Síða 1 af 1

Þið vitið þetta kannski/PS4 vandræði

Sent: Lau 12. Okt 2019 07:40
af HalistaX
Sælir drengir,

Reyndi með þetta á tvem grúbbum á Facebook, "Tölvuleikjasamfélagið" og "PS4 á Íslandi", og senti ég líka email á Senu þar sem Ólafur Þór Jóelsson svaraði mér og er það í vinnslu, en Facebook vissi ekki svarið við þessu allavegana...

Ég keypti mér notaða PS4 Pro 2. Október og allt í góðu með það, það var fullt af einhverju shitti inná henni sem ég skil alveg að ég geti ekki notað því t.d. Red Dead Redemption 2 install'ið sem fylgdi tölvuni er læst á aðganginn sem hann var keyptur á, en málið er að annað slagið, liggur við hvert skipti, sem ég reyni að sækja eitthvað af PS Store, hvort sem það sé frítt eða keypt, þá þarf ég að staðfesta korta upplýsingarnar með Exp. Date og CVC...

Afhverju þarf ég að gera það? Þegar ég sótti Spotify þá þurfti ég að staðfesta kortið mitt, þegar ég keypti Rocket League þá þurfti ég að staðfesta kortið, þegar ég sótti Youtube appið þá þurfti ég að staðfesta kortið... What the fuck?

Kann einhver á þetta eða? Hefur einhver lent í svipuðu og fundið lausnina?

Endilega dazzle me with some of the Vaktin good stuff knowledge!

Takk fyrir mig! Kær kveðja!

Re: Þið vitið þetta kannski/PS4 vandræði

Sent: Lau 12. Okt 2019 12:34
af bits

Re: Þið vitið þetta kannski/PS4 vandræði

Sent: Lau 12. Okt 2019 15:24
af HalistaX
bits skrifaði:https://www.reddit.com/r/PS4/comments/97gz0g/psn_store_keeps_asking_me_to_verify_account_with/ ?

Var að prufa þetta, sjáum hvað setur...