Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf HalistaX » Sun 20. Okt 2019 06:40

Sælir fellar,

Ég var svona að spá, þið hafið flestir ef ekki allir tekið eftir því í gegnum tíðina að ég á það til að geta fangað mann og annan með skrifum mínum, hvort sem þau séu ítarleg og gróf varðandi sjálfann mig eða ég sé að tala um eitthvað annað og var ég því að spá í því hvar maður gæti fundið atvinnuauglýsingar tengdar skrifum og álíka pistla gerð?

Ég hef einu sinni áður starfað sem gagnrýnandi fyrir gömlu góðu PSX.is, gamla Íslenska Playstation samfélagið sem dó út er allir fluttu þessar umræður bara á Facebook, en þá var ég í sjálfboða vinnu og fékk í mesta lagi frítt promotional eintak af leik að launum.

Ég gerði tvær gagnrýnir fyrir þá, aðra fyrir Final Fantasy XIII-2, leik sem ég fékk fríann, á meðan hinn leikurinn var Binary Domain, leikur sem ég borgaði fyrir sjálfur. Báðir leikirnir alveg Japanskir til helvítis, en það er sena sem ég hafði aldrei fyrr kynnt annað úr en Metal Gear Solid, spilaði Metal Gear 3 og fannst hann svakalegur, væri til í Remaster af þeim leik á PC eða PS4, og svo spilaði ég Metal Gear Solid 4: Guns of the Patriots til dauða nánast, náði að vinna hann í erfiðasta, án þess að drepa neinn, man að ég notaði bara tranquilizer pussluna í allt, endakallana líka, þetta var alveg stórkostlegt grind ef þú spyrð mig, en var samt sem áður mjööög skemmtilegt grind og fannst mér ég geta sigrað heiminn að þessu loknu, eftir fleiri hundruð rage quit'a.

Sá hins vegar ekki eftir því að hafa gagnrýnt þessa tvo leiki og rámar mig í það að þeir hafi báðir fengið 7 til 9, eða eitthvað þannig, í minni bók.

Þessi stutti tími sem ég starfaði sem gagnrýnandi fyrir Íslenska Playstation Samfélagið, PSX.is, var algjörlega peak'ið af mínu lífi. Ég held ég hafi aldrei gert neitt jafn skemmtilegt á ævinni og að gagnrýna þessa tvo leiki. Að safna sér gagnrýnra upplýsinga með því að spila ásamt því að skrifa hugsanirnar niður og festa þær saman einhvern veginn sem stundum, stundum, leit út fyrir að vera ómögulegt en virkaði samt einhvern veginn alltaf í endann og passaði saman fullkomnlega.

Langar mikið að komast í það aftur, hvort sem það séu gagnrýnir, fréttir, eða pistlar og greinar, basically bara eitthvað sem ég get haft fyrir stafni á daginn annað en þetta sturlaða þunglyndi mitt sem gagnast engum og eyðileggur bara fyrir mér ef eitthvað er.

Þarf ekki endilega að vera borguð staða, en það væri samt alltaf kostur ef það væri borgað, þó það væri ekki nema bara smá.

Þannig að, já, ef þið vitið um einhverjar auglýsingar varðandi eitthvað svona, eða vitið um einhvern sem er að leita sér að penna eða vantar einhvern á annan hátt sem kann að skrifa, endilega látið mig vita hér í þræðinum eða í gegnum einkaskilaboð!

Skoða einungis störf sem ég get unnið við heima hjá mér þar sem ég bý ekki í Reykjavík eins og er.

Hef oft pælt í því að taka að mér ritgerðir fyrir Grunnskóla og, jafnvel, Framhaldsskóla nemendur, bara svona til þess að hafa eitthvað að gera. Taka bara ágæta summu fyrir hverja ritgerð, aðallega því það er ekki frítt að svindla, er það nokkuð?

Það er ekki mikið sem ég get sagst hafa verið stoltur af í þessu lífi mínu, en skrif mín eru eitthvað sem ég er hins vegar mjög stoltur af og miðað við öll þau hrós sem ég hef fengið í gegnum tíðina fyrir skrif mín þá held ég að ég sé meira en fær um það að taka að mér einhverja svona vinnu.


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

bits
Fiktari
Póstar: 54
Skráði sig: Þri 21. Maí 2019 16:15
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf bits » Sun 20. Okt 2019 13:56

Kannski senda vel skrifaðann póst á ritstjórnir helstu miðla, lýsa því hversu stór hluti tölvuleikir/símaleikir eru í nútíma samfélagi ungs fólks og hvernig þér finnst vanta leikjarýni í miðla alveg eins og kvikmyndarýni. Láta fylgja póstinum vel skrifaða en stutta leikjarýni til sýnis og spyrja hvort þau hefðu áhuga á að ráða þig í þannig starf ?



Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf HalistaX » Sun 20. Okt 2019 14:46

bits skrifaði:Kannski senda vel skrifaðann póst á ritstjórnir helstu miðla, lýsa því hversu stór hluti tölvuleikir/símaleikir eru í nútíma samfélagi ungs fólks og hvernig þér finnst vanta leikjarýni í miðla alveg eins og kvikmyndarýni. Láta fylgja póstinum vel skrifaða en stutta leikjarýni til sýnis og spyrja hvort þau hefðu áhuga á að ráða þig í þannig starf ?

Veistu, það er ekki svo galin hugmynd!

Kannski maður hendi í einn póst, eða tvo, til þessara helstu í geiranum í dag. Sjáum þá hvað setur bara...


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf rapport » Sun 20. Okt 2019 15:18

En eitthvað tengt lenovo deildinni, hvort sem það yrði formlegt eða óformlegt?



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf DJOli » Sun 20. Okt 2019 16:51

rapport skrifaði:En eitthvað tengt lenovo deildinni, hvort sem það yrði formlegt eða óformlegt?

Þetta ^^

EF Lenovo deildin er ekki komin með fréttaritara væri ekki svo galið að prófa að spyrja hvort vanti í þá stöðu. Gæti svosem vel byrjað ólaunað/einhverjir perks í skiptum fyrir að skila inn x greinum varðandi viðburði osfv, og svo þróast út í launað ef rafíþróttaiðnaðurinn hérlendis þróast í rétta átt.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf HalistaX » Sun 20. Okt 2019 17:09

DJOli skrifaði:
rapport skrifaði:En eitthvað tengt lenovo deildinni, hvort sem það yrði formlegt eða óformlegt?

Þetta ^^

EF Lenovo deildin er ekki komin með fréttaritara væri ekki svo galið að prófa að spyrja hvort vanti í þá stöðu. Gæti svosem vel byrjað ólaunað/einhverjir perks í skiptum fyrir að skila inn x greinum varðandi viðburði osfv, og svo þróast út í launað ef rafíþróttaiðnaðurinn hérlendis þróast í rétta átt.

Jaaaaaaá, það er alveg pæling. Málið er bara að ég er ekkert inní þessum leikjum sem er verið að keppa í hérlendis... Skylst að það sé League of Legends dæmi í gangi í kvöld. Ég veit bara ekki hvernig maður ætti að byrja á því að koma sér inní það...


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf DJOli » Sun 20. Okt 2019 17:41

HalistaX skrifaði:
DJOli skrifaði:
rapport skrifaði:En eitthvað tengt lenovo deildinni, hvort sem það yrði formlegt eða óformlegt?

Þetta ^^

EF Lenovo deildin er ekki komin með fréttaritara væri ekki svo galið að prófa að spyrja hvort vanti í þá stöðu. Gæti svosem vel byrjað ólaunað/einhverjir perks í skiptum fyrir að skila inn x greinum varðandi viðburði osfv, og svo þróast út í launað ef rafíþróttaiðnaðurinn hérlendis þróast í rétta átt.

Jaaaaaaá, það er alveg pæling. Málið er bara að ég er ekkert inní þessum leikjum sem er verið að keppa í hérlendis... Skylst að það sé League of Legends dæmi í gangi í kvöld. Ég veit bara ekki hvernig maður ætti að byrja á því að koma sér inní það...


Horfa. Heyra í spilurunum og taka viðtöl.
Rannsóknarvinna á bakvið þetta alveg eins og hjá venjulegum fréttamönnum.
T.d. getur Wikipedia síða Legaue Of Legends verið góð byrjun.
https://en.wikipedia.org/wiki/League_of_Legends
Svo er Liquipedia (Wikipedia síða Team Liquid um keppnir og mót) frekar gagnleg þegar kemur að heimsmeistaraleikjum & stórum viðburðum.
Hlekkur hér: https://liquipedia.net/leagueoflegends/Main_Page
League Of Legends Fandom Wiki
https://leagueoflegends.fandom.com/wiki ... gends_Wiki


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

stefhauk
spjallið.is
Póstar: 474
Skráði sig: Mið 20. Júl 2011 21:11
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf stefhauk » Sun 20. Okt 2019 18:31

Íþróttapistlar eru alltaf jafn vinsælir hafir þú einhvern áhuga á slíku. Gætir prófa að heyra í helstu fréttamiðlum tengt því.




Ratorinn
Ofur-Nörd
Póstar: 210
Skráði sig: Sun 11. Mar 2012 22:25
Reputation: 0
Staðsetning: Kúba
Staða: Ótengdur

Re: Ein pæling varðandi ákveðið atvinnutækifæri.

Pósturaf Ratorinn » Mán 21. Okt 2019 21:10

Gefðu út bók.