Síða 10 af 19

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 20:08
af Mossi__
Ég sé enga ástæðu til að hlusta á sérfræðinga og háskólamenntaða sem taka upplýstar ákvarðanir byggðar á rannsóknum og módelum sem hafa verið tugi ára í stanslausri þróun.

Að mínu mati er DV commentakerfin miklu áreiðanlegri vettvangur fyrir gáfulegar samræður.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 22:03
af GuðjónR
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að með því að loka skólum eða leikskólum næðist takmarkaður árangur gegn COVID-19 faraldrinum, þar sem börn fái almennt lítil einkenni sjúkdómsins.

https://www.ruv.is/frett/lokun-skola-he ... raldursins

Það getur vel verið rétt hjá honum, en smituð börn koma heim og smita foreldra sína.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 23:35
af rapport

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 00:02
af Tish
.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 05:31
af Viktor
Það að lama hagkerfið er miklu hættulegra en þessi veira.

Mikið er maður orðinn þreyttur á þessari hysteríu.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 06:10
af Tish
.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 06:15
af Viktor
Tish skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Það að lama hagkerfið er miklu hættulegra en þessi veira.

Mikið er maður orðinn þreyttur á þessari hysteríu.

Og að lama spítalana er það ekki ?

https://en.wikipedia.org/wiki/Whataboutism

Whataboutism, also known as whataboutery, is a variant of the tu quoque logical fallacy that attempts to discredit an opponent's position by charging them with hypocrisy without directly refuting or disproving their argument. It is particularly associated with Soviet and Russian propaganda.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 06:20
af Tish
Sallarólegur skrifaði:

[-X

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 07:25
af rapport
Sallarólegur skrifaði:Það að lama hagkerfið er miklu hættulegra en þessi veira.

Mikið er maður orðinn þreyttur á þessari hysteríu.

Án efa eru margir hérna að reka kerfi í ISO27001 umhverfi og þurfa að vinna áhættumat 1-2 á ári.

Hvort eru alvarlegri afleiðingar af ógninni "Covid19" eða "Annað efnahagshrun" ?

Ef áhættumatið verðleggur líf og heilsu fólks með einhverjum hætti, þá er efnahagshrun verra.

Ef heilsa og líf eru sögð ómetanleg, þá er Covid19 verra.

Ég er tilbúinn til að tapa öllum mínum peningum og byggja mig upp aftur seinna ef ég gæti tryggt að fólkið mitt kæmist heilt í gegnum þennan vírus.

Það væri skelfilegt að missa einhvern nákominn, vita af honum einum á spítala og geta ekki verið hjá honum til huggunar og stuðnings og fá svo ekki að halda jarðarför.

Þetta er það sem mér finnst hættulegt, a.m.k. er þetta það sem ég óttast mest.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 08:07
af Tish
.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 09:12
af jonsig
Ef ég væri ekki með dálítið money í lausu, þá tæki ég því fagnandi að sjá þetta rusl alheims fjármálakerfi hrinja sem er byggir á spákaupmennsku og endalausri skulda aukningu. Ef kerfið tekur ekki þennan skell þá er það hvort eð er á brauðfótum

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 09:50
af DaRKSTaR
fá allir þessa veiru, hún á ekki eftir að drepa mjög marga, saxxar niður þá sem eru nú þegar með aðra löppina í gröfinni útaf heilsufarsástæðum.

krónan í frjálsu falli,, þegar þessi made in china vírus deyr út þá á landið eftir að kjaftfyllast af útlendingum þar sem það er orðið svo ódýrt að ferðast hingað aftur.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 09:57
af kelirina

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 10:49
af GuðjónR
kelirina skrifaði:nokkuð vel gert:

https://www.covid.is/tolulegar-upplysingar

Mjög flott!!!

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 10:51
af jonsig
DaRKSTaR skrifaði:fá allir þessa veiru, hún á ekki eftir að drepa mjög marga, saxxar niður þá sem eru nú þegar með aðra löppina í gröfinni útaf heilsufarsástæðum.

krónan í frjálsu falli,, þegar þessi made in china vírus deyr út þá á landið eftir að kjaftfyllast af útlendingum þar sem það er orðið svo ódýrt að ferðast hingað aftur.

Reyndar hefur hún staðið í stað í þessum töluðu orðum :sleezyjoe

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 11:03
af Viktor
rapport skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Það að lama hagkerfið er miklu hættulegra en þessi veira.

Mikið er maður orðinn þreyttur á þessari hysteríu.

Hvort eru alvarlegri afleiðingar af ógninni "Covid19" eða "Annað efnahagshrun" ?

Hættulegast er að lama hagkerfið með fáránlegum þvingunum sem munu ekki skila neinum árangri hvað varðar smitvarnir. Það að vitna í Frosta Sigurjónsson sem hefur ekki hundsvit á smitvörnum, og taka hans orð fram yfir Sóttvarnalækni, Landlækni, Landspítala og fleiri er algerlega absúrd.

Treystum bara þeim fagaðilum sem sjá um þetta og hættum þessu hysteríu rugli.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 11:45
af Hjaltiatla
Samkomubann í fjórar vikur
https://www.visir.is/g/202019198d/samkomubann-i-fjorar-vikur

Held ég hafi heyrt stjórnmálamenn á þessum blaðamannafundi segja orðið fordæmalaust 100 sinnum (bara svona til að það færi ekki á milli mála)

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 13. Mar 2020 23:59
af gnarr

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 14. Mar 2020 13:21
af netkaffi

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 14. Mar 2020 14:56
af rapport
Screenshot_20200314-145445_Facebook.jpg
Screenshot_20200314-145445_Facebook.jpg (495.01 KiB) Skoðað 2222 sinnum

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 14. Mar 2020 15:24
af gotit23
Sallarólegur skrifaði:Það að lama hagkerfið er miklu hættulegra en þessi veira.

Mikið er maður orðinn þreyttur á þessari hysteríu.

Er nú ekki oft sammála þér en her er ég hjartanlega sammála :)
Það er ekki hægt að leggja hagkerfið niður út af smá flensu sem í 98% gengur bara ýfir og ég held
að smá mannsfækkun er bara mjög jákvætt miðað við ástand jarðarinnar,

þessi veira er í raun akkúrat það sem móður jörð þarf.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 14. Mar 2020 15:27
af Hjaltiatla
gotit23 skrifaði:að smá mannsfækkun er bara mjög jákvætt miðað við ástand jarðarinnar,

þessi veira er í raun akkúrat það sem móður jörð þarf.

ALVEG rólegur Hitler :face

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 14. Mar 2020 15:32
af gotit23
Hjaltiatla skrifaði:
gotit23 skrifaði:að smá mannsfækkun er bara mjög jákvætt miðað við ástand jarðarinnar,

þessi veira er í raun akkúrat það sem móður jörð þarf.

ALVEG rólegur Hitler :face

algjörllega óþarfi að kalla mig þetta ,fyrir að vera bara raunsæis maður

:happy :happy

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 14. Mar 2020 15:32
af Graven
rapport skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Það að lama hagkerfið er miklu hættulegra en þessi veira.

Mikið er maður orðinn þreyttur á þessari hysteríu.

Án efa eru margir hérna að reka kerfi í ISO27001 umhverfi og þurfa að vinna áhættumat 1-2 á ári.

Hvort eru alvarlegri afleiðingar af ógninni "Covid19" eða "Annað efnahagshrun" ?

Ef áhættumatið verðleggur líf og heilsu fólks með einhverjum hætti, þá er efnahagshrun verra.

Ef heilsa og líf eru sögð ómetanleg, þá er Covid19 verra.

Ég er tilbúinn til að tapa öllum mínum peningum og byggja mig upp aftur seinna ef ég gæti tryggt að fólkið mitt kæmist heilt í gegnum þennan vírus.

Það væri skelfilegt að missa einhvern nákominn, vita af honum einum á spítala og geta ekki verið hjá honum til huggunar og stuðnings og fá svo ekki að halda jarðarför.

Þetta er það sem mér finnst hættulegt, a.m.k. er þetta það sem ég óttast mest.

Allir sem eru á móti því að loka landinu fyrir erlendum ferðamönnum, sem hefði átt að gerast fyrir mánuðum, eru sálarlausir siðblindingjar. Peningar skipta engu máli á móti mannslífum. Á Íslandi var nokkurn veginn enginn ferðamannaiðnaður fyrir bara nokkrum árum, man ekki eftir því að það hafi verið svo hræðilegt, reyndar man ég eftir því að flest var betra í þá tíð. Græðgi örfárra einstaklinga mun sennilega stytta líf þónokkuð margra Íslendinga á komandi mánuðum.

DaRKSTaR skrifaði:fá allir þessa veiru, hún á ekki eftir að drepa mjög marga, saxxar niður þá sem eru nú þegar með aðra löppina í gröfinni útaf heilsufarsástæðum.

krónan í frjálsu falli,, þegar þessi made in china vírus deyr út þá á landið eftir að kjaftfyllast af útlendingum þar sem það er orðið svo ódýrt að ferðast hingað aftur.

Þetta er dæmi um "pshycopath" hugsun, ef einhver er veikur fyrir þá á viðkomandi bara skilið að deyja samkvæmt þessu. Fólk sem er 70+ og með undirliggjandi sjúkdóma getur enn lifað eðlilegu lífi í mörg ár og notið lífsins mjög vel. Þetta eru allt einstaklingar sem flestir eiga börn og barnabörn, og sumt fólk hérna vill óbeint drepa það, bara svo það geti grætt meira og horft niður á fleira fólk.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 14. Mar 2020 15:56
af urban
Graven skrifaði:Allir sem eru á móti því að loka landinu fyrir erlendum ferðamönnum, sem hefði átt að gerast fyrir mánuðum, eru sálarlausir siðblindingjar. Peningar skipta engu máli á móti mannslífum. Á Íslandi var nokkurn veginn enginn ferðamannaiðnaður fyrir bara nokkrum árum, man ekki eftir því að það hafi verið svo hræðilegt, reyndar man ég eftir því að flest var betra í þá tíð. Græðgi örfárra einstaklinga mun sennilega stytta líf þónokkuð margra Íslendinga á komandi mánuðum.

Jæja, gott að vita að ég sé sálarlaus og siðblindur.

Þetta með að loka landinu fyrir mörgum mánuðum fyrir erlendum ferðamönnum hefði verið gersamlega tilgangslaust með öllu.
Það hefði ekki gert neitt annað en að setja óhemju mörg fyrirtæki á hausinn og þar að leiðandi láta fólk missa vinnuna.

Veiran kom hingað til lands með íslendingum.
Hún dreifðist hérna innan lands með íslendingum.

Það er staðreynd sem að er sönn.

Semsagt, ég þessi sálarlausi og siðblindi einstaklingur er alveg 100% á því að það hafi verið tekin rétt ákvörðun með því að hafa landið opið fyrir erlendum ferðamönnum, einfaldlega vegna þess að gagnvart corona vírusnum þá væri staðan nákvæmlega sú sama.

En gagnvart fólki og innkomu þess, þá er staðan allt önnur.

Já og ekki gleyma því að kreppa drepur fullt af fólki.
Peningaáhyggjur drepa bæði fólk og fær fólk til þess að drepa sig sjálft.

Spurning hvort að þú viljir frekar að ungt fólk drepi sig sjálft úr peningaáhyggjum en að gamalt fólk deyji úr sjúkdómum sem að er vonlaust að komast í veg fyrir.

Þannig að ég verð bara áfram siðblindur og sálarlaus.
Þú verður bara í pakkanum að vilja loka landinu og svifta fólk atvinnunni bara til þess að gera það.