Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Allt utan efnis

Höfundur
Eybbus
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Lau 29. Feb 2020 23:49
Reputation: 0
Staðsetning: 203
Staða: Ótengdur

Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf Eybbus » Lau 14. Mar 2020 00:49

Sælir/sælar,

Pappakassa sérfræðingur óskað!

Jæja ég er að flyja til noregs á versta helvítis tíma og er að flýta mér. Hvar get ég fengið pappa kassa nóu stórann fyrir inwin 303 tölvukassa? Nei, ég get ekki notað pappa kassann sem hann kom í af því að ég er halfviti og henti honum fyrir löngu.

Hver selur nóu stóra kassa?
Hver selur draslið sem maður setur í kassann þannig að hann skemmist/brotni ekki?
Er til þjónusta sem myndi gera þetta fyrir mig?
Ætti ég bara nota dhl til að senda til noregs eða er til betra fyrirtæki?

Hefði viljað selja kassann til að losna við þetta vesen en það er sitt eigið vesen.

https://www.in-win.com/en/gaming-chassis/303/



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf gnarr » Lau 14. Mar 2020 01:14

Án þess að vera með það á hreinu, þá hugsa ég að flutningsgjöldin á tölvukassanum myndu líklega vera hærri en að kaupa annann í noregi.

Gætirðu ekki bara komið kassanum í "umboðssölu" hjá vini þínum tildæmis?

Annars myndi ég tékka með tölvubúðir. Þær gætu mögulega átt kassa utanaf öðrum tölvukassa sem gæti passað fyrir þig.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6275
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Tengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf worghal » Lau 14. Mar 2020 01:59

computer.is eru með in-win á íslandi, kanski eiga þeir kassa handa þér


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


Funday
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Fim 12. Nóv 2015 06:39
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf Funday » Lau 14. Mar 2020 10:27

bara smella kassanum í ferðatösku það kostar minna að borga fyrir auka tösku heldur en að flytja hann með einhverjum eins og dhl




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4167
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1294
Staða: Ótengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf Klemmi » Lau 14. Mar 2020 10:57

Myndi reyna að selja kassann, aflgjafann og mögulega örgjörvakælinguna, eftir því hvað hún er stór, og taka rest í handfarangri (gefið að reglur leyfi).




Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf Sporður » Lau 14. Mar 2020 11:44

Ég veit ekkert hvort þetta er mögulegt en þú getur keypt aukatösku með flugfélaginu. Pakkar kassanum inn í eitthvað og merkir brothætt.

Kostar líklega svipað og að senda í pósti.

Verður bara að vona að hlaðmaðurinn sé ekki heimsmeistari í dvergakasti eins og þeir virðast margir vera.

....
Og funday var búinn að leggja það til :fly

P. S. Kauptu aukatöskuna fyrirfram, ekki uppi á velli
Síðast breytt af Sporður á Lau 14. Mar 2020 12:01, breytt samtals 2 sinnum.




Höfundur
Eybbus
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Lau 29. Feb 2020 23:49
Reputation: 0
Staðsetning: 203
Staða: Ótengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf Eybbus » Lau 14. Mar 2020 19:24

Já held að sé búinn að redda mér nóu stóra tösku en... Ég núna ekki viss hvort ég muni komast til noregs þar sem þeir loka landamærin kl 8 á mánudaginn og ef ég myndi komast þá myndi ég þurfa að fara í sóttkví í 2 vikur.

Sjítturinn titturinn




Funday
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Fim 12. Nóv 2015 06:39
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf Funday » Sun 15. Mar 2020 10:03

ef þú kemst mundu að tapea glerið allt þannig ef einhvað dickface er að vinna við töskuna og hendir henni til þá brotnar ekki glerið yfir allt og mögulega cuttar einhverjar micro leiðingar á móðurborðinu það er mikið betra að þrífa glerið eftir á heldur en að þurfa nýtt móðurborð




Runar
Ofur-Nörd
Póstar: 294
Skráði sig: Fös 27. Jún 2003 19:31
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa

Pósturaf Runar » Sun 15. Mar 2020 12:44

Smá ábending ef þú tekur kassann með þér til Noregs og selur hann ekki hérna heima eins og sumir mældu með. Það er mikilvægt að setja eitthvað INN í kassann, til að styðja t.d. skjákortið, CPU kælinguna ef hún er stór og annað sem er nógu stórt. Ef einhver högg eða mikill hristingur verður á kassanum, þá getur eitthvað skemmst inni í honum. T.d. væri ekki slæmt að nota þetta hvíta drasl sem flest allt stærra tölvudót kemur með til að vernda það, freyðiplast? Andskotinn! Nafnið á því er dottið út úr haunsum á mér í augnablikinu! :) Skera það í búta til að passa vel inn í kassann til að styðja vel við allt stærra dótið.

Mæli með þessu, sem er aðeins mýkra en ekki of mjúkt og nær að styðja við innihaldið í kassanum án þess að skemma eitthvað:
https://sc01.alicdn.com/kf/HTB1F.FyxVOWBuNjy0Fiq6xFxVXat.jpg_350x350.jpg
https://www.synergypackaging.co.uk/wp-content/uploads/2014/09/cushioning-foam-end-caps1.jpg

Eða þá þetta:
https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/65/Expanded_polystyrene_foam_dunnage.jpg/1200px-Expanded_polystyrene_foam_dunnage.jpg