Síða 2 af 5

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Lau 14. Mar 2020 11:14
af nidur
Var ekki talað um að reyna að auka einkaneyslu til að draga úr áfallinu, þetta er ein leiðin... :)

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Lau 14. Mar 2020 12:14
af GuðjónR
vesley skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Hvaða vitleysa, engin noja að krónan sé í frjálsu falli hún er það.
Varðandi klósettpappírinn þá á ég eitthvað smotterí af honum og hreinlætisvörum.

Geturu sagt mér af hverju þú hélst að þú þyrftir 2 ára byrgðir af skeinipappír?
Er að reyna að fatta hvað það er sem fékk fólk til að birgja sig upp af fáránlegum hlutum.
Það er alveg garanterað að það mun ekki koma vöruskortur. Vöruflutningar til landsins eru enn í fullu fjöri.

Hey pjakkur! getur þú sagt mér af hverju þú ert að gera mér upp skoðanir?
Ég hélt ekkert..

Í fyrsta lagi ef þú ert með 5 manna fjölskyldu þá er þetta kannski 2-3 mánaða lager en ekki tveggja ára.
Í annan stað þá bý ég út í sveit og það eru 65 km fram og til baka í Costco þannig að ég kaupi alltaf magn, ekki bara núna, bý í stóru húsi og hef nægt geymslupláss og það er hagkvæmra fyrir mig að kaupa meira í einu. Þetta rennur ekki út á tíma.
Í þriðja lagi þá á verið bara eftir að hækka með fallandi gengi, þannig að ég spara pening á þessu.
Og í fjórða lagi þá bara varð ég til að geta stillt þessu upp tekið mynd og hneykslað fólk eins og þig :megasmile

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Lau 14. Mar 2020 13:17
af worghal
GuðjónR skrifaði:

jú jú, þetta eru kanski 2-3 mánaða byrgðir fyrir þína fjölskyldu, en hvað með þá sem keyptu nálægt þúsund rúllur og reka 2-3 manna fjölskyldur? :lol:

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Lau 14. Mar 2020 13:21
af GuðjónR
worghal skrifaði:

Hef enga skoðun á því, hvort fólk safnar frímerkjum, servíettum eða klósettpappír er ekki mitt mál.
Ekkert frá mér tekið þó einhver kaupi sér 10.000 klósettrúllur :droolboy

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 12:03
af falcon1
Og enn heldur hún áfram að falla og viðbrögð stjórnvalda eru engin?

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 12:12
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Og enn heldur hún áfram að falla og viðbrögð stjórnvalda eru engin?

Jújú, skjaldborg um kolkrabbafyrirtækin.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 12:19
af Hizzman
falcon1 skrifaði:Og enn heldur hún áfram að falla og viðbrögð stjórnvalda eru engin?

það er ekkert vit í að nota gjaldeyrisforðan til að halda krónunni sterkari en efnahagsforsendur bjóða upp á, það á samt að nota hann til að til að jafna sveiflur og það er gert.

Kosturinn við veikingu er að útflutningur (þmt ferðaþjónusta) verður á betra verði. Ókostur er að innflutningur verður dýrari og það kemur verðbólga og hærra vaxtastig.

Værum við betur sett með Evru eða jafnvel þetta? http://www.wocu.com/

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 12:25
af falcon1
Hizzman skrifaði:
falcon1 skrifaði:Og enn heldur hún áfram að falla og viðbrögð stjórnvalda eru engin?

það er ekkert vit í að nota gjaldeyrisforðan til að halda krónunni sterkari en efnahagsforsendur bjóða upp á, það á samt að nota hann til að til að jafna sveiflur og það er gert.

Undir þessum kringumstæðum hefði mér þótt viturlegt að setja á hömlur eða gjaldeyrishöft... eða þá að setja á bremsu á verðtrygginguna. Maður sá að þetta fall myndi gerast fyrir einhverjum dögum síðan. Það er ekki nóg að verja fyrirtækin það þarf líka að verja almenning!

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 12:27
af rapport
Hizzman skrifaði:
falcon1 skrifaði:Og enn heldur hún áfram að falla og viðbrögð stjórnvalda eru engin?

það er ekkert vit í að nota gjaldeyrisforðan til að halda krónunni sterkari en efnahagsforsendur bjóða upp á, það á samt að nota hann til að til að jafna sveiflur og það er gert.

Kosturinn við veikingu er að útflutningur (þmt ferðaþjónusta) verður á betra verði. Ókostur er að innflutningur verður dýrari og það kemur verðbólga og hærra vaxtastig.

Værum við betur sett með Evru eða jafnvel þetta? http://www.wocu.com/

Nkl.

Hvaða fávitar komu í veg fyrir að við fengum Evru?

Nú þarf enn eina ferðina að díla við viðbótar katastróphíu vegna lána, húsnæðis, launa, kjarasamninga o.þ.h. því að einhverjir fávitar halda að ISK sé svo mikils virði fyrir okkur.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 12:33
af Hjaltiatla
Tel besta ráðið að panikka ekki og vera með góða yfirsýn á sín eigin fjármál.
Henda upp í excel mánaðarlegum kostnaði og reyna að kötta/lækka óþarfa kostnað ef möguleiki er á t.d tryggingar,netveitu, símaáskrift,sjónvarpsáskriftir,netflix/vod áskriftir etc.
Nokkrir bankar (ef ekki allir) byrjaðir að bjóða uppá að frysta tímabundið fasteignarlánin og eflaust aðrar hagkvæmar (miðað við aðstöðu) leiðir í boði.

Edit: Maður getur ekki stjórnað umhverfinu eða verið að tímasetja markaðinn, hins vegar getur maður allavegana stjórnað sínum eigin fjármálum.
Alls konar spekingar að koma fram og fróa egóinu sínu og segja okkur hinum hvað er að fara gerast (en oftar en ekki rætist einfaldlega ekki neitt úr þessum spádómum)

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 12:58
af Hizzman
Já, sveltum okkur til að Íslenska Krónan lifi!

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 13:02
af Hjaltiatla
Hizzman skrifaði:Já, sveltum okkur til að Íslenska Krónan lifi!

Ok, þú byrjar :guy

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 17:54
af falcon1
Seðlabankinn vaknaður? Gjaldeyrishöft sett á tímabundið?

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... yrramalid/

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 18:47
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Seðlabankinn vaknaður? Gjaldeyrishöft sett á tímabundið?

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... yrramalid/

Seðlabankinn er að standa sig, þetta eru fordæmalausir tímar.
Aldrei þessu vant og í fyrsta sinn í raun þá hef ég fulla trúi á Seðlabankanum, reikna með frekari vaxtalækkun á bilinu 50-100 punkta.
Þeir geta fryst gengið, ég myndi gera það ef ég væri að stjórna þarna, en ég á samt ekki von á því, frekar einhversskonar gjaldeyrishöftum, ekki eins ströng eins og síðast hugsanlega miðað við einhverjar upphæð, og ekki gleyma síðasti fundur var fyrir viku og næsti fundur verður væntanlega í næstu viku og Seðlabankinn verður að taka eitt skref í einu.

Ég man eftir því að hafa heyrt í fréttum í gamla daga "Seðlabankinn felldi vexti um 15% ... um 20% og 25%" ... etc..
Útgerðin gat nánast pantað gengisfellingu og að fá bankalán jafngilti að fá fjárstyrk. Verðbólgan át það upp.
Þannig að 10% gengisfall tímabundið er ekki heimsendir.

En það verður spennandi að sjá hvað Seðlabankinn gerir.
Áfram Ásgeir!!!! :happy

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 18:58
af falcon1
GuðjónR skrifaði:
falcon1 skrifaði:Seðlabankinn vaknaður? Gjaldeyrishöft sett á tímabundið?

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... yrramalid/

Seðlabankinn er að standa sig, þetta eru fordæmalausir tímar.

Ég er reyndar sammála því að hann hefur verið að standa sig ágætlega hingað til, var farinn að efast eftir þetta svakalega fall krónunnar á örskömmum tíma. En það verður ekki sagt annað en að alvöru prófsteinn á nýja seðlabankastjórann var ekki lengi að koma í hendurnar á honum. :)
Nú er tíminn til að sanna sig. :D

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Þri 17. Mar 2020 19:00
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
falcon1 skrifaði:Seðlabankinn vaknaður? Gjaldeyrishöft sett á tímabundið?

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... yrramalid/

Seðlabankinn er að standa sig, þetta eru fordæmalausir tímar.

Ég er reyndar sammála því að hann hefur verið að standa sig ágætlega hingað til, var farinn að efast eftir þetta svakalega fall krónunnar á örskömmum tíma. En það verður ekki sagt annað en að alvöru prófsteinn á nýja seðlabankastjórann var ekki lengi að koma í hendurnar á honum. :)
Nú er tíminn til að sanna sig. :D

Sammála!

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 08:02
af g0tlife
Þegar hrunið var 2008 átti seðlabankinn núll gjaldeyri ef það má orða það þannig, það er önnur saga í dag. Þeir hafa verið að kaupa erlendan gjaldeyri akkurat til þess að eiga þegar krónan veikist. Núna selja þeir það og minnka fall krónunnar þannig, hún mun alveg falla en ekki jafn hratt og mikið. Íslensku bankarnir eru fullir af pening, planið var að greiða út arð til allra hluthafa núna í ár þannig að við erum ekkert að fara sjá hrun vol.2.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 12:27
af Njall_L
Seðlabankinn búnir að kynna sitt fyrsta skref. Sé ekki annað en að þetta séu bara nokkuð jákvæðar breytingar
https://www.frettabladid.is/markadurinn ... abankanum/

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 14:19
af rapport
Þetta er mjög skynsamleg aðgerð hjá SÍ og gott kerfi. Bankarnir eiga að eiga sjóð til að nota í svona ástandi og fengu heimild til að nota þann sjóð.

Nú kemur í ljós hvort að bankarnir hafi ekki örugglega sinnt sinni skyldu og átt þessa peninga á reiðum höndum.

Mjög gott að það sé ekki verið að nota skattpeninga í þetta.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 14:47
af falcon1
Seðlabankinn segir "treystið okkur, við leyfum verðbólgunni ekki að fara af stað". Ég vona að við þetta verði staðið.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 15:02
af Hizzman
falcon1 skrifaði:Seðlabankinn segir "treystið okkur, við leyfum verðbólgunni ekki að fara af stað". Ég vona að við þetta verði staðið.

Það verður einhver verðbólga, en vonandi ekki mikil. Nýi bankastjórinn er bara að standa sig! Sá gamli hefði sennilega skrúfað vextina upp til að 'örva innflæði' eða pissað í skóinn, semsagt.

ISK er ekki eini gjaldmiðillinn sem hefur fallið umtalsvert, AUD er á svipuðu róli og MXN er fallinn meira.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 15:22
af falcon1
Er best að bíða eftir að þessu verðbólguskoti ljúki og þá greiða inná lán, eða reyna að bregðast við í hverjum mánuði og "staðgreiða" verðbólguna ef það er mögulegt? Ég á ágætis varasjóð sem stendur.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 15:26
af Hizzman
falcon1 skrifaði:Er best að bíða eftir að þessu verðbólguskoti ljúki og þá greiða inná lán, eða reyna að bregðast við í hverjum mánuði og "staðgreiða" verðbólguna ef það er mögulegt? Ég á ágætis varasjóð sem stendur.

Myndi ætla að það fari eftir starfsöryggi þínu. Ef þú telur engar líkur á vinnumissi gæti verið hugmynd að greiða niður lán, sérstaklega ef það er verðtryggt.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Mið 18. Mar 2020 15:29

Það er líklega aldrei hægt að segja að maður sé með 100% starfsöryggi en ég myndi telja að það sé allavega 80-90% líkur á að starfið sé ekki í neinni hættu þrátt fyrir þessi áföll.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 03. Apr 2020 14:43
af falcon1
... og krónan heldur bara áfram að falla og falla....

en þetta er allt í lagi og bara gott mál skv. seðlabankastjóra.