Að kaupa notaðan bíl - Ráð?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1246
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 374
Staða: Ótengdur

Að kaupa notaðan bíl - Ráð?

Pósturaf Njall_L » Þri 06. Ágú 2019 16:41

Sælir vaktarar

Nú er ég að hugsa um að kaupa mér notaðan bíl af bílasölu og vantar ráðleggingar með hvað er sniðugt að hafa í huga til að kaupa ekki köttinn í sekknum.

Ég áætla að fara með bílinn í þjónustuskoðun, eru einhver verkstæði betri en önnur?
Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er notaður bílaleigubíll, er eitthvað sem þarf sérstaklega að varast í þeim?
Ef eitthvað finnst að, mekanískt, útlitslegt eða annað, hversu mikið rými get ég áætlað til að semja um verð á bílnum?

Öll ráð eru vel þegin, ekki bara þau sem ég taldi upp hér að ofan


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 772
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 224
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?

Pósturaf Dropi » Þri 06. Ágú 2019 16:46

Njall_L skrifaði:Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er notaður bílaleigubíll, er eitthvað sem þarf sérstaklega að varast í þeim?


Það var nú stór skandall um árið með bílaleigubíla setta á endursölu með kílómetramælinn færðan tilbaka. Stundum um fleiri tugi þúsund kílómetra, gott að hafa þetta í huga. :) En þetta var svo stórt mál á sínum tíma að mér finnst ólíklegt að einhver reyni þetta núna, en það er aldrei að vita...


34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - ASRock B450M-Pro4 - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS

Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?

Pósturaf HalistaX » Þri 06. Ágú 2019 17:07

Þjónustuskoðunin sem þú nefndir er eitt, tvö og þrjú í mínum huga! Áður en ég keypti minn síðasta þá komu þrjú skipti í röð þar sem ég hugsaði "What's the worst that could happen??" og keypti 3 mishandónýta bíla sem endust misvel en allir illa samt sem áður!

Og svo er lang best að nota "Buddy-Systemið", þar að segja vera með einhvern félaga og vin sem þú treystir og kann bíla eins og handabakið á sér með þér þegar þú skoðar bílinn og prufukeyrir! Það klikkar seint sem aldrei!


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Baldurmar
FanBoy
Póstar: 784
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?

Pósturaf Baldurmar » Þri 06. Ágú 2019 17:12

Söluskoðun/Þjónustuskoðun !

Fyrst að þetta er bílaleigubíll skaltu reyna fá eins mikið af pappírum og eru til frá þeim.
  • Hvenær og hvað hefur verið lagað, hvenær og hversu oft var hann "skoðaður" (væntanlega er þetta nýr bíll og hefur því ekki þurft venjulega ársskoðun)
  • Hvenær og hversu oft var skipt um olíu; olíusíu, loftsíur og frjókornasíur
  • Hefur verið skipt um/bætt á olíu á gírkassa/skiptingu (Þarf ekki endilega að hafa verið gert)
  • Hefur einhverntíma þurft að lagfæra eitthvað í stýrisbúnaði
  • Ástand á bremsuklossum/diskum

Passaðu svo bara að km fjöldinn á þessu pappírum stemmi við dagsetningar:

Dropi skrifaði:
Njall_L skrifaði:Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er notaður bílaleigubíll, er eitthvað sem þarf sérstaklega að varast í þeim?


Það var nú stór skandall um árið með bílaleigubíla setta á endursölu með kílómetramælinn færðan tilbaka. Stundum um fleiri tugi þúsund kílómetra, gott að hafa þetta í huga. :) En þetta var svo stórt mál á sínum tíma að mér finnst ólíklegt að einhver reyni þetta núna, en það er aldrei að vita...


Miðað við að Procar hefur ekki þurft að loka eða fengið neina sekt þá finnst mér ekkert ólíklegt að það séu fleiri í þessu... :mad :mad


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb


Predator
1+1=10
Póstar: 1173
Skráði sig: Lau 01. Nóv 2003 23:57
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?

Pósturaf Predator » Þri 06. Ágú 2019 17:23

Alltaf gott að fá söluskoðun á bílinn. Ef þú ert að kaupa af Avis(ALP), Hertz eða Höldur þá á viðhaldi að hafa verið sinnt vel ekki eins vel veit ég hjá Bílaleigu Kynnisferða en þarft ekki að hafa áhyggjur af kílómetrastöðu hjá þessum aðilum því það er allt í standi. Átt að geta sótt ábyrgð til þessara aðila í amk 6 mánuði eftir kaup en þá að sjálfsögðu á stórum hlutum eins og vél og gírkassa en ekki bremsum.

Ef eitthvað er að bílnum þá eru þessir 3 aðilar amk oftast tilbúnir að laga það sem umræðir fyrir þig og hægt að fá það skráð í afsal.


Ryzen 2600x - 24GB 2400MHz DDR4 - Phoenix GTX 1080 GLH 8GB - Gigabyte B450M DS3H

Skjámynd

Höfundur
Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1246
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 374
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?

Pósturaf Njall_L » Þri 06. Ágú 2019 21:06

Predator skrifaði:...ekki eins vel veit ég hjá Bílaleigu Kynnisferða...

Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er akkúrat í eigu Bílaleigu Kynnisferða, takk fyrir þetta input

Baldurmar skrifaði:Fyrst að þetta er bílaleigubíll skaltu reyna fá eins mikið af pappírum og eru til frá þeim.

Góð pæling, var ekki endilega búinn að pæla í þessu.

Varðandi kílómetramælinn þá er það eina atriðið sem ég er smeykur við varðandi bílaleigubíl. En auðvitað gætu einstaklingar líka unnið þessar aðgerðir ef þeir vildu. Aðal málið sýnist mér að skoða bílinn vel og fá mat frá þriðja aðila.


Löglegt WinRAR leyfi