Síða 1 af 1

Oculus Quest

Sent: Fös 24. Maí 2019 23:33
af appel
Fékk þessa græju á miðvikudag. Verð að segja að þetta tæki kemur mér á óvart. Hef átt öll vr tæki hingað til.. en þetta tæki, quest, er sennilega stærsta vr byltingin hingað til. Allt í einu uniti ásamt 2 stýripinnum. Ekki mesta performance.. en byrjunin á því sem koma skal.

Re: Oculus Quest

Sent: Sun 26. Maí 2019 22:07
af RobertSaedal
Keypturu græuna beint frá Ocules ? ef svo þurftiru að borga toll með þeirra útreikning?
Lookar alveg skemmtileg, átti Vive en var alltaf vesen með room scale í tölvuherbiki og þetta hljóar vel.

Re: Oculus Quest

Sent: Mán 27. Maí 2019 08:14
af fhrafnsson
Er einmitt mjög forvitinn með tolla og þau gjöld. Ætlaði að kaupa af amazon (Rift S á uþb 430 pund) en það er orðið uppselt svo nú er maður að spá í fleiri möguleikum.

Re: Oculus Quest

Sent: Mán 27. Maí 2019 09:59
af Hjaltiatla
Nice.. Hvað notaru græjuna í þ.e hvaða leiki spilaru og þess háttar ?

Tek einmitt eftir að í AR heiminum að Google er að reyna að herja á Enterprise markaðinn með "Google glass" lausninni sinni sem keyrir á Android Oreo.
https://www.google.com/glass/start/

Re: Oculus Quest

Sent: Mán 27. Maí 2019 17:51
af appel
Verðið sem er gefið upp á oculus.com er með sköttum og sendingarkostnaði, það er 0% tollur.
A.m.k. borgaði ég ekkert auka, og félagi minn borgaði ekkert auka, umfram það sem var greitt á oculus.com.

Þetta er einhver 62-63 þús kr.

Re: Oculus Quest

Sent: Mán 27. Maí 2019 18:13
af appel
Hjaltiatla skrifaði:Nice.. Hvað notaru græjuna í þ.e hvaða leiki spilaru og þess háttar ?


Hingað til hef ég bara verið að prófa demoin og sýna öðrum gripinn. Allir mjög hrifnir, og augljóst að þetta er orðið mun auðveldara fyrir fólk að nota en áður fyrr.
Þú getur fengið einhverja leiki í þetta, framboðið er hér:
https://www.oculus.com/experiences/quest