Síða 1 af 1

Privacy.com

Sent: Fös 15. Nóv 2019 19:47
af asgeirbjarnason
Hæ.

Hefur einhver reynslu annað hvort af privacy.com eða veit um aðra leið til að búa til svona „sýndarkreditkort?“

Mér finnst óþægilegt að láta handahófskenndar heimasíður fá kreditkortanúmerið mitt (til dæmis kínverskar síður eins og aliexpress) og væri líka til í að geta sett fast limit á staka accounta eins og Apple App Store eða Vodafone reikninginn.

Sá fyrirlestur hjá einhverju kreditkortafyrirtækinu á hádegisfundi hjá Skýrslutæknifélaginu fyrir mörgum árum þar var verið að tala um þessa tækni og að hún væri alveg að koma á markað hérna en heyrði síðan aldrei af því aftur.

Svo hvað segið þið, er privacy.com málið eða get ég gert þetta einhvernveginn öðruvísi?

Re: Privacy.com

Sent: Fös 15. Nóv 2019 19:55
af Viktor
Ferð í Landsbankann og stofnar kortanúmer á 0 kr.

Minnir að lágmarksheimild sé 5000kr.

Re: Privacy.com

Sent: Fös 15. Nóv 2019 19:57
af netkaffi
Minnir að lágmarksheimild sé 5000kr.

Helda að á sumum erlendum síðum geti maður valið lágmarksheimild, sem er kostur.

Re: Privacy.com

Sent: Fös 15. Nóv 2019 20:10
af Hjaltiatla
Ég komst upp með að vera eingöngu með fyrirframgreitt kort hjá Kreditkort/Íslandsbanka áður fyrr.
Hins vegar eru aðilar byrjaðir að loka á þann mökugleika að nota fyrirframgreitt kort (sumar cloud þjónustur - bílaleigur etc) þannig að ég þarf að vera með tvö kort í dag . Það er þó hægt að setja þak á hefðbundnu kreditkortin hjá Arion banka en fannst einfaldlega betra að reyna að aðgreina vafasamari greiðslur með fyrirframgreidda kortinu og nota hefðbundna kreditkortið fyrir þær þjónustur sem krefjast þess að maður greiði ekki með fyrirframgreiddu korti.

Re: Privacy.com

Sent: Fös 15. Nóv 2019 20:26
af asgeirbjarnason
Sallarólegur skrifaði:Ferð í Landsbankann og stofnar kortanúmer á 0 kr.

Minnir að lágmarksheimild sé 5000kr.

Hmm... áhugavert! Leyfa þau manni að stofna mörg kreditkort? Er hægt að stilla þannig að einungis ákveðin aðili geti rukkað ákveðið kortanúmer?

Re: Privacy.com

Sent: Lau 16. Nóv 2019 10:14
af Viktor
asgeirbjarnason skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Ferð í Landsbankann og stofnar kortanúmer á 0 kr.

Minnir að lágmarksheimild sé 5000kr.

Hmm... áhugavert! Leyfa þau manni að stofna mörg kreditkort? Er hægt að stilla þannig að einungis ákveðin aðili geti rukkað ákveðið kortanúmer?

Hef aldrei heyrt af neinum fjöldatakmörkunum. Nei þú getur ekki stillt neitt, þetta er bara hefðbundið kort án plastsins.

Re: Privacy.com

Sent: Lau 16. Nóv 2019 10:44
af asgeirbjarnason
Ok, tékka á þessu!

Takk fyrir Sallarólegur

Re: Privacy.com

Sent: Lau 16. Nóv 2019 20:46
af kizi86
ég er með nokkur kort frá www.ikort.is og hefur komið bara vel út fyrir mig

Re: Privacy.com

Sent: Sun 17. Nóv 2019 00:31
af asgeirbjarnason
kizi86 skrifaði:ég er með nokkur kort frá http://www.ikort.is og hefur komið bara vel út fyrir mig

Get hvergi séð minnst á sýndarkortanúmer á síðunni þeirra. Síðan virðist bara tala um fýsískt kort en að það þurfi ekki að vera tengt bankareikningi. Get ekki séð hvernig það myndi hjálpa í viðleitni við að „segregatea“ mismunandi greiðslur eins og ég var að pæla (miðað við að það kostar 725 krónur á mánuði að vera með stakt iKort, sem væri ágætlega hátt hlutfall af kostnaði ef ég myndi vilja aðskilja Netflix eða Stundarinnar áskrift)

Hvernig ertu að nota iKort?

Re: Privacy.com

Sent: Sun 24. Nóv 2019 12:32
af netkaffi
Nú þarf maður að fá sér erlent kortanúmer svo að maður lendi ekki á stoppi eins og hérna:
Mynd
Þetta er s.s. að stoppa á því, að ég geti notað þetta, að ég er með íslenskt kreditkort. :(((

Er ekki einhver af þessum erlendu virtual credit cards að virka bara fínt fyrir íslendinga?

Re: Privacy.com

Sent: Fös 29. Nóv 2019 12:51
af asgeirbjarnason
Sallarólegur skrifaði:Ferð í Landsbankann og stofnar kortanúmer á 0 kr.

Minnir að lágmarksheimild sé 5000kr.

Fór í Landsbankann áðan. Þau sögðu mér að þessi ókeypis kort væri bara hægt að nota til að setja upp beingreiðslur og þvíumlíkt, að ég gæti ekki notað þau í netverslanir. (og það kom þeirri sem afgreiddi mig á óvart að það væri ennþá hægt að sækja um þessi kort. Hún hélt að þau væru að reyna að hætta þessum kortum)

Re: Privacy.com

Sent: Fös 29. Nóv 2019 12:54

Það er ekki rétt. Ég er með svona kort. Þetta virkar nákvæmlega eins og hitt kortið mitt, nema ég fékk ekkert plast. Sæki svo númerin í appið.

Mitt er til dæmis tengt við US paypal account fyrir Hulu.

Re: Privacy.com

Sent: Fös 29. Nóv 2019 14:25
af asgeirbjarnason
Sallarólegur skrifaði:Það er ekki rétt. Ég er með svona kort. Þetta virkar nákvæmlega eins og hitt kortið mitt, nema ég fékk ekkert plast. Sæki svo númerin í appið.

Mitt er til dæmis tengt við US paypal account fyrir Hulu.

Örugglega rétt hjá þér. Ekki í fyrsta skipti sem starfsmaður á plani segi manni að eitthvað sé ekki hægt þegar það er víst hægt, bara til að losna við bögg.

Re: Privacy.com

Sent: Þri 08. Sep 2020 08:01
af Hjaltiatla
Smá pæling, Er hægt að nota Kreditkort hjá Landsbankanum t.d fyrir þjónustur hjá AWS,Azure og Google , Væri ágætt að vera með kreditkort sem maður notar til að nýta sér alls konar Free tier stöff :-"

Re: Privacy.com

Sent: Þri 08. Sep 2020 11:25
af mumialfur
Ég nota Revolut.

Það gefur þér kost á að búa til nýtt virtual VISA eða Mastercard fyrir hverja færslu ef það hentar.

Getur líka fengið plast kort og Metal kort. Mánaðrgjaldið er 8€ og 14€.

Þú getur svo millifært inn á kortið í gegnum appið með apple pay eða millifært gegnum banka.

Mæli með að lesa til um á heimasíðunni þeirra.

Re: Privacy.com

Sent: Þri 08. Sep 2020 11:39
af Hjaltiatla
mumialfur skrifaði:Ég nota Revolut.

Það gefur þér kost á að búa til nýtt virtual VISA eða Mastercard fyrir hverja færslu ef það hentar.

Getur líka fengið plast kort og Metal kort. Mánaðrgjaldið er 8€ og 14€.

Þú getur svo millifært inn á kortið í gegnum appið með apple pay eða millifært gegnum banka.

Mæli með að lesa til um á heimasíðunni þeirra.

Snilld, skoða þetta

Re: Privacy.com

Sent: Þri 08. Sep 2020 12:59
af pattzi
Hjaltiatla skrifaði:Ég komst upp með að vera eingöngu með fyrirframgreitt kort hjá Kreditkort/Íslandsbanka áður fyrr.
Hins vegar eru aðilar byrjaðir að loka á þann mökugleika að nota fyrirframgreitt kort (sumar cloud þjónustur - bílaleigur etc) þannig að ég þarf að vera með tvö kort í dag . Það er þó hægt að setja þak á hefðbundnu kreditkortin hjá Arion banka en fannst einfaldlega betra að reyna að aðgreina vafasamari greiðslur með fyrirframgreidda kortinu og nota hefðbundna kreditkortið fyrir þær þjónustur sem krefjast þess að maður greiði ekki með fyrirframgreiddu korti.

Frekar fyndið ég og konan erum bæði með fyrirframgreidd kreditkort ég frá sparisjóði höfðhverfinga visa credit samt (er með upphleyptum stöðum en stendur fyrir neðan nafnið VISA +) og konan frá landsbankanum en það er visa prepaid en reyndum að borga einmitt hótel með hennar korti og þeir vildu ekki taka því útaf einhverjum tryggingamálum en notuðum mitt og ekkert mál ...enda upphleyptir stafir þá halda þeir að þetta sé visa held ég en var náttúrulega slatti inná því ... Enda að borga hótel og bílaleigubíl og ekkert ves...svo þetta virðist vera einhvað misjafnt en stendur oft að megi ekki nota prepaid kort en oft lítið að spá því þetta er visa credit í +