Síða 1 af 1

Flytja tölvu og skjá milli landa

Sent: Þri 25. Jún 2019 12:44
af Raskolnikov
Er að flytja til Spánar í um ár. Ætla ekki að taka neina búslóð með, en langar að taka tölvuna með, þ.e. miðlungs turn og 27" skjá og er að velta því fyrir mér best sé að framkvæma það, þ.e. hvort ég komist jafnvel upp með að troða þessu einfaldlega í ferðatösku. Einhver framkvæmt slíkt?

Re: Flytja tölvu og skjá milli landa

Sent: Þri 25. Jún 2019 14:06
af Tbot
Flutti fyrir 20 árum bara turn, átti til kassann af turninum og það var ekkert mál.

Re: Flytja tölvu og skjá milli landa

Sent: Þri 25. Jún 2019 14:49
af Dropi
Ég gerði þetta 2017 og kem til með að gera aftur núna í lok þessa árs. Þegar ég fór út þá seldi ég 34" ultrawide skjáinn hér á vaktinni og keypti splunkunýjann 34" curved fyrir svipaðann pening með meiri upplausn, núna sit ég þó í súpunni því mig langar að taka hann með mér heim.

Varðandi turnkassann þá seldi ég ATX móðurborðið mitt og skildi turninn sjálfan eftir, keypti svo MATX móðurborð og kassa úti og setti örgjörva, harðadiska, skjákort ofl í þann kassa, sem er minni. Mikið einfaldara að taka þetta í pörtum og pakka með fötunum. :)

Ég hafði þó þann lúxus að ferðast til Íslands mánaðarlega síðan ég flutti vegna vinnu, hef tekið mikið dót með mér þannig.

Vinur minn flutti út í fyrra og hann henti þessu bara í tösku, ég sagði honum að passa sig en það fór þó ágætlega þó hann passaði sig ekki. Ekkert brotnaði.

Re: Flytja tölvu og skjá milli landa

Sent: Þri 25. Jún 2019 15:08
af Viktor
Ég myndi ekki nenna að ferðast með turn, heldur taka bara íhlutina úr honum og kaupa mér nýjan eftir ferðalagið ;)