Síða 1 af 1

hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 02:44
af emil40
Sælir félagar.

Mig langaði að spyrja ykkur hverju ég ætti að safna fyrir næst ? Hérna fyrir neðan er það sem ég er með.



TURN :

CoolerMaster Storm Enforcer | Ryzen9 3900X | Corsair Hydro Series H100i RGB Platinum | ASRock X570 Steel Legend | 48 gb ddr4 @ 2400 mhz| Asus Turbo RTX 2060 6GB | Corsair CX750M | Enox blackline 49" | Samsung 970 evo 250 gb og 26 tb

SÍMI :

Samsung Galaxy J5 2016

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 03:40
af Viggi
Síma..

Þessi tölva myndi duga fínt fyrir mig næstu 5 ár amk en skipta út skjákortinu eftir 3 ár eða svo

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 05:26
af Bourne
Þetta 2400mhz minni hægir hrottalega á örgjörvanum þínum. Ættir að fara í 3600mhz minni.

Annars aldrei of snemmt að byrja að safna fyrir fasteign.

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 09:56
af worghal
ekki hengja mig fyrir þetta en mér finnst tölva með Ryzen9 3900X og Asus Turbo RTX 2060 6GB vera hálfgerð þversögn :lol:

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 10:07
af Dropi
Er 48GB minni virkilega nóg? Ég bara spyr... ;)

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 10:57
af emil40
worghal skrifaði:ekki hengja mig fyrir þetta en mér finnst tölva með Ryzen9 3900X og Asus Turbo RTX 2060 6GB vera hálfgerð þversögn :lol:


Málið er að ég staðgreiði allt sem ég kaupi og það tekur tíma að safna fyrir skjákorti þegar ég var að kaupa örgjörvann. Tekur tíma með þessa dýrustu hlutina þegar maður er bara með örorkubótum. Ég held að minni 3600 mhz væri sniðugt og þegar rtx 3000 línan af skjákortunum kemur.

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 12:05
af Hauxon
Ef þú ert ekki viss myndi ég bara spara fyrir einhverju öðru en tölvu. ;)

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 12:11
af halipuz1
Hauxon skrifaði:Ef þú ert ekki viss myndi ég bara spara fyrir einhverju öðru en tölvu. ;)



Það er rugl!

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 12:11
af gutti
segi bara sama og hauxon :happy

Re: hvað næst ?

Sent: Þri 03. Mar 2020 12:17
af Mossi__
Tek undir Hauxon.

Bara safna til að safna. Fínt að eiga forða.