Síða 1 af 19

Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 15:04
af appel
Jæja, ég er farinn í Bónus... ef svo skyldi að allir yrðu að halda sig innandyra í mánuð.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 15:25
af Roggo
Þetta er ekki svona hræðilegt. Þetta er þó verst fyrir aldraða, börn eða fólk sem er veikt fyrir en það má líka segja um allskonar eins og flensur eða slíkt. Flestir eru að ná sér aftur frekar fljótt og fjölda fjölda þeirra fjölgar nú hraðar heldur en veiran sjálf dreifist. Spái fyrir því að á næstu dögum mun meira en helmingur þeirra með staðfest smit hafa náð sér aftur. Geri hinsvegar ráð fyrir því líka að búðarhillur munu tæmast víða í dag :lol:

https://gisanddata.maps.arcgis.com/apps/opsdashboard/index.html#/bda7594740fd40299423467b48e9ecf6

https://www.frettabladid.is/frettir/enginn-daudadomur-ad-greinast-med-koronaveiruna/

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 16:17
af GuðjónR
:(

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 17:21
af Sporður
Spurning hvort við værum ekki rólegri ef veiran hefði byrjað einhversstaðar þar sem helmingur fólks reykir ekki og byrjar á því í kringum 15 ára aldur.

Spá: þetta verður stormur í vatnsglasi hjá vestrænum þjóðum með stönduga innviði.

Annað mál (og verra?) hjá minna iðnvæddari þjóðum.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 19:08
af rapport
Þetta er í raun rétti tíminn til að ferðast... það rignir a.m.k. in tilboðum á bookings, expedia ofl. ofl.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 20:30
af appel
rapport skrifaði:Þetta er í raun rétti tíminn til að ferðast... það rignir a.m.k. in tilboðum á bookings, expedia ofl. ofl.

Ekki gaman að lenda í sóttkví á einhverju hóteli í 3 vikur og mega ekki fara úr hótelherberginu.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 21:57
af rapport
appel skrifaði:
rapport skrifaði:Þetta er í raun rétti tíminn til að ferðast... það rignir a.m.k. in tilboðum á bookings, expedia ofl. ofl.

Ekki gaman að lenda í sóttkví á einhverju hóteli í 3 vikur og mega ekki fara úr hótelherberginu.


I know... Þetta átti að vera kaldhæðni :guy

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 22:03
af Hjaltiatla
Getið skoðað þetta ef þið vilji aðstoða vísindasamfélagið við að greina Kórónaveiruna.
Folding@home takes up the fight against COVID-19 / 2019-nCoV
https://foldingathome.org/2020/02/27/foldinghome-takes-up-the-fight-against-covid-19-2019-ncov/

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 22:24
af GuðjónR
Hjó eftir tvennu í fréttunum um smitaða íslendinginn, það fyrra er að engin vill viðurkenna að hann viti hvar maðurinn starfaði, maður hefði haldið að það yrði þeirra fyrsta verk að tala við fjölskyldu og vinnufélaga mannsins þannig að maður er farinn að reikna með að hann hafi starfað við matvælaiðnað og það má ekki segja frá því þá tapar kapitalisminn pening. Ef hann starfaði í bakaríi og það spyrðist út þá gæti ég ekki ímyndað mér biðröð eftir brauði þannig að peningar eru enn og aftur teknir fram yfir lýðheilsu.
Hitt er að konan hans er ekki smituð;
Eiginkona mannsins sem greindist með kórónuveiruna COVID-19 í dag er ekki smituð.

Augljóslega ekki mikil nánd í þessu sambandi ef hún er ósmituð eftir allan þennan tíma :megasmile
https://www.visir.is/g/2020200228946/ko ... nuveirunni

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 22:35
af hfwf

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Fös 28. Feb 2020 22:38
af GuðjónR
hfwf skrifaði:https://www.visir.is/g/2020200229270/-eg-vil-ekki-ad-gt-akademian-verdi-veirumidstod-reykjavikur-
Augljóslega þessi :D

Ekki ólíklegt, en mér finnst ábyrgðarhluti að greina EKKI frá því í fjölmiðlu heldur fara undan flæmingi við þessa spurningu ítrekað.
Svo berja þeir sér á brjóst og segja allt uppá borðum. Það er augljóslega langur vegur frá því.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 10:23
af rapport
Ef hann var ekki að komast í nálægð við einn eða neinn þá skiptir vinnustaðurinn engu máli. Ef hann komst bara í nálægð við fólk á fundum o.þ.h. en ekki í afgreiðslu þá er það rakið hvern hann hitti og óþarfi að draga vinnustaðinn inn í umfjöllunina.

En ef þetta var bakarí og hann vann í afgreiðslunni, þá hefði án efa verið gefið upp að þeir sem hefðu komið þar við ættu að vera á varðbergi fyrir einkennum og helst halda sig heimavið og setja upp grímur ef þeir fara út o.þ.h.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 11:12
af Sam
Norður Kórea er með alvöru sóttvarnar áætlun http://news-af.feednews.com/news/detail ... v_AWSyBW4Y

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 11:49
af jonsig
Það þarf bara eitt kringlukast eða lindex útsölu til að þessi heimasótthví taki snöggan endi endi .

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 11:49
af GuðjónR
Sam skrifaði:Norður Kórea er með alvöru sóttvarnar áætlun http://news-af.feednews.com/news/detail ... v_AWSyBW4Y

Ekkert hálfkák þarna :face

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 12:20
af Hjaltiatla
Handþvottur + Ekki snerta andlitið er ágætis forvörn. (jafnvel vera með handspritt á sér ef maður er að koma við hluti t.d strætó,verslunum og þess háttar).

Hvað finnst ykkur t.d um þegar fólk vill taka utan um ykkur eða heilsa ykkur með handabandi , er það orðið bannað eða er ég kannski að ofhugsa hlutina ?

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 20:02
af jonsig

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 20:27
af mikkimás
Hjaltiatla skrifaði:Handþvottur + Ekki snerta andlitið er ágætis forvörn. (jafnvel vera með handspritt á sér ef maður er að koma við hluti t.d strætó,verslunum og þess háttar).

Hvað finnst ykkur t.d um þegar fólk vill taka utan um ykkur eða heilsa ykkur með handabandi , er það orðið bannað eða er ég kannski að ofhugsa hlutina ?

Ég heilsa hvorki með handabandi né faðmlagi á meðan þetta ástand varir.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 20:30
af jonsig
Ef það væri nóg.. stærsta smitleiðin er snerti smit.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 20:34
af mikkimás
Það er ekki nóg, en hjálpar til við að minnka líkur á smiti.

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Lau 29. Feb 2020 21:40
af Sporður
Skynsamt fólk nýtir nammibarinn um helgina :guy

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 00:09
af Black
Feginn að hafa ekki bókað flugið mitt í seinustu viku.. sé að það er búið að lækka um 30þ núna :happy

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 09:23
af GuðjónR
:idea:

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 11:42
af rapport

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Sent: Sun 01. Mar 2020 18:00
af Hjaltiatla