Síða 1 af 1

Excel sérfræðingar

Sent: Mið 16. Sep 2020 11:21
af Richter
Sælir,

Fyrir mann sem er below average á Excel, einhver hér sem er well above average sem gæti komið með ráð með námskeið, kúrsa eða efni til að koma sér úr below í above og jafnvel advanced????

Bestu þakkir

Þessi average

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Mið 16. Sep 2020 11:23
af chaplin
Ég myndi byrja á YouTube, ótrúlega mikið efni til þar sem myndi koma þér á annað level - einnig er mikið úrval á Udemy. ;)

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Mið 16. Sep 2020 22:55
af dabbihall
finndu þér einhvern góðan dax kúrs á udemy eða á youtube, getur notað það einnig í power bi tólinu frá microsoft

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Fim 17. Sep 2020 11:49
af joker
Ég hef lært mikið á Excel á YouTube, t.d. ExcellsFun

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Lau 19. Sep 2020 09:03
af Richter
Takk fyrir svörin Vaktarar, ég byrja á Youtube og býð eftir 90% discount á Udemy!

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Lau 19. Sep 2020 09:53
af mikkimás
Gætirðu ímyndað þér Excel skjal sem myndi auðvelda þér eitthvað verk á vinnustaðnum eða í heimilislífinu, t.d. heimilisbókhaldinu? Segjum að þú værir kominn með basic skjal og þannig basic þekkingu á Excel. Gætirðu stöðugt útvíkkað þekkinguna með því að bæta við fídus ofan á fídus, þó að fídusinn sé óþarfi og hjálpi ekkert praktíst séð nema kannski marginally?

Þannig lærði ég á Excel upphaflega, með lokaútkomu sem skipti mig máli í nútíðinni og Google og kannski eina vel valda bók mér við hönd. Excel leiddi mig svo á endanum út í MS Access með sömu aðferðarfræði.

Ég gæti aldrei lært neitt af þessum kúrsum. Sennilega ert þú normal, en svona er ég.

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Lau 19. Sep 2020 10:37
af sigxx
Ég er í Excel ca 60-70% af þeim tíma sem ég er tölvunni.
En ég nota þessa hérna YouTube rás að lágmarki einu sinni í viku (https://www.youtube.com/channel/UCJtUOos_MwJa_Ewii-R3cJA)
Bæði til að læra nýtt sem og til að rifja upp annað sem ég var búinn að gleyma.
Mæli hiklaust með henni.

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Þri 22. Sep 2020 20:51
af kvaldik
Þetta video er gull, Joel Spolsky fer yfir helstu grunn hugtökin á skemtilegan máta.

https://www.youtube.com/watch?v=0nbkaYsR94c&t=60s

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Mið 23. Sep 2020 07:59
af GuðjónR

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Mið 23. Sep 2020 13:15
af Richter
Djöfull er ég ánægður með ykkur, takk kærlega fyrir svörin! Þetta mun nýtast mér vel :D

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Mið 23. Sep 2020 14:25
af rapport
GuðjónR skrifaði:https://fruexcel.is


https://www.mrexcel.com/

Re: Excel sérfræðingar

Sent: Mið 23. Sep 2020 20:14
af Haukursv
Eins og margir hafa nefnt tjekka bara á YouTube og Udemy. Svo er excel kúrs á www.frami.is ef þú vilt fá skipulagðan kúrs á íslensku en ég hef ekki persónulega reynslu af honum svosem. Bara worth mentioning