Síða 1 af 2

Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 12:45
af GuðjónR
Fyrir þá sem eiga erfitt með að skilja ákvarðanir eða ákvarðanaleysi stjórnenda þá er þetta upplýsandi grein.
Þetta er ekkert endilega verra fólk, bara með ákveðin heilkenni sem það fæðist með.
Sýnum ríkisstjórninni tillitsemi á erfiðum tímum.

https://www.visir.is/g/2020200319960

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 13:01
af steini_magg
Heyrði í Bítinu i morgun í framhaldi við þetta að það eru sumir sem verða siðblindir þegar þeir komast í valdastöðu. Held að Robert Mugabe
sem var lengi í Simbabve sé gott dæmi um þetta, hann byrjaði að gera mjög góða hluti en síðan var hann valdasjúkur og gerði ekki eins góða hluti. Það var mjög misjafnt hvort fólk fagnaði andláti hans eða syrgdi en hann lést núna í september. Svo það sé tekið fram að þá hef ég þetta bara frá fréttum.

Er samt mjög smeikur um að fólk fari einmitt að hrópa að þessi og hinn sé siðblindur af því að það fílar ekki þennan og hinn. Held að t.d. það sé enginn siðblindur í ríkisstjórninni núna.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 13:18
af zetor
Mér finnst þetta alltaf gott TED video varðandi siðblindu og já svona hina og þessa hvilla. Það er auðvelt að stimpla hina og þessa siðblinda og ruglaða, þetta er ekki kannski svo einfalt.

https://youtu.be/xYemnKEKx0c

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 13:56
af rapport
Þetta á kannski meira við æðstru stjórnendur en millistjórnendur

Það sem ég hef reynt að hafa að leirðarljósi er "Þjónandi forysta" og "Holistic management"

Ekki ný vísindi en passa vel með flestum tólum stjórnenda

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 16:06
af GuðjónR
rapport skrifaði:Þetta á kannski meira við æðstru stjórnendur en millistjórnendur

Það er auðvelt að tengja þetta við stjórnmálamenn.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 17:12
af rapport
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Þetta á kannski meira við æðstru stjórnendur en millistjórnendur

Það er auðvelt að tengja þetta við stjórnmálamenn.

Suma stjórnmálamenn, engin spurning.

Það fáránlegasta er að þetta siðleysi er það sem annað fólk hrífst að og það kýs þá.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 17:34
af krissiman
Tókum siðblindu fyrir þegar ég var í heimspeki og vorum látinn horfa á þessa heimildarmynd

Það vantar svolítið upp á orðaforðan hjá okkur íslendingum þegar kemur að siðblindu. Á ensku er til Psychopath og hinsvegar Sociopath og í þessari heimildarmynd er verið að taka fyrir hugtakið ,,corporate sociopath". Mjög áhugavert stöff og mæli eindregið með að horfa á myndina! :megasmile

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 17:45
af GuðjónR
krissiman skrifaði:Tókum siðblindu fyrir þegar ég var í heimspeki og vorum látinn horfa á þessa heimildarmynd

Það vantar svolítið upp á orðaforðan hjá okkur íslendingum þegar kemur að siðblindu. Á ensku er til Psychopath og hinsvegar Sociopath og í þessari heimildarmynd er verið að taka fyrir hugtakið ,,corporate sociopath". Mjög áhugavert stöff og mæli eindregið með að horfa á myndina! :megasmile

Áhugavert, ætla að horfa á þetta við tækifæri.

Spurning hvort þið þurftuð að horfa á þetta líka?
Sorglega tilfinningalaust og ótrúverðugt.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 21:41
af Sporður
Gildir þetta líka um vaktina? :guy

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 12. Mar 2020 21:56
af GuðjónR
Sporður skrifaði:Gildir þetta líka um vaktina? :guy

Já maður hefur séð nokkra bullandi siðblinda renna hér í gegn, sem betur fer ekki marga þó, nefni engin nöfn því ég nenni ekki meiðyrðarmálum.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fös 13. Mar 2020 07:29
af urban
Sporður skrifaði:Gildir þetta líka um vaktina? :guy

GuðjónR handvaldi okkur stjórnendurnar útaf því að við erum allir með tölu með siðblindu á háu stig.:guy

Sérstök rannsókn skilst mér.

Sést að það þrælvirkar, vaktin búin að lifa í tæpa 2 áratugi með okkur svona

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fös 13. Mar 2020 10:55
af jonsig
Sporður skrifaði:Gildir þetta líka um vaktina? :guy

Akkúrat sem ég hugsaði, en það þarf svona kaldlynda menn til að halda niðri tröllum eins og mér

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 19. Mar 2020 16:58
af GuðjónR
Og talandi um siðblindu, núna vilja sumir nota neyðarástandið og einkavinavæða gatnakerfið. Fólki er ekki viðbjargandi.
https://www.ruv.is/frett/heimilt-ad-sem ... a-veggjold

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Fim 19. Mar 2020 18:04
af Sporður
GuðjónR skrifaði:Og talandi um siðblindu, núna vilja sumir nota neyðarástandið og einkavinavæða gatnakerfið. Fólki er ekki viðbjargandi.
https://www.ruv.is/frett/heimilt-ad-sem ... a-veggjold

Það eina sem ég sé varhugavert við þetta sé það að skattur á eldsneyti verði ekki leiðréttur til jafns við þessa innheimtu.

Með tilkomu rafbíla þarf að breyta innheimtu veggjalda/eldsneytisskatta og þetta er ein leið til þess og sanngjörn að mínu mati. Þeir borga sem nota vegina.

En róa sig Guðjón. Þetta er ekki hollt fyrir heilsuna í samkomubanninu.

Prufaðu að hitamæla þig aftur og vertu viss um að mælirinn fari alla leið inn. :guy :guy

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Mán 23. Mar 2020 13:54
af GuðjónR
Það er óþarfi að gera nýjan þráð þar sem þetta er tengt efni, það verður spennandi að sjá nýjasta Kveik þáttinn á morgun!
https://www.dv.is/frettir/2020/3/23/hel ... eltdownin/

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Mán 23. Mar 2020 20:39
af Stuffz
dettur í hug.. Securocrat!

securocrat
Also found in: Wikipedia.
securocrat (sɪˈkjʊərəʊˌkræt)
n
(Government, Politics & Diplomacy) a military or police officer who has the power to influence government policy

Þetta kannski vel á við
Vandlega er sett á svið
Ástandið þolir enga bið
Áætlun "SECÚRÓKRATIÐ"

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 11:07
af GuðjónR
Á þetta ekki heima hérna?

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 11:15
af Hjaltiatla
GuðjónR skrifaði:Á þetta ekki heima hérna?

Varla, ég hef túlkað þessa aðgerð að það er verið reyna að halda starfsfólki í vinnu meðan þetta ástand gengur yfir (með þeirri trú að efnahagsástandið lagist fljótlega í kjölfarið). Annars hefðu fleiri hjá Bláa lóninu fengið að fjúka í hópuggsögninni um daginn því þetta er jú hagnaðar drifið fyrirtæki (eins og flest fyrirtæki eru).

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 13:13
af ZiRiuS
Hjaltiatla skrifaði:

Þeir eiga 12.4 milljarða í eigið fé...?

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 13:26
af Hjaltiatla
ZiRiuS skrifaði:

Ok, vel gert.
Sjálfur hef ég talið þessa aðgerð vera hugsaða til þess að fyrirtæki (bæði vel efnuð og ekki svo vel efnuð) geta nýtt sér þessa aðstoð frá ríkinu í stað þess að segja upp fólki (því ríkið vill ekki að hjól atvinnulífsins stöðvast þegar fyrirhugað ástand lagast og það á að koma öllu aftur af stað).
Ég er ekki varðhundur þessa aðgerðarpakka þannig að ég ætla ekki að verja þessa hugmyndafræði því ég tel að ríkið þurfi að dæla aftur pening inní þessa aðgerð og þá koma önnur vandamál fram. Flókin staða.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 14:25
af Sporður
ZiRiuS skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Á þetta ekki heima hérna?

Varla, ég hef túlkað þessa aðgerð að það er verið reyna að halda starfsfólki í vinnu meðan þetta ástand gengur yfir (með þeirri trú að efnahagsástandið lagist fljótlega í kjölfarið). Annars hefðu fleiri hjá Bláa lóninu fengið að fjúka í hópuggsögninni um daginn því þetta er jú hagnaðar drifið fyrirtæki (eins og flest fyrirtæki eru).

Þeir eiga 12.4 milljarða í eigið fé...?

Ég hélt að þú værir að rugla saman arðgreiðslum og eigin fé en nei þetta er rétt hjá þér. Eigið fé var 12,4 milljarðar 2018 og arðgreiðslur frá 2012 nema 12.3 milljörðum. Mig grunar þó að eigið fé sé eitthvað lægra í dag þar sem ákveðið var að greiða 4 milljarða í arð árið 2019. Skv. stöplaritinu er aukning ár frá ári í arðgreiðslum en aldrei eins mikið og milli áranna 2018 og 2019. Árið 2018 voru arðgreiðslur 2 milljarðar en árið 2019 100% hærri.

Annað hvort var 2018 svona algert met-metár hjá Bláa Lóninu eða þá að hluthafar hafa ekki vijað hafa of mikið fé í félaginu ef hægðist á (svo ríkið þyrfti nú pottþétt að veita hjálparhönd).

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 14:49
af urban
Sporður skrifaði:

Ef að fyrirtæki eiga ekki fyrir þvi sem að þau þufa að borga, þá er bara eðlilegt að.

A. Fyrirtæki fari á hausinn og gert upp við kröfuhafa.
B. Fyrirtæki fái lánsfé og leggi fram tryggingar og haldi áfram rekstri, sér í lagi ef að fyrirtækið á hellings eigiðfé og hellings hagnaður sé að rekstri þess.

Það er ekkert eðlilegt við að það haldi strafsfólki en láti ríkið borga fyrir það.
Þurfa ekki einu sinni að borga þjálfun á nýju starfsfólki, heldur láta ríkið borga fyrir að halda starfsfólki í vinnu þarna.

Þetta er algerlega galið að þessi leið eigi við þetta fyrirtæki.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 15:10
af ZiRiuS
urban skrifaði:

Stundin.is skrifaði:Launagreiðslur Bláa lónsins námu um 500 milljónum króna á mánuði árið 2018. Ef bara er horft á arðgreiðslur fyrirtækins árið 2018 þá myndu þær duga til að greiða öll laun starfsmanna fyrirtækisins í meira en 8 mánuði.

Eigið fé er svo hærra en arðgreiðslurnar svo við erum að tala um rúma 16 mánuði...

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 15:26
af Hizzman
Arðgreiðslur eru skattlagðar. Skatturinn af arðinum gæti farið langt með að greiða þennan kostnað.

Re: Siðblindir í stjórnunarstöðum

Sent: Þri 31. Mar 2020 17:39
af urban
Hizzman skrifaði:Arðgreiðslur eru skattlagðar. Skatturinn af arðinum gæti farið langt með að greiða þennan kostnað.

Já og þó það nú væri að hann sé skattlagður.

Það er bara ekkert eðlilegt að fyrirtækið borgi skatta og skyldur til samfélagsins og ætlist síðan til þess að fá það til baka útaf því að það borgar svo mikið til samfélagsins.

Það endar þá á því að það er ekki að borga neitt til samfélagsins.

Segjum bara að skatturinn hafi verið milljarður og það fari milljarður í að borga laun fyrir starfsfólkið þeirra.

Þá eru þeir að borga ekkert til samfélagsins en stinga 3.2 milljörðum í vasann (þeir verandi eigendur BL)

Það á ekki að einkavæða gróðann og ríkisvæða tapið, það er jafn vitlaust núna og það hefði verið þegar að wow fór á hausinn.

Það að aðstoða fyrirtæki með aðgang að lánsfé er alveg eðlilegt að gera.
Það að taka við starfsfólki þegar að fyrirtækið fer á hausinn er alveg eðlilegt að gera.

En að halda uppi starfsfólki fyrir fyrirtæki sem að var með 4.2 milljarða í arð á síðasta ári er bara ekkert eðlilegt.

Það á bara að sætta sig við að þetta er kostnaður við rekstur sem að þeir eiga að reka.
Eða hætta rekstri.