Síða 1 af 1

Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 13:25
af rbe
Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 13:38
af mikkimás
Um leið og ég eignast nægan pening til að kaupa mér allt sem mig vantar, þá verð ég ánægður.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 14:34
af playman
Um leið og ég eignast nægan pening, þá verð ég ánægður.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 14:40
af Diddmaster
um leið og ég næ að vera sáttur við sjálfan mig skiptir eingu hvaða hluti ég á

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 14:43
af Klemmi
Diddmaster skrifaði:um leið og ég næ að vera sáttur við sjálfan mig skiptir eingu hvaða hluti ég á


Held það sé það sama hjá fyrri ræðumönnum, nema hvað það er ríkt í okkur að samsvara sjálfið með veraldlegum eignum.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 14:46
af Tbot
Peningar eru ekki allt, þó það sé ágætt að eiga nóg svo þú og fölskyldan líði ekki skort.

Það að eignast heilbrigð börn og að ná að koma þeim til manns, er held ég draumur/löngun allra foreldra.
Því þetta er stærsta happdrætti lífsins.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 14:50
af Baldurmar
Whoever said money can't solve your problems
Must not have had enough money to solve 'em
-Ariana Grande

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 14:54
af Hauxon
Þið eruð ekki með áhuga á hljómtækjum er það? ](*,)

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 15:05
af Tbot
Baldurmar skrifaði:
Whoever said money can't solve your problems
Must not have had enough money to solve 'em
-Ariana Grande


Orð í þvílíku hugsunarleysi frá henni.
Peningar duga skammt fyrir fólkið sem missti ættingja á tónleikum hennar í Manchester 2017.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 16:28
af einarhr
Af eigin reynslu þá eru það vinir og fjölskylda sem sem er það eina sem skiptir máli. Ég varð mjög veikur fyrir 6 árum, fékk hjartastopp og vinur minn pumpaði mig í 28 mín. Hann bjargaði lífi mínu, það er aðeins 20% líkur að lifa af hjartastopp.
Eftir þetta var ég óvinnufær og tekjulaus á Íslandi þar sem ég bjó í Svíþjóð þegar þetta gerðist. Fjölskylda og vinir héldu mér uppi í þá 6 mánuði sem ég var utan kerfis og svo áfram þegar ég var að reyna að koma mér á vinnumarkaðinn.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 18:07
af Mossi__
Það er til nóg klám á internetinu.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fim 10. Okt 2019 18:10
af Mossi__
Einarhr.. þetta er svakalegt að heyra.
Vonandi gengur þér vel í dag. Knúsaðu vin þinn frá mér.

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fös 11. Okt 2019 00:07
af emil40
Sem öryrki þá myndi ég miklu frekar hafa góða heilsu en allt sem hugurinn girnist þótt að það væri gaman líka. Heilsan er samt númer eitt að mínu mati þá bæði andleg og líkamleg. Ef maður er ekki með góða heilsu þá skiptir hitt ekki miklu máli, þótt að maður sé ánægðari ef maður á flotta hluti eins og góða tölvu :)

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fös 11. Okt 2019 00:20
af Squinchy
Hauxon skrifaði:Þið eruð ekki með áhuga á hljómtækjum er það? ](*,)

Haaah tengi :megasmile

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fös 11. Okt 2019 10:37
af Hauxon
Ég var að horfa á þátt um Bill Gates á Netflix í gær. Þar kom fram að hann er gríðarlega stundvís. Tíminn er eitt af því fáa sem ríka fólkið getur ekki keypt, þau fá jafn mikið og við hin. Svo er bara auðvitað spurning hvað maður gerir við tímann sem maður hefur til ráðstöfunar. :)

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fös 11. Okt 2019 11:00
af surgur
Þeir sem tala um að peningar veiti mesta hamingju eru augljóslega ekki búnir að fjölga sér :)

Re: Þegar þig vantar alls ekki neitt lengur er þér loksins batnað. :)

Sent: Fös 11. Okt 2019 12:15
af Jón Ragnar
Hauxon skrifaði:Ég var að horfa á þátt um Bill Gates á Netflix í gær. Þar kom fram að hann er gríðarlega stundvís. Tíminn er eitt af því fáa sem ríka fólkið getur ekki keypt, þau fá jafn mikið og við hin. Svo er bara auðvitað spurning hvað maður gerir við tímann sem maður hefur til ráðstöfunar. :)



Tími er mjög mikilvægur. Verst að maður sólundar honum alltof mikið