island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf kizi86 » Mið 01. Júl 2020 16:52

eru fleiri en ég sem eru furða á hversu lélegt kerfi þetta er?
er búinn að vera í vanda með að komast á heimabankann minn útaf þessu.
að kerfi í dag geti ekki tekið við nokkur þúsund calls er bara fáránlegt á þesasri tækniöld sem við lifum í.
er kerfið virkilega svona illa kóðað?


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

olihar
spjallið.is
Póstar: 420
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf olihar » Mið 01. Júl 2020 17:01

island.is virðist keyra á Wordpress.

island_is.JPG
island_is.JPG (36.53 KiB) Skoðað 3003 sinnum



Skjámynd

Höfundur
kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf kizi86 » Mið 01. Júl 2020 17:24

olihar skrifaði:island.is virðist keyra á Wordpress.

island_is.JPG

ROFL... semsagt ALGERIR VIÐVANINGAR við stjórn þarna...


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf Revenant » Mið 01. Júl 2020 17:24

Mér sýnist island.is wordpress vefurinn vera hýstur vefur hjá Flywheel (amk út frá headerunum sem netþjónninn sendir frá sér) en leyfisumsóknarvefurinn og innskráningin eru hýstir hjá Advania (asp.net vefir).

Skv. Rúv þá var island.is að fá 1100 köll/sek en mér þykir líklegt að áhuginn hafi verið meiri en búist var við.
Það er mikill munur að forrita vef fyrir kannski 2-5 köll á sek (sem ég giska að sé týpískt meðalálag á island.is) og síðan vef fyrir 1000+ köll á sek.

Ekki má gleyma að island.is er bara gátt og þarf því að kalla í ytri auðlindir (s.s. lögreglustjóra fyrir stöðu á ökuskírteini og auðkenni fyrir rafræn skilríki) sem hafa sýna eigin flöskuhálsa.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf rapport » Mán 05. Júl 2021 18:56




Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf dori » Mán 05. Júl 2021 22:17

rapport skrifaði:Again https://island.is/rof-innskraning

Er það rétt skilið hjá mér að þessar leiðbeiningar hafi komið inn samdægurs (s.s. á laugardegi þegar þetta var að fara að brotna hjá notendum)? Hljómar þannig miðað við að í leiðbeiningum fyrir tæknilega útfærslu er talað um "í dag". Ef það er rétt og það fattaðist svona seint þá er það voðalega slæmt.



Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf Revenant » Mán 05. Júl 2021 22:46

dori skrifaði:
rapport skrifaði:Again https://island.is/rof-innskraning

Er það rétt skilið hjá mér að þessar leiðbeiningar hafi komið inn samdægurs (s.s. á laugardegi þegar þetta var að fara að brotna hjá notendum)? Hljómar þannig miðað við að í leiðbeiningum fyrir tæknilega útfærslu er talað um "í dag". Ef það er rétt og það fattaðist svona seint þá er það voðalega slæmt.


Í leiðbeiningum sem island.is gaf út áttu aðilar að staðfesta að skilríki væri gefið út af milliskilríki Auðkennis með "CN = Traustur bunadur" (sem fer upp til Íslandsrótar) en nýja skilríkið er með undirritað af milliskilríki Auðkennis með "CN = Fullgilt audkenni".

Þegar gamla skilríkið rann út (eða því var skipt út) þá brotnar lógíkin því SAML svör eru ekki undirrituð af skilríki sem er undirritað af milliskilríkinu "CN = Traustur bunadur" og eru því ekki gildar.



Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 973
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf Jón Ragnar » Þri 06. Júl 2021 08:00

Þetta er smá klúður!



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf dori » Þri 06. Júl 2021 09:37

Revenant skrifaði:
dori skrifaði:
rapport skrifaði:Again https://island.is/rof-innskraning

Er það rétt skilið hjá mér að þessar leiðbeiningar hafi komið inn samdægurs (s.s. á laugardegi þegar þetta var að fara að brotna hjá notendum)? Hljómar þannig miðað við að í leiðbeiningum fyrir tæknilega útfærslu er talað um "í dag". Ef það er rétt og það fattaðist svona seint þá er það voðalega slæmt.


Í leiðbeiningum sem island.is gaf út áttu aðilar að staðfesta að skilríki væri gefið út af milliskilríki Auðkennis með "CN = Traustur bunadur" (sem fer upp til Íslandsrótar) en nýja skilríkið er með undirritað af milliskilríki Auðkennis með "CN = Fullgilt audkenni".

Þegar gamla skilríkið rann út (eða því var skipt út) þá brotnar lógíkin því SAML svör eru ekki undirrituð af skilríki sem er undirritað af milliskilríkinu "CN = Traustur bunadur" og eru því ekki gildar.
Þannig að vandræðin komu í ljós á laugardegi þegar skilríki runnu út eða þeim var skipt út og þá brotnaði SAML auðkenning á meðan? Úff, öfunda ekki þá sem reka þjónustur sem nota þetta og þurftu að hlaupa til á einum fyrsta góðviðrisdegi ársins :lol:

Svo náttúrulega... Shit happens. Allir klikka einhverntíma.



Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 973
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf Jón Ragnar » Þri 06. Júl 2021 10:13

Líka það er alltaf skipt um skilríki á síðasta séns :D



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video


Rafurmegni
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Fim 15. Okt 2020 14:53
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf Rafurmegni » Þri 06. Júl 2021 11:20

Jón Ragnar skrifaði:Þetta er smá klúður!


En er þetta ekki óþarfi? Þessi rafrænu skilríki virka bara hérlendis eftir því sem ég best veit og þau eru fyrst og fremst ætluð til að staðfesta það að maður hafi réttindi til að stjórna ökutæki. Af hverju er manni ekki bara flett upp eftir kennitölu ef lögreglan vill staðfesta réttindin? Það er fjallabaksleið að nota síma til að draga alls konar upplýsingar inn í app sem birtir svo eitthvað virtual viðmót?!

Er þetta fyrst og fremst hugsað til þess að komast inn á skemmtistaði og geta verslað í Ríkinu?



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: island.is ökuskírteni setur kerfið á hliðina

Pósturaf Xovius » Þri 06. Júl 2021 13:36

Rafurmegni skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Þetta er smá klúður!


En er þetta ekki óþarfi? Þessi rafrænu skilríki virka bara hérlendis eftir því sem ég best veit og þau eru fyrst og fremst ætluð til að staðfesta það að maður hafi réttindi til að stjórna ökutæki. Af hverju er manni ekki bara flett upp eftir kennitölu ef lögreglan vill staðfesta réttindin? Það er fjallabaksleið að nota síma til að draga alls konar upplýsingar inn í app sem birtir svo eitthvað virtual viðmót?!

Er þetta fyrst og fremst hugsað til þess að komast inn á skemmtistaði og geta verslað í Ríkinu?


Það er allavegana mun algengara hjá mér persónulega að það sé ekki löggan sem ég þarf að sýna ökuskírteinið. Oftar einmitt vínbúðin, pósturinn og þegar ég er að pikka upp pantanir eða eitthvað svoleiðis og þarf að staðfesta að ég sé ég.