Dominos pizzurnar...

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Dominos pizzurnar...

Pósturaf appel » Fim 26. Sep 2019 21:23

Jæja, megavika, búinn að panta einu sinni, býst ekki við að ég panti aftur... bíð eftir að þessi megavika er búin til að fá betri pizzu frá þeim.

Er einhver annar en ég sem finnst að þegar dominos er með einhver svaka tilboð, nettilboð, þriðjudagstilboð, megaviku eða álíka þegar það er mikið að gera þá eru pizzurnar í lægri gæðum heldur en vanalega? Það er eitthvað sem gerir þær að B pizzum finnst mér, meira cheap og botninn yfirleitt ekki eins vel bakaður. Nota þeir annað deig eða hvað? Hefur ofninn ekki undan að baka? Eitthvað hljóta þeir að vera spara, ég trúi ekki að þetta sé bara álag.

Þessu tengt, þá finnst mér stærri pizzurnar 15" mun verri yfirleitt heldur en 12" pizzurnar. Það er eitthvað við 12" sem gerir þær meira jömmí.


*-*

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf Viktor » Fim 26. Sep 2019 21:37

Ég fékk hráa pönnupizzu í gær.

Þegar það er þriðjudagstilboð þá setja þeir sósu og ost á fullt af botnum og geyma þær í rekkum, vel yfir stofuhita í ég veit ekki hvað langan tíma.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf appel » Fim 26. Sep 2019 22:02

Sallarólegur skrifaði:Ég fékk hráa pönnupizzu í gær.

Þegar það er þriðjudagstilboð þá setja þeir sósu og ost á fullt af botnum og geyma þær í rekkum, vel yfir stofuhita í ég veit ekki hvað langan tíma.


Já, ég sá þetta um daginn, kveikti ekki á perunni hvað var um að vera, hélt að það væri bara stór pöntun í gangi.


*-*

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf worghal » Fim 26. Sep 2019 23:23

hérna er frekar galin hugmynd, ekki panta dominos, það eru til svo mikið betri staðir.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


Funday
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Fim 12. Nóv 2015 06:39
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf Funday » Fim 26. Sep 2019 23:39

Mæli með pizzan.is mikið betri pizzur og þeir eru ekki að spara álegg eins og dominos gerir einnnig er pizzan með mánudags og þriðjudags tilboð á miðstærð með 3 áleggjum



Skjámynd

Sydney
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Lau 29. Mar 2008 19:26
Reputation: 55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf Sydney » Fim 26. Sep 2019 23:40

Eldofninn er alltaf #1 hjá mér.


Gigabyte X570 Aorus Ultra | Ryzen 9 5900X | Corsair Vengeance RGB Pro 32GB 3200MHz CL16 | Fractal Design Define S
Aorus Xtreme RTX 2080 Ti | 500GB Samsung 980 Pro | Corsair AX860 | ROG Swift PG279Q
Ducky YOTM | Glorious Model O | Sennheiser HD650 | Thrustmaster Warthog HOTAS
Thinkpad X1 Yoga 2nd Gen OLED


pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf pepsico » Fös 27. Sep 2019 01:25

Vandamálin eru mörg; þú hnoðar deig ekkert jafn vel ef þú ert að gera það tíu sinnum á mínútu og ef þú tekur þér tíma í það, það sama með dreifinguna á sósunni, því næst er álegginu nánast kastað á í stað þess að vera raðað, pizzan fer inn í pakkaðan ofn og það er ekki endilega neinn sem getur gefið sér tíma til að sprengja bólur ef þær myndast, svo getur verið örtröð við hinn endann vegna einhvers vandamáls og þá eru pizzur að ofbakast við að vera stopp þar í stað þess að fara strax í kassann, pizzan sömuleiðis ekki skorin jafn vel og ef einhver væri að dunda sér við það, og síðast en alls ekki síst þá er pizzan líklega mikið lengur bíðandi í hitagrillinu meðan þið eruð að bíða eftir afgreiðslu & afhendingu og pizzan því eldri en öllu jafna þegar þið borðið hana.




Sinnumtveir
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 149
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf Sinnumtveir » Fös 27. Sep 2019 01:28

Veldur hver á heldur. Stundum fær maður aldeilis stórfína pizzu hjá Dominos, ..., stundum ekki. Sömu græjurnar, sama hráefnið, "sama" framleiðsluferlið: einn gerir frábæra pizzu en annar lélega. Tötsjið er dálitið mikið málið í pizzugerð. Pizzur @ dominos í Mosó eru yfirleitt mjög góðar, meðan pizzur frá Dominos @ árbær eru talsvert sjaldnar mjög góðar. En ef menn vilja frábæra Dominos pizzu, þá var til skamms tíma einn náungi í Kringlunni sem var óviðjafnalegur @ dominos, algjör snilli.

Tötsjið skiptir líka máli í kaffigerð. Sama, sama, sama, en tvær persónur: Gott kaffi hjá annarri alltaf en vont hjá hinni, alltaf.

Það er hægt að draga úr áhrifum "tötsins" með þjálfun þeirra sem eru "án", en útilokað að útrýma virkni þess.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf rapport » Fös 27. Sep 2019 09:42

Hverjir hér eru nógu gamlir til að muna eftir pizzusneiðunum á BSÍ?

Vann þarna í bílalúgunni og það var umtalað að þetta væru bestu og mest sleezý pizzur landsins.

Fyrir vikið kom Dawid Bowie þarna í limmó eftir tónleikana sína, í bílalúguna og pantaði 8 sneiðar (heila pizzu) og greiddi 2.000 kr. fyrir. Á þessum tíma var sígarettupakkinn á 290 eða 360, man það ekki og magic orkudrykkur var nýr á markaði og fólk var að fússa yfir hvað hann væri dýr 150kr.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf appel » Fös 27. Sep 2019 09:54

Bara svona til að segja, þá eru langbestu pizzurnar sem hægt er að fá á landi hér að finna hjá Flatbökunni í Bæjarlind kóp.
Þvílíkt yummy eldbakaðar pizzur.


*-*

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf worghal » Fös 27. Sep 2019 10:56

appel skrifaði:Bara svona til að segja, þá eru langbestu pizzurnar sem hægt er að fá á landi hér að finna hjá Flatbökunni í Bæjarlind kóp.
Þvílíkt yummy eldbakaðar pizzur.

næstum því allt er betra en dominos =;
ég er til dæmis búinn að vera að verlsla mikið við wilsons undanfarið og hafa þeir komið svakalega á óvart


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Tengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf Tiger » Fös 27. Sep 2019 11:58

Devitos á Hlemmi finnst mér toppurinn. Keyri frá Völlunum stundum á Hlemm bara til að sækja.


Mynd

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf rapport » Fös 27. Sep 2019 12:35

Tiger skrifaði:Devitos á Hlemmi finnst mér toppurinn. Keyri frá Völlunum stundum á Hlemm bara til að sækja.


Þekki einn alinn upp á Njálsgötunni sem býr á Reyðarfirði í dag sem segist keyra til Reykjavíkur til að fá sér Devitos, a.m.k. fær sér í hvert snn sem hann kemur í borg óttans.




Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf Sporður » Fös 27. Sep 2019 12:48

rapport skrifaði:Hverjir hér eru nógu gamlir til að muna eftir pizzusneiðunum á BSÍ?

Vann þarna í bílalúgunni og það var umtalað að þetta væru bestu og mest sleezý pizzur landsins.

Fyrir vikið kom Dawid Bowie þarna í limmó eftir tónleikana sína, í bílalúguna og pantaði 8 sneiðar (heila pizzu) og greiddi 2.000 kr. fyrir. Á þessum tíma var sígarettupakkinn á 290 eða 360, man það ekki og magic orkudrykkur var nýr á markaði og fólk var að fússa yfir hvað hann væri dýr 150kr.


Tónleikarnir voru í júní 1996.
Samkvæmt verðlagsreiknivél hagstofunnar jafngilda 2000 krónur þá, 5315 krónum í ágúst 2019




gutti
Bara að hanga
Póstar: 1580
Skráði sig: Lau 19. Apr 2003 22:56
Reputation: 44
Staðsetning: REYKJAVIK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dominos pizzurnar...

Pósturaf gutti » Fös 27. Sep 2019 16:18

Enda er litíð panta frá dominos núna panta frá pizzan er betra en hinar