í queue til að yfirfara og færa lög til þegar ég byrja að spila eitthvað á shuffle og finn alltaf eitthvað sem þarf að færa í sundur :|

Svo er líka smá bögg að ef ég hef verið með lagalista á shuffle í queue í símanum og er búinn að spila einhver lög en ekki búinn að klára queue-ið og opna svo Spotify í tölvunni að þá kemur lagið sem ég var á síðast í spilaranum en svo gerir forritið nýtt shuffle á restinni af lagalistanum svo það verður til nýtt queue. Fáránlegt að það getur ekki syncað queue-ið milli tækja :?

Ég póstaði annars í community-ið þeirra 2018 og svo aftur 2019 varðandi þetta shuffle vandamál en það hefur ekki verið lagað enn. Svo skrifuðu þeir blogg færslu 2014 þar sem þeir voru að monta sig yfir nýrri og endurbættri shuffle virkni sem átti einmitt að virka þannig að lög frá sama flytjanda áttu aldrei að geta komið saman :roll: Var svo að vísu að sjá að núna hafa þeir merkt þráð frá einhverjum öðrum um sama vandamálið sem new idea svo kannski fara þeir loksins að gera eitthvað í þessu 8-[

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Þri 17. Nóv 2020 23:06
af Úlvur
var fljótur að fara yfir í youtube music.... sami skíturinn og spotify, plús engar auglýsingar á jútúp..... þar sem ég er algjör jútúp hóra.... þá var ekki aftur snúið :)

Re: Spotify orðið óþolandi?

Sent: Þri 17. Nóv 2020 23:10
af Brimklo
Ég er með mii note 8 Pro líka og er oft að lenda í þessu!