Síða 2 af 19

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 18:58
af Hnykill
æji bu fokking hu. þetta er bara eins og flensa. við jöfnum okkur eða finnum lyf við þessu. þvo á sér hendurnar reglulega og ekki hnerra á almannafæri. við mannkyn vorum ekkert fædd í gær. komust yfir .þetta eins og allt annað. ;) hef engar áhyggjur af þessu. bara slæmt kvef sem dregur sumt fólk til dauða.. það er allt sem þetta er.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 19:09
af jonsig
Hnykill skrifaði:æji bu fokking hu. þetta er bara eins og flensa. við jöfnum okkur eða finnum lyf við þessu. þvo á sér hendurnar reglulega og ekki hnerra á almannafæri. við mannkyn vorum ekkert fædd í gær. komust yfir .þetta eins og allt annað. ;) hef engar áhyggjur af þessu. bara slæmt kvef sem dregur sumt fólk til dauða.. það er allt sem þetta er.

Það má vel vera að þetta hafi lítil áhrif á okkur sem eru tiltölulega ungir, en þessi pest er stór hættuleg öldruðu fólki og fólki með veiklað ónæmiskerfi. Því ætti fólk að vera meðvitað um að það geti stofnað öðrum í stór hættu með einhverju kæruleysi, þótt þetta hafi ekki mikil áhrif á viðkomandi.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 19:54
af Hnykill
jonsig skrifaði:

Heyrðu góði.. 5 ára börn fá krabbamein útaf engu og deyja. eldra fólk er ef til vill næmara fyrir þessasri veiru en aðrir. en ok. eruð þið ekki snyrtilegar verur ? ég held hemili mínu hreinu, þvæ á mér hendurnar þegar ég kem heim. hnerra ekki á almannafæri. svona er þetta bara gamli. þessi veira er ekkert að gera sig hér á íslandi.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 20:44
af rapport
Ég er á því að þetta sé rétti tíminn til að nota Facebook, Workplace, Skype, WebEx o.þ.h. til að halda fundi og vinna í fjarvinnu eða í teymum frekar en að hrúga fólki á fundi eða vinnustaði. Þá getur fólk unnið að heiman og passað börnin sín sjálft. Þetta er tíminn þar sem rafvæðing ferla og eyðublaða mun skila miklum ábata fyrir samfélagið.

Að fá þennan vírus er örugglega algjört ógeð og þau hérna sem fengu svínaflensuna eða bara lungnapestina sem gekk í haust og fram yfir jól, þekkja hvernig það er að vera margar vikur ef ekki mánuði að jafna sig eftir að hafa fengið pestina.

Þó að þessi veira drepi þig ekki, þá getur verið að hún taki það mikið af þér að eitthvað annað gerir það.

Mér finnst umræðan um þetta oft á sama plani og umræðan um bólusetningar, fólk sem heldur að bólusetningar séu óþarfar eða jafnvel heilsuspillandi og ógnar þannig heilsu annarra er á svipuðu plani og þeir sem ætla ekki að taka þennan vírus alvarlega.

Það þarf samhent átak til að lágmarka skaðann af þessu og það þarf ekki marga fávita til að skemma mikið fyrir heildinni.

Ekki vera fáviti, settu þig í sóttkví og láttu vita ef þú færð hita, sinntu almennu hreinlæti og vertu með hreinar hendur, ekki fara með fingurnar upp í þig eða í andlitið að óþörfu og ef þú ert ekki viss um eigin heilsu, notaði maska þegar þú ferð út.

Svo náttúrulega fara eftir því sem landlæknir segir.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 23:23
af Zorglub
Ágætis smáatriði að varast er frí áfylling á gosi á veitingastöðum þar sem þú notar brúnina á glasinu til að ýta á takkann og getur dreift munnvatni á alla viðstadda.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 23:42
af brain

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 09:09
af Hjaltiatla
Þegar maður fær hefðbundna flensu þá þarf maður ekki að fara í sóttkví, þessi veira smitast 2X3 falt á við þessa hefðbundna flensu.
Þannig að bera þetta tvennt saman er frekar steikt.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 09:37
af GuðjónR
Ég hef það á tilfinningunni að öll spilin séu ekki uppá borðum!

Útfararstjórar hafa verið boðaðir á fund landlæknis vegna verkferla er varða kórónuveiruna sem veldur Covid19-sjúkdómnum

https://www.visir.is/g/20209454d/ut-far ... -veirunnar

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 10:08
af Sporður
GuðjónR akkúrat núna!

Mynd

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 11:52
af jonsig
Hérna er dánartíðni listuð fyrir ykkur fermingarkrakkana sem haldið að þið séuð 100 í hættunni.
Ég kannast svosem ekki við þessa síðu en það er oft vitnað í hana og virðist vera nokkuð pro af útlitinu að dæma amk.

http://weekly.chinacdc.cn/en/article/id/e53946e2-c6c4-41e9-9a9b-fea8db1a8f51

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 12:48
af Lexxinn
Hjaltiatla skrifaði:Þegar maður fær hefðbundna flensu þá þarf maður ekki að fara í sóttkví, þessi veira smitast 2X3 falt á við þessa hefðbundna flensu.
Þannig að bera þetta tvennt saman er frekar steikt.

Stór ástæða fyrir því er að enginn er bólusettur fyrir þessari veiru. Árlega er fjöldi fólks bólusettur fyrir inflúensu sem kemur þá nokkurn veginn í veg fyrir frekari smit í samfélaginu.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 14:39
af GuðjónR
Kannski er engin ástæða til að hafa áhyggjur:

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 14:58
af Sporður
GuðjónR skrifaði:Ég hef það á tilfinningunni að öll spilin séu ekki uppá borðum!

Útfararstjórar hafa verið boðaðir á fund landlæknis vegna verkferla er varða kórónuveiruna sem veldur Covid19-sjúkdómnum

https://www.visir.is/g/20209454d/ut-far ... -veirunnar

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020 ... vid_okkur/

„Við höf­um ekki verið boðaðir og eng­inn hef­ur haft sam­band við okk­ur,“ seg­ir Rún­ar Geir­munds­son, eig­andi sam­nefndr­ar út­far­arþjón­ustu og formaður Fé­lags ís­lenskra út­far­ar­stjóra.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 16:31
af GuðjónR
Sporður skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég hef það á tilfinningunni að öll spilin séu ekki uppá borðum!

Útfararstjórar hafa verið boðaðir á fund landlæknis vegna verkferla er varða kórónuveiruna sem veldur Covid19-sjúkdómnum

https://www.visir.is/g/20209454d/ut-far ... -veirunnar

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020 ... vid_okkur/

„Við höf­um ekki verið boðaðir og eng­inn hef­ur haft sam­band við okk­ur,“ seg­ir Rún­ar Geir­munds­son, eig­andi sam­nefndr­ar út­far­arþjón­ustu og formaður Fé­lags ís­lenskra út­far­ar­stjóra.
Talandi um misvísandi skilaboð.

Við getum alla vega huggað okkur við að það eru nægra birgðir af líkpokum í landinu:
https://www.dv.is/frettir/2020/3/2/runa ... -likpokum/

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 17:11
af Sporður
Þetta finnst mér samt best

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2020/ ... i_sottkvi/

Er­lend­ir ferðamenn sem koma frá skil­greind­um áhættu­svæðum vegna kór­ónu­veiru, sem í dag eru Ítal­ía, Kína, Suður-Kórea og Íran, þurfa ekki að fara í sótt­kví við kom­una hingað til lands held­ur ein­ung­is ís­lensk­ir rík­is­borg­ar­ar og aðrir sem hafa bú­setu hér á landi.

Ástæðan:
„Ferðamenn eru í sín­um hópi, alla jafna, þeir hafa stutta viðveru á hverj­um stað sem þeir heim­sækja, eru í mikl­um sam­skipt­um við aðra ferðamanna­hópa og það eru minni lík­ur á að ferðamaður sem er smitaður og með ein­kenni að hann sé að koma ein­hverju smiti áleiðis. Það er áhættumat sem við ger­um fyr­ir þenn­an hóp,“ seg­ir Kjart­an.

:fly

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 17:34
af KjartanV
Sporður skrifaði:Þetta finnst mér samt best

Þetta á aldrei eftir að virka og á eftir að smita mun fleiri. Annaðhvort þarf að stoppa þetta alveg eða bara sleppa þessu.
Því það verður erfitt að rekja smitið þegar ferðamenn frá hættusvæðum eru ekki settir í sóttkví við komuna hingað.
Ferðamenn eru á þvælingi útum alla borg og allt land.

https://www.visir.is/g/2020200309860/th ... t-stadfest

Þrjú í viðbót staðfest, 6 alls.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 18:00
af Hjaltiatla
Þrír til viðbótar greindir með COVID-19 smit á Íslandi ==> 6
https://www.ruv.is/frett/thrir-til-vidbotar-greindir-med-covid-19-smit-a-islandi

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 20:36
af Black
Er hægt að taka archive af verðvaktinni og bera það saman eftir nokkra mánuði. Væri áhugavert að sjá hvað tölvuíhlutir eiga eftir að hækka mikið í verði. :?:

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 20:44
af einarn
Sporður skrifaði:Þetta finnst mér samt best

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2020/ ... i_sottkvi/

Er­lend­ir ferðamenn sem koma frá skil­greind­um áhættu­svæðum vegna kór­ónu­veiru, sem í dag eru Ítal­ía, Kína, Suður-Kórea og Íran, þurfa ekki að fara í sótt­kví við kom­una hingað til lands held­ur ein­ung­is ís­lensk­ir rík­is­borg­ar­ar og aðrir sem hafa bú­setu hér á landi.

Ástæðan:
„Ferðamenn eru í sín­um hópi, alla jafna, þeir hafa stutta viðveru á hverj­um stað sem þeir heim­sækja, eru í mikl­um sam­skipt­um við aðra ferðamanna­hópa og það eru minni lík­ur á að ferðamaður sem er smitaður og með ein­kenni að hann sé að koma ein­hverju smiti áleiðis. Það er áhættumat sem við ger­um fyr­ir þenn­an hóp,“ seg­ir Kjart­an.

:fly

Hvað með Íslendinga sem búa og vinna í miðbænum þar sem ferðmenn safnast mikið saman? Hver er eiginlega að gera þetta áhættumat?

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mán 02. Mar 2020 21:38
af Sporður
einarn skrifaði:
Hvað með Íslendinga sem búa og vinna í miðbænum þar sem ferðmenn safnast mikið saman? Hver er eiginlega að gera þetta áhættumat?

Ég held að þeir hafi bara áttað sig á kostnaðinum við að hafa tugi þúsunda manns í sóttkví og séð að það væri aldrei raunhæft.

Síðan þurftu þau að koma með einhverjar skýringar af hverju sumir en ekki allir þurfa að fara í sóttkví. Þetta áhættumat væri raunhæft ef allir lentu á Egilsstöðum og keyrðu beint á Borgarfjörð Eystri og væru þar allan tímann áður en þau flygu heim frá Egilsstöðum.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Þri 03. Mar 2020 01:23
af DJOli

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Þri 03. Mar 2020 01:50
af rapport
DJOli skrifaði:Og nú eru tilfellin orðin 9.
https://www.visir.is/g/2020200309835/on ... u-stadfest

8 frá Ítalíu (óvíst með eitt).

Nú fer það að gerast að Ísland verður með hæstu tíðnina pr. íbúa og við verðum útilokuð frá því að fara til annarra landa.

Og enginn vill koma til okkar.

Erum við svona miklir sóðar, þrífum við svona illa eða erum við bara ofaní hvoru öðru?

Af hverju smitast þetta svona hratt hjá okkur?

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Þri 03. Mar 2020 07:08
af zetor
rapport skrifaði:

7 komu af sama ítalska hótelinu, það litar þetta svo lítið

https://www.visir.is/g/2020200309830/sj ... dur-italiu

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Þri 03. Mar 2020 08:39
af sigurdur
rapport skrifaði:
DJOli skrifaði:Og nú eru tilfellin orðin 9.
https://www.visir.is/g/2020200309835/on ... u-stadfest

8 frá Ítalíu (óvíst með eitt).

Nú fer það að gerast að Ísland verður með hæstu tíðnina pr. íbúa og við verðum útilokuð frá því að fara til annarra landa.

Og enginn vill koma til okkar.

Erum við svona miklir sóðar, þrífum við svona illa eða erum við bara ofaní hvoru öðru?

Af hverju smitast þetta svona hratt hjá okkur?

Þetta er dæmigert cluster sem er þekkt fyrirbæri í faraldsfræði. Nokkrir einstaklingar smitast á sama stað og þar af leiðandi verður öll tölfræði ósamanburðarhæf. Þá eru aðgerðir hér á landi mjög markvissar að því leiti að greiningar eru keyrðar á öllum þeim sem grunur er á að séu smitaðir og þannig finnast þeir mjög fljótt. Ég er ansi hræddur um að höfðatölumet okkar hafi meira að gera með umtalsverðar vangreiningar annars staðar að gera heldur en hraðari útbreiðslu hér. Það er einmitt verið að vinna í að útbreiðslan hér verði ekki hröð, þ.e. greina og einangra alla þá sem eru smitaðir um leið og þeir koma til landsins.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Þri 03. Mar 2020 09:15
af Mossi__
Zombies.

Calling it!