Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Allt utan efnis

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Sun 27. Sep 2020 17:06

Ég er alveg í vanda hér, hef ekkert of mikla þekkingu á tölvum þess vegna langar mér að spyrja hér og reyna athuga ef einhver getur hjálpað mér, málið snýr að C drifinu, það er alveg augljóst að einhverstaðar eru slatti af gb sem ég finn ekki til að geta deletað og skapað pláss. C drifs diskur segir heildar pláss t.d 297 gb og þegar ég fer í propertis yfir allar möppur á drifinu þá kemur upp heildartala notkunar sem 45.7 gb
þannig hér ættu að vera alveg 230 til 240 gb laus en drif segir í properties C drifs:
Used space 295 gb
Free space 2.64 gb

hvernig get ég fundið þessi 240 gb til að skapa pláss á C-drifi (nota win 7)

pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf pepsico » Sun 27. Sep 2020 17:12

https://wiztreefree.com/

Settu þetta forrit upp og skannaðu drifið. Þetta sýnir þér mjög skýrt hvað er í gangi.

Hausinn
Tölvutryllir
Póstar: 620
Skráði sig: Mið 15. Jan 2020 18:14
Reputation: 131
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Hausinn » Sun 27. Sep 2020 17:40

Þetta eru leiðbeiningar fyrir Windows 10 en ég held að það sé svipað í Windows 7:

1.Smelltu á Windows hnappinn og stimplaðu inn "File Explorer Options" og veldu það.
2.Farðu í "View" og í Advanced Settings hakaðu í "Show hidden files, folders and drives."
3.Farðu aftur á C: drifið og tékkaðu hvort það sé einhverjar nýjar möppur. Ætti að vera með gagnsæju icon.
Síðast breytt af Hausinn á Sun 27. Sep 2020 17:41, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf rapport » Sun 27. Sep 2020 17:51

Einfaldasta leiðin til að prófa er að hægrismella á C: drifið og fara í properties, undir "general" flipanum smella á hnappinn "Disk Cleanup".

Svo smella á "Clean up System files" í glugganum sem opnast í kjölfarið.

Þá skannar Windows diskinn og haugur af rusli finnst, hugsanlega ítrekaðir error loggar/memory dumps sem eru að éta upp plássið á disknum.

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Sun 27. Sep 2020 19:03

rapport skrifaði:Einfaldasta leiðin til að prófa er að hægrismella á C: drifið og fara í properties, undir "general" flipanum smella á hnappinn "Disk Cleanup".

Svo smella á "Clean up System files" í glugganum sem opnast í kjölfarið.

Þá skannar Windows diskinn og haugur af rusli finnst, hugsanlega ítrekaðir error loggar/memory dumps sem eru að éta upp plássið á disknum.

Við að gera þetta þá eyði ég ekki neinum nauðsynlegum windows forritum eða einhverjum forritum sem tölvan þarf að hafa?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf rapport » Sun 27. Sep 2020 19:16

straumar skrifaði:

Nei, Þetta er windows clean up. Þetta eyðir úr recycle bin, thumbnails af myndum, sóttum uppfærslum sem búið er að setja upp ofl. EN engu sem á að vera nauðsynlegt til að allt virki eðlilega.

Prófaðu bara að googla hvort fólk hafi verið að lenda í einhverjum vandræðum, ég hef aldrei lent í neinu í kjölfarið af svona tiltekt.

Getur líka prófað CCleaner - https://www.ccleaner.com/ccleaner/download/standard

Tól sem gerir alsherjartiltekt á tölvunni, getru lent í að eyða út vistuðum lykilorðum á síðum o.þ.h. ef þa er geymt í cookies.
Síðast breytt af rapport á Sun 27. Sep 2020 19:18, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Viktor » Sun 27. Sep 2020 20:12

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Sun 27. Sep 2020 20:14

rapport skrifaði:
straumar skrifaði:
rapport skrifaði:Einfaldasta leiðin til að prófa er að hægrismella á C: drifið og fara í properties, undir "general" flipanum smella á hnappinn "Disk Cleanup".

Svo smella á "Clean up System files" í glugganum sem opnast í kjölfarið.

Þá skannar Windows diskinn og haugur af rusli finnst, hugsanlega ítrekaðir error loggar/memory dumps sem eru að éta upp plássið á disknum.

Við að gera þetta þá eyði ég ekki neinum nauðsynlegum windows forritum eða einhverjum forritum sem tölvan þarf að hafa?

Nei, Þetta er windows clean up. Þetta eyðir úr recycle bin, thumbnails af myndum, sóttum uppfærslum sem búið er að setja upp ofl. EN engu sem á að vera nauðsynlegt til að allt virki eðlilega.

Prófaðu bara að googla hvort fólk hafi verið að lenda í einhverjum vandræðum, ég hef aldrei lent í neinu í kjölfarið af svona tiltekt.

Getur líka prófað CCleaner - https://www.ccleaner.com/ccleaner/download/standard

Tól sem gerir alsherjartiltekt á tölvunni, getru lent í að eyða út vistuðum lykilorðum á síðum o.þ.h. ef þa er geymt í cookies.

ok sé að stærsta mappan sem kemur er einmitt "windows update cleanup" það er alveg óhætt að eyða því (eins og ég tók fram er ég með win 7 og ekki lengur hægt að updeita, svo það er alveg óhætt að eyða þessu "windows update cleanup"? Eyðir það vistuðum t.d prófilnafni á torrentsíðum eða lykilorðum?
Síðast breytt af straumar á Sun 27. Sep 2020 20:16, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf rapport » Sun 27. Sep 2020 22:37

straumar skrifaði:ok sé að stærsta mappan sem kemur er einmitt "windows update cleanup" það er alveg óhætt að eyða því (eins og ég tók fram er ég með win 7 og ekki lengur hægt að updeita, svo það er alveg óhætt að eyða þessu "windows update cleanup"? Eyðir það vistuðum t.d prófilnafni á torrentsíðum eða lykilorðum?

Það ætti að hafa nein áhrif á tölvuna að eyða þessu, ef búið er að keyra allar uppfærslur inn. Þarna er ekkert vistað tengt netvafri eða netnotkun.

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Sun 27. Sep 2020 23:35

Sæll nú er ég búinn að gera þetta og það er ekki að gera neitt, enn bara 2.40 gb laus á disknum.

Prófaði að fara aftur í Disk cleanup og þá hef ég ekki lengur möguleika á að "Svo smella á "Clean up System files" í glugganum sem opnast í kjölfarið" og mappan "windows update cleanup" er ekki núna 8.64 gb eins og var heldur komið niður í einhver örfá mb sem er væntanlega bara temporary síðan ég eyddi stóru skránni. Einhver ?

Frussi
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Reputation: 124
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Frussi » Mán 28. Sep 2020 04:59

Prófaðu að ýta á Windows takkann og skrifa "add or remove programs" og opna það. Getur svo valið eftir drifi hvað er sýnt. Þá sérðu allavega hvaða forrit eru inni á drifinu og hvað þau taka mikið pláss

Ryzen 7 3700x // X470 Aorus Gaming // RTX3070 Aorus Master // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz

Hausinn
Tölvutryllir
Póstar: 620
Skráði sig: Mið 15. Jan 2020 18:14
Reputation: 131
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Hausinn » Mán 28. Sep 2020 08:28

Frussi skrifaði:Prófaðu að ýta á Windows takkann og skrifa "add or remove programs" og opna það. Getur svo valið eftir drifi hvað er sýnt. Þá sérðu allavega hvaða forrit eru inni á drifinu og hvað þau taka mikið pláss

Ef hann valdi allar möppur á C:\ og properties gaf aðeins upp 45.7GB er ólíklegt að það séu forrit að taka allt þetta pláss.

Varstu búinn að tékka hvort það séu falnar möppur, straumar?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf rapport » Mán 28. Sep 2020 13:33

Getur verið að þetta sé "page file" ?

https://www.youtube.com/watch?v=DWCVhk5 ... pVideoGuru

Frussi
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Reputation: 124
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Frussi » Mán 28. Sep 2020 13:43

Hausinn skrifaði:
Frussi skrifaði:Prófaðu að ýta á Windows takkann og skrifa "add or remove programs" og opna það. Getur svo valið eftir drifi hvað er sýnt. Þá sérðu allavega hvaða forrit eru inni á drifinu og hvað þau taka mikið pláss

Ef hann valdi allar möppur á C:\ og properties gaf aðeins upp 45.7GB er ólíklegt að það séu forrit að taka allt þetta pláss.

Varstu búinn að tékka hvort það séu falnar möppur, straumar?

Já sá það, en ekki vitlaus staður til að byrja á :)

Ryzen 7 3700x // X470 Aorus Gaming // RTX3070 Aorus Master // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz

raggos
Nörd
Póstar: 144
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 09:03
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf raggos » Mán 28. Sep 2020 15:20

Það er ágætt að opna settings í windows 10 og leita að storage eða storage settings. Þá fær maður ágætis sýn á hvernig skipting gagna er á vélinni

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Mán 28. Sep 2020 16:08

raggos skrifaði:Það er ágætt að opna settings í windows 10 og leita að storage eða storage settings. Þá fær maður ágætis sýn á hvernig skipting gagna er á vélinni

Takk svar raggos. Er með windows 7 ekki 10.

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Mán 28. Sep 2020 16:12

Hausinn skrifaði:
Frussi skrifaði:Prófaðu að ýta á Windows takkann og skrifa "add or remove programs" og opna það. Getur svo valið eftir drifi hvað er sýnt. Þá sérðu allavega hvaða forrit eru inni á drifinu og hvað þau taka mikið pláss

Ef hann valdi allar möppur á C:\ og properties gaf aðeins upp 45.7GB er ólíklegt að það séu forrit að taka allt þetta pláss.

Varstu búinn að tékka hvort það séu falnar möppur, straumar?

Ekkert of fróður í tölvumálum en vissi þó af properties og maður getur þar hreinsað t.d temp.internet files etc.
Og já eins og þú bendir á var ég búinn reyndar ekki að fara í search en búin að opna allar möppur C drifs og þar er eðlilega forritamappa og windows og ég vil ekkert vera hrófla við þeim eða eyða þar sem ég þekki ekki allt sem þar er og hvað má fara til að skemma ekki tölvuna eða hafa áhrift á not hennar.
og heildartala forrita þar gefur bara þetta 45.7 gb en tölva segir að af 297 gb diski eru bara núna 2.2 gb laus.

Veit ekkert hvernig ég tákka með "fanlar möppur svo nei hef ekki tékkað það hvar er það gert?

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Mán 28. Sep 2020 16:19

rapport skrifaði:
straumar skrifaði:ok sé að stærsta mappan sem kemur er einmitt "windows update cleanup" það er alveg óhætt að eyða því (eins og ég tók fram er ég með win 7 og ekki lengur hægt að updeita, svo það er alveg óhætt að eyða þessu "windows update cleanup"? Eyðir það vistuðum t.d prófilnafni á torrentsíðum eða lykilorðum?

Það ætti að hafa nein áhrif á tölvuna að eyða þessu, ef búið er að keyra allar uppfærslur inn. Þarna er ekkert vistað tengt netvafri eða netnotkun.

hæ þú veist ekkert af hverju þetta er enn eins, enn bara 2.40 gb laus á disknum, eftir að hafa framkvæmt þetta sem þú bentir á?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf rapport » Mán 28. Sep 2020 16:33

straumar skrifaði:
rapport skrifaði:
straumar skrifaði:ok sé að stærsta mappan sem kemur er einmitt "windows update cleanup" það er alveg óhætt að eyða því (eins og ég tók fram er ég með win 7 og ekki lengur hægt að updeita, svo það er alveg óhætt að eyða þessu "windows update cleanup"? Eyðir það vistuðum t.d prófilnafni á torrentsíðum eða lykilorðum?

Það ætti að hafa nein áhrif á tölvuna að eyða þessu, ef búið er að keyra allar uppfærslur inn. Þarna er ekkert vistað tengt netvafri eða netnotkun.

hæ þú veist ekkert af hverju þetta er enn eins, enn bara 2.40 gb laus á disknum, eftir að hafa framkvæmt þetta sem þú bentir á?

Mér finnst virkilega skrítið að "clean up" hafi sagst ætla að eyða einhverju út og virðist hafa eytt einhverju út en diskaplássið fríast ekki.

Ef það var ekki "page file" skv. fyrra video, þá gæti það verið þetta:

https://www.youtube.com/watch?v=rp9nH32 ... Solutions-

https://www.youtube.com/watch?v=HRGzSAb ... unnymoment

https://www.youtube.com/watch?v=AhlfI40 ... =EasyTechs

Hausinn
Tölvutryllir
Póstar: 620
Skráði sig: Mið 15. Jan 2020 18:14
Reputation: 131
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Hausinn » Mán 28. Sep 2020 20:41

straumar skrifaði:
Hausinn skrifaði:
Frussi skrifaði:Prófaðu að ýta á Windows takkann og skrifa "add or remove programs" og opna það. Getur svo valið eftir drifi hvað er sýnt. Þá sérðu allavega hvaða forrit eru inni á drifinu og hvað þau taka mikið pláss

Ef hann valdi allar möppur á C:\ og properties gaf aðeins upp 45.7GB er ólíklegt að það séu forrit að taka allt þetta pláss.

Varstu búinn að tékka hvort það séu falnar möppur, straumar?

Ekkert of fróður í tölvumálum en vissi þó af properties og maður getur þar hreinsað t.d temp.internet files etc.
Og já eins og þú bendir á var ég búinn reyndar ekki að fara í search en búin að opna allar möppur C drifs og þar er eðlilega forritamappa og windows og ég vil ekkert vera hrófla við þeim eða eyða þar sem ég þekki ekki allt sem þar er og hvað má fara til að skemma ekki tölvuna eða hafa áhrift á not hennar.
og heildartala forrita þar gefur bara þetta 45.7 gb en tölva segir að af 297 gb diski eru bara núna 2.2 gb laus.

Veit ekkert hvernig ég tákka með "fanlar möppur svo nei hef ekki tékkað það hvar er það gert?

Beint frá síðu Microsofts fyrir Windows 7:

1.Select the Start button, then select Control Panel > Appearance and Personalization.
2.Select Folder Options, then select the View tab.
3.Under Advanced settings, select Show hidden files, folders, and drives, and then select OK.

Eftir þetta ferðu í C:\ og tékkar hvort það séu einhverjar möppur sem voru ekki áður fyrr.

Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 572
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Reputation: 74
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Hannesinn » Þri 29. Sep 2020 13:26

Mögulega gamall eða annar profile á tölvunni sem notar meira pláss en þinn eigin? Það kæmi akkurat ekki upp þegar þú gerir properties á möppur.
Annars eru fullt af möguleikum þarna. Fáðu einhvern sem kann til að skoða þetta.

Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.

Cikster
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 399
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 13:02
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Cikster » Þri 29. Sep 2020 16:53

Ég hef lent í því á tölvu sem er með myndavélaupptöku í gangi að Windows update hafi stútfyllt 1 tb startup disk. Þegar það reyndi að installa uppfærslum tókst það ekki og það downloadaði því aftur og aftur og aftur þangað til diskurinn var orðinn fullur.

Þetta venjulega disk cleanup virkaði ekki og eins og sumir hafa nefnd hérna þá þurfti ég að kveikja á "Show hidden files, folders" og finna í hvaða földu möppu allar þessar skrár voru sem tóku upp allt plássið og eyða þeim út handvirkt sjálfur. Við það fór C drifið úr 100% niður í 20% fullt.

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Þri 29. Sep 2020 22:33

Hannesinn skrifaði:Mögulega gamall eða annar profile á tölvunni sem notar meira pláss en þinn eigin? Það kæmi akkurat ekki upp þegar þú gerir properties á möppur.
Annars eru fullt af möguleikum þarna. Fáðu einhvern sem kann til að skoða þetta.

Hæ takk innlegg. Það er mögulega mikið til í þessu hjá þér. Ég keypti þessa tölvu fyrir sennilega um 5 árum eða meir notaða svo kannski er prófill þess sem átti hana þá þarna á bakvið eða hvað veit ég.

Erfitt þó að fá einhvern til að skoða þetta þar sem sjálfur er ég erlendis og tengist erlendis svo þarf að reyna laga þetta fjarri tölvunni :)
Líka erfitt að þurfa eins og sumt af því sem nefnt hefur verið hér að þarf að slökkva á/endurræsa tölvu til að fá hluti í gang sem jú oft er.
Þarf þá að senda personu sem ekki þekkir á tölvu mikð en getur jú slökkt og kveikt en maður vill sem minnst vera senda fólk langar leiðir.Nema í neyð.

Höfundur
straumar
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Lau 15. Jún 2013 21:50
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf straumar » Þri 29. Sep 2020 22:34

Cikster skrifaði:Ég hef lent í því á tölvu sem er með myndavélaupptöku í gangi að Windows update hafi stútfyllt 1 tb startup disk. Þegar það reyndi að installa uppfærslum tókst það ekki og það downloadaði því aftur og aftur og aftur þangað til diskurinn var orðinn fullur.

Þetta venjulega disk cleanup virkaði ekki og eins og sumir hafa nefnd hérna þá þurfti ég að kveikja á "Show hidden files, folders" og finna í hvaða földu möppu allar þessar skrár voru sem tóku upp allt plássið og eyða þeim út handvirkt sjálfur. Við það fór C drifið úr 100% niður í 20% fullt.

reyndar engin myndavélaupptaka í gangi í þessari tölvu bara download af sarpi ruv t.d
en skil þig þetta er vesen

Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 572
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Reputation: 74
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Varðandi C-Drif - vantar að skapa pláss

Pósturaf Hannesinn » Mið 30. Sep 2020 08:48

straumar skrifaði:Hæ takk innlegg. Það er mögulega mikið til í þessu hjá þér. Ég keypti þessa tölvu fyrir sennilega um 5 árum eða meir notaða svo kannski er prófill þess sem átti hana þá þarna á bakvið eða hvað veit ég.

Erfitt þó að fá einhvern til að skoða þetta þar sem sjálfur er ég erlendis og tengist erlendis svo þarf að reyna laga þetta fjarri tölvunni :)
Líka erfitt að þurfa eins og sumt af því sem nefnt hefur verið hér að þarf að slökkva á/endurræsa tölvu til að fá hluti í gang sem jú oft er.
Þarf þá að senda personu sem ekki þekkir á tölvu mikð en getur jú slökkt og kveikt en maður vill sem minnst vera senda fólk langar leiðir.Nema í neyð.

Lítið mál að komast að því.

1.) ýttu á WINDOWS+R á lyklaborðinu, það opnar "Run" gluggann.
2.) skrifaðu þar "control sysdm.cpl", án gæsalappa. Það opnar System properties.
3.) Veldu "Advanced" flipann, og þar undir fyrir ca. miðju velurðu "Settings" takkan í "User Profiles" dálknum.
4.) Þarna ættirðu að sjá alla notendaprófíla og stærðina á þeim.
5.) Ef þú sérð óeðlilega stóran prófíl þarna sem þú kannast engan veginn við, jafnvel með gamalli dagsetningu, þá geturðu prufað að eyða honum.
6.) Öll ábyrgð á ofangreindu er þín. Þess vegna er best að þú fáir einhvern sem kann að bregðast við frávikum og veit hvað hann er að gera.

ATH! Ef þú ert að tengjast tölvunni remotely, þá gilda oftast um það aðrar reglur. WINDOWS+R með "Remote Desktop" opnar til dæmis run á tölvunni fyrir framan þig, en sendir merkið ekki yfir remotely. Run er samt í start menu á Windows 7, þannig að þú velur það bara þar.
Síðast breytt af Hannesinn á Mið 30. Sep 2020 09:33, breytt samtals 3 sinnum.