Kórónaveiran komin til Íslands

Allt utan efnis
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf rapport » Sun 15. Mar 2020 22:31

Tish skrifaði:
rapport skrifaði:Einhver komment um að landið eigi að vera lokað?

https://www.visir.is/g/202020259d/full- ... -ali-cante

Annar vinkill á lokanir landamæra í Evrópu er að koma í veg fyrir að fólk flýji frá fátækum löndum þegar það sýkist yfir í ríkari lönd með betra heilbrigðiskerfi því EU kortið á að tryggja þér heilbrigðisþjónustu þar sem þú ert.


Hvað finnst þér ?


Að við eigum að hjálpa öllum á Íslandi.




Tish
Ofur-Nörd
Póstar: 208
Skráði sig: Sun 07. Feb 2016 11:02
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Tish » Sun 15. Mar 2020 23:26

.
Síðast breytt af Tish á Lau 18. Sep 2021 11:44, breytt samtals 4 sinnum.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf rapport » Sun 15. Mar 2020 23:49

Tish skrifaði:https://medium.com/@joschabach/flattening-the-curve-is-a-deadly-delusion-eea324fe9727

Margir að vara við þessari hjarðónæmis tilraun.
Munið það að það eru 26 öndunarvélar á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem þurfa á öndunarvél að halda geta þurft að vera í þeim í vikur.


Það er reyndar talað um súrefnismeðferðir og vélar til að aðstoða við öndun geti hjálpað mörgum, ekki bara öndunarvélar sem anda fyrir fólk.

s.s. súrefnisgleraugu og vélar sem notaðar eru fyrir fólk með kæfisvefn geta eitthvað létt á þörfinni fyrir öndunarvélar, sem eru mikið inngrip.

Á Íslandi eru t.d. tvær ECMO vélar en um 300 í öllum Bandaríkjunum (þökk sé mjög ákveðnum skurð/svæfingalæknum hér heima).

Í USA eru 10.000 öndunarvélar, við erum því að slátra þeim hlutfallslega í undirbúningi + við erum með þær allar á einumstað = þar sem þörfin verður.


Hjarðónæmi mun borga sig. Það er alveg fyrirséð að þessi vírus verður ekki takmarkaður við eitt land, hann mun fara út um allan heim og hann mun lenda aftur í Kína og hann mun blossa upp aftur og aftur þangað til að það er komið nægjanlegt hjarðónæmi á hverjum stað til að hefta útbreiðslu hans.

Þangað til að það er komið, þá er enginn óhultur.

Að reyna stýra þróun smita og grípa til aðgerða einusinni og gera það vel er miklu betra en að slást ítrekað við vindmyllur þegar smit fara koma upp aftur og aftur.

Ég er líka með þessa ónotatilfinningu að hafa ekkert control og vilja bara loka á þetta en ég er bara fullviss um að það er engin lausn fólgin í því og það geri bara hlutina verri til lengri tíma litið.




Tish
Ofur-Nörd
Póstar: 208
Skráði sig: Sun 07. Feb 2016 11:02
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Tish » Mán 16. Mar 2020 00:03

.
Síðast breytt af Tish á Lau 18. Sep 2021 11:42, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf rapport » Mán 16. Mar 2020 00:09

Við vitum að þrátt fyrir að við séum að taka alltaf fleiri og fleiri sýni (vantar tölurnar hans Kára þarna inn), þá eru fjöldi smita sem finnast búinn aðvera nokkuð stöðugur = vandinn er ekki að stigmagnast hjá okkur eins og hjá mörgumöðrum þjóðum.

Það mun gerast á einhverjum tímapunkti en því betur sem við stöndum okkur sem samfélag, því minna verður það skot og því fljótar gengur það yfir.

Capture.JPG
Capture.JPG (90.56 KiB) Skoðað 3127 sinnum




Tish
Ofur-Nörd
Póstar: 208
Skráði sig: Sun 07. Feb 2016 11:02
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Tish » Mán 16. Mar 2020 00:19

rapport skrifaði:Við vitum að þrátt fyrir að við séum að taka alltaf fleiri og fleiri sýni (vantar tölurnar hans Kára þarna inn), þá eru fjöldi smita sem finnast búinn aðvera nokkuð stöðugur = vandinn er ekki að stigmagnast hjá okkur eins og hjá mörgumöðrum þjóðum.

Það mun gerast á einhverjum tímapunkti en því betur sem við stöndum okkur sem samfélag, því minna verður það skot og því fljótar gengur það yfir.

Capture.JPG


.
Síðast breytt af Tish á Mán 24. Ágú 2020 13:54, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf rapport » Mán 16. Mar 2020 00:24

Tish skrifaði:
rapport skrifaði:Við vitum að þrátt fyrir að við séum að taka alltaf fleiri og fleiri sýni (vantar tölurnar hans Kára þarna inn), þá eru fjöldi smita sem finnast búinn aðvera nokkuð stöðugur = vandinn er ekki að stigmagnast hjá okkur eins og hjá mörgumöðrum þjóðum.

Það mun gerast á einhverjum tímapunkti en því betur sem við stöndum okkur sem samfélag, því minna verður það skot og því fljótar gengur það yfir.

Capture.JPG


Já, verst er hvað þessi veira er lengi að taka við sér og erfitt að vita hvað gerist næst hjá fólki sem er smitað. Fólk getur farið úr því að vera með mild einkenni yfir í high/critical á mjög skömmum tíma. Það er erfitt að átta sig á alvarleika smitana af þessum 180+. En að sjálfsögðu vonum við það besta.
Ég er samt sem áður ekki sannfærður að við séum nægilega undirbúin fyrir þetta þegar kemur að búnaði og tækjum á spítulunum. Ég vona innilega að ég hafi rangt fyrir mér og ég skal sko troða þessu ofaní mig ef ég hef rangt fyrir mér en eitthvað segir mér að þetta fari úr böndunum hjá okkur og ef við fylgjum þessari hjarðónæmistilraun sem margir ónæmissérfræðingar úti eru að vara við. Ef ég hef rangt fyrir mér þá borga ég utanlandsferð fyrir þig Rapport í haust þegar fyrsti fasi er yfirstaðinn.


a.m.k. setjumst við niður yfir drykk, helst einhverju nógu sterku til að drepa þetta kvikindi sem þessi vírus er, eða tökum bara lunch.

Ég vona eins og þú, að þessi línudans sé ekki á tannþræði. Þetta þarf að haldast perfect í dágóðantíma svo þetta takist almennilega.




Tish
Ofur-Nörd
Póstar: 208
Skráði sig: Sun 07. Feb 2016 11:02
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Tish » Mán 16. Mar 2020 00:27

.
Síðast breytt af Tish á Lau 18. Sep 2021 11:41, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf GuðjónR » Mán 16. Mar 2020 09:21

Þá er það formlega staðfest.
Almannavarnir eru á Vaktinni.
Viðhengi
8EC31051-86D9-4EA5-8F7C-59C83269335F.jpeg
8EC31051-86D9-4EA5-8F7C-59C83269335F.jpeg (913.16 KiB) Skoðað 2999 sinnum



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3106
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 526
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Hjaltiatla » Mán 16. Mar 2020 15:07

Bara svona til að ítreka ákveðinn hlut um hug­takið hjarðónæmi:Ekki tak­markið að 60-70% þjóðar­inn­ar sýk­ist
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/03/16/misskilningur_i_gangi_um_hjardonaemi/
Síðast breytt af Hjaltiatla á Mán 16. Mar 2020 15:07, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf rapport » Þri 17. Mar 2020 09:37

https://bokun.rannsokn.is/#!/covid19/login/

Fyrir þá sem eru slojj, þið ættuð að láta tékka á ykkur áður en þið óvart smitið aðra.

Hjálpumst að við að hafa þetta undir control.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3106
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 526
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Hjaltiatla » Þri 17. Mar 2020 09:48

rapport skrifaði:https://bokun.rannsokn.is/#!/covid19/login/

Fyrir þá sem eru slojj, þið ættuð að láta tékka á ykkur áður en þið óvart smitið aðra.

Hjálpumst að við að hafa þetta undir control.


Orðið á götunni er að það er verið að mæla með því að fólk sem finnur fyrir einkennum að mæta ekki (til að smita ekki það fólk sem vinnur þarna bæði í turninum og sem er að vinna þessa rannsóknarvinnu)


Just do IT
  √


Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Sporður » Þri 17. Mar 2020 09:53

rapport skrifaði:https://bokun.rannsokn.is/#!/covid19/login/

Fyrir þá sem eru slojj, þið ættuð að láta tékka á ykkur áður en þið óvart smitið aðra.

Hjálpumst að við að hafa þetta undir control.


Við skulum ekki vera að dreifa einhverju þvert á ráðleggingar.

Covid.is skrifaði: Ef þig grunar að þú sért með smit:
Haltu þig heima og hafðu samband í síma 1700 , heilsugæsluna þína eða í gegn um netspjall á heilsuvera.is. Heilbrigðisstarsfólk verður þar til svara og ráðleggur þér um næstu skref.
Það er mjög mikilvægt að þú farir ekki í eigin persónu á læknavakt eða heilsugæslu.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf GuðjónR » Þri 17. Mar 2020 10:18

Norðmenn afdráttarlausir.
Viðhengi
C62C5F71-1439-4A5D-9635-BDCBF215BA87.jpeg
C62C5F71-1439-4A5D-9635-BDCBF215BA87.jpeg (45.64 KiB) Skoðað 2649 sinnum



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf rapport » Þri 17. Mar 2020 10:31

Sporður skrifaði:
rapport skrifaði:https://bokun.rannsokn.is/#!/covid19/login/

Fyrir þá sem eru slojj, þið ættuð að láta tékka á ykkur áður en þið óvart smitið aðra.

Hjálpumst að við að hafa þetta undir control.


Við skulum ekki vera að dreifa einhverju þvert á ráðleggingar.

Covid.is skrifaði: Ef þig grunar að þú sért með smit:
Haltu þig heima og hafðu samband í síma 1700 , heilsugæsluna þína eða í gegn um netspjall á heilsuvera.is. Heilbrigðisstarsfólk verður þar til svara og ráðleggur þér um næstu skref.
Það er mjög mikilvægt að þú farir ekki í eigin persónu á læknavakt eða heilsugæslu.


Kórrétt, en heilsugæslan virðist ekki vilja taka sýni ef þú hefur ekki umgengist einhvern sem er í einangrun.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf GuðjónR » Þri 17. Mar 2020 11:00

rapport skrifaði:
Sporður skrifaði:
rapport skrifaði:https://bokun.rannsokn.is/#!/covid19/login/

Fyrir þá sem eru slojj, þið ættuð að láta tékka á ykkur áður en þið óvart smitið aðra.

Hjálpumst að við að hafa þetta undir control.


Við skulum ekki vera að dreifa einhverju þvert á ráðleggingar.

Covid.is skrifaði: Ef þig grunar að þú sért með smit:
Haltu þig heima og hafðu samband í síma 1700 , heilsugæsluna þína eða í gegn um netspjall á heilsuvera.is. Heilbrigðisstarsfólk verður þar til svara og ráðleggur þér um næstu skref.
Það er mjög mikilvægt að þú farir ekki í eigin persónu á læknavakt eða heilsugæslu.


Kórrétt, en heilsugæslan virðist ekki vilja taka sýni ef þú hefur ekki umgengist einhvern sem er í einangrun.

Litla gula hænan og COVID19 ?




Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Sporður » Þri 17. Mar 2020 11:02

rapport skrifaði:
Kórrétt, en heilsugæslan virðist ekki vilja taka sýni ef þú hefur ekki umgengist einhvern sem er í einangrun.


Þar sem veiran hefur svipuð einkenni og kvef eða flensa (sem er að ganga), þá er það alveg skiljanlegt.

Í því tilfelli er einfaldast bara að fólk axli ábyrgð. Ef þú ert eitthvað tæpur, einangraðu þig bara. Líklegast líður þetta hjá án mikilla óþæginda (fyrir langflesta).

Og ef ÍE eða ríkið setur upp bílalúgur fyrir greiningar, þá getur fólk skellt sér þangað.
Síðast breytt af Sporður á Þri 17. Mar 2020 11:02, breytt samtals 1 sinni.




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Tbot » Þri 17. Mar 2020 11:04

Varðandi ameríku, þá er kostnaðurinn að leggjast þar inn án tryggingar stjarnfræðilegur, þess vegna eru Norðmenn að hverja námsmenn að koma heim.

Jæja, nú er spurning með efasemdarmennina.
Hefði ekki verið betra að loka öllu strax í upphafi sem hefði þá trúlega staðið í skemmri tíma, en núna þar sem mörg lönd eru stöðugt að herða viðbrögðin jafnvel komin með útgöngubann og hafa ekki hugmynd um tímalengd á aðgerðum.

Raunveruleikinn er sá að sumar þjóðir eru farnar að missa 200 - 300 manns á dag vegna veirunnar.

Fyrir þá sem trú ekki á lokanir landa, lesið ykkur til um lokun á norður og austurlandi í tímum spænsku veikinnar. Einnig lokaði Ástralía landinu á sínum tíma.
Síðast breytt af Tbot á Þri 17. Mar 2020 11:08, breytt samtals 1 sinni.




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Tbot » Þri 17. Mar 2020 11:20

Norðmenn flottir með stuðnig við einkafyrirtæki.

Þau fyrirtæki sem fá stuðning geta ekki verið með bónusa til toppanna eða greitt út arð

https://www.vg.no/nyheter/innenriks/i/r ... e-og-bonus



Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1448
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Lexxinn » Þri 17. Mar 2020 11:21

rapport skrifaði:Kórrétt, en heilsugæslan virðist ekki vilja taka sýni ef þú hefur ekki umgengist einhvern sem er í einangrun.


Einfaldlega því þá er þér leiðbeint um að fara í sóttkví. Sóttkví og einangrun er ekki það sama, einstaklingar eru ekki settir í einangrun sem slíka nema í tilfelli staðfestra smita. Einstaklingar sem hafa komið í návist við staðfest sýkta einstaklinga eiga að fara í sóttkví (mega fara í göngutúra en halda skal ákveðinni fjarlægð frá öðru).

Uppls. fengnar af uptodate;
Ef þú ert með eitthver af eftirfarandi einkennum ættir þú að vera í sóttkví í 2 vikur;
-Hiti, 99%
-Slappleiki, 70%
-Þurran hósta, 59%
-Anorexiu, 40%
-Verkir í vöðvum, 35%
-Erfiðleikar við öndun, 31%

Einnig er ætlast/ráðlagt að allir fari í 14 daga sóttkví ef þeir hafa á síðustu 14 dögum;
-Hitt/komið í návist eitthvers með staðfest eða grun um COVID19 smit
-Búa í eða hafa farið til áhættusvæða sem í dag eru skilgreind sem Kína, Suður Kórea, Mestöll Evrópu, Iran og Japan
-Einnig þeir sem hafa farið á fjólmenna samkomur/viðburði þar sem smit hefur verið tilkynnt.

Samfélagslega ábyrgðin er það mikil að fólk ætti að hafa vit á því að halda sig í sóttkví ef eitthvað af þessu á við. Það hefur meira að segja verið staðfest að einstaklingar sem sýna engin einkenni eða þar sem veiran er ekki komin í gegnum svokallaðan "meðgöngutíma" (e. incubation period) sem er á bilinu 4-14dagar en tilfelli hefur verið tilkynnt þar sem það tók 37daga.

Furðulegt að það sé ekki búið að setja sektir/viðurlög ef slíkt er brotið. Ég stunda nám erlendis og þar eru 1650evrur í sekt ef sóttkví er rofin.

rapport skrifaði:Fyrir þá sem eru slojj, þið ættuð að láta tékka á ykkur áður en þið óvart smitið aðra.


Endilega hafa staðreyndir á hreinu áður en þú dreifir röngum upplýsingum á opnu spjallborði í tilfelli því sem hefur verið flokkað sem heimsfarald. Þegar svona staðreyndir eru lagðar fram gefur þú til kynna að þú vitir upp á hár um hvað málið snýst.
Hinsvegar ef þið eruð einkennalaus/ir mæli ég hiklaust með að skrá ykkur í skimun - sérstaklega ef um eitthverja undirliggjandi sjúkdóma er að ræða, helst ber að hafa í huga; sjálfsónæmissjúkdóma og aðra ónæmissjúkdóma, fólk á ónæmisbælandi lyfjum, lungnasjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma.

Edit; Skimunin er aðeins ætluð fólki sem er einkennalaust til að athuga útbreiðslu veirunnar og koma í veg fyrir frekari útbreiðslu skv þessari frétt
Einnig skv skilaboðum frá skimuninni;
Rannsókn.is = skimun COVID 19 skrifaði:Þeim einstaklingum sem eru í sóttkví á heimili sínu samkvæmt tilmælum Landlæknis er bent á að sóttkvíin nær líka yfir komu í sýnatöku vegna COVID-19.
Þeim sem eru í sóttkví verður vísað frá í sýnatökunni.
Mæting í slíka sýnatöku er brot á sóttvarnarlögum og við slíkum brotum eru þung viðurlög.
Smellið hér til að afpanta tíma: https://bokun.rannsokn.is/su/covid19/Bzi7GbM7
Síðast breytt af Lexxinn á Þri 17. Mar 2020 11:35, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6422
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf gnarr » Þri 17. Mar 2020 11:23

Tbot skrifaði:Hefði ekki verið betra að loka öllu strax í upphafi...


Þú gerir þér grein fyrir að þú ert þá að tala um lokun á landinu í fleiri mánuði eða ár.

Svarið er 100% nei.


"Give what you can, take what you need."


Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Tbot » Þri 17. Mar 2020 11:42

gnarr skrifaði:
Tbot skrifaði:Hefði ekki verið betra að loka öllu strax í upphafi...


Þú gerir þér grein fyrir að þú ert þá að tala um lokun á landinu í fleiri mánuði eða ár.

Svarið er 100% nei.


já, ég geri mér grein fyrir því.

Hvað er að gerast í mörgum löndum Evrópu núna.
Einmitt þetta, að loka löndunum.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf rapport » Þri 17. Mar 2020 11:53

We island, we no food and no TP if no big shippy bring us...



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3106
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 526
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf Hjaltiatla » Þri 17. Mar 2020 13:31

Skuggaleg frétt:Smitaður maður lést á Húsavík
https://www.ruv.is/frett/smitadur-madur-lest-a-husavik


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kórónaveiran komin til Íslands

Pósturaf GuðjónR » Þri 17. Mar 2020 13:40

Hjaltiatla skrifaði:Skuggaleg frétt:Smitaður maður lést á Húsavík
https://www.ruv.is/frett/smitadur-madur-lest-a-husavik

Ekki langt síðan orðræðan var þannig að það þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af ferðamönnum, þeir væru í svo litlum samskiptum við íslendinga :face