Síða 1 af 1

Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Lau 19. Okt 2019 21:40
af mikkimás
Sælir.

Eru einhverjir hjólreiðargarpar á vaktinni?

Mig langar að hjóla í vetur, mér til yndisauka en aðallega líkamsræktar.

Sem krakki fór ég allar mínar ferðir á hjóli og pældi ekkert í neinum fjandans nagladekkjum, en þá notaði ég hjól aðallega sem samgöngumáta.

Sem fullorðinn er ég að pæla hvort hægt sé að taka á því líkamlega á nagladekkjum í annað hvort hálku eða snjó.

Hvað segið þið, vit í að reyna spítta eða taka á því upp brekkur yfir vetrartímann?

Spóla ég ekki bara, þó ég sé á nöglum?

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Lau 19. Okt 2019 21:53
af Zorglub
Getur orðið fengið allskyns dekk mismikið nelgd, er sjálfur með dekk með 240 nöglum og hjóla allan veturinn nema þegar allt er á kafi í snjó, með svona marga nagla ertu með nóg grip og helst að folk detti þegar það fer af hjólinu. En þetta er að sjálfsögðu erfiðara heldur en vanalegar hjólreiðar. Þeir hörðustu eru svo á extra breiðum dekkjum og hleypa úr til að fara um allt í snjónum þannig að þetta er allt hægt já.

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Lau 19. Okt 2019 22:59
af Sporður
Byrjaðu bara á því að fá þér nagladekk með 240 nöglum ef þú ert eitthvað efins.

Ef þú hjólar heilan vetur og finnst þú ekki mega við færri nöglum þá heldurðu áfram að hjóla veturinn eftir á sömu eða eins dekkjum.

Ef þér finnst þú mega við því að missa nagla þá geturðu prufað týpur sem hafa um 100-120 nagla.

Ef þér finnst enginn tilgangur í nöglunum þá geturðu fengið þér naglalaus vetrardekk.

Ef þú ert mikið að spóla á nöglunum þá ertu annaðhvort að gera eitthvað vitlaust eða ættir að íhuga atvinnumennsku í hjólreiðum.

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Lau 19. Okt 2019 23:41
af Manager1
Ég hjólaði útum alla Reykjavík heilan vetur fyrir 10 árum, trúi ekki öðru en aðstæður fyrir hjólafólk hafi bara batnað síðan.

Ég man ekki hversu margir naglar voru í dekkjunum mínum en ég man að stundum þurfti ég að fara varlega í fljúgandi hálku, en það gerðist ekki oft yfir heilan vetur.

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Sun 20. Okt 2019 07:50
af B0b4F3tt
Ég hef nú bara verið að leika mér á fjallahjóli á veturnar og þá er ég með nagladekk undir hjólinu. Í þeim dekkjum eru 400 naglar og alveg fáránlegt grip. Hef hjólað út á Hvaleyrarvatn þegar það var frosið og það var næstum því eins og að hjóla á þurru malbiki, svo mikið var gripið :)

En já það er alveg hægt að taka almennilega á því á veturnar, ferð kannski aðeins rólegra í stefnubreytingar því það er helst þá sem dekkið getur misst gripið :)

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Sun 20. Okt 2019 08:16
af mikkimás
Takk kærlega fyrir svörin.

En eru naglarnir að slitna fljótt eða detta úr eins þeim er gjarnt á bifreiðadekkjum?

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Sun 20. Okt 2019 08:44
af blitz
Ég hef hjólað svo til daglega (Kópavogur -> Borgartún) síðustu 4 ár á cyclocross hjóli og 29" fjallahjóli ef það er mjög snjóþungt.

Yfir vetrartímann (c.a. lok október -> apríl) er ég með þau bæði á nagladekkjum en nota CX hjólið nánast undantekningarlaust. Á því hjóli er ég með Schwalbe Marathon winter. Fjallahjólið er á grófari kubbadekkjum. Ef það er allt á kafi í snjó tek ég fjallahjólið og hleypi úr dekkjunum.

Á vel nelgdum dekkjum ertu öruggur jafnvel þótt að það sé fljúgandi hálka. Vetrarþjónusta á helstu hjóla- og göngustígum er orðin góð í mörgum sveitarfélögum þannig að það er örsjaldan sem slíkar aðstæður koma upp.

Miðað við daglega notkun (frá okt -> apríl) eru dekkin undir CX að endast í c.a. 2 vetra.

Mæli með því að kíkja á hópana "Reiðhjólabændur" eða "Samgönguhjólreiðar" á Facebook, mikið af svona umræðum þar

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Sun 20. Okt 2019 22:12
af Zpand3x
mikkimás skrifaði:Takk kærlega fyrir svörin.

En eru naglarnir að slitna fljótt eða detta úr eins þeim er gjarnt á bifreiðadekkjum?


Mismunandi eftir dekkjum. Það hjálpar að hjóla varlega á þeim til að byrja með, fara varlega í beygjur og passa sig að skransa ekki.

Ég hef átt dekk sem endust alveg 6-7 vetur og töpuðu bara nokkrum nöglum. Þá var gúmmíið bara orðið lélegt.

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Mán 21. Okt 2019 13:04
af gnarr
Ég hef farið gegnum nokkra vetra, bæði á götuhjóli með 240 nöglum á 35mm dekkjum og á svipuðum dekkjum á 29er.
Hjólið er alveg þrusu stöðugt á þurrum ís og smá snjó.
Ef þú þarft að fara í gegnum skafla muna samt rosalega að vera á fjallahjóli uppá að vera með breitt stýri.

Annars hjóla ég aldrei á minna en 110% afli, svo að til þess að svara þeirri spurningu, þá er ekkert mál að taka á því upp brekkurnar á nöglum :)

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Mán 21. Okt 2019 16:55
af Sporður
Kannski rétt að hafa í huga að framleiðendur mæla yfirleitt með því að fólk byrji á því að hjóla minnst 50 km á dekkjunum á auðu til þess að naglarnir setjist almennilega og detti síður úr.

Svona af fenginni reynslu gæti ég ímyndað mér að þú missir kannski 1-2 nagla á vetri.

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Mán 21. Okt 2019 21:20
af B0b4F3tt
Hjá mér virðast naglarnir hverfa mest þegar ég er í einhverju utanvegabrölti. Minna um það þegar ég er að hjóla á götunum. En ég ákvað svo bara að kaupa auka nagla til þess að setja í staðinn fyrir þessa sem hverfa.

Re: Nagladekk á reiðhjóli yfir vetrartímann

Sent: Þri 22. Okt 2019 20:58
af mikkimás
Takk fyrir svörin.

Þetta er algjör no-brainer fyrir mér núna.