Síða 1 af 1

Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fim 16. Maí 2019 18:57
af appel
Hvaða sæti spáiði að við lendum í?

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fim 16. Maí 2019 21:46
af GuðjónR
Ég vona innilega að þeir nái fyrsta sætinu, en miðað við pólitíkina í þessu þá er það kannski ekki líklegt.
Ætla að spá þriðja sæti.

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fim 16. Maí 2019 22:10
af gutti
Èg segi top 20 :thumbsd

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fim 16. Maí 2019 22:14
af Hjaltiatla
Þessir 7 sem spá Hatara 1.sæti geta verslað sér sjónvarp frítt hjá Heimkaup \:D/

Edit: Hatari á ekki séns í San Marínó -Nanana

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fim 16. Maí 2019 22:26
af appel
Ég er á báðum áttum með þetta. Sennilega eiga íslenskir fjölmiðlar sinn þátt í "disinformationi", að heilaþvo okkur með jákvæðum fréttaflutningi svo við kokgleypum þeirri tilhugsun að við getum unnið, en svo lendum við í 17. sæti eða álíka.

En svona lög sem brjóta norm hafa unnið oft, Lordi frá Finnlandi er dæmi um það. En ethnískar ballöður hafa líka oft sigrað.

Þannig að maður veit aldrei.

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fös 17. Maí 2019 00:29
af gnarr
Hefðin er 2. sæti á 10 ára fresti.

1999 - All out of luck
2009 - Is it true
2019 - Hatrið mun sigra

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fös 17. Maí 2019 00:46
af HalistaX
Það eru allir svo peppaðir fyrir Hatara að ég hef ekki einu sinni heyrt hin lögin í keppninni....

Hef ávallt hunsað þessa keppni en andstæðingarnir hafa alltaf tekið mun meira pláss í fjölmiðlum í fortíðinni, svo mikið pláss að maður er um þetta leiti alveg heilaþveginn af öllum lögunum sem keppa, þessum helstu að minnsta kosti...

En ég hef bara heyrt Hatrið Mun Sigra í þetta skiptið as far as I know....

Ég óska þeim bara góðs gengis, elska þetta lag, spái um 2-5 sæti fyrir þá. Gyðingarnir eru aldrei að fara að leyfa þeim að vinna þetta dót, svo mikið er víst...

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fös 17. Maí 2019 11:16
af Hauxon
16. sætið frátekið fyrir okkur er það ekki?

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fös 17. Maí 2019 11:41
af appel
Google spáir Íslandi öðru sæti í Eurovision – Nokkrum stigum frá sigrinum – Svona eiga stigin að skiptast
https://www.dv.is/fokus/2019/5/17/googl ... -skiptast/

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Lau 18. Maí 2019 20:47
af appel
Ísland fór úr 6. sæti í 5. sæti rétt áðan, og svo droppum við í 8. sæti í veðbönkunum.

Jæja...

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Lau 18. Maí 2019 21:50
af appel
9. sætið.

Hljóðtruflanir.

Var þetta af ásettu ráði?

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Sun 19. Maí 2019 00:06
af appel
Vaktarar höfðu rétt fyrir sér. Stærsta stikan spáði 6.10. sæti.

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Sun 19. Maí 2019 12:32
af rapport
Allir annars sáttir við Hatarana?

Þessi örlitla treflastrekking virðist hafa hrist upp í fólki.

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Sun 19. Maí 2019 13:03
af Frost
Ég var mjög sáttur við þetta. Gaman að hræra aðeins upp í þessu :D

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Sun 19. Maí 2019 15:39
af nidur
Ég held að þeir sem séu ósáttir séu lítið að láta í sér heyra, aðalega þessir sáttu sem eru að missa sig í commentum og tala fyrir alla á íslandi eins og hatarar gerðu. Það hefðu verið sterkari skilaboð að taka ekki þátt.

Burtséð frá því hvað mér finnst um ástandið þarna úti þá fannst mér þetta ekki í lagi.

Svo getur verið að höturum sé skítsama um palestínu og noti þetta platform bara til að koma sér betur á framfæri.

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Sun 19. Maí 2019 18:08
af Viktor
appel skrifaði:Vaktarar höfðu rétt fyrir sér. Stærsta stikan spáði 6.10. sæti.


Fyndið, því Ísland lenti í 6. sæti í kosningunni en dómnefndirnar færðu niður í 10.

Allt saman rétt hjá Vökturum :lol:

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Sun 19. Maí 2019 21:15
af worghal
Mig langar að benda á þá skemmtilegu staðreind að ef Friðrik Dór hefði farið út þá hefði það verið nákvæmlega það sama og bretland og við hefðum skorað álíka lágt :lol:

Re: Hatari mun sigra? Í hvaða sæti lendum við?

Sent: Fös 24. Maí 2019 14:52
af Hjaltiatla
HATARI – KLEFI / SAMED (صامد) Feat. BASHAR MURAD
https://www.youtube.com/watch?time_continue=194&v=Xy84LnL_ghA