Síða 1 af 2

Ferðast innanlands?

Sent: Þri 12. Maí 2020 20:27
af GuðjónR
Þegar Víðir segir manni að ferðast innanhús eða innanlands þá hlýðir maður. Fór í smá roadtrip á Þingvelli síðastliðinn föstudaginn með konunni en þangað hef ég ekki komið síðan ég var barn. Það var engin þarna, við vorum alein. Reyndar var annar bíll á staðnum en engin sjáanlegur. Gengum um í klukkutíma eða svo áður en við héldum heim á leið.

Í gær birtist svo 850 króna rukkun í heimabankanum fyrir það að hafa ekið framhjá sjálfvirkum myndavélum á staðnum. Ég hef fullan skilning á því og styð það að ferðamenn sem hingað koma í stórum stíl greiði fyrir það svo að eðlileg uppbygging og viðhald innviða geti átt sér stað. En miðað við aðstæður í dag, þ.e. engir ferðamenn og bara einn og einn íslendingur þá finnst mér þetta frekar glatað. Sérstaklega í ljósi þess að stjórnvöld eru að hvetja fólk til að ferðast innanlands og í umræðunni að senda öllum íslendingum átján ára og eldri ferðaávísanir.

Ef þið ætlið að kíkja á Þingvelli, leggið þá áður en þið komið að þessum myndavélum.
Kúkúkamperarnir geta greitt þetta gjald þegar þeir fara að flæða yfir landið aftur.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Þri 12. Maí 2020 22:38
af falcon1
Bara þjófnaður. Þetta er svo fljótt að safnast upp í stórar upphæðir ef fólk ætlar að ferðast eitthvað að ráði um landið, þessi skitni 5 þúsund kall sem við fáum í "gjöf" dugar ekki einu sinni fyrir þessum kostnaði sem ferðalangar munu upplifa.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Þri 12. Maí 2020 23:10
af einarhr
Ég veiði í Þingvallavatni öll sumur en passa mig á því að fara ekki á trúristasvæðin. Það er geggjað að vera í Vatnskoti með tjald og vera á veiðum fram eftir nóttu. Þetta er ein mesta paradís á jörðinni. Auðvita er Almannagjá og alles sögulegt en það er svo margt þarna í kringum sem er svo æðislegt.

Það má tjalda tjöldum við vatnið en húsbílar og vagnar þurfa að vera á sjálfu tjaldstæðinu. Það er hægt að kaupa stakt veiðileyfi á ca 1500-2000 kr og svo virkar Veiðikortið þarna og það kostar ca 9000 kr en fæst á mjög góðu verði hjá verkalýðsfélagi.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Þri 12. Maí 2020 23:18
af einarhr
Afsakið repost,

Ég hef skilning fyrir þessum gjöldum þar sem ásóknin hefur verið gríðarleg af túristum og það þarf að hugsa um svæðið. ÞAð hefur verið rætt áður að hafa sérstakt Þjóðgarðagjald fyrir þá sem koma til landsins að ferðast en það hentar því miður ekki öllum ferðamönnum, td þeim sem koma bara á djammið í Rvk til að fá á broddinn :)

Við sem erum skattgreiðendur á Íslandi eigum ekki að þurfa borgar fyrir aðgang að nátturú sem er í almannaeign, annað á við eitthvað sem er í einkaeigu eins og Kerið (Ekki sáttur við það samt)

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 08:55
af Televisionary
Mér hefur þótt þetta skásta fyrirkomulagið þar sem ég hef ferðast sbr. þegar ég fór og skoðaði Niagara Falls þá var flatt gjald upp á 10 dollara og þá máttu leggja í heilan dag.

750 krónur fyrir að leggja heilan dag er mjög vægt gjald!

Ég geri hins vegar athugasemd við tilkynningargjald upp á 100 krónur fyrir að innheimta þetta.

GuðjónR skrifaði:Þegar Víðir segir manni að ferðast innanhús eða innanlands þá hlýðir maður. Fór í smá roadtrip á Þingvelli síðastliðinn föstudaginn með konunni en þangað hef ég ekki komið síðan ég var barn. Það var engin þarna, við vorum alein. Reyndar var annar bíll á staðnum en engin sjáanlegur. Gengum um í klukkutíma eða svo áður en við héldum heim á leið.

Í gær birtist svo 850 króna rukkun í heimabankanum fyrir það að hafa ekið framhjá sjálfvirkum myndavélum á staðnum. Ég hef fullan skilning á því og styð það að ferðamenn sem hingað koma í stórum stíl greiði fyrir það svo að eðlileg uppbygging og viðhald innviða geti átt sér stað. En miðað við aðstæður í dag, þ.e. engir ferðamenn og bara einn og einn íslendingur þá finnst mér þetta frekar glatað. Sérstaklega í ljósi þess að stjórnvöld eru að hvetja fólk til að ferðast innanlands og í umræðunni að senda öllum íslendingum átján ára og eldri ferðaávísanir.

Ef þið ætlið að kíkja á Þingvelli, leggið þá áður en þið komið að þessum myndavélum.
Kúkúkamperarnir geta greitt þetta gjald þegar þeir fara að flæða yfir landið aftur.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 09:38
af GuðjónR
Þegar ég er í útlöndum þá finnst mér öðruvísi að borga svona gjöld, þar borgar maður ekki aðra skatta og sjálfsagt að greiða fyrir afnot auðlindanna með öðrum hætti.
Sem íslenskur ríkisborgari og skattgreiðandi á íslandi þá finnst mér ég eigi ekki að borga sérstök gjöld fyrir það að skoða sögufræga staði landsins eins og Þingvelli. Ég er ekkert sérlega spenntur fyrir því að ferðast innanlands ef ég á von á því að heimabankinn fyllist að svona rukkunum. En það er auðvitað bara mín skoðun.
Televisionary skrifaði:Mér hefur þótt þetta skásta fyrirkomulagið þar sem ég hef ferðast sbr. þegar ég fór og skoðaði Niagara Falls þá var flatt gjald upp á 10 dollara og þá máttu leggja í heilan dag.

750 krónur fyrir að leggja heilan dag er mjög vægt gjald!

Ég geri hins vegar athugasemd við tilkynningargjald upp á 100 krónur fyrir að innheimta þetta.

GuðjónR skrifaði:Þegar Víðir segir manni að ferðast innanhús eða innanlands þá hlýðir maður. Fór í smá roadtrip á Þingvelli síðastliðinn föstudaginn með konunni en þangað hef ég ekki komið síðan ég var barn. Það var engin þarna, við vorum alein. Reyndar var annar bíll á staðnum en engin sjáanlegur. Gengum um í klukkutíma eða svo áður en við héldum heim á leið.

Í gær birtist svo 850 króna rukkun í heimabankanum fyrir það að hafa ekið framhjá sjálfvirkum myndavélum á staðnum. Ég hef fullan skilning á því og styð það að ferðamenn sem hingað koma í stórum stíl greiði fyrir það svo að eðlileg uppbygging og viðhald innviða geti átt sér stað. En miðað við aðstæður í dag, þ.e. engir ferðamenn og bara einn og einn íslendingur þá finnst mér þetta frekar glatað. Sérstaklega í ljósi þess að stjórnvöld eru að hvetja fólk til að ferðast innanlands og í umræðunni að senda öllum íslendingum átján ára og eldri ferðaávísanir.

Ef þið ætlið að kíkja á Þingvelli, leggið þá áður en þið komið að þessum myndavélum.
Kúkúkamperarnir geta greitt þetta gjald þegar þeir fara að flæða yfir landið aftur.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 10:41
af Viktor
Það er ólögleg að mismuna fólki eftir þjóðerni.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 10:42
af Klemmi
Sallarólegur skrifaði:Það er ólögleg að mismuna fólki eftir þjóðerni.

Einmitt, og var t.d. ekki gúdderað þegar Bláa Lónið var með 2 fyrir 1 tilboð fyrir "handhafa íslenskra greiðslukorta".

Mér þótti þetta skemmtilegt loop-hole, en vissulega augljóst og svo sem gott að það var lokað á það...

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 10:52
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Það er ólögleg að mismuna fólki eftir þjóðerni.

Einmitt, og var t.d. ekki gúdderað þegar Bláa Lónið var með 2 fyrir 1 tilboð fyrir "handhafa íslenskra greiðslukorta".

Mér þótti þetta skemmtilegt loop-hole, en vissulega augljóst og svo sem gott að það var lokað á það...

Af hverju ætti það að vera ólöglegt?
Á Spáni (sem er í evrópusambandinu) þykir það sjálfsagt, ef þú býrð t.d. á Tenerife þá geturðu fengið "resident card" og færð þá 50% afslátt af allskonar þjónustu sem túristar þurfa að greiða að fullu, til dæmis í alla garða og með ferjum á milli eyja og einnig flugfargjöldum. Þeir eru búnir að greiða fyrir ákveðna grunnþjónustu með sköttunum sínum, sem við greiðum hérlendis með okkar sköttum.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 11:27
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Af hverju ætti það að vera ólöglegt?

Ég er ekki lögfróður og kannski er ég að bulla. En ég man bara eftir umtalinu í kringum þetta, því fyrst voru þeir með 2 fyrir 1 fyrir Íslendinga, það var bannað, svo þá breyttu þeir því yfir í 2 fyrir 1 fyrir handhafa íslenskra greiðslukorta, sem hætti svo í kjölfarið.
Kannski voru aðrar ástæður fyrir því heldur en að það hafi verið ólöglegt, svona var þetta bara í minningunni (ca. 10 ár síðan) :)

En ég er alveg sammála þér, mér þykir alveg eðlilegt að borga meira í útlandinu heldur en innfæddir.

Sent: Mið 13. Maí 2020 12:03
af falcon1
Sallarólegur skrifaði:Það er ólögleg að mismuna fólki eftir þjóðerni.

En það er verið að mismuna eftir þjóðerni með þessu fyrirkomulagi! Við, íslenskir ríkisborgarar, greiddum og greiðum fyrir þessa innviði með hinum ýmsu sköttum og gjöldum sem eru nú ekki lítið hlutfall af launum fólks!

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 12:20
af falcon1
Ps. Tilkynningargjaldið er ólöglegt!

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 12:47
af Viggosson
væri ekki sanngjarnt að láta skattgreiðendur sleppa við að borga í tvígang, sérstaklega hjá þjóðarfjársjóð með ótrúlegt sögugildi fyrir alla íslendinga.

við borgum skatta sem endar í vegagerðina að einhverju leiti
ekki borga ferðamenn afnot ef þeim (svo ég viti, bara tekið sem dæmi)

Er ekki verið þá óbeint verið að okra á heimafólki, viljandi eða óviljandi.

***fyrirvari:ég hef litla þekkingu á þessum málum en er þó með áhuga fyrir að vita meira, allar leiðréttingar vel þegnar.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 13:05
af IL2
Held að það sé rétt hjá mér að ef þú hefur ökuskírteini eða önnur skilríki frá Flórída, þá borgaði lægra í Disney World.

Í Tælandi borgaði alltaf (toluvert) meira í þjóðgarða og musteri sem utlendingur nema ef þú hefur tælenkst ökuskírteini sem þú færð ekki nema með visst visa.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 13:18
af nonesenze
bílaleigur borga sennilega bifreiðagjöld sem túristar borga væntanlega inn í leiguverð, en við erum nú sköttuð frá vinnu, kaupum og öllu sem við gerum alveg ofaní gröfina, svo að það ætti ekki að bjóða okkur uppá svona gjöld í okkar eigin landi

bara mín 2 cent

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 14:35
af olihar
GuðjónR skrifaði:
Klemmi skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Það er ólögleg að mismuna fólki eftir þjóðerni.

Einmitt, og var t.d. ekki gúdderað þegar Bláa Lónið var með 2 fyrir 1 tilboð fyrir "handhafa íslenskra greiðslukorta".

Mér þótti þetta skemmtilegt loop-hole, en vissulega augljóst og svo sem gott að það var lokað á það...

Af hverju ætti það að vera ólöglegt?
Á Spáni (sem er í evrópusambandinu) þykir það sjálfsagt, ef þú býrð t.d. á Tenerife þá geturðu fengið "resident card" og færð þá 50% afslátt af allskonar þjónustu sem túristar þurfa að greiða að fullu, til dæmis í alla garða og með ferjum á milli eyja og einnig flugfargjöldum. Þeir eru búnir að greiða fyrir ákveðna grunnþjónustu með sköttunum sínum, sem við greiðum hérlendis með okkar sköttum.

Já þetta er ólöglegt hvernig þeir gera þetta á Tenerife en eitthvað lítið virðist vera gert í þessu. Þegar maður er þar lengi og farinn að þekkja fólk á þeim stöðum sem maður heimsækir með aðra gesti fær maður oft frítt inn og gestirnir borga.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 14:51
af worghal
Klemmi skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Það er ólögleg að mismuna fólki eftir þjóðerni.

Einmitt, og var t.d. ekki gúdderað þegar Bláa Lónið var með 2 fyrir 1 tilboð fyrir "handhafa íslenskra greiðslukorta".

Mér þótti þetta skemmtilegt loop-hole, en vissulega augljóst og svo sem gott að það var lokað á það...

https://www.evropuvefur.is/svar.php?id= ... xXCo9mVUZc
hér er fjallað um þessa mismunun og farið aðeins í þau lög

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 15:24
af Hizzman
Það er ekki rétt að erlendir ferðamenn borgi ekki skatta hér! Þeir borga vsk af öllu sem þeir kaupa. Þeir borga há eldsneytisgjöld eins og aðrir sem fara á dæluna. Aftir á móti eiga þeir ekki rétt á neinni opinberri þjónustu þjónustu hér nema þeir greiði. Það er bara asnalegt að vera að rukka allskonar aukagjöld. Þetta er ekki alveg sambærilegt við td USA þar sem vsk er víða lítill eða engin og eldsneyti lítið skattað.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 15:27
af olihar
Hizzman skrifaði:Það er ekki rétt að erlendir ferðamenn borgi ekki skatta hér! Þeir borga vsk af öllu sem þeir kaupa. Þeir borga há eldsneytisgjöld eins og aðrir sem fara á dæluna. Aftir á móti eiga þeir ekki rétt á neinni opinberri þjónustu þjónustu hér nema þeir greiði. Það er bara asnalegt að vera að rukka allskonar aukagjöld. Þetta er ekki alveg sambærilegt við td USA þar sem vsk er víða lítill eða engin og eldsneyti lítið skattað.

Enda ekki VSK í USA, bara söluskattur.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 16:02
af rapport
olihar skrifaði:
Hizzman skrifaði:Það er ekki rétt að erlendir ferðamenn borgi ekki skatta hér! Þeir borga vsk af öllu sem þeir kaupa. Þeir borga há eldsneytisgjöld eins og aðrir sem fara á dæluna. Aftir á móti eiga þeir ekki rétt á neinni opinberri þjónustu þjónustu hér nema þeir greiði. Það er bara asnalegt að vera að rukka allskonar aukagjöld. Þetta er ekki alveg sambærilegt við td USA þar sem vsk er víða lítill eða engin og eldsneyti lítið skattað.

Enda ekki VSK í USA, bara söluskattur.

Það er haugur af útlendingum sem fara með TaxFree nótur og fá VSK endurgreiddann af alskonar.

Borgarar EU fá heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og við, ef þeir eru með evrópskt sjúkratryggingakort.

En á móti kemur að hótel og gististaðir hafa verið að fá skattafslætti þannig að þessi starfsemi skilar litlu til hins opinbera.

Þá hafa verið unnar greiningar sbr. https://www.ruv.is/frett/tap-borgarinna ... milljardar

Borgin mun samt ekki koma út í neinum plús núna enda mikill kostnaður í félags- og velferðarmálum sem mun rjúka upp vegna Covid.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 17:30
af Hizzman
Þeir fá sjúkraþjónustu vegna þess að við fáum það sama hjá þeim. Þetta er bara bráðaþjónusta. Ferðamenn hafa ekki aðgang að mennta, umönnunnar eða bótakerfi hér.

Auðvitað kemur mikið af útsvars- og staðgreiðslugjöldum, óbeint frá ferðamönnum.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 18:07
af KristinnK
einarhr skrifaði:Ég veiði í Þingvallavatni öll sumur en passa mig á því að fara ekki á trúristasvæðin. Það er geggjað að vera í Vatnskoti með tjald og vera á veiðum fram eftir nóttu.

Veiðir þú á flugu, maðk eða spón?

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 18:40
af einarhr
KristinnK skrifaði:
einarhr skrifaði:Ég veiði í Þingvallavatni öll sumur en passa mig á því að fara ekki á trúristasvæðin. Það er geggjað að vera í Vatnskoti með tjald og vera á veiðum fram eftir nóttu.

Veiðir þú á flugu, maðk eða spón?

Ég byrjaði í Fluguveiðinni fyrir 8 árum nota stundum maðk og spún í dag en það er ekki oft.

Re: Ferðast innanlands?

Sent: Mið 13. Maí 2020 18:42
af einarhr
einarhr skrifaði:
KristinnK skrifaði:
einarhr skrifaði:Ég veiði í Þingvallavatni öll sumur en passa mig á því að fara ekki á trúristasvæðin. Það er geggjað að vera í Vatnskoti með tjald og vera á veiðum fram eftir nóttu.

Veiðir þú á flugu, maðk eða spón?

Ég byrjaði í Fluguveiðinni fyrir 8 árum nota stundum maðk og spún í dag en það er ekki oft.

Í Þingvallavatni reynast svartar púpur mjög vel, Killer, Krókurinn og Watson td. Það þarf að ná þessu niður á dýpið til að ná Bleikjnni. Sumir nota flot og púpur það er td fínt fyrir krakkana