Síða 1 af 1

Að búa til eldstæði

Sent: Lau 23. Maí 2020 15:19
af GuðjónR
Ég er að spá í að gera eldstæði í garðinum til brennslu á trjágreinum og litlum viðarkubbum á síðsumarskvöldum meðan kaldar veigar flæða um kverkar og rómantíkin svífur yfir brennuvörgum Kjalarness.

Er ekki alveg viss hvort ég eigi að grafa holu í garðinn og reyna að verða mér úti um hálfan bobbing og grafa niður, hlaða með hitaþolnum steinum eða hreinlega kaupa eitthvað sniðugt á pallinn.

Einhver reynsla meðal ykkar?

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Lau 23. Maí 2020 15:24
af Hizzman
minnir að hafa séð nokkrar útfærslur af þessu í Bauhaus nýlega

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Lau 23. Maí 2020 17:10
af rbe
530 7600

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Lau 23. Maí 2020 17:47
af GuðjónR
rbe skrifaði:530 7600

Konan þín svaraði og sagði að þú værir ekki í ástandi til að taka símann.
Reyni bara aftur síðar :face

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Mán 25. Maí 2020 22:06
af natti
GuðjónR skrifaði:Einhver reynsla meðal ykkar?


Ég hef svosem ekki reynslu af því að vera sjálfur með eldstæði, en hef reynslu af því að vera nágranni fólks með svona, bæði þar sem ég bjó áður og þar sem ég bý núna.
Þannig að ef einhver veit um góða útfærslu af því að setja upp góða vindvél og hlass af mykju svo ég geti svarað nágrönnunum í sömu mynt, þá væri gaman að heyra af slíku.
Fólki finnst þetta voða kósí og rómó en þetta er álíka tillitssamt og að fara með pípu eða sígó og reykja inn um eldhúsgluggan í næsta húsi.
(Svona eins og ég myndi segja að mykjulyktin væri bara að minna mig á sveitina, voða rómó...)

En svona on-topic: þá finnst mér hlöðnu stæðin yfirleitt koma betur út en frístandandi tilbúið dót.

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Þri 26. Maí 2020 00:42
af Squinchy
Hlaða allan daginn, hitt ryðgar alltaf í döðlur á no time út af hitanum

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Þri 26. Maí 2020 10:17
af brain

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Þri 26. Maí 2020 12:37
af Kristján Gerhard
Ameríkaninn kallar þetta fire pit og gerir mikið af þessu. Allskonar kit til og fullt af myndum á netinu til að fá hugmyndir.

Nágranni minn er með svon útiarin og kann ég honum litlar þakkir fyrir. Honum gengur sennilega illa að ná hita í þetta og þarafleiðandi er megn pest sem fylgir.

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Þri 26. Maí 2020 13:03
af halipuz1
Ég tók múrsteina sem voru aukalega hjá mér úti í Kanada og raðaði þeim bara bara í hring, kveikti svo bara í!

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Þri 26. Maí 2020 18:38
af netkaffi
halipuz1 skrifaði:Ég tók múrsteina sem voru aukalega hjá mér úti í Kanada og raðaði þeim bara bara í hring, kveikti svo bara í!
Eru menn að kveikja í svona sérkeyptum arinbútum einhverjum þá, eða hverju?

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Þri 26. Maí 2020 18:57
af halipuz1
netkaffi skrifaði:
halipuz1 skrifaði:Ég tók múrsteina sem voru aukalega hjá mér úti í Kanada og raðaði þeim bara bara í hring, kveikti svo bara í!
Eru menn að kveikja í svona sérkeyptum arinbútum einhverjum þá, eða hverju?


Bara venjulegum eldivið, ekkert spes við það sko bara tré sem þú kveikir í, færð reyndar alltaf 'Firewood' poka á öllum bensínstöðvum.

Svo er eitt helvíti magnað í Kanada að á öllum tjaldsvæðum, eða tjaldstæðum, eru tilbúnir svona "firepits" en hér á landi sér maður þetta ekki, allavega þangað sem ég hef komið og ekki er nú mikill skógur hér til að brenna niður. :)

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Þri 26. Maí 2020 19:08
af netkaffi
Ég er með gamla stóf úti (eldstæði úr járni frá fyrir stríð eða eitthvað) og keypti svona arinbút til að kveikja í. Svo bara gleymdi ég því. Hann er þarna enþá, verður gaman að sjá hvort að kveiknar í honum eftir 2 ár af rigningu og vetril. lol

En ef ég má nota bara venjulegan við þá náttla er þetta einfaldara. Eldur rúlar!

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Fim 04. Jún 2020 12:21
af GuðjónR
Jæja, þetta varð fyrir valinu; „Ball of fire“ frá Grillbúðinni.
Hvar er svo hagstæðast að fá eldivið?

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Fim 04. Jún 2020 16:15
af urban
natti skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Einhver reynsla meðal ykkar?


Þannig að ef einhver veit um góða útfærslu af því að setja upp góða vindvél og hlass af mykju svo ég geti svarað nágrönnunum í sömu mynt, þá væri gaman að heyra af slíku.


Þú átt auðvitað að setja kúamykjuna bara undir pallinn hjá nágrannanum, þá hefur hann engan áhuga á því að vera úti og kveikir þar að leiðandi ekki í.

Hvað kostar svona Guðjón ?

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Fim 04. Jún 2020 18:46
af GuðjónR
urban skrifaði:
natti skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Einhver reynsla meðal ykkar?


Þannig að ef einhver veit um góða útfærslu af því að setja upp góða vindvél og hlass af mykju svo ég geti svarað nágrönnunum í sömu mynt, þá væri gaman að heyra af slíku.


Þú átt auðvitað að setja kúamykjuna bara undir pallinn hjá nágrannanum, þá hefur hann engan áhuga á því að vera úti og kveikir þar að leiðandi ekki í.

Hvað kostar svona Guðjón ?


39.900 með heimsendingu :)
https://grillbudin.is/vara/eldst-i-ball-of-fire/

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Fim 04. Jún 2020 22:19
af jojoharalds
steypt eldstæði hefur reynst mér mjög vel,
kostar ekki míkið og endist töluvert betur en eitthvað dót sem maður kaupir á uppblásnu verði í Bauhaus eða álíka.

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Fim 04. Jún 2020 22:22
af appel
GuðjónR skrifaði:Jæja, þetta varð fyrir valinu; „Ball of fire“ frá Grillbúðinni.
Hvar er svo hagstæðast að fá eldivið?


Þetta á ekki að vera innandyra!!

Re: Að búa til eldstæði

Sent: Fös 05. Jún 2020 09:03
af GuðjónR
appel skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Jæja, þetta varð fyrir valinu; „Ball of fire“ frá Grillbúðinni.
Hvar er svo hagstæðast að fá eldivið?


Þetta á ekki að vera innandyra!!

hahahaha ég veit, en þetta kom ósamsett og nánast í frumeindum. Tók amk. 2 tíma að skrúfa saman. :-k