Síða 2 af 2

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Lau 04. Jan 2020 16:27
af FuriousJoe
Black skrifaði:
Nariur skrifaði:
Black skrifaði:
Þetta er afsláttarverð hjá Coolshop, (janúar útsala) heildarverð er um 71.000kr fer eftir því hvar þú kaupir hann



Hvar færðu þær upplýsingar? Ég get ekki betur séð en að þetta sé bara venjulegt fast verð.


https://www.coolshop.dk/produkt/maxi-co ... cm/AG4K57/
Merkt undir "kampagne" january sales og aflsáttur á verðinu

Og á íslensku síðuni stemdur "herferðin" janúar útsalan



Þurfa vörur ekki að vera merktar verði fyrir útsölu og með útsölu ? Held að það séi skilyrði...

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Lau 04. Jan 2020 16:36
af pepsico
Það er alveg vinna fyrir stafni til að samræma þessa vefsíðu við kröfur íslenskra laga og reglugerða:

[Lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu]1)
2005 nr. 57 20. maí
[11. gr.
Útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, má því aðeins auglýsa eða tilkynna að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Þess skal gætt að greinilegt sé með verðmerkingum hvert hið upprunalega verð vörunnar var.] 1)

Nr. 366/2008 10. apríl 2008
REGLUR
um útsölur eða aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði.
2. gr.
Lækkað verð.
Í auglýsingum sem og á sölustað, þ.m.t. netverslun, skal tekið skýrt fram hvaða vörur eða þjónusta er seld á lækkuðu verði.

Fullt af vörum á janúarútsölu blaðsíðunni eru rétt merktar t.d. 7999 kr -30% 1̶1̶4̶4̶9̶ ̶k̶r̶ en alveg jafn margar þar sem stendur bara eitthvað verð en ekkert fyrra verð. Svo er það líka alveg pæling hvort það má yfirhöfuð merkja allar þessar vörur svona með 'fyrra verði' því seljandi verður að geta sannað að varan hafi verið seld á því verði sem er tilgreint sem fyrra verð.

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Lau 04. Jan 2020 17:15
af Black
pepsico skrifaði:Það er alveg vinna fyrir stafni til að samræma þessa vefsíðu við kröfur íslenskra laga og reglugerða:

[Lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu]1)
2005 nr. 57 20. maí
[11. gr.
Útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, má því aðeins auglýsa eða tilkynna að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Þess skal gætt að greinilegt sé með verðmerkingum hvert hið upprunalega verð vörunnar var.] 1)

Nr. 366/2008 10. apríl 2008
REGLUR
um útsölur eða aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði.
2. gr.
Lækkað verð.
Í auglýsingum sem og á sölustað, þ.m.t. netverslun, skal tekið skýrt fram hvaða vörur eða þjónusta er seld á lækkuðu verði.

Fullt af vörum á janúarútsölu blaðsíðunni eru rétt merktar t.d. 7999 kr -30% 1̶1̶4̶4̶9̶ ̶k̶r̶ en alveg jafn margar þar sem stendur bara eitthvað verð en ekkert fyrra verð. Svo er það líka alveg pæling hvort það má yfirhöfuð merkja allar þessar vörur svona með 'fyrra verði' því seljandi verður að geta sannað að varan hafi verið seld á því verði sem er tilgreint sem fyrra verð.


"Janúarútsala Fyrsta útsala árins skellur á með hvelli! Við kynnum fyrir þér janúarútsöluna árið 2020, svo þú getur verslað þá hluti sem þú fékkst ekki í jólagjöf."


Þarna eru þeir í raun að sýna frammá að þetta sé Útsala en ekki opnunartilboð eða kynningarverð, þá gilda 11.gr nr 57 .Þeir þurfa sýna að varan sé á lækkuðu verði og hún hafi verið til og seld á því verði allt að þrjá mánuði aftur í tímann. :guy

með fyrirvara um að það gætu gilt aðrar reglur með svona birgðaraðila og vefverslun

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Fim 13. Feb 2020 20:06
af FuriousJoe
Jæja er komin einhver reynsla á þessa verslun ?

Pantaði tölvuleik þaðan og er búinn að bíða í 13 daga í dag, svo virkar ekki að fletta upp sendinganúmerinu sem þau gefa manni...

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Fim 13. Feb 2020 20:14
af pepsico
Ég fékk að sækja vöruna mína á áætluðum tímapunkti.

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Fim 13. Feb 2020 22:55
af hagur
FuriousJoe skrifaði:Jæja er komin einhver reynsla á þessa verslun ?

Pantaði tölvuleik þaðan og er búinn að bíða í 13 daga í dag, svo virkar ekki að fletta upp sendinganúmerinu sem þau gefa manni...


Virðist taka 2-3 vikur að jafnaði að fá vörur afgreiddar. Ég hef ekki fengið tracking númer hingað til, þannig að ég get ekki commentað á það. Ég er ánægður með þetta samt, verðin eru það góð í mörgum tilfellum að ég er alveg tilbúinn að bíða aðeins.

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Fös 14. Feb 2020 00:03
af Copyright
Mín sending tók 20 virka daga að berast, engin tilkynning um seinkun, en mjög vingjarnlegt og þjónustulundað starfsfólk í versluninni þar sem sendingarnar eru sóttar.

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Fös 14. Feb 2020 00:42
af Tiger
Ég var að skoða vöru í desember og sá að hún átti að vera til 15.feb, setti þetta á hold en pantaði fyrir 10 dögum og átti að koma á morgun.

Fékk svo póst í dag um að hún verði ekki til hjá framleiðanda fyrr en í lok maí :megasmile

Líklegast ekki við þá að sakast, frekar Sony.

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Fös 14. Feb 2020 07:03
af Njall_L
Hef pantað í tvígang frá þeim. Önnur varan kom eftir 15 daga og hin eftir 10 daga. Miðað við að þeir gefi upp 7-14 daga afhendingartíma myndi ég því segja að mín reynsla sé ágæt, sérstaklega miðað við sparnaðinn.

Ef einhver frá þeim er samt að fylgjast með þessu þá þætti mér mikill kostur ef hægt væri að sjá eitthvað um sendinguna þegar hún ferðast og hvort maður geti gert ráð fyrir hlutnum á einhverju tímabili.

Re: coolshop_punktur_ is

Sent: Fös 14. Feb 2020 08:47
af Jón Ragnar
Svo er þessi staðfestingarpóstur með honum Jørgen eitthvað annað dæmi...