Síða 4 af 5

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 13:08
af Sporður
Menn þurfa nú að átta sig á því að þó svo að þeir sjálfir séu mjög frjóir í hugsun og eigi auðvelt með nýsköpun þá þýðir það ekki að allir séu það. Í raun raun er það líklegast lítill minnihluti sem hefur "nýsköpunargenin" í sér. Þetta er alveg þekkt í sálfræðinni að fólk sem kann eitthvað eða getur eitthvað á rosalega erfitt með að skilja að aðrir geti ekki eða kunni ekki eitthvað.

Þetta hljómar hinsvegar svaka vel í orði að segja eitthvað svona.

Í dag er raunveruleikinn sá að þú ert ekki mikið að fara að koma með og útfæra einhverjar nýsköpunarhugmyndir nema þú sért með einhverja kunnáttu eða hæfni (menntun) sem byggja grunn að hugmyndum þínum. Sértu ekki með þessa hæfni ertu ekkert að fara að öðlast hana á nokkrum vikum, er það ?

Einhverjir af þeim sem missa vinnuna munu eflaust hafa þennan bakgrunn og "neyðin" mun reka þá í að finna hugmyndum sínum farveg.

Það að ætla að skófla þúsundum eða tugþúsundum atvinnulausra í einhverja bása og segja þeim að skapa eitthvað nýtt er bara VOND nýting á fjármunum.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 13:17
af Hjaltiatla
Sporður skrifaði:Menn þurfa nú að átta sig á því að þó svo að þeir sjálfir séu mjög frjóir í hugsun og eigi auðvelt með nýsköpun þá þýðir það ekki að allir séu það. Í raun raun er það líklegast lítill minnihluti sem hefur "nýsköpunargenin" í sér. Þetta er alveg þekkt í sálfræðinni að fólk sem kann eitthvað eða getur eitthvað á rosalega erfitt með að skilja að aðrir geti ekki eða kunni ekki eitthvað.

Þetta hljómar hinsvegar svaka vel í orði að segja eitthvað svona.

Í dag er raunveruleikinn sá að þú ert ekki mikið að fara að koma með og útfæra einhverjar nýsköpunarhugmyndir nema þú sért með einhverja kunnáttu eða hæfni (menntun) sem byggja grunn að hugmyndum þínum. Sértu ekki með þessa hæfni ertu ekkert að fara að öðlast hana á nokkrum vikum, er það ?

Einhverjir af þeim sem missa vinnuna munu eflaust hafa þennan bakgrunn og "neyðin" mun reka þá í að finna hugmyndum sínum farveg.

Það að ætla að skófla þúsundum eða tugþúsundum atvinnulausra í einhverja bása og segja þeim að skapa eitthvað nýtt er bara VOND nýting á fjármunum.

Einfaldlega gefa fólki tækifæri til að rísa uppúr ástandinu án þess að þurfa moka skurði.
Það er eflaust nóg af bull verkefnum fyrir þá sem kjósa þann valmöguleika.
Það þarf t.d líklega eingöngu 1 af hverju 10 nýsköpunarfyrirtækjum sem yrðu stofnað að ganga upp til að þetta borgi sig. Sem myndi þýða að það myndi skapa atvinnu + tekjur inní ríkissjóð (sumar hugmyndir hafa jafnvel meiri margfeldisáhrif en aðrar uppá vöxt að gera).
margur heldur mig sig á ekkert við fyrir alla

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 13:30
af falcon1
Menntun er ekki alltaf forsenda fyrir nýsköpun... mörg fyrirtæki hafa verið stofnuð af ómenntuðum einstaklingum. Menntun getur hjálpað til vissulega en hún getur líka verið hindrun í sumum tilfellum. :)

Landið þarf fyrst og fremst á nýsköpun að halda þegar veirufjandinn er liðinn hjá.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 14:01
af Sporður
Bara svo það sé ekki verið að tala í hringi um sama hlutinn.

Það að ríkið fari í stórframkvæmdir eins og tvöföldun vega eða eitthvað álíka er ekki atvinnubótavinna (þ.e. ef menn eru að skilgreina atvinnubótavinnu sem "moka í skurði og fylla upp í aftur" ). Ég setti líka orðið menntun innan sviga en get séð að það hafi misskilist. Ég var ekki að nota orðið menntun í skilningnum prófgráður heldur þekking og kunnátta.

Að því sögðu.

Það er falinn kostnaður í því að láta fólk hanga heima á bótum í marga mánuði eða ár. Þessi kostnaður kemur ekki endilega í ljós þegar þú ferð að reikna hver muninn á ávöxtun af því að fara í nýsköpunarverkefni (fámenn framkvæmd) á móti því að tvöfalda einhvern vegspotta (sem er mannfrek framkvæmd).

Það er ekki bara hægt að horfa til þess að nýsköpunarleiðin muni líklegast einhvern tíma í framtíðinni skila einhverjum störfum. Ávöxtunin mun fara að skila sér svipað og áhrifin af því að hafa alla hangandi heima skila sér inn í geðheilbrigðiskerfið.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 14:04
af Hizzman
Veröldin er á 'pásu' !

Það er lítið hægt að gera nema bíða. Væntanlega förum við í 'business as usual' þegar þetta er búið. Stóra málið er
að viðhalda 'strúktúrnum', þannig að hjólin fari fljótt og greiðlega af stað. Annað stórt mál er að viðhalda 'peppi' hjá
almenningi. Það er erfitt fyrir flesta að hanga og geta ekki gert margt. Ferðamannaiðnaðurinn fer af stað aftur þegar
aðstæður eru til.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 16:51
af Stuffz

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 19:37
af falcon1
Það átti að setja krónuna strax í höft um miðjan mars í síðasta lagi, núna munum við sitja í súpunni.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Sun 05. Apr 2020 21:30
af Revenant
falcon1 skrifaði:Það átti að setja krónuna strax í höft um miðjan mars í síðasta lagi, núna munum við sitja í súpunni.

Vandamálið er ekki streymi fjármagns úr landi (eins og gerðist í hruninu) heldur minna um að fjármagn sé að koma inn í landið (ferðamenn).
Það er því eðlilegt að við þær aðstæður að gengið veikist. Höft hafa því takmörkuð áhrif.

Bendi t.d. á að gengi NOK/ISK hefur verið nokkuð stöðugt því Norðmenn eru í sömu stöðu og Íslendingar, þ.e. að tekjur af olíu og ferðamönnum hafa hrunið.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 06. Maí 2020 16:54
af jonsig
RANT: alert

Ég hata þessa helvítins krónu. Þetta er ekki einstaklingum né fyrirtækjum bjóðandi þetta andskotans flökt upp og niður. Þó aðallega niður með þessa skíta krónu.
Ég er viss um að einn eða tveir þarna úti sem hafa fylgst með þessu krónu rugli í einhvern tíma skilja hvað ég á við.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 07. Maí 2020 09:28
af freysio
Revenant skrifaði:
falcon1 skrifaði:Það átti að setja krónuna strax í höft um miðjan mars í síðasta lagi, núna munum við sitja í súpunni.

Vandamálið er ekki streymi fjármagns úr landi (eins og gerðist í hruninu) heldur minna um að fjármagn sé að koma inn í landið (ferðamenn).
Það er því eðlilegt að við þær aðstæður að gengið veikist. Höft hafa því takmörkuð áhrif.

Bendi t.d. á að gengi NOK/ISK hefur verið nokkuð stöðugt því Norðmenn eru í sömu stöðu og Íslendingar, þ.e. að tekjur af olíu og ferðamönnum hafa hrunið.

NOK féll töluvert í upphafi, hefur að vísu gengið að nokkru leyti til baka og stendur núna í ca 7% veikara gengi á móti EUR.
EUR er einnig að veikjast gagnvart öðrum gjaldmiðlum sem bætir enn frekar í ástandið hjá okkur, þar sem SÍ reiknar þetta út frá EUR.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 07. Maí 2020 10:00
af GuðjónR
Okkur vantar alvöru stýrivaxtalækkun, Noregur var að fara með sína í 0%
https://www.visir.is/g/20201058943d/nor ... xti-i-null

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 07. Maí 2020 10:39
af freysio
GuðjónR skrifaði:Okkur vantar alvöru stýrivaxtalækkun, Noregur var að fara með sína í 0%
https://www.visir.is/g/20201058943d/nor ... xti-i-null

Lækkun sem nemur 0,25%. Lækkað um 1% frá lok marsmánaðar. Í byrjun mars mánaðar voru meginvextir SÍ 2,75% og standa nú í 1,75%. Um áramótin stóðu þeir í 3%.

Hvað er alvöru stýrivaxtalækkun í þínum huga?

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 07. Maí 2020 11:45
af GuðjónR
freysio skrifaði:

Þetta eru góð skref sem þú nefnir, ég vil sjá þessa þróun áfram, 0% stýrivextir í 1-2 ár meðan við komum okkur upp úr þessum öldudal væri eitthvað sem ég myndi vilja sjá.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 07. Maí 2020 11:49
af worghal
GuðjónR skrifaði:

finnst svo skrítið að sjá þetta gerast hér og þar um heimin, 0% stýrisvextir, mínus vextir, jafnvel lánapásu en um leið og þetta er nefnt hér þá er bara "já nei, þetta er ekki hægt" og svo spurt "af hverju ekki" og þá svarað "af því bara" :thumbsd

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 07. Maí 2020 12:36
af falcon1
Bara verst að stýrivaxtalækkanir skila sér seint og illa til lánþega á meðan vextir á innlán lækka strax og meira til.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 07. Maí 2020 13:06
af freysio
GuðjónR skrifaði:
freysio skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Okkur vantar alvöru stýrivaxtalækkun, Noregur var að fara með sína í 0%
https://www.visir.is/g/20201058943d/nor ... xti-i-null

Lækkun sem nemur 0,25%. Lækkað um 1% frá lok marsmánaðar. Í byrjun mars mánaðar voru meginvextir SÍ 2,75% og standa nú í 1,75%. Um áramótin stóðu þeir í 3%.

Hvað er alvöru stýrivaxtalækkun í þínum huga?

Þetta eru góð skref sem þú nefnir, ég vil sjá þessa þróun áfram, 0% stýrivextir í 1-2 ár meðan við komum okkur upp úr þessum öldudal væri eitthvað sem ég myndi vilja sjá.

Skil þig, er samt ansi hræddur um að svo mikil vaxtalækkun myndi endanlega gera út af við þetta blessaða kerfi okkar.

Krónan er á sambærilegum stað núna og hún var fyrir ca 6-7 árum, þó eitthvað hærri. Krónan var orðin allt of sterk í kringum 2017-2018 að mínu mati. Er mun nær sínu jafnvægisverði eins og staðan er núna.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 27. Maí 2020 18:11
af GullMoli

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 27. Maí 2020 19:51
af falcon1
GullMoli skrifaði:https://www.vb.is/frettir/sedlabankinn-greip-inn-i/162021/

What!? Vinna gegn STYRKINGU krónunnar? Er þetta ekki einhver ritvilla?

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 27. Maí 2020 21:00
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:
GullMoli skrifaði:https://www.vb.is/frettir/sedlabankinn-greip-inn-i/162021/

What!? Vinna gegn STYRKINGU krónunnar? Er þetta ekki einhver ritvilla?

:wtf

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 27. Maí 2020 21:54
af GullMoli
falcon1 skrifaði:
GullMoli skrifaði:https://www.vb.is/frettir/sedlabankinn-greip-inn-i/162021/

What!? Vinna gegn STYRKINGU krónunnar? Er þetta ekki einhver ritvilla?

Já þetta er alltaf í gangi, Seðlabankinn grípur inn í til að fyrirbyggja of miklar sveiflur í báðar áttir.

Þannig, eins og ég skil þetta, safnar Seðlabankinn gjaldeyrisforða þegar krónan styrkist mikið sem hann svo notar í krónu kaup til að koma í veg fyrir að krónan veikist of mikið (eins og þegar hún var að "hrapa" í verði).

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 28. Maí 2020 10:51
af Hauxon
GullMoli skrifaði:

Samt hálf undarlegt því að krónan er langt frá því að vera búin að koma til baka. Sem bendir til þess að henni hafi verið leyft að falla, s.s. handstýrð gengisfelling og inngripið núna til þess að viðhalda hrungengi.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 28. Maí 2020 11:04
af GuðjónR
Hauxon skrifaði:

Þetta er ein leið til að auka útflutningstekjurnar.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 28. Maí 2020 11:06
af Hauxon
GuðjónR skrifaði:
Þetta er ein leið til að auka útflutningstekjurnar.

Já, við íslendingar þekkjum þetta vel í gegnum söguna. Einfaldasta leiðin til að auka tekjurnar án þess að gera neitt er að lækka laun.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 28. Maí 2020 15:50
af depill
Hauxon skrifaði:
GullMoli skrifaði:
falcon1 skrifaði:
GullMoli skrifaði:https://www.vb.is/frettir/sedlabankinn-greip-inn-i/162021/

What!? Vinna gegn STYRKINGU krónunnar? Er þetta ekki einhver ritvilla?

Já þetta er alltaf í gangi, Seðlabankinn grípur inn í til að fyrirbyggja of miklar sveiflur í báðar áttir.

Þannig, eins og ég skil þetta, safnar Seðlabankinn gjaldeyrisforða þegar krónan styrkist mikið sem hann svo notar í krónu kaup til að koma í veg fyrir að krónan veikist of mikið (eins og þegar hún var að "hrapa" í verði).

Samt hálf undarlegt því að krónan er langt frá því að vera búin að koma til baka. Sem bendir til þess að henni hafi verið leyft að falla, s.s. handstýrð gengisfelling og inngripið núna til þess að viðhalda hrungengi.

Lífeyrissjóðum sem verða að halda diverse portfolio hafa verið beðnir um að kaupa ekki gjaldeyri. Það veldur því að gengið er töluvert hærra skráð heldur en það ella yrði. Seðlabankinn er líklegast búinn að reyna spá fyrir um sjóðsstreymið eithvað frameftir sumri og er að búast við töluvert færri túristum enn í fyrra ( giska ég ). Þannig að Seðlabankinn vill frekar halda genginu í kringum 150, heldur enn að það fari núna í 140 ( þar sem það er engin velta ) og húrrist svo aftur í 160-170.

Inngrip Seðlabanka fara í báðar áttir, til þess að halda genginu innan ákveðisramma, flökkt er almennt vont.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 29. Maí 2020 09:16
af Hauxon
depill skrifaði:
Lífeyrissjóðum sem verða að halda diverse portfolio hafa verið beðnir um að kaupa ekki gjaldeyri. Það veldur því að gengið er töluvert hærra skráð heldur en það ella yrði. Seðlabankinn er líklegast búinn að reyna spá fyrir um sjóðsstreymið eithvað frameftir sumri og er að búast við töluvert færri túristum enn í fyrra ( giska ég ). Þannig að Seðlabankinn vill frekar halda genginu í kringum 150, heldur enn að það fari núna í 140 ( þar sem það er engin velta ) og húrrist svo aftur í 160-170.

Inngrip Seðlabanka fara í báðar áttir, til þess að halda genginu innan ákveðisramma, flökkt er almennt vont.

Ef verðmæti launa almúgans hefur svona litla þýðingu þá hlýtur bara að vera best að setja dollarann í 200 eða jafvel 300. Allt fyrir auðvaldið!