Síða 4 af 5

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 17:32
af g0tlife
Storm skrifaði:https://www.origo.is/um-origo/frettir/frett/item137305/tolvutek-tekur-til-starfa-a-ny/?fbclid=IwAR0avNdavH2CteFMp7ZivGwmdbbDqiL8AIEuokr7roehSPraX0sjo9yA88c
Tölvutek tekur til starfa á ný
11.07.2019

Tölvutek, sem hætti starfsemi í sumar, mun taka til starfa að nýju á næstu vikum, en nýtt félag verður dótturfélag Origo, með aðkomu nokkurra starfsmanna Tölvuteks.

Tölvutek í nýrri mynd mun einbeita sér að sölu á búnaði og lausnum til einstaklinga og heimila. Fyrirtækið mun meðal annars bjóða Lenovo tölvur fyrir einstaklingsmarkað auk tölvubúnaðs frá öðrum þekktum vörumerkjum.

Origo mun einbeita sér að sölu og markaðssetningu á Lenovo tölvum og tengdum búnaði til fyrirtækja og stofnana. Ábyrgðarþjónusta Tölvuteks verður hjá Origo.

Stefnt er að opnun Tölvuteks innan nokkurra vikna á tveimur stöðum í Reykjavík og á Akureyri.

Áhugavert! Hlakka til að sjá hvernig þetta verður útfært

:pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 19:34
af vesley
Gjaldþrota 3 júlí. Opnar aftur mánuði seinna.

Kennitöluflakk anyone?
Forvitinn að sjá hvort fréttir berist af því hvort eignir voru eftir í kennitölunni fyrir skuldir.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 21:03
af appel
Gott mál, meiri samkeppni!

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 21:06
af Viktor
Verður ágætt að geta keypt eitthvað annað en Asus skjái aftur :baby

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 21:13
af Skaz
Þetta eru jákvæðar fréttir.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 21:14
af nidur
Hehe samkeppni, Origo að tryggja sér nafnið og facebook accountinn til að selja meira af lenvo :) og fá fullt að gera fyrir verkstæðið.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 21:27
af Límband
vesley skrifaði:Gjaldþrota 3 júlí. Opnar aftur mánuði seinna.

Kennitöluflakk anyone?
Forvitinn að sjá hvort fréttir berist af því hvort eignir voru eftir í kennitölunni fyrir skuldir.

wat

Þú virðist misskilja hugtakið kennitöluflakk. Origo keypti væntanlega eignir þrotabús Tölvuteks.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 21:53
af Labtec
Límband skrifaði:
vesley skrifaði:Gjaldþrota 3 júlí. Opnar aftur mánuði seinna.

Kennitöluflakk anyone?
Forvitinn að sjá hvort fréttir berist af því hvort eignir voru eftir í kennitölunni fyrir skuldir.

wat

Þú virðist misskilja hugtakið kennitöluflakk. Origo keypti væntanlega eignir þrotabús Tölvuteks.

En var það ekki planið til að byrja með? midað við skyndilega lokun. enga brúnautsölu eða neitt

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 22:00

Það sem ég meina með því er hvort allt var selt úr kennitölunni en skuldir urðu eftir.
Ég er ekki að gefa það endilega í skin, heldur finnst mér sérkennilegt að fyrirtækið fari aftur svo fljótt á lappir aftur með "lykilstarfsmönnum" Tölvutek. Þó Origo sé hinn nýji eigandi.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 22:09
af Límband
Labtec skrifaði:
Límband skrifaði:
vesley skrifaði:Gjaldþrota 3 júlí. Opnar aftur mánuði seinna.

Kennitöluflakk anyone?
Forvitinn að sjá hvort fréttir berist af því hvort eignir voru eftir í kennitölunni fyrir skuldir.

wat

Þú virðist misskilja hugtakið kennitöluflakk. Origo keypti væntanlega eignir þrotabús Tölvuteks.

En var það ekki planið til að byrja með? midað við skyndilega lokun. enga brúnautsölu eða neitt

Það er auðvitað brunaútsala í sjálfu sér að skiptastjóri selji Origo eignir þrotabúsins. Þegar um er að ræða nýtt eignarhald finnst mér fjarstæðukennt að kalla þetta kennitöluflakk. Það væri annað ef fyrrum eigendur hefðu hreinlega fært eignir yfir á aðra kennitölu í sinni eigu.

Ég er samt að gera ráð fyrir því að fyrrum eigendur Tölvuteks tengist Origo ekki neitt. Er það ekki alveg rétt?

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 22:09
af Límband
vesley skrifaði:
Límband skrifaði:
vesley skrifaði:Gjaldþrota 3 júlí. Opnar aftur mánuði seinna.

Kennitöluflakk anyone?
Forvitinn að sjá hvort fréttir berist af því hvort eignir voru eftir í kennitölunni fyrir skuldir.

wat

Þú virðist misskilja hugtakið kennitöluflakk. Origo keypti væntanlega eignir þrotabús Tölvuteks.

Það sem ég meina með því er hvort allt var selt úr kennitölunni en skuldir urðu eftir.
Ég er ekki að gefa það endilega í skin, heldur finnst mér sérkennilegt að fyrirtækið fari aftur svo fljótt á lappir aftur með "lykilstarfsmönnum" Tölvutek. Þó Origo sé hinn nýji eigandi.

Já þú meinar, meikar sense. Myndi samt halda að þetta hafi verið gert í miklum flýti vegna þess að lager í þessum bransa verður ansi hratt úreltur.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 06:28
af Hjaltiatla
Ef þeir fá afskrifað einhverja háa upphæð og fá að starfa undir sama nafni þá finnst mér það frekar óeðlilegt gagnvart samkeppnisaðilum.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 07:35
af rapport
Er Origo ekki búið að vera kaupa önnur fyrirtæki í vandræðum sbr. Strikamerki. Þetta er hugsanlega bara vel útfærð yfirtaka sem fólk í sér að losna undan leigusamningum og skuldbindingum sem Origo vildi ekki kaupa með rekstrinum.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 11:27
af worghal
var að keyra þarna framhjá, ekki búið að hreyfa við neinum vörum. ætla að giska að þetta opni aftur á sama stað alveg óbreytt frá lokun

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 13:51
af Skaz
Hjaltiatla skrifaði:Ef þeir fá afskrifað einhverja háa upphæð og fá að starfa undir sama nafni þá finnst mér það frekar óeðlilegt gagnvart samkeppnisaðilum.

Miðað við fréttaflutning þá er Origo að kaupa reksturinn út úr þrotabúinu sem fær pening fyrir það sem að kröfuhafar eiga tilkall í að fá.

Það er enginn að fá neitt afskrifað. Hvort að Origo heldur sömu stjórnendum og starfsfólki er annað mál. Það er samt dagsljóst að þetta er ekki kennitöluflakk eða afskriftir.

Þetta byggist að sjálfsögðu á núverandi fréttum og þær eru ekkert of ítarlegar.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 14:31
af Hjaltiatla
Skaz skrifaði:Miðað við fréttaflutning þá er Origo að kaupa reksturinn út úr þrotabúinu sem fær pening fyrir það sem að kröfuhafar eiga tilkall í að fá.

Það er enginn að fá neitt afskrifað. Hvort að Origo heldur sömu stjórnendum og starfsfólki er annað mál. Það er samt dagsljóst að þetta er ekki kennitöluflakk eða afskriftir.

Þetta byggist að sjálfsögðu á núverandi fréttum og þær eru ekkert of ítarlegar.

Vonandi, þá er þetta bara hið besta mál. En eðlilegt að velta þessu fyrir sér miðað við það sem á undan hefur gengið í afskrifa skuldir hjá "feitu" fyrirtækjunum sem safna skuldum og fá að halda áfram rekstri undir sama nafni.
Ekki eðlilegt að mínu mati að halda uppi rekstri undir sama "vörumerki" og fá skuldir afskrifaðar þó svo að áherslubreytingar séu gerðar.
Þá er verið að gera upp á milli fyrirtækja í samkeppni (Þó svo að ég skilji að kröfuhafar vilji fá til baka sem þeir eiga í skuldum).

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 16:14
af depill
Er ekki bara málið að Origio telur Tölvutek vera sterkara vörumerki á B2C markaði ? Og Origio muni bara hætta með sínar B2C búðir og nota Tölvutek í staðinn, Origio mun svo herja meira á B2B markaðinn.

Þannig geta þeir leyft sér að "de-valuea" Tölvutek brandið og gert Origio að meira premium brandi.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 17:08
af pepsico
Tölvutek er náttúrulega með ótrúlega skilvirkt verkstæði á blaði--alveg óvart af því að þeir virðast mér gera það eins ómögulegt og tímafrekt og mögulegt er fyrir kúnna að sækja rétt sinn í ábyrgðarmálum. Kannski héldu Origo að verkstæðið væri svona sterkt á blaði vegna þess að þeir væru vel rekið batterý. Get sjálfur allavega ekki ímyndað mér verri álitshnekk fyrir premium vörumerki en að tengja sig allt í einu við Tölvutek.

Hérna eru tvær tilvitnanir í tvær æðislegar kvittanir hjá Tölvutek:
Kvittun 1: [K]veikt var á skjá og bilun staðfest. Ljós lína er lárétt yfir neðri helming skjás. Kemur mjög augljóslega fram á dökkum bakgrunn. [S]kipt var um panel í skjá og virkar hann þá eðlilega.
Kvittun 2: [L]ína á skjá er mjög dauf, langtum daufari heldur en lína sem var á skjá þegar hann kom áður. Þetta er eitthvað sem er ekki nóg til að falla undir ábyrgð og telst innan eðlilegra marka á þessum skjá. Til að koma til móts við viðskiptavin er greiningargjald fellt niður.

Svo ótrúlega fallegt af þeim að koma svona til móts við viðskiptavininn að rukka hann ekki fyrir að biðja þá um að laga skjáinn sem þeir afhentu honum bilaðan úr viðgerð. Duttu úr mér augun þegar ég las þetta fyrst. Í eitt skiptið af ca fjórum beið hann í fimm vikur til að fá skjáinn til baka af verkstæðinu--ennþá bilaðan. Fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér þá er ekki um að ræða backlight bleed.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 21:19
af birgirb13
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... yjum_stad/

Samkvæmt þessu verður verslun Tölvuteks opnuð á nýjum stað og verður nokkuð minni en núverandi búð. Origo mun breyta sinnni verslun í Borgartúni þar sem áherslan mun aðallega verða á hljóð og myndlausnir.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fös 12. Júl 2019 21:21
af HalistaX
birgirb13 skrifaði:https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2019/07/12/verslun_tolvuteks_opnud_a_nyjum_stad/

Samkvæmt þessu verður verslun Tölvuteks opnuð á nýjum stað og verður nokkuð minni en núverandi búð. Origo mun breyta sinnni verslun í Borgartúni þar sem áherslan mun aðallega verða á hljóð og myndlausnir.

Son of a bitch, you beat me to it!

Var að skrolla á þetta í Facebook News Feed'inu mínu...

Þetta eru frábærar fréttir held ég. Vona að þetta gangi sem best! :happy

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Lau 13. Júl 2019 01:52
af jonfr1900
Skaz skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Ef þeir fá afskrifað einhverja háa upphæð og fá að starfa undir sama nafni þá finnst mér það frekar óeðlilegt gagnvart samkeppnisaðilum.

Miðað við fréttaflutning þá er Origo að kaupa reksturinn út úr þrotabúinu sem fær pening fyrir það sem að kröfuhafar eiga tilkall í að fá.

Það er enginn að fá neitt afskrifað. Hvort að Origo heldur sömu stjórnendum og starfsfólki er annað mál. Það er samt dagsljóst að þetta er ekki kennitöluflakk eða afskriftir.

Þetta byggist að sjálfsögðu á núverandi fréttum og þær eru ekkert of ítarlegar.

Ég veit ekki mikið um svona viðskiptahætti en það sem ég fann (hérna) bendir til þess að þeir kaupi eignirnar útúr þrotabúinu. Stofna líklega nýtt félag (það tekur smá tíma) um eignir sem keyptar voru úr þrotabúinu. Þetta er ekki beint kennitöluflakk eins og þetta er sett upp hjá Origo þar sem nýja fyrirtækið er dótturfélag Origo en þetta er mjög nærri því að vera slíkt. Líklega verður síðan dótturfélagið um Tölvutek selt síðar úr Origo til þriðja aðila (eftir einhverja mánuði).

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Lau 13. Júl 2019 13:39
af depill
jonfr1900 skrifaði:

Mig langar ekki sérstaklega að vatnaniður kennitöluflakk. Kennitöluflakk er þegar fólk heldur rekstrinum áfram(og tekur eignir úr félaginu) enn skilur eftir skuldir í eldra rekstrarfélagi án þess að kaupa þær eignir úr félaginu.

Origio fór og bara keypti nafnið út úr Tölvutek ( annað hvort með uppgjöf á kröfum eða hreinu féi sem fer eftir skiptastjóra ) þar sem þeir sjá tækifæri í því að hafa B2B business og B2C business að mestu aðskilið. Ég held þetta sé fín stefna hjá Origio og hlakka til að sjá nýja Tölvutek.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Lau 13. Júl 2019 18:12
af Predator
depill skrifaði:

Já þeir sem kalla þetta kennitöluflakk skilja augljóslega ekki hvernig slíkt fer fram.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Lau 13. Júl 2019 19:19
af steini_magg
Vitið þið hvenær ca áætlaður opnun verður?

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Lau 13. Júl 2019 20:31
af urban
Skaz skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Ef þeir fá afskrifað einhverja háa upphæð og fá að starfa undir sama nafni þá finnst mér það frekar óeðlilegt gagnvart samkeppnisaðilum.

Miðað við fréttaflutning þá er Origo að kaupa reksturinn út úr þrotabúinu sem fær pening fyrir það sem að kröfuhafar eiga tilkall í að fá.

Það er enginn að fá neitt afskrifað. Hvort að Origo heldur sömu stjórnendum og starfsfólki er annað mál. Það er samt dagsljóst að þetta er ekki kennitöluflakk eða afskriftir.

Þetta byggist að sjálfsögðu á núverandi fréttum og þær eru ekkert of ítarlegar.

Jú það er alveg öruggt mál að það verður eitthvað afskrifað, annars væri fyrirtækið ekki gjaldþrota.
Fyrirtæki eru ekki sett í gjaldþrotaskipti ef að þau geta borgað skuldir sínar eða ef það er hægt að selja þau fyrir skuldum.

Aftur á móti er þetta alls ekki kennitöluflakk, það er alveg klárt mál.