Síða 2 af 3

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 15:50
af dISPo
rapport skrifaði:
worghal skrifaði:undir hámarkshraða, já, en ég vill benda þér á að sami hámarkshraði gildir á öllum akgreinum.

Hámarkshraði gildir þegar tekið er fram úr þannig að óheimilt er að taka fram úr á meiri hraða. Svo þetta gildir þegar ökumaður keyrir undir hámarkshraða á vinstri akrein.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 17:02
af depill
rapport skrifaði:
worghal skrifaði:undir hámarkshraða, já, en ég vill benda þér á að sami hámarkshraði gildir á öllum akgreinum.

Búandi í Þýskalandi get ég tekið undir með rapport. Hér er engin miskun, fólk er byrjað að reyna keyra þig niður ef þú ert á rangri akgrein, og reyndar ef þú reynir að taka framúr hægra megin máttu alveg eins búast við því að sá sem er vinstra megin reyni að negla inní þig þar sem að sá sem er vinstra megin á alltaf að geta skipt yfir á hægri akrein án þess að þurfa að horfa yfir á næstu akgrein. Tekur smá tíma að venjast, en svínvirkar.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 18:35
af ColdIce
Fólk sem fer meira en 1/4 af hringtorgi á ytri akrein

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 19:21
af Tiger
Það ætti að vera skilda að allir sem fá bílpróf fari í verklegt nám í 2 vikur í Þýskalandi.

Þá myndum við losna við þessar sjálfskipandi vegalöggur sem telja sig bera siðferðislega skildu til að halda öllum á vinstri akgrein á hámarkshraða.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 22:42
af g0tlife
Þegar þú hringir t.d. í fyrirtæki og það er einhver rödd tuðandi aaaallann tímann á repeat. ''Nú getiru notað appið blabla eða eitthvað'' I GOT IT THE FIRST 5 TIMES! Fer að sakna of háu boring tónlistina fljótlega.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 22:42
af Sydney
Annað pet peeve hjá mér er fólk sem skilur eftir heila bíl lengd í næsta bíl þegar það er stopp á ljósum og blokka þar með frárein fyrir hægri beygju.

FARÐU NÆR NÆSTA BÍL ÞANNIG AÐ ÉG GETI BEYGT.

ColdIce skrifaði:Fólk sem fer meira en 1/4 af hringtorgi á ytri akrein

Fer rosalega eftir hringtorginu. Ef 80% af umferðinni fer út eftir hálft hringtorg meikar fullkomið sens að taka hálft hringtorg á ytri akrein, t.d. öll hringtorgin á leið í mosó. En í guðanna bænum gefið þá stefnuljós til vinstri þegar farið er framhjá fyrsta exitinu!!!

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 23:04
af mainman
Fólk sem talar í bíó.
Held að það sé alveg sérstakur staður í helvíti fyrir það fólk....

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 23:09
af Sydney
mainman skrifaði:Fólk sem talar í bíó.
Held að það sé alveg sérstakur staður í helvíti fyrir það fólk....

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Mið 16. Okt 2019 23:09
af nidur
vera grenjandi yfir öllu... og gefa ekki stefnuljós...

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fim 17. Okt 2019 08:34
af rapport
Fólk sem hallar flugsætinu í botn þar sem flugsætin geta hallast næstum ofaní fangið á þeim fyrir aftan (t.d. Austrian Airlines í litlu vélunum innan evrópu)

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fim 17. Okt 2019 09:20
af rapport
dISPo skrifaði:
rapport skrifaði:
worghal skrifaði:undir hámarkshraða, já, en ég vill benda þér á að sami hámarkshraði gildir á öllum akgreinum.

Hámarkshraði gildir þegar tekið er fram úr þannig að óheimilt er að taka fram úr á meiri hraða. Svo þetta gildir þegar ökumaður keyrir undir hámarkshraða á vinstri akrein.

Beint, lokaorðin úr videoinu, sem er frá Umferðastofu og Lögreglan auglýsir sem tilmæli til ökumanna.

...það er mikilvægt að temja sér að vera ekki á vinstri akrein að óþörfu. Ef við virðum þessa reglu stuðlum við að betra flæði umferðar auk þess sem komið er í veg fyrir hættulegan svigakstur óþolinóðra ökumanna. Mundu að það er ekki þitt hlutverk að halda aftur af þeim.

Ég bætti við undirstrikun.

Umferðin á vinstri akrein á að ganga hraðar og þar á ekki að hangsa.

Og í anda þráðarins hérna, fólk fer til helvítis fyrir að vera bara fyrir á vinstri akrein.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fim 17. Okt 2019 09:54

Umferðin á að ganga hraðar á vinstri akrein að því gefnu að hún fari ekki yfir hámarkshraða. Annars á ekki að nota vinstri akrein að óþörfu og það nær einnig til þeirra einstaklinga sem eru að drífa sig og telja sig þurfa að keyra yfir hámarkshraða. Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. umferðarlaga skal ökumaður vera með ökutæki sitt eins langt til hægri og unnt er með tilliti til annarrar umferðar og aðstæðna að öðru leyti. Þannig að ef umferð á hægri akrein er undir hámarkshraða þá er kjörið að skella sér á vinstri akrein og taka fram úr enda skal það gert á vinstri akrein, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 20. gr. umferðarlaga. Þá eru engar undantekningar gerðar á hámarkshraða nema um forgangsakstur sé að ræða.

Ekki að ég sé að boða að það eigi að fylgja þessu í einu og öllu (eins og mætti vel skilja) og það er nú varla raunhæft að ætla sér alltaf framúrakstur á hámarkshraða. En það er undarlegt að pirra sig á fólki sem virðir umferðarreglur og virðir þar með eigið öryggi og annarra. Hvað varðar þá sem keyra undir hámarkshraða (og það oft vel undir) á vinstri akrein er best að segja sem minnst um :megasmile

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fim 17. Okt 2019 12:02
af jericho
Sorry fyrir hijack á þræði.

Getur einhver komið með haldbær rök fyrir því að keyra yfir hámarkshraða? Sýna ekki allar rannsóknir að slysahætta eykst með auknum hraða? Auk þess eru grænbylgjur eru stilltar á hámarkshraða. Er tímasparnaðurinn það mikill að það sé slysaáhættunnar virði? T.d. ef þú ekur 10 km/klst yfir hámarkshraða frá Háskóla Íslands til Mosfellsbæjar, þá ertu heilum 90 sekúndum fljótari en ef þú værir á hámarkshraða (gefið að það væru engin ljós á leiðinni og í frjálsu flæði).

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fim 17. Okt 2019 12:35
af Sydney
jericho skrifaði:Sorry fyrir hijack á þræði.

Ef ég keyri á löglegum hraða í vinnuna á morgnana lendi ég á 4 rauðum ljósum í röð, en allt grænt ef ég keyri aðeins of hratt.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fim 17. Okt 2019 12:55
af jericho
Sydney skrifaði:Ef ég keyri á löglegum hraða í vinnuna á morgnana lendi ég á 4 rauðum ljósum í röð, en allt grænt ef ég keyri aðeins of hratt.

Ertu að fara sömu leið og flestir (það er venjulega ekki hægt að stilla grænbylgjur samtímis í báðar áttir)?

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fös 18. Okt 2019 10:09
af rapport
jericho skrifaði:Sorry fyrir hijack á þræði.

Getur einhver komið með haldbær rök fyrir því að keyra yfir hámarkshraða? Sýna ekki allar rannsóknir að slysahætta eykst með auknum hraða? Auk þess eru grænbylgjur eru stilltar á hámarkshraða. Er tímasparnaðurinn það mikill að það sé slysaáhættunnar virði? T.d. ef þú ekur 10 km/klst yfir hámarkshraða frá Háskóla Íslands til Mosfellsbæjar, þá ertu heilum 90 sekúndum fljótari en ef þú værir á hámarkshraða (gefið að það væru engin ljós á leiðinni og í frjálsu flæði).

Ástæða fyrir að keyra yfir hámarkshraða = umferðin er almennt að keyra hraðar og sá sem keyrir hægar en allir hinir er "frávikið".

Ef maður væri einn á sauma milli akreina á of miklum hraða þá væri maður "frávikið" og ætti að skammast sín.

En þegar allir eru að keyra á 100 upp Ártúnsbrekkuna og þú ert á 80 á vinstri akrein á leið út á Kjalarnes, þá ert þú "frávikið" og ættir að skammast þín. Þetta skapar mikla slysahættu því að þetta er andstætt "best practises" í umferðinni sbr. videóið frá Umferðastofu sem Lögreglan og fleiri deildu.

Þetta snýst ekki um þessar 90 sek., þetta snýst um að vera í takt við alla hina og að skapa ekki aukna slysahættu. Á vinstri akrein skiptir miklu máli að vera ekki að safna í röð fyrir aftan sig.

Forræðishyggjan að hafa vit fyrir öllum í kringum sig "að koma þeim niður í löglegan hraða" er ekki þitt hlutverk (seinustu orðin í myndbandinu).

"Skaði" í árekstrum fer eftir hversu mikil orka losnar úr læðingi við árekstur og sannarlega þá er meiri orka í þyngd á 100km/klst. en 80 km/klst.

En bíll sem keyrir á 100 og klessir aftaná bíl á 95, þá er lítill munur á hraðanum og lítil orka losnar úr læðingu og sá sem er á 95 er líklegri til að halda stjórn á bílnum og ná að afstýra frekara tjóni. Ef hann væri á 80 þá er nánast öruggt að hann fer útaf og áreksturinn verður harkalegri.

Það er því best að allir séu á svipuðum hraða í umferðinni, ef allir eru að keyra hratt, að þú keyrir hratt líka.

Þá er algjört no no að keyra hægt á þeirri akrein sem allir aðrir keyra hratt á.

Hvað varðar áhættu þá er það sá sem er "frávikið" sem skapar áhættuna. Þó að hann sé fullkomlega löglegur þá er hann samt sá sem skapar mesta áhættu fyrir sjáfan sig og alla aðra.

Hver er auðveldasta og eðlilegasta leiðin til að lágmarka áhættuna?

Að áhættufælnir aðilar haldi sig á hægri akrein þegar það er hægt og passi sig að skapa ekki auka áhættu að óþörfu með því að vera á vinstri akrein.

Þessi leið þjónar þörfum allra og eru þessi "best practices" sem Umferðastofa kynnir og útskýrir í þessu myndbandi.

Af hverju ætti einhver áhættufælinn og óröggur að vilja keyra hægt á vinstri akrein og hvað ætti að vera öruggara við það?

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fös 18. Okt 2019 10:58
af worghal

jú jú, fólk á vinstri og allt það, EN, þér ber samt að virða lög um hámarkshraða burt séð frá því hvað aðrir gera.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fös 18. Okt 2019 12:33
af hagur
Fólk sem kann ekki á aðreinar, stoppar "efst" í reininni og bíður eftir að komast inná akbrautina, í staðinn fyrir að nota aðreinina til að komast á umferðarhraða og stinga sér svo inn þegar færi gefst.

Það fer í taugarnar á mér.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fös 18. Okt 2019 15:39
af Gerbill
Fólk sem borgar sig inn á sitjandi tónleika og lokar svo ekki á sér kjaftinum alla helvítis tónleikana og reynir helst að tala hærra heldur en tónlistin.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fös 18. Okt 2019 15:49
af davidsb
Fólk sem fer út á gatnamót þótt það sé greinilegt að þau munu ekki komast yfir, enda með að stoppa á miðjum gatnamótum og blokka aðra umferð sem er á grænu ljósi.
Einnig fólk sem fer yfir á rauðu ljósi, maður en nánast farinn að double tjékka á ákveðnum gatnamótum að það sé enginn bíll að fara yfir á rauðu áður en maður þorir að keyra af stað þegar kemur grænt.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Fös 18. Okt 2019 23:21
af C2H5OH
Fólk því meira sem ég þarf að umgangast fólk átta ég mig alltaf meira og meira á því hvað ég hata fólk in general og hvað heimskan hjá sumum á sér engin takmörk [-(

Mynd

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Lau 19. Okt 2019 01:03
af Mossi__
C2H5OH... alveg bara 3edgy5me

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Lau 19. Okt 2019 10:16
af urban
C2H5OH skrifaði:Fólk því meira sem ég þarf að umgangast fólk átta ég mig alltaf meira og meira á því hvað ég hata fólk in general og hvað heimskan hjá sumum á sér engin takmörk [-(

Allt gott og blessað og allt það.

En þegar að allir í kringum mann eru orðnir fávitar, þá er spurning hvort að maður sé ekki bara fávitinn sjálfur :)

en já, fólk fer klárlega til helvítis þegar að það kemur niður tröppur og stoppar neðst til að spjalla við einhvern, spáir ekkert í öllum hinum sem að eru á leiðinni.
Sama á við um útganga og álíka.
Verð sérstaklega var við þetta þegar að fólk er að koma útúr herjólfi t.d.
En það sama á svo sem við um leifstöð.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Lau 19. Okt 2019 11:17
af Viktor
Þessi þráður á heima á Útvarpi Sögu.

Sammála Urban:

Þegar fíflunum fjölgar í kringum þig er kominn tími til að líta í eigin barm.

Re: Fólk fer til helvítis fyrir að...

Sent: Lau 19. Okt 2019 13:34
af rapport
Sallarólegur skrifaði:Þessi þráður á heima á Útvarpi Sögu.

Sammála Urban:

Þegar fíflunum fjölgar í kringum þig er kominn tími til að líta í eigin barn.

Lesist sem...

Fólk fer til helvítis þegar fíflunum fjölgar í kringum það.