Síða 8 af 19

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 12:38
af blitz
Sporður skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Vanhugsað og ekki vanhugsað, það verður að tala um þetta eins og það er.
Hvernig má annars vera að sérþjálfað og hámenntað heilbrigðisstarfsfólk með hreinlæti í fyrirrúmi og á sótthreinsuðum vinnustað nái sér í fjöldasmit?

https://www.visir.is/g/202017503d/starf ... il-utlanda

Þann 2. mars síðastliðinn beindi landlæknir þeim tilmælum til heilbrigðisstarfsfólks og annarra sem starfa í framlínu á heilbrigðisstofnunum að fara ekki utan í ferðalög í bili á meðan tilfellum vegna kórónuveirunnar fer fjölgandi hér á landi.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fóru hjúkrunarfræðingar og læknar í skíðaferð til Austurríkis eftir að þessi tilmæli voru gefin út. Starfsfólkið fór á svæði sem var utan skilgreinds hættusvæðis á þeim tíma en svo hafi hættumatinu verið breytt.

:baby

Ef Landspítalinn var ekki búinn að bjóðast til að endurgreiða allan útlagðan kostnað skil ég þetta fólk vel.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 12:44
af Sporður
Tilmælin komu reyndar frá Landlækni ekki Landspítalanum.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 12:47
af Plushy
Sporður skrifaði:Tilmælin komu reyndar frá Landlækni ekki Landspítalanum.

Rétt en Landspítalinn tók undir orð Landlæknis og vísaði þeim til starfsmanna sinna

Mynd

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 14:09
af Lexxinn
blitz skrifaði:
Sporður skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Vanhugsað og ekki vanhugsað, það verður að tala um þetta eins og það er.
Hvernig má annars vera að sérþjálfað og hámenntað heilbrigðisstarfsfólk með hreinlæti í fyrirrúmi og á sótthreinsuðum vinnustað nái sér í fjöldasmit?

https://www.visir.is/g/202017503d/starf ... il-utlanda

Þann 2. mars síðastliðinn beindi landlæknir þeim tilmælum til heilbrigðisstarfsfólks og annarra sem starfa í framlínu á heilbrigðisstofnunum að fara ekki utan í ferðalög í bili á meðan tilfellum vegna kórónuveirunnar fer fjölgandi hér á landi.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fóru hjúkrunarfræðingar og læknar í skíðaferð til Austurríkis eftir að þessi tilmæli voru gefin út. Starfsfólkið fór á svæði sem var utan skilgreinds hættusvæðis á þeim tíma en svo hafi hættumatinu verið breytt.

:baby

Ef Landspítalinn var ekki búinn að bjóðast til að endurgreiða allan útlagðan kostnað skil ég þetta fólk vel.

Ríkið ætti kannski að vera búið að semja við þessar stéttir þá eftir allt um almennileg laun. Hjúkrunarfræðingar vinna eitt mikilvægasta starf spítalans en fá lítið fyrir og þegar stéttin beytir verkfalli er gripið strax til gerðardóms. Samningar hjúkrunarfræðinga hafa verið lausir síðan 1.apríl 2019. Á sama tíma eru laun lækna eða sjúkraliða ekkert til að hrópa húrra yfir. Sú gamla mýta að heilbrigðisstarfsfólk sé í þessu fyrir "the greater good" og þau eigi að þjóna samfélaginu er algjör steypa þegar það er ekki einu sinni hægt að borga þeim almennileg laun til að hugsa um veika fólkið.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 14:24
af KjartanV
https://www.visir.is/g/202017678d/sa-fy ... lagdur-inn

Úff... vonandi batnar honum sem fyrst.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 16:07
af rapport
blitz skrifaði:
Sporður skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Vanhugsað og ekki vanhugsað, það verður að tala um þetta eins og það er.
Hvernig má annars vera að sérþjálfað og hámenntað heilbrigðisstarfsfólk með hreinlæti í fyrirrúmi og á sótthreinsuðum vinnustað nái sér í fjöldasmit?

https://www.visir.is/g/202017503d/starf ... il-utlanda

Þann 2. mars síðastliðinn beindi landlæknir þeim tilmælum til heilbrigðisstarfsfólks og annarra sem starfa í framlínu á heilbrigðisstofnunum að fara ekki utan í ferðalög í bili á meðan tilfellum vegna kórónuveirunnar fer fjölgandi hér á landi.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fóru hjúkrunarfræðingar og læknar í skíðaferð til Austurríkis eftir að þessi tilmæli voru gefin út. Starfsfólkið fór á svæði sem var utan skilgreinds hættusvæðis á þeim tíma en svo hafi hættumatinu verið breytt.

:baby

Ef Landspítalinn var ekki búinn að bjóðast til að endurgreiða allan útlagðan kostnað skil ég þetta fólk vel.

Ég skil það líka vel ef þau verða látin nota orlof í sóttkvínni en ekki veikindarétt.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 16:14
af Diddmaster
rapport skrifaði:

Ef þú veikist á orlofs tíma áttu rétt á lengingu orlofs sem samsvarar veikindadögum

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 19:42
af Tbot
Danmörk er að stoppa allt í tvær vikur.

Öllum skólum lokað.

Læknar á Ítalíu er farnir að ákveða hverjir lifa eða deyja.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 19:57
af KjartanV
Það er farin afstað herferð sem ber heitið #StayTheFuckHome.
Ég hvet þá sem taka þessu alvarlega að halda sig heima. Ég ætla að halda mig heima í komandi vikur. Börnin mín fara ekki aftur á leikskólann.
Fullt af ungu fólki sem er ekki með undirliggjandi sjúkdóm sem er orðið fárveikt.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 20:11
af Stuffz
hmm..

vara að spá í einu, hver ætli réttarstaða þeirra sem vilja taka þetta út snemma sé í stýrðu umhverfi, þ.e.a.s vera bara búinn með þetta á 14 dögum?
..geta þá s.s haldið lífinu áfram tiltöluega óttalaust frá þeim punkti, þar sem ekki er þá lengur hætta á að smitast eða smita aðra.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 20:35
af arons4
Stuffz skrifaði:hmm..

vara að spá í einu, hver ætli réttarstaða þeirra sem vilja taka þetta út snemma sé í stýrðu umhverfi, þ.e.a.s vera bara búinn með þetta á 14 dögum?
..geta þá s.s haldið lífinu áfram tiltöluega óttalaust frá þeim punkti, þar sem ekki er þá lengur hætta á að smitast eða smita aðra.

Voru einhverjar umræður um það fyrir nokkru síðan að kona í kína hafi fengið sjúkdóminn tvisvar, ef satt reynist þá er það alls ekki sniðugt.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 21:14
af GuðjónR
Það mætti spara tíma og peninga og taka upp einn fund sem eru í beinni alla daga kl. 14 og endursýna svo daglega. Ekkert nýtt bara endurtekningar, þau víkja sér stanslaust undan spurningum og hæla sér út í eitt fyrir herkænsku, þetta fer að verða virkilega vandræðalegt. Þvílík ákvarðanfælni. Það virðist meðvituð ákvörðun að vinna með afleiðingarnar í stað þess að fyrirbyggja. Þau þurfa að hysja upp um sig áður en það verður of seint.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 21:46
af GuðjónR
Afsakið double-post...

En danir virðast vera að taka á þessu af alvöru:
Öllu skólastarfi er aflýst í Danmörku og meirihluti ríkisstarfsmanna sendir heim næsta hálfa mánuðinn. Þá mælast dönsk stjórnvöld til þess að öllum viðburðum þar sem fleiri en eitt hundrað koma saman verði aflýst í landinu. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hélt nú í kvöld, vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar.

https://www.ruv.is/frett/danmork-skelli ... a-covid-19

En auðvitað vita íslendingar betur, enda þekktir fyrir herkænsku!

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 22:01
af axyne
GuðjónR skrifaði:Afsakið double-post...

Ég var fyrr í kvöld að skreppa í Rema1000 að kaupa mjólk fyrir börnin í fyrramálið, fannst óvenjulega mikið fólk á ferðinni og síðan á stuttum tíma þá gjörsamlega fylltist búðin! þetta var einsog í bíómynd! Núna er algjör móðursýki í gangi, langar raðir inní matvörubúðir, hillur að tæmast...

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 22:14
af GuðjónR
axyne skrifaði:

Já Danir eru móðursjúkir, virðast ekkert læra af herkænsku Íslendinga :-#
Vona að það verði allt í lagi með ykkur þarna í Danaveldi.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Mið 11. Mar 2020 22:15
af Stuffz
arons4 skrifaði:
Stuffz skrifaði:hmm..

vara að spá í einu, hver ætli réttarstaða þeirra sem vilja taka þetta út snemma sé í stýrðu umhverfi, þ.e.a.s vera bara búinn með þetta á 14 dögum?
..geta þá s.s haldið lífinu áfram tiltöluega óttalaust frá þeim punkti, þar sem ekki er þá lengur hætta á að smitast eða smita aðra.

Voru einhverjar umræður um það fyrir nokkru síðan að kona í kína hafi fengið sjúkdóminn tvisvar, ef satt reynist þá er það alls ekki sniðugt.

já reyndar tvö afbrygði til af vírusinum, "S" eldri/vægari og "L" nýrri/skæðari.

og eitt annað frétta/fræðslu videó sem ég sá á youtube nefndi t.d. eitthvern ástrala sem var sýktur af báðum afbrygðum á sama tíma. samt held það sé nú frekar sjaldgæft/undantekning, hvort þeirra ætli sé það sem er hérlendis?

edit:
fann þetta, mínúta 5

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 00:33
af rapport
Ísland er að standa sig vel, betur en flest lönd.

Nú virðumst við vera fara fá smit frá USA líka, veit um slík sýni í ræktun.

Vinsamlegast segið fólki á ferðalögum að fara í sóttkví.

P.s. Ekki eyða of miklum pening í klósettpappír það er haugur af Airbnb fasteignum að fara detta í sölu, margar á besta stað í 101

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 00:35
af rapport
Diddmaster skrifaði:
Ef þú veikist á orlofs tíma áttu rétt á lengingu orlofs sem samsvarar veikindadögum

Jamm ef þú verður veikur, ekki bara sóttkví.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 01:23
af kizi86
arons4 skrifaði:
Stuffz skrifaði:hmm..

vara að spá í einu, hver ætli réttarstaða þeirra sem vilja taka þetta út snemma sé í stýrðu umhverfi, þ.e.a.s vera bara búinn með þetta á 14 dögum?
..geta þá s.s haldið lífinu áfram tiltöluega óttalaust frá þeim punkti, þar sem ekki er þá lengur hætta á að smitast eða smita aðra.

Voru einhverjar umræður um það fyrir nokkru síðan að kona í kína hafi fengið sjúkdóminn tvisvar, ef satt reynist þá er það alls ekki sniðugt.

hún var með verulega skaddað ónæmiskerfi fyrir, sem gerði það að verkum að líkaminn náði ekki að byggja upp nægilegt magn mótefna að hún veiktist aftur. Very real. Er sjálfur búinn að vera að berjast við svoleiðis síðan í nóvember 2019. Fæ sömu pestarnar aftur og aftur, og búið að setja mig í fyrirbyggjandi heima-sóttkví.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 11:56
af GuðjónR
Norðmenn loka skólum.
Ég ætla ekkert að bíða eftir því að þessir sleðar í almannavarnarnefnd vakni, börnin mín hafa ekki farið í skólann í tvo daga og þannig verður það áfram.

https://www.visir.is/g/202018501d/nordmenn-loka-skolum

Rosalega traustvekjandi að hafa stjórnvöld sem hugsa bara um fjármagn og fyrirtæki.
Þetta myndband gæti alveg eins átt við íslensk stjórnvöld, sama siðblinda eiginhagsmuna pakkið allstaðar.
Bíðum bara og sjáum til, þetta reddast kannski. Stanslaust verið að slökkva elda í stað þess að koma í veg fyrir þá.
Landið galopið fyrir túristum, fólk ennþá að ferðas, flestir skólar/leikskólar opnir. Ekki nógu margir smitaðir svo það réttlæti aðgerðir.

VAKNIÐ!

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 11:58
af Hnykill
Er ég eitthvað að misskilja en er þessi veira ekki bara eins og slæm Inflúensa ? þeir sem eru að deyja af þessu er fólk með undirliggjandi sjúkdóma og veikara ónæmiskerfi en venjulegt fólk. þetta er kannski heimsbreidd veira en hver er í raun að drepast af þessu ? fólk sem var svo veikt fyrir að það mátti ekki við þessari flensu í þokkabót. held að venjulegt fólk fái bara hita, beinverki og annað eins sem fylgir þessu. tekur 2-3-4 vikur. svo er allt í fína með þetta fólk. og fólk sem hefur sigrast á svona veiru er oft með ónæmt blóð eftir þetta eða annað að gefa þeim sem enn eru veikir. er það ekki svona sem heilbrigðiskerfið virkar ? eða er ég að misskilja eitthvað?

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 12:47
af urban
GuðjónR skrifaði:Rosalega traustvekjandi að hafa stjórnvöld sem hugsa bara um fjármagn og fyrirtæki.

Er fólk að gleyma því að langflestir á vinnumarkaðinum vinna hjá fyrirtækjum, semsagt eru ekki í einkarekstri.

Með því að hugsa um að fyrirtæki fari ekki á hausinn er verið að hugsa um að fólkið hafi vinnu.
Það er semsagt ekki verið að hugsa um eiganda fyrirtækis með því að halda því gangandi, það er verið að hugsa um starfsfólkið þar.

Það hjálpar akkúrat engum að senda óhemju helling af fyrirtækjum á hausinn á næstunni útaf því að þau geta ekki borgað gjöld sem að eru upphaflega of há.

Allavega væru langflestir sem að ég þekki búnir að lenda þá í miklum vandræðum eftir örstuttan tíma.
Flestum liði mun mun betur á launaskrá hjá fyrirtæki þrátt fyrir takmarkaða vinnu jafnvel en að vera á atvinnuleysis bótum.

Eða þú veist, hinn kosturinn er, sleppa þessu, tökum svo bara á móti fólki á atvinnuleysisskrá.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 12:53
af Hjaltiatla
Þessi rök að setja efnahaginn/fyrirtæki á hliðina með nauðsynlegum aðgerðum á ekki við þegar það þarf að passa uppá mannslíf.
Það að flokka íslendinga við komu til landsins og setja í sóttkví en ekki túrista (því þeir eiga víst ekki í neinum samskiptum við íslendinga) var t.d frekar heimskulegt og virkaði mjög yfirborðskennt.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 12:56
af GuðjónR
Greinilegt að veiran fer ekki í manngreinarálit, hún ber enga virðingu fyrir peningum.
Spurning hvort virðing fyrir peningum muni ráða úthlutunum á þeirri takmörkuðu auðlind sem öndunarvélar eru þegar sá tími kemur:
https://www.dv.is/frettir/2020/3/12/kri ... -covid-19/

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fim 12. Mar 2020 12:58
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Þessi rök að setja efnahaginn/fyrirtæki á hliðina með nauðsynlegum aðgerðum á ekki við þegar það þarf að passa uppá mannslíf.
Það að flokka íslendinga við komu til landsins og setja í sóttkví en ekki túrista (því þeir eiga víst ekki í neinum samskiptum við íslendinga) var t.d frekar heimskulegt og virkaði mjög yfirborðskennt.

Enmitt, enda hvaða atvinnulíf er fólk að tala um þegar ekkert er að gert til að stoppa veiruna og áður en við vitum af verður 70% þjóðarinnar veikur og hin 30% í sóttkví.