Síða 3 af 5

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Þri 25. Jún 2019 13:45
af Tbot
Sallarólegur skrifaði:
Tbot skrifaði:Kenna húsnæðinu um að reksturinn fór á hausinn. Það var enginn nema þeir sjálfir sem ákváðu þennann flutning.
Penninn gafst upp á þessu húsnæði og fyrst þetta var svona dýrt húsnæði, hvers vegna fluttu þeir ekki þá ekki strax og aðvörunarljósin lýstu um að þetta var ekki að ganga?

Og ætluðu sér að herja á fyrirtækjamarkaðinn, fer oft illa þegar menn ætla að gleypa heiminn. Í þeim bransa er lélegt orðspor enn meiri "killer" á reksturinn.

Það er létt að vera vitur eftir á... =D>

Kalla þetta frekar, ekki vera með raunsæjar væntingar og vera búinn að reikna út kostnað móti innkomu.
Snýr ekkert um að vera vitur eftir á.

Ekki ósvipað og það sé hægt að vera vitur eftir á með WOW.
Þar sem viðskiptamódelið var svo ruglað að það er hægt að heimfæra það þannig að þeir voru að tapa 1.000 kr á hverjum farþega sem þeir fluttu.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Þri 25. Jún 2019 13:58
af Tbot
Mossi__ skrifaði:Og það er mikill kostnaður og gríðalega mikil vinna sem fylgir því að flytja, ásamt því að það er slæm þjónusta fyrir kúnnan að flytja oft.

Húsnæðið sem þeir voru í í Borgartúni var ekki gott. Allt of lítið bæði verslunin og baka til. Aðgengið þá var slæmt og hefur bara versnað eftir breytingar gatnakerfisins.

Það að þeir skulu hafa flutt var hárrétt og nauðsynleg ákvörðun.

Það að þeir skulu ekki hafa flutt aftur er skiljanleg ákvörðun (reyndar e.t.v. mengað af sunken cost fallacy líka, en ekki eingöngu).

Eg tel frekar að orðsporið hafi orðið þeim að falli, m.t.t
Ábyrgðarmála og annarra neytendalagabrota sem og almenn þjónusta.

Það vita það allir að það er kostnaður að flytja, en það kostar líka alltof mikið að vera í of dýru húsnæði. Það er ekkert slæm þjónusta þó fyrirtæki flytji, snýst meira um að koma vel þeim upplýsingum til skila.

Fyrirtækið fór á hausinn.
Hvernig getur þú sagt að það var hárrétt að flytja, þegar eigendur segja að nýja húsnæðið var það sem sökkti þeim (þeirra útskýring)
Þó aðstaða í Borgartúni hafi ekki verið sú besta, þá virtist reksturinn vera að ganga.

Hvort þú sért einstaklingur eða fyrirtæki og ert í allt of stóru og dýru húsnæði, þá minnkar þú við þig ef þess er nokkur kostur. Því annars ferð þú á hausinn einfaldlega.

Því miður lyktar þetta af of miklum væntingum og of litlum útreikningum.

Sem dæmi, hvað voru þeir að selja fyrir mikið í Borgartúni og síðan kostnaður.
Eina sem þú getur gefið þér við Hallarmúlan er að halda sömu sölu en kostnaður eykst vegna stærra og dýrara húsnæðis.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 26. Jún 2019 02:33
af teytur
Fokk. Ég var akkúrat að fara kaupa BenQ skjá hjá þeim næstu mánaðamót. Þeir voru orðnir eina tölvuverslunin á íslandi sem að selur BenQ skjái. Ég man að þeir seldu þá líka í Kísildal fyrir ekkert svo löngu en ekki lengur.
Ég bara vona að einhver önnur verslun pikki upp umboðið eftir þá. Eini aðri valkosturinn minn er að panta skjáinn af netinu en því mun eflaust fylgja einhver turbo tollur :/

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 26. Jún 2019 11:52
af russi
teytur skrifaði:Ég bara vona að einhver önnur verslun pikki upp umboðið eftir þá. Eini aðri valkosturinn minn er að panta skjáinn af netinu en því mun eflaust fylgja einhver turbo tollur :/

Get kætt þig með því að ef þú pantar skjá að utan þarftu ekki að borga toll, en skatt þarftu að borga.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 26. Jún 2019 13:57
af Emarki
Flutningskostnaður er yfirleitt svo dýr fyrir skjái að það borgar sig ekki ef maður getur fengið hann í búð hérlendis eða annan sambærilegan.

Kv. Einar

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 26. Jún 2019 14:12
af Moldvarpan
Hvað verður um lagerinn hjá Tölvutek? Það var engin rýmingarsala fyrir lokun.

Þeir hljóta að selja lagerinn upp í skuldir.

Mér finnst þetta soldið spes, hvernig þetta er orðað.

Mynd

Eins og þeir hafi í hyggju að byrja með vefverslun á annari kt?

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 26. Jún 2019 15:40
af Skaz
Moldvarpan skrifaði:Hvað verður um lagerinn hjá Tölvutek? Það var engin rýmingarsala fyrir lokun.

Þeir hljóta að selja lagerinn upp í skuldir.

Mér finnst þetta soldið spes, hvernig þetta er orðað.

Eins og þeir hafi í hyggju að byrja með vefverslun á annari kt?

Neih ætli þetta hafi ekki verið meira það að þeir bjuggust við að þessu yrði reddað á síðustu metrunum einhvernveginn og að samningar myndu nást. Hafa vonað að kröfuhafar myndu vilja halda þeim gangandi. Þetta hefur verið óvænt.

En nú er ég að pæla að sömu eigendur og eru að Tölvutek hafa verið að sjá um rekstur Kids Coolshop sem að kom í stað Toys r' Us. Það er að vísu í samvinnu við danskt móðurfélag skilst mér.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 26. Jún 2019 20:16
af Hjaltiatla
Held að þetta gerist í ansi mörgum fyrirtækjum sem eru ekki á tánum, þau verða feit og keyra á autopilot og Boom allt í einu eru aðrir
búnir að taka fram úr þér á markaðinum. Hins vegar hefur mér alltaf fundist alveg glatað að fullt af fyrirtækjum hérlendis fá afskrifað slatta af skuldum þegar það á að vera samkeppni hérna á Íslandi.Finnst það hálfgerð meðvirkni og mætti líkja við að gefa börnum í 8-10 sæti verðlaunapening fyrir að taka þátt.
Random listi tekinn af Wikipedia:
https://is.wikipedia.org/wiki/Listi_yfir_afskriftir_fyrirt%C3%A6kja_%C3%AD_kj%C3%B6lfar_efnahagshrunsins_2008

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 27. Jún 2019 12:36
af urban
Hjaltiatla skrifaði:Held að þetta gerist í ansi mörgum fyrirtækjum sem eru ekki á tánum, þau verða feit og keyra á autopilot og Boom allt í einu eru aðrir
búnir að taka fram úr þér á markaðinum. Hins vegar hefur mér alltaf fundist alveg glatað að fullt af fyrirtækjum hérlendis fá afskrifað slatta af skuldum þegar það á að vera samkeppni hérna á Íslandi.Finnst það hálfgerð meðvirkni og mætti líkja við að gefa börnum í 8-10 sæti verðlaunapening fyrir að taka þátt.
Random listi tekinn af Wikipedia:
https://is.wikipedia.org/wiki/Listi_yfir_afskriftir_fyrirt%C3%A6kja_%C3%AD_kj%C3%B6lfar_efnahagshrunsins_2008

Þetta með að vera á móti afskriftum er rosalega falleg hugmynd.

En er eitthvað betra að þessir hundruði eða þúsundir milljarða væru enn í mínus í bankakerfinu ?

Semsagt, einsog með tölvutek, gefum okkur að það séu skuldir uppá 700 milljónir og eiginir uppá 500 milljónir.
Hvað á að gera við restina annað en að afskrifa það ?

Ef að það ætti að setja þetta allt á viðkomandi eigendur, þá er alveg öruggt mál að það væru mjög mjög fá fyrirtæki í rekstri í dag.
Það er ekki nema ákveðin prósenta af fólki sem að fer út í fyrirtækjarekstur og ef að þeir mega ekki setja fyrirtæki á hausinn og fá afskrifaðar skuldir, þá reyna ennþá færri að stofna fyrirtæki.

t.d. væru annsi fáir veitingastaðir í rvk, ef að staður þar fer á hausinn, þá er gríðarlega algengt að menn stofni annan stað.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 27. Jún 2019 12:43
af Hjaltiatla
urban skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Þetta með að vera á móti afskriftum er rosalega falleg hugmynd.

En er eitthvað betra að þessir hundruði eða þúsundir milljarða væru enn í mínus í bankakerfinu ?

Semsagt, einsog með tölvutek, gefum okkur að það séu skuldir uppá 700 milljónir og eiginir uppá 500 milljónir.
Hvað á að gera við restina annað en að afskrifa það ?

Ef að það ætti að setja þetta allt á viðkomandi eigendur, þá er alveg öruggt mál að það væru mjög mjög fá fyrirtæki í rekstri í dag.
Það er ekki nema ákveðin prósenta af fólki sem að fer út í fyrirtækjarekstur og ef að þeir mega ekki setja fyrirtæki á hausinn og fá afskrifaðar skuldir, þá reyna ennþá færri að stofna fyrirtæki.

t.d. væru annsi fáir veitingastaðir í rvk, ef að staður þar fer á hausinn, þá er gríðarlega algengt að menn stofni annan stað.

Ok
Er aðallega að tala um fyrirtæki sem halda áfram með reksturinn og fá helling afskrifað en eru ennþá að keppa við fyrirtæki sem kunna að reka fyrirtæki sitt í hagnaði - á sléttu eða í það minnsta án þess að hella sér í þvílíkar skuldir að þau ráða ekki við lánin.

Eðlilegra að mínu mati svo allir séu jafnir (samkeppnissjónarmið) að fyrirtæki sé sett í þrot.

Edit: En hey feitu fyrirtækin þurfa að fá að vera með =D>

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 02:24
af HalistaX
Þetta er að verða svoldið einmanalegt, það liggur við að samkeppni á tölvudóti hafi bara horfið á Íslandi, ef útí öfga er farið þar að segja....

einmanalegt.PNG
einmanalegt.PNG (35.13 KiB) Skoðað 3455 sinnum

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 03:32
af pepsico
Já það er mikill missir að Tölvutek/Ódýrið & Buy.is séu horfin úr landslaginu. Kannski pæling að fyrrverandi yfirmenn Tölvuteks fari í rekstur með Friðjóni Björgvins? Það væri óstöðvandi teymi: reynsluboltar í að svívirða lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, lög um neytendakaup o.s.frv. sem myndu í þokkabót ekki að skila inn virðisaukaskatt? Þá fyrst sæjum við almennilega "samkeppni" hérna á skerinu.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 09:56
af Arena77
Þeir voru komnir með allt of mikla yfirbyggingu, Stækka húsnæðið var bara klikkun svona verslun þarf ekki svona stórt húsnænæði, 50 Starfsmenn er bara geðveiki hvað haldið að kosti að vera með 50 starfsmenn á fullum launum á mánuði, persónulega er ég hættur að fara inn í venjulega tölvuverslun, fæ alltaf lélega þjónustu og starfsmenn fáfróðir, kaupi allt á netinu sem ég þarf. Þeir hefðu átt að vera búnir að loka Tölvuteki fyrir löngu og halda sig við Ódýrið.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 13:37
af natti
Arena77 skrifaði:Þeir voru komnir með allt of mikla yfirbyggingu, Stækka húsnæðið var bara klikkun svona verslun þarf ekki svona stórt húsnænæði, 50 Starfsmenn er bara geðveiki hvað haldið að kosti að vera með 50 starfsmenn á fullum launum á mánuði,

Það mætti halda að þú sért að kenna húsnæðinu og öllu starfsfólkinu fyrir því að þetta var ekki arðbært, en ekki...
Arena77 skrifaði:persónulega er ég hættur að fara inn í venjulega tölvuverslun, fæ alltaf lélega þjónustu og starfsmenn fáfróðir, kaupi allt á netinu sem ég þarf. Þeir hefðu átt að vera búnir að loka Tölvuteki fyrir löngu og halda sig við Ódýrið.

Þetta er samt bara málið í hnotskurn, fólk fær betra verð "á netinu" og verslar þar.
Svo má benda á þjónustu og þekkingu eða þekkingarleysi starfsfólks til að réttlæta e-ð fyrir sjálfum sér, því það er ekki eins og "þjónustan" eða aðstoðin sé betri í netverslunum. (Eða til staðar yfirhöfuð í mörgum tilfellum.)

Tímarnir breytast, fólk verslar í auknum mæli þar sem það hentar því best, sent heim að dyrum, og local verslanir líða fyrir það.

En mikið er samt leiðinlegt að hlusta á eða lesa athugasemdir um meint þekkingarleysi starfsfólks.
Ef þú ert sérfræðingur í einhverju, hverju sem er, eða mikill áhugamaður/kona, þá eru góðar líkur á því að þú sért með meiri þekkingu en starfsmaður í verslun, óháð því hver varan er. (Spyrjið t.d. iðnaðarmenn út í þekkingu starfsfólks í stærri byggingarvöruverslununum og fáið nákvæmlega sömu sögu.)
Oft á tíðum er þetta staður þar sem fólk er meðan það er að læra, og starfsfólk reynir almennt að gera sitt besta í flestum verslunum sem ég hef komið í.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 14:13
af Manager1
Verslanir verða að aðlaga sig að breyttum neysluvenjum neytenda. Ef neytandinn vill frekar versla á netinu heldur en að fara í búðina þá verður búðin einfaldlega að aðlaga sig að því.

Ég veit t.d. um marga í Bandaríkjunum sem versla allt sem þeim vantar á Amazon og fá seint heim að dyrum daginn eftir með Prime, svona viðskipti virðast vera framtíðin, a.m.k. næstu 10 árin, hver veit hvað tekur við þá.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 15:29
af Hauxon
Manager1 skrifaði:Verslanir verða að aðlaga sig að breyttum neysluvenjum neytenda. Ef neytandinn vill frekar versla á netinu heldur en að fara í búðina þá verður búðin einfaldlega að aðlaga sig að því.

Ég veit t.d. um marga í Bandaríkjunum sem versla allt sem þeim vantar á Amazon og fá seint heim að dyrum daginn eftir með Prime, svona viðskipti virðast vera framtíðin, a.m.k. næstu 10 árin, hver veit hvað tekur við þá.

Pósturinn kemur í veg fyrir það. Sendingarkostnaður er of hár og afhendingartíminn of langur. Ég bý á Akranesi og ef ég panta voru frá Rvk tekur það 3-4 virka daga að skila sér. Auk þess kostar sendingin oft meira en bensínið fram og til baka í búðina. Eitthvað stórkostlega rangt við logistíkina hjá Póstinum.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 15:59
af Benzmann
Hauxon skrifaði:

hah, þessi sendingartími sýnir vel hvað pósturinn er með allt niðrum sig.
Ég hef verið að panta mikið af vörum EuroDK.com, þeir senda frá Lettlandi.
sendingartíminn þar er einmitt 3-4dagar. og jafnvel ódýrari heldur en pósturinn.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 16:06
af Hjaltiatla
Það er alveg augljóst að það fara ansi margar verslanir (Ekki bara tölvuverslanir) í þrot fljótlega ef verð er algjörlega í botni og það er réttlætt með launakostnaði starfsmanna og yfirbyggingu fyrirtækja.

64 pró­sent­um hærra verð en meðaltalið í Evrópu Skv Hag­stofu Nor­egs hérna á klakanum
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2019/06/25/island_dyrasta_land_evropu/

Manni finnst ágætt að fara í verslanir og skoða en ef það þýðir óeðlilega mikið hærra verð þá vel ég að versla vöru erlendis eða bíð eftir því að ég fari erlendis og versla vörur þar (Fæ ekki vott af samviskubiti yfir því þó svo maður vilji helst styðja við íslenska verslun ef veskið manns er ekki misnotað í leiðinni).

Edit: Í dag þurfa verslanir sérstaklega að taka það fram að þau hafi ekki hækkað verðið fyrir útsölu til að laða fólk til sín á réttum forsendum (Dæmi:Nexus fyrr í vikunni)

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Mið 03. Júl 2019 23:47
af Tiger
Man einhver hvaða framleiðandi var á aukabúnaðinum fyrir netið sem þeir voru að selja?

Var búinn að setja í körfum 9u netskáp, patchpanel ofl ofl en það hvarf, var nett vara og fínt verð og langar að finna sömu vörur annar staðar.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 04. Júl 2019 00:32
af einarhr
Tiger skrifaði:Man einhver hvaða framleiðandi var á aukabúnaðinum fyrir netið sem þeir voru að selja?

Var búinn að setja í körfum 9u netskáp, patchpanel ofl ofl en það hvarf, var nett vara og fínt verð og langar að finna sömu vörur annar staðar.

Minnir að það hafi verið Trendnet

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 04. Júl 2019 13:09
af Hjaltiatla
Tiger skrifaði:Man einhver hvaða framleiðandi var á aukabúnaðinum fyrir netið sem þeir voru að selja?

Var búinn að setja í körfum 9u netskáp, patchpanel ofl ofl en það hvarf, var nett vara og fínt verð og langar að finna sömu vörur annar staðar.

Öreind eru með ágætis skápa og patch panel-a
https://www.oreind.is/product-category/netlagnakerfi/skapar/6-42u/

Get reyndar minna sagt um muninn á þeim og þeim sem voru í boði hjá Tölvutek (sá þá aldrei).

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 04. Júl 2019 15:14
af urban
Tiger skrifaði:Man einhver hvaða framleiðandi var á aukabúnaðinum fyrir netið sem þeir voru að selja?

Var búinn að setja í körfum 9u netskáp, patchpanel ofl ofl en það hvarf, var nett vara og fínt verð og langar að finna sömu vörur annar staðar.

https://web.archive.org/web/20181020233 ... etbunadur2

Veit ekkert um það hvort að þetta hjálpi þér eitthvað :)

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 04. Júl 2019 15:57
af Tiger
Takk fyrir þett, fínt úrval hjá Öreind.

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 15:42
af Storm
https://www.origo.is/um-origo/frettir/frett/item137305/tolvutek-tekur-til-starfa-a-ny/?fbclid=IwAR0avNdavH2CteFMp7ZivGwmdbbDqiL8AIEuokr7roehSPraX0sjo9yA88c
Tölvutek tekur til starfa á ný
11.07.2019

Tölvutek, sem hætti starfsemi í sumar, mun taka til starfa að nýju á næstu vikum, en nýtt félag verður dótturfélag Origo, með aðkomu nokkurra starfsmanna Tölvuteks.

Tölvutek í nýrri mynd mun einbeita sér að sölu á búnaði og lausnum til einstaklinga og heimila. Fyrirtækið mun meðal annars bjóða Lenovo tölvur fyrir einstaklingsmarkað auk tölvubúnaðs frá öðrum þekktum vörumerkjum.

Origo mun einbeita sér að sölu og markaðssetningu á Lenovo tölvum og tengdum búnaði til fyrirtækja og stofnana. Ábyrgðarþjónusta Tölvuteks verður hjá Origo.

Stefnt er að opnun Tölvuteks innan nokkurra vikna á tveimur stöðum í Reykjavík og á Akureyri.

Áhugavert! Hlakka til að sjá hvernig þetta verður útfært

Re: Tölvutek lokar verslunum

Sent: Fim 11. Júl 2019 16:40
af Mossi__
Þetta kalla ég nú spennandi fréttir.