urban skrifaði:Tbot skrifaði:Þeir hafa ekki fengið neitt gefins, það sem málið snýst um er mat á veiðireynslu og hvernig ráðherrar hafa virt hana að vettugi.
Það voru útgerðir sem voru að sækja í bæði kolmuna og makríl á eigin kostnað með að sjálfsögðu von um hagnað.
Síðan þegar markríll er kvótasettur þá er þó nokkrum útgerðum afhendur kvóti án nokkurrar veiðireynslu í honum. Sem er andstætt reglum sem hafa gilt.
Guðjón, ekki vera svona einfaldur að halda að þetta sé gefins.
Það eru ýmis gjöld sem útgerðin er að borga nú þegar vegna kvóta, sem meðal annars renna til Hafró.
Það sem má frekar deila um hvort upphæð þeirra sé sanngjörn.
Já í þessu tilviki var það nú reyndar hinir sem að fengu eitthvað gefins, ekki þessir útgerðarmenn.
Enda er þetta 10 ára gamalt mál, það er ekkert verið að þessu núna, þar að auki er búið að dæma að ríkið sé skaðabótaskylt í þessu máli, ríkið var semsagt dæmt fyrir að brjóta lög.
Þegar að ríkið brýtur lög þá er eðlilegt að það séu greiddar skaðabætur til þolenda, alveg sama hversu illa einhverjum er við þolandann eða ríkur hann er.
Þetta er náttúrulega fáránlegt, að fá greitt andvirði fisks sem þú veiddir aldrei því þú fékkst ekki heimild til að veiða hann.
Ef þetta væri útboðsmál s.s. ríkið kaupir vöru af aðila A en ekki aðila B sem gerði hagstæðara tilboð sem var metið óhagstæðara af einhevrjum ástæðum, þá fær aðili B ekki greiddar bætur eins og hann hefði lent sölunni og hlotið samninginn, hann fær endurgreiddann kostnað við að gera tilboðið = hann er gerður skaðlaus = hann hlítur engann skaða af.
Hvaða skaða urðu útgerðirnar fyrir við að einhver annar fékk að veiða kvótann?
Þær eiga hann ekki = þær misstu ekkert, þær bara fengu hann ekki úthlutað = ég átta mig ekki á af hvaða skaði hlaust af.
Ef að þær voru búnar að fjárfesta í einhverjum búnaði sem þær gátu svo ekki notað, þá má meta það sem skaða, en skaðinn er ekki undir neinum eðlilegum kringumstæðum "áætlaður hagnaður" af sölu kvóta sem þær hefðu átt að fá en fengu ekki.
Þetta er mjög rangt ef þetta endar svona.
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvaða áhrif þetta gæti t.d. haft á tjónabætur í öðrum málum, að bætur miðist þá alfarið út frá þeim tekjum sem viðkomandi hefði mögulega getað haft ef allt hefði gengið upp hjá honum í lífinu næstu 10-15 árin, í námi og á vinnumarkaði en ekki bara því sem hann sannarlega missti af m.v. það sem hann var búinn að vera gera seinustu 3-5 árin.