Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Allt utan efnis
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7052
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1000
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf rapport » Mið 08. Jan 2020 14:50

Þar sem ég var Macintosh maður þá verslaði maður við PostMac og fékk diskettur með ýmsu dóteríi sent öðru hvoru.

p.s. hver man eftir að hafa lesið smáugslýsingarnar í leit að góðum díl?

Capture.JPG
Capture.JPG (51.83 KiB) Skoðað 3400 sinnum



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf kiddi » Mið 08. Jan 2020 15:19

Hah! Auðvitað átti maður að fletta upp á timarit.is til að rifja upp :) Hér eru forritapakkarnir góðu sem ég var að tala um. Þessi tiltekna auglýsing er frá 1992 en þær voru birtar reglulega í mörg ár.

gamlarauglysingar.png
gamlarauglysingar.png (330.51 KiB) Skoðað 3388 sinnum



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1246
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 374
Staða: Tengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf Njall_L » Mið 08. Jan 2020 15:25

Hægt að skrifast á við YFIR 200 TÖLVUNOTENDUR um heim allan, þvílík og önnure eins bylting. En þetta hefur nú ekki verið ódýrt.


Löglegt WinRAR leyfi


blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1752
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf blitz » Mið 08. Jan 2020 15:27

kiddi skrifaði:Hah! Auðvitað átti maður að fletta upp á timarit.is til að rifja upp :) Hér eru forritapakkarnir góðu sem ég var að tala um. Þessi tiltekna auglýsing er frá 1992 en þær voru birtar reglulega í mörg ár.

gamlarauglysingar.png


Gaman að þessu - þessir Sega Mega leikir eru um 15.140 kr. á verðlagi dagsins í dag.


PS4


dandri
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Fim 22. Sep 2011 23:00
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf dandri » Mið 08. Jan 2020 15:32

Var nokkrum árum of ungur til að kaupa warez en þetta minnti mig á þegar ég fékk fyrstu 256kb ADSL tenginguna og var alltaf á irc að downloada þar, með 20GB harðan disk sem var alltaf fullur þannig ég var alltaf að skrifa það sem ég downloadaði á diska

Good times


AMD FX-4100 | ASRock 990FX Extreme3 | G.Skill Ripjaws 1600 8gb | 2x MSI Cyclone R6850 OC Version | Corsair HX750

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf kiddi » Mið 08. Jan 2020 15:41

blitz skrifaði:Gaman að þessu - þessir Sega Mega leikir eru um 15.140 kr. á verðlagi dagsins í dag.


Það mætti þá samt segja að leikir hafi lækkað töluvert í verði, því ég gróf einmitt upp smáauglýsingu frá sjálfum mér frá 1996 þar sem ég er að selja tölvu sem ég keypti 1993 fyrir fermingarpeninga og 2 ár af dósasöfnun eða um 120þ. - mér finnst hæpið að ég hafi eytt ígildi 500þ. á þeim tíma í tölvu, verandi fermingarpjakkur :)

PS. Þú ert ekki tengdur Blitz BBS sem mig rámar í að hafi verið til á Íslandi í gamla daga? Sem keyrði einmitt PCBoard og var helvíti 'leet ;)




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1752
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf blitz » Mið 08. Jan 2020 16:37

kiddi skrifaði:
blitz skrifaði:Gaman að þessu - þessir Sega Mega leikir eru um 15.140 kr. á verðlagi dagsins í dag.


Það mætti þá samt segja að leikir hafi lækkað töluvert í verði, því ég gróf einmitt upp smáauglýsingu frá sjálfum mér frá 1996 þar sem ég er að selja tölvu sem ég keypti 1993 fyrir fermingarpeninga og 2 ár af dósasöfnun eða um 120þ. - mér finnst hæpið að ég hafi eytt ígildi 500þ. á þeim tíma í tölvu, verandi fermingarpjakkur :)

PS. Þú ert ekki tengdur Blitz BBS sem mig rámar í að hafi verið til á Íslandi í gamla daga? Sem keyrði einmitt PCBoard og var helvíti 'leet ;)


Ekki svo frægur - þetta er nick sem ég tók upp eflaust 1999/2000 í AQ og CS.

Nafnið kom af þessu coveri sem ég var með við höndina :lol:
Mynd
Síðast breytt af blitz á Mið 08. Jan 2020 17:38, breytt samtals 1 sinni.


PS4


KjartanV
Græningi
Póstar: 46
Skráði sig: Sun 17. Nóv 2019 18:09
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf KjartanV » Mið 08. Jan 2020 16:47

blitz skrifaði:
kiddi skrifaði:
blitz skrifaði:Gaman að þessu - þessir Sega Mega leikir eru um 15.140 kr. á verðlagi dagsins í dag.


Það mætti þá samt segja að leikir hafi lækkað töluvert í verði, því ég gróf einmitt upp smáauglýsingu frá sjálfum mér frá 1996 þar sem ég er að selja tölvu sem ég keypti 1993 fyrir fermingarpeninga og 2 ár af dósasöfnun eða um 120þ. - mér finnst hæpið að ég hafi eytt ígildi 500þ. á þeim tíma í tölvu, verandi fermingarpjakkur :)

PS. Þú ert ekki tengdur Blitz BBS sem mig rámar í að hafi verið til á Íslandi í gamla daga? Sem keyrði einmitt PCBoard og var helvíti 'leet ;)


Ekki svo frægur - þetta er nick sem ég tók upp eflaust 1999/2000 í AQ og CS.


Ahh AQ. Tók einn leik núna rétt fyrir jól, svakalega er þetta skemmtilegur leikur. Finnarnir eru enn að spila hann.



Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 572
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Reputation: 74
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf Hannesinn » Mið 08. Jan 2020 18:15

Haha, gaman að þessu. Ég skrifaði leiðbeiningarskrá varðandi afþjöppun og notkun á hjálparforritum sem endaði á mörgum þessara warez geisladiska. Hún var skrifuð fyrir vinahópinn, en endaði lítillega breytt á geisladiskum frá allavega nokkrum sem voru að selja þetta.

Sjálfur keypti ég diskabrennara mjög snemma. Keypti hann seinni part ársins '96 í lítilli tölvuverslun sem var í Glæsibæ, og ef ég man rétt kostaði kvikindið um 75 þús. sem var ekki langt undir mánaðarlaununum á þessum tíma. Tómir geisladiskar kostuðu þá frá 1100-1500 kall, og voru mjög gjarnir á að skemmast. Þetta var svo viðkvæmt, að á tímabili þegar ég setti brennslu í gang, þá smellti ég á takkann á tölvunni, sem var 100MHz Hyundai frá Tæknival, tipplaði á tánum framhjá tölvunni út úr herberginu og beið frammi í 40 mín. eftir að þetta kláraðist.

Alger veisla til að búa til mixdisk með tónlist. Geisladiskur með lögum eftir eigin höfði í fullum gæðum? Þekktist ekki þarna. Og það var engin smá vinna heldur. MP3 var ekki komið á þessum tíma og einn diskur af wav skrám tók meira en helminginn af öllu diskplássi í tölvunni. Algeng stærð á hörðum diskum var þarna í kringum 1200MB og geisladiskur rúmaði 650MB. Svo maður tali nú ekki um að maður gat skrifað marga tugi tölvuleikja á einn geisladisk.

Eftirá að hyggja, þegar ég les þetta yfir, þá sé ég að það er auðvelt að lesa það út að ég hafi verið að selja þetta sjálfur. Get þó sagt, með góðri samvisku, að svo var þó ekki. Ég þorði því aldrei, haha. :)


Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.


netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf netkaffi » Mið 08. Jan 2020 19:48

Í tveimur bæjarfélögum sem ég dvaldi í sirka 1998 voru strákar á svipuðum aldri og ég að bjóða upp á þetta. Þetta var svaka díll fyrir lítinn pening m.v. ef maður hefði keypt leikina úti í búð. Akkúrat 1000-2000 kall eftir fjölda leikja held ég. Selfossi og Hafnarfirði. Hafði ekki hugmynd um að þetta væri til fyrr en allt í einu var þetta í boði.



Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf ZiRiuS » Mið 08. Jan 2020 20:10

Svona óháð warez og þannig að þá kynntist ég ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki á ircinu, bæði íslensku og erlendu eitthvað rétt fyrir aldamótin og þangað til ircið dó. Fólk sem ég er ennþá í samskiptum við, tala nú ekki um þegar CS varð stórt á Íslandi. Örugglega eins og einhverjir hérna að þá átti ég ekki góða barnæsku útaf einelti í skóla og ég get svarið það að ég veit ekki hvort ég hefði komist yfir það ef ég hefði ekki kynnst ircinu og öllu tengt því. Ótrúleg reynsla sem ég mun aldrei gleyma.



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe

Skjámynd

mort
Fiktari
Póstar: 91
Skráði sig: Fim 31. Jan 2008 15:47
Reputation: 52
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf mort » Mið 08. Jan 2020 21:41

Hver man ekki eftir Global Mutiny ;)


---

Skjámynd

Höfundur
zetor
spjallið.is
Póstar: 458
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf zetor » Fim 09. Jan 2020 12:15

ZiRiuS skrifaði:Svona óháð warez og þannig að þá kynntist ég ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki á ircinu, bæði íslensku og erlendu eitthvað rétt fyrir aldamótin og þangað til ircið dó. Fólk sem ég er ennþá í samskiptum við, tala nú ekki um þegar CS varð stórt á Íslandi. Örugglega eins og einhverjir hérna að þá átti ég ekki góða barnæsku útaf einelti í skóla og ég get svarið það að ég veit ekki hvort ég hefði komist yfir það ef ég hefði ekki kynnst ircinu og öllu tengt því. Ótrúleg reynsla sem ég mun aldrei gleyma.


gott að fá þennann vinkil líka, margir sem deila sömu reynslu.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16264
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf GuðjónR » Fim 09. Jan 2020 12:24

mort skrifaði:Hver man ekki eftir Global Mutiny ;)

Búinn að sjá Halt&Catch Fire ?
https://www.imdb.com/title/tt2543312/?ref_=fn_al_tt_1



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf appel » Fim 09. Jan 2020 12:52



*-*


akarnid
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Lau 04. Nóv 2006 22:35
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf akarnid » Fim 09. Jan 2020 14:38

Árið rétt byrjað og strax kominn good times upprifjanaþráður ársins. Frábær lesning allesammen.



Skjámynd

DaRKSTaR
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf DaRKSTaR » Fim 09. Jan 2020 21:55

kiddi skrifaði:Hah! Auðvitað átti maður að fletta upp á timarit.is til að rifja upp :) Hér eru forritapakkarnir góðu sem ég var að tala um. Þessi tiltekna auglýsing er frá 1992 en þær voru birtar reglulega í mörg ár.

gamlarauglysingar.png


hehe, einar kallinn var með þennann bbs og ég man sérstaklega hvað hann var pirraður, hann átti að vera kominn með geysladrif í hendur á þessum tíma og auglýsti sig eftir því, ég fékk drif í hendurnar strax eftir þessa helgi og og henti í auglýsingu minnir mig í næstu helgi og notaði sömuleiðis þetta: loksins, loksins!, hann var alveg gáttaður á þessu að ég væri kominn með geysladrif á undann honum.

hinsvegar er merkilegi parturinn af þessari sögu sá að ég fékk drifið í hendur á mánudeginum, hringi í kallinn og um leið og hann svaraði heyrði ég svakaegan hvell í gegnum símann eins og einhver hefði skotið af haglabyssu, málið var að það var smá sprúnga í tölvuskjánum sem hann sat við og þegar ég hringi stendur hann upp og svarar símanum og á sama tíma sprakk tölvuskjárinn, hefði ég ekki hringt væri hann dauður, fór til hans 1995 og þá sýndi hann mér hvernig veggurinn leit út bakvið stólinn sem hann sat í, var allur tættur, var sumarhús í raun og veru sem hann bjó í bakvik eden í hveragerði, pabbi hans átti eden.

þetta var flottur buisness hjá honum, minnir að hann hafi haft 40 símalínur sem þótti bara snar galið á þessum tíma.

hinsvegar má segja að það sem maður sakni mest af þessu öllu í dag sé eden, var einhver sjarmi yfir þessum stað, maður stoppaði alltaf þarna þegar
maður átti leið framhjá þó það væri ekki nema bara til að fá sér eina kók í gleri.


I9 10900k | Gigabyte RTX 3060 TI | Samsung Odyssey G7 32" | Corsair H100x | Gigabyte Z490 Aorus Elite | G.SKILL Trident Z 32GB @ 3600mhz | Lian-Li O11 XL ROG | XPG Pro 512GB | Seasonic Focus 850W Gold | Corsair K95 Platinum | Logitech G502 Hero | Steelseries Arctis Pro Wireless

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf kiddi » Fim 09. Jan 2020 22:03

DaRKSTaR skrifaði:hinsvegar má segja að það sem maður sakni mest af þessu öllu í dag sé eden, var einhver sjarmi yfir þessum stað, maður stoppaði alltaf þarna þegar maður átti leið framhjá þó það væri ekki nema bara til að fá sér eina kók í gleri.


Já það kallast „vin í eyðimörkinni“, ég sakna Eden líka þó ég sé sennilega eitthvað aðeins yngri. Gaman að þessari sögu :)




emil40
vélbúnaðarpervert
Póstar: 964
Skráði sig: Þri 28. Jún 2016 11:27
Reputation: 110
Staðsetning: Njarðvík
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf emil40 » Fös 10. Jan 2020 02:23

Ég man vel eftir þessum tímum frábær tími í minningunni


| BQ! Pure Base 500DX | Ryzen9 7900x | ASRock X670e | 3070 ti - 8 gb | Samsung 980 Pro NVMe PCIe M.2 - 2tb og 2x 1 tb | 1x 16 tb og 1x 20 tb | Corsair HX1200i | G.Skill 64GB Trident Z5 DDR5 6000MHz | Samsung Odyssey G5 34" WQHD sveigður | JBL Quantum Duo | HyperX leikjastóll |

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf Jón Ragnar » Fös 10. Jan 2020 08:06

ZiRiuS skrifaði:Svona óháð warez og þannig að þá kynntist ég ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki á ircinu, bæði íslensku og erlendu eitthvað rétt fyrir aldamótin og þangað til ircið dó. Fólk sem ég er ennþá í samskiptum við, tala nú ekki um þegar CS varð stórt á Íslandi. Örugglega eins og einhverjir hérna að þá átti ég ekki góða barnæsku útaf einelti í skóla og ég get svarið það að ég veit ekki hvort ég hefði komist yfir það ef ég hefði ekki kynnst ircinu og öllu tengt því. Ótrúleg reynsla sem ég mun aldrei gleyma.



Ég er 100% sammála. Ein af mínum fyrstu alvöru kærustum kynntist ég á #iceland minnir mig, Einnig kynntist maður fullt af fólki þarna sem eru ennþá vinir mans í dag :)



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf urban » Fös 10. Jan 2020 09:46

DaRKSTaR skrifaði:þetta var flottur buisness hjá honum, minnir að hann hafi haft 40 símalínur sem þótti bara snar galið á þessum tíma.

Mér þætti það álíka galið í dag svo sem :D

DaRKSTaR skrifaði:hinsvegar má segja að það sem maður sakni mest af þessu öllu í dag sé eden, var einhver sjarmi yfir þessum stað, maður stoppaði alltaf þarna þegar
maður átti leið framhjá þó það væri ekki nema bara til að fá sér eina kók í gleri.

Ísland tapaði miklu þegar að eden brann.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


mikkimás
Gúrú
Póstar: 551
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 102
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf mikkimás » Fös 10. Jan 2020 10:05

Var ekkert meiri tölvugæji þá frekar en nú.

Man bara eftir að hafa keypt Quake 2 á 1500 kr. af skólafélaga í grunnskóla.

Leikur sem ég spilaði í ræmur. Tónlistin í leiknum var ekki af síðri endanum. Hún var bara ólæst inn á disknum og nægði c/p.




mikkimás
Gúrú
Póstar: 551
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 102
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf mikkimás » Fös 10. Jan 2020 10:09

rapport skrifaði:Þar sem ég var Macintosh maður þá verslaði maður við PostMac og fékk diskettur með ýmsu dóteríi sent öðru hvoru.

p.s. hver man eftir að hafa lesið smáugslýsingarnar í leit að góðum díl?

Capture.JPG

20MB harður diskur?

Hvað er þetta gömul auglýsing?

Mig minnir af fyrsta tölvan mín 1997 hafi verið með 300MB hörðum diski.



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2809
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 196
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf CendenZ » Fös 10. Jan 2020 10:20

Góðir tímar, fór með á haugana fyrir jól zip drif og kassa af warez diskum. Þvílík gull á sínum tíma, man þegar ég fór 13 eða 14 ára í strætó niður í bæ að sækja 2x warez diska í mitt fyrsta skipti. Mér leið eins og ég væri glæpamaður, þvílík spenna í loftinu. Hittumst í kringlunni eins og dópsalar og skiptum á peningum og diskum

Fékk svo Blood, Quake II, Carmageddon, GTA, Hexen, Postal og einhvern byggingaleik. Svo bað ég um að fylla rest af klámi O:)

Djöfulsins veisla þennan vetur



Skjámynd

Climbatiz
Ofur-Nörd
Póstar: 256
Skráði sig: Mið 11. Maí 2005 21:28
Reputation: 44
Staðsetning: Breidholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Þegar ég pantaði warez af irkinu í lok síðustu aldar

Pósturaf Climbatiz » Lau 11. Jan 2020 16:25

ég kom inní þennan heim um seinni part 90s, fékk senda diska að utan með allskonar dóti sem ég dreifði á netinu, þó ég seldi einu sinni geisladisk með warez-i til einhvers á landinu (CD skrifarinn sem ég átti kostaði yfir 20þús á þeim tíma, las á 4x og skrifaði á 2x hehe), þetta var samt á tímabili þar sem DSL var að fara koma inn þannig eftir það var mar bara með ftp server á irkinu og svo seinna tengdur DC(++), ólíkt flestum sem voru mikið að deila á þessu tímabili þá fór ég aldrei út úr þeim heimi og er enn á warez rásum á irkinu ;} (sem eru nú í dag mest megnis bara dauðar rásir með fólki sem hættir aldrei IRC hehe)

smá flashback fyrir þá sem muna eftir Mínus IRC servernum
Session Start: Sat Jul 20 00:00:01 2002
Session Ident: #Chat
[00:01] <MOB|hedinn> dabbi... pshyco filename
[00:01] <MOB|hedinn> :)
[00:02] <ISLS|Holy_man> gn
[00:02] <ISLS|Holy_man> sérstaklega þú héðinn
[00:02] <ISLS|Holy_man> ef þú þarf mig mikvægt sendu mér þá bara sms :))
[00:03] <MOB|hedinn> hehe ok :)
[00:03] <MOB|hedinn> gn elskan

http://www.everplanet.tk/chat.minus.20020720.log (humm... gat ekki sent inn sem viðheingi :{ )


ef ég skrifa kb þá meina ég kilobyte!!!